Morgunblaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 11
að öskra, sveifla höndunum, brjálast
og geifla sig,“ segir Lóa um þann stíl
sem hún hefur tileinkað sér í mynda-
sögunum og skín skýrt í gegn. Kar-
akterarnir eru allir mismunandi og
henni finnst leiðigjarnt að teikna
sömu persónuna oft.
„Maður getur flett hvar sem er í
bókinni og byrjað að lesa – maður
þarf ekkert að byrja á fyrstu blað-
síðunni,“ segir Lóa en bókin sé til-
valin á sófaborðið, í möndlugjöf eða í
jólapakkann.
Lóa hefur lengi haft áhuga á list
og teikningu en pabbi hennar,
Hjálmtýr Heiðdal, var auglýs-
ingateiknari og fór svo yfir í kvik-
myndagerð. „Hann var alltaf að
teikna fyrir mig þegar ég var lítil og
öll blöð í kringum símann og síma-
skráin voru alltaf myndskreytt,“
segir hún létt í bragði en móðir
hennar hafi líka hvatt hana til að
fara þessa leið í lífinu.
„Ég er ekki eitthvert viðundur
úr lögfræðingafjölskyldu,“ segir hún
hlæjandi en flestir í fjölskyldunni
séu í skapandi greinum af einhverju
tagi. „Ég hef held ég aldrei tekið
praktíska ákvörðun í lífinu – eða jú;
það er endurskoðandi sem gerir
skattaskýrsluna mína.“
Teikningar hafi þó verið að
ryðja sér til rúms á síðustu árum og
meiri áhugi sé til staðar. „Ég er til
dæmis ekkert viss um að ég hefði
fengið að gefa þessa bók út fyrir
svona tíu árum,“ segir hún en nýlega
hafi kennsla í faginu farið á fullt og
margir sótt í námið hjá Listaháskóla
Íslands.
Jólalandið í Norræna húsinu
Uppsetning jólalands í Nor-
ræna húsinu var einnig í höndum
Lóu fyrir jólin en hún hannaði líka
jóladagatal hússins. Sýningin var
opnuð í fyrradag, 1. desember, og
stendur fram til jóla en hún er hluti
af dagskrá Norræna hússins.
„Þetta er jólasýning sem er sett
upp eins og einhver hafi lesið um jól-
in en aldrei upplifað þau – þetta sé
byggt á misskilningi,“ segir Lóa en
fyrir manneskju sem er kannski ný-
komin undan ísöld og rekst á bók um
jólin hljóti megininntakið að vera
eitthað á þessa leið:
„Snyrtileg meyfæðing, hálf-
mennskt afmælisbarn, heilög kona
sem á í sambandi við guð en er samt
líka að dingla sér með indælum
smiði, gáfaðir þríburar, marglitir
kassar með slaufum, börn með tryll-
ingsglampa í augunum, einhvers
konar ljósvera, mögulega álfadrottn-
ing, rauðir menn með húfur og poka,
ljós, glimmer, stemning og kanill.“
Morgunblaðið/Golli
Jólastemning Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir hannaði og setti upp jólaland Norræna hússins í ár. „Örugglega litríkasta herbergið í Reykjavík akkúrat núna,“ seg-
ir hún en gestir og gangandi geta notið jólalandsins í Norræna húsinu fram að jólum. Þar verða einnig viðburðir í hádeginu á vegum jóladagatalsins.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015
MÁ BJÓÐA ÞÉR
Í SJÓNMÆLINGU?
Með öllum gleraugum
fylgir annað par af glerjum
í sama styrk frítt með
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími 554 3200
Opið virka daga 9.30-18, laugardaga 11–14dagskvöldum. Dagskráin á þessu
misseri skiptist í Handverkskaffi,
Sagnakaffi, Heimspekikaffi og Leik-
húskaffi.
Skreytum og
gleðjum Jólaprjón
og -hekl nýtur sí-
vaxandi vinsælda.
„Dagatalið er blokkin sem ég ólst upp í og það eru jólaminningar tengdar
því fyrir hvern dag,“ segir Lóa Hlín sem hannaði jóladagatal Norræna
hússins í ár. Dagatalið er lifandi en boðið er upp á fjölbreytta dagskrá
fram að jólum, t.d. tónlistaratriði, upplestur og dans.
En rétt eins og börnin vita ekki hvaða óvænta góðgæti leynist á bak við
gluggana, þá vita gestir Norræna hússins ekki hvað er í boði fyrr en
glugginn er opnaður í hádeginu og bjöllunni hringt.
Lifandi og óvænt jóladagatal
ÁRLEG JÓLAHEFÐ NORRÆNA HÚSSINS
Fimmti fyrirlest-
urinn í hádegis-
fyrirlestraröð
RIKK á haust-
misseri verður
fluttur kl. 12 á
morgun, fimmtu-
dag 3. desember, í
fyrirlestrasal
Þjóðminjasafns-
ins. Fyrirlestur-
inn nefnist „Hul-
inn þúsund slæðum: Veruleiki
samkynhneigðra karlmanna í Íran“.
Jón Ingvar rekur sögulega þróun
kynvitundar í Íran. Ennfremur ræðir
hann um hvernig orðræðan um
homma í Íran hefur þróast á Vestur-
löndum.
Í þeim efnum hafa alþjóðleg sam-
tök homma og lesbía dregið upp mjög
svo svarta mynd af stöðu samkyn-
hneigðra í Íran, lýst þeim aðallega
sem fórnarlömbum frekar en virkum
gerendum sem reyna að skapa sér
rými fyrir líf sitt og tilfinningar. Jón
Ingvar mun greina frá fyrstu niður-
stöðum etnógrafískrar rannsóknar á
því hvernig íranskir hommar, aðal-
lega í Tehran, skapa sér rými, hin-
segin rými á jaðri samfélagsins.
Niðurstöður benda til þess að íransk-
ir hommar, jafnt innan hins opinbera
rýmis sem og einkarýmisins, finni sér
leiðir til að vera þeir sjálfir og veita
tilfinningum sínum útrás. Þeir eru
hins vegar stöðugt meðvitaðir um
kúgun og valdbeitingu samfélagsins í
sinn garð sem minnihlutahóps.
Jón Ingvar lauk doktorsprófi árið
2014 og er aðjunkt og nýdoktor við
Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Hann vinnur að rannsóknum í hin-
segin- og kynjafræðum, félagsfræði
menntunar, menntunarfræðum og
skóla án aðgreiningar.
Fundarstjóri er Þorvaldur Krist-
insson kynjafræðingur.
Fyrirlesturinn er fluttur á ís-
lensku, er öllum opinn og aðgangur
er ókeypis.
Viðburðurinn er á Facebook.
AFP
Veruleiki samkynhneigðra
karlmanna í Íran
Jón Ingvar
Kjaran
Hulinn
þúsund
slæðum