Morgunblaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Teikningarnar eru einskonarfarartæki fyrir sögurnar,“segir Lóa Hlín Hjálmtýs-dóttir, teiknari og höf-
undur bókarinnar Lóaboratoríum -
Nýjar rannsóknir, sem er gerð til að
kitla hláturtaugar lesandans með
skemmtilegum og skrýtnum sögum
úr daglegu lífi, sem settar eru í bún-
ing myndasagna.
Lóa hefur lengi teiknað upp
sögur og því er bæði að finna gamlar
og nýjar sögur í bókinni sem er
framhald af bók Lóu sem gefin var
út í fyrra, Lóaboratoríum.
„Ég hef meiri áhuga á sögunum
núna og því eru teikningarnar frjáls-
legri,“ segir Lóa en sögurnar í bók-
inni byggjast að hluta á hennar eigin
daglega lífi. Eftir að teiknimynda-
sögurnar hennar fóru að birtast í
Fréttatímanum fór boltinn að rúlla
og var það Hugleikur Dagsson sem
dró hana með sér inn til bókaútgáf-
unnar Forlagsins. „Hann sagði mig
hafa skrýtnustu samningatækni sem
hann hefði séð,“ segir Lóa sem í
fyrstu reyndi að fá útgefandann ofan
af því að gefa út bókina. „Mér sýnd-
ist hann vera þannig á svipinn að
hann ætlaði að hætta við þannig að
ég sannfærði hann bara um að gera
þetta ekki,“ segir Lóa hlæjandi en
allt kom fyrir ekki og bókin var gefin
út við góðar undirtektir.
Lóa situr þó ekki auðum hönd-
um á milli bóka, en hún er einnig
söngvari í hljómsveitinni FM Belfast
og fæst við skúlptúra, límmiða og
myndlist, meðal annars. Þá skrifaði
hún einnig fyrir sjónvarpsþættina
Hulla sem sýndir voru í Ríkisútvarp-
inu.
Ekki viðundur í fjölskyldunni
„Það hentar fólkinu í sögunum
að vera svona óreglulegt og út um
allt því það er allt svo ruglað, mikið
Óregluleg og út um allt
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, teiknari, situr ekki auðum höndum fyrir jólin en hún
sendir frá sér bókina Lóaboratoríum og hannar heilt jólaland í Norræna húsinu.
Í skammdeginu er ekki úr vegi að
leita inn í hlýjuna og auðga andann
með fallegum tónum.
Á nýju kaffihúsi, Reykjavík Roas-
ters, Brautarholti 2, verður haldin
kvöldstund með fjórum söngskáldum
í dag, 2. desember kl. 20, þar sem
þau munu deila töfrum sínum með
gestum og gangandi.
Heidatrubador, Adda, Markús og
Marteinn Sindri koma fram og syngja
lög úr sarpi sínum. Heidatrubador er
að vinna að sólóplötu sem kemur út
von bráðar og Marteinn Sindri er tón-
listarmaður sem semur angurvær og
falleg lög eins og enginn sé morgun-
dagurinn. Þá gaf Markús nýverið út
plötu með hljómsveit sinni og tekur
lög af þeirri plötu sem og önnur lög.
Adda gaf út um árið plötuna My Brain
sem innihélt texta og lagasmíð sem
vakti athygli.
Frábært tækifæri til að hlýða á lög
og texta sem eru ný af nálinni en frítt
er inn. Plöturnar verða einnig til sölu
á staðnum.
Söngskáld heimsækja Reykjavík Roasters
Ljósmynd/Hjörleifur Jónsson
Lög Söngskáldið Markús er einn af fjórum sem koma fram á Reykjavík Roasters.
Tónleikar yfir rjúkandi kaffinu
„Til að örva hugann og sköpunar-
kraftinn er gott að komast af og til af
bæ. Komast í burtu að heiman … fara
út í veröldina, veifa vængjum og
sperra stél.“ Svona er sýningu Sig-
rúnar Eldjárn lýst en hún hefst á
morgun 3. desember í Grófinni kl. 17.
Sýnd verða brot úr dvöl hennar í
Circolo Scandinavo í Róm og í Kjar-
valsstofu í Cité des Arts í París vet-
urinn 2014-2015.
Dularfulli staðurinn Skuggasker
kemur einnig við sögu en þriðja og
síðasta bókin í þríleiknum um
Strokubörnin á Skuggaskeri verður
kynnt á opnun sýningarinnar.
Sigrún Eldjárn sýnir ný verk í Grófinni
París, Róm og
Skuggasker
Mynd/Borgarbókasafnið
List Myndlistarsýning og bókarkynn-
ing í Artóteki Borgarbókasafnsins.
Jólin nálgast og nú er tíminn til að
hefjast handa við skreytingarnar.
Fátt er jafn yndislegt og að skreyta
heimilið með handgerðu jólaskrauti.
Síðastliðin ár hefur verið vinsælt að
hekla bjöllur, jólakúlur og snjókorn.
Mæðgurnar Elín Kristín Guðrúnar-
dóttir og Guðrún María Guðmunds-
dóttir hjá Handverkskúnst mæta kl.
20 í kvöld, 2. desember, og kynna
jólaprjón og hekl í handverkskaffi í
Borgarbókasafninu - Menningarhúsi
Gerðubergi. Þær koma með upp-
skrift að annars vegar prjónaðri jóla-
kúlu og hins vegar heklaðri og verða
aukinheldur með sýnikennslu.
Báðar eru þaulvanar hannyrða-
konur, sem hafa haldið mörg nám-
skeið í ýmiss konar jólaprjóni og
hekli og eru boðnar og búnar til að
aðstoða þátttakendur. Þeir sem vilja
prófa þurfa að koma með eftirfar-
andi:
Heklgarn nr. 10, jólakúlu, 7 cm
þvermál / 22 cm ummál, heklunál
nr. 1,75, prjóna nr. 2,5.
Handverkskaffi hefur verið
á dagskrá í Gerðubergi
fyrsta miðvikudagskvöld
hvers mánaðar síðan
haustið 2008. Markmiðið
með þessum kvöldum
er að bjóða upp á
notalega kvöld-
stund þar
sem gestir
geta kynnst
spennandi
handverki.
Boðið er
upp á stutt-
ar skemmti-
legar kynningar
og stundum sýni-
kennslu, allt eftir viðfangsefni
kvöldsins.
Það er alltaf eitthvað skemmtilegt
um að vera í Gerðubergi á miðviku-
Prjón og hekl í Gerðubergi í Breiðholti
Uppskrift að hekluðum og
prjónuðum jólakúlum og -bjöllum
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 -
Opið virkadaga 10-18 - Laugardaga 11-18
Falleg og mjúk handklæði
í jólapakkann
Ný sending af handklæðum
Úrval - gæði - þjónusta