Morgunblaðið - 02.12.2015, Side 12

Morgunblaðið - 02.12.2015, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Halldór Karl Hermannsson, hafnar- stjóri í Reykjanesbæ, segir nýtt samkomulag milli Reykjaneshafnar og svonefnds kröfuhafaráðs skapa svigrúm til að vinna frekar að endur- skipulagningu á skuldum hafnanna. „Við vonumst til að sjá fyrir end- ann á þessum skuldavanda til lengri tíma. Ef við náum því fram sem við erum að vinna að varðandi uppbygg- ingu í höfninni í Helguvík munu allir njóta góðs af, bæði kröfuhafar og samfélagið,“ segir Halldór Karl. Endurnýjaður frestur Greint var frá samkomulaginu í tilkynningu til Kauphallarinnar í gær en það felur í sér framlengingu á samþykktum greiðslufresti og svo- kallað kyrrstöðutímabil til og með 15. janúar 2016. Fram kom í fyrri til- kynningu hafnarinnar til Kauphall- arinnar „15. október … að allir þekktir kröfuhafar Reykjaneshafnar sem ættu skuldbindingar sem væru fallnar í gjalddaga hefðu samþykkt að veita greiðslufrest og kyrrstöðu- tímabil til og með 30. nóvember“. Halldór Karl segir skuldir hafnar- innar nema um 7,5 milljörðum króna. Höfnin þurfi um milljarð króna til að ljúka framkvæmdum sem eru nauðsynlegar til að geta annað væntanlegri starfsemi tveggja kísilvera í Helguvík. Hann segir að þegar þessi starf- semi verði farin af stað muni tekjur Reykjaneshafnar aukast mikið og félagið þar með verða í stakk búið til að greiða niður skuldir. Hann segir ekki horft til niðurfell- ingar á skuldum hafnanna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Helguvík Áform eru um tvö kísilver við höfnina. Uppbygging er hafin. Reykjaneshöfn fær frekari greiðslufrest  Hafnarstjóri vongóður um samning Guðni Einarsson gudni@mbl.is Landshagir, sem geyma nýjar hagtölur um flesta þætti íslensks samfélags, eru komnir út í 25. skipti. Að þessu sinni var ritið ekki prentað heldur einungis birt í vefútgáfu. Hagstofa Íslands hef- ur markað þá stefnu að miða alla miðlun sína við vefinn. Hægt er að nálgast Landshagi á vef Hag- stofunnar (hagstofan.is). Ítarlegar upplýsingar eru um mannfjöldann og breytingar á honum. Landsmenn voru 329.100 hinn 1. janúar 2015 og hafði fjölgað um 3.429 eða 1% á einu ári. Því er spáð að eftir 50 ár, árið 2065, verði Íslendingar orðnir 437.335, 218.824 karlar og 218.511 konur. Í byrjun þessa árs var á lífi 31 Íslendingur sem var 100 ára eða eldri. Því er spáð að eftir hálfa öld verði á lífi 394 Ís- lendingar sem verða orðnir 100 ára og eldri, þar af 52 karlar og 342 konur. Töluvert var um fólksflutninga til og frá landinu. Af 3.400 ís- lenskum ríkisborgurum sem fluttu frá landinu árið 2014 fóru 2.396 til Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar. Flestir fluttu til Nor- egs eða 1.004. Þannig hefur það verið frá 2009. Flestir aðfluttir íslenskir ríkis- borgarar komu frá sömu löndum eða 1.837 af 2.640. Flestir komu frá Danmörku eða 771. Erlendir ríkisborgarar fluttust flestir til Póllands eða 601 af 2.475. Þaðan komu líka 1.393 erlendir ríkis- borgarar. Mikil atvinnuþátttaka hér Á vinnumarkaði árið 2014 voru 187.000 manns, sem jafngildir 81,5% atvinnuþátttöku. Hlutfall starfandi var hæst hér á landi ár- ið 2014 samanborið við 32 önnur Evrópulönd og meðaltal 28 ríkja ESB. Að meðaltali voru hér 9.300 manns án vinnu og í atvinnuleit árið 2014 eða 5.0% vinnuaflsins. Atvinnulausir voru þá 700 færri en árið 2013 þegar atvinnuleysið mældist 5,4%. Árið 2014 var at- vinnuleysi að meðalali 5,4% á höf- uðborgarsvæðinu en 4,1% utan þess. Þá mældist atvinnuleysi 5,1% hjá körlum en 4,9% hjá kon- um. Meðalfjöldi vinnustunda var 39,8 klukkustundir á viku árið 2014. Það er sama og seinustu tvö ár. Launavísitalan hækkaði að meðaltali um 5,8% árið 2014. Meðaltalshækkun kaupmáttar launa var 3,7%. Regluleg heild- arlaun voru 511 þúsund krónur á mánuði. Meðaltal heildarlauna á mánuði var 555 þúsund krónur, 619 þúsund hjá körlum og 486 þúsund hjá konum. Meðallaun fullvinnandi launamanna á al- mennum vinnumarkaði voru 580 þúsund á mánuði 2014, heildar- laun ríkisstarfsmanna voru 603 þúsund og heildarlaun starfs- manna sveitarfélaga 442 þúsund krónur á mánuði. Heildarlaunin voru hæst í fjármála- og vátrygg- ingarstarfsemi eða 763 þúsund krónur að meðaltali. Lægstu heildarlaunin voru í fræðslu- starfsemi, 445 þúsund á mánuði að meðaltali. Það var eina at- vinnugreinin þar sem meðaltal heildarlauna náði ekki 500 þús- und krónum árið 2014. Heimili sem þáðu fjárhags- aðstoð sveitarfélaga á árinu 2014 voru 293 færri en árinu áður. Alls fengu 7.749 heimili fjárhags- aðstoð sveitarfélaga á árinu. Árið 2013 fjölgaði heimilum hins vegar um 306 (4,0%) milli ára og árið 2012 um 21 (0,3%). Þeim hafði fjölgað að jafnaði um 860 árin á undan frá árinu 2007. Mikil atvinnuþátttaka hér  Spá gerir ráð fyrir að Íslendingar verði orðnir 437.335 eftir hálfa öld  Þá verða þeir sem eru 100 ára eða eldri 394, samkvæmt spánni  Hagstofan hættir að láta prenta Landshagi en birtir vefútgáfu Íslenskir ríkisborgarar á Norðurlöndunum 1990-2015 1990 2000 20112009 20131995 2005 20122010 2014 2015 Danmörk Noregur Svíþjóð Færeyjar Finnland Grænland 10.000 9.000 8.000 7.000 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 Fj öl di 1. ja nú ar Heimild: Landshagir 2015/Norræna ráðherranefndin. Landshagamolar » Í janúar 2015 voru 1.137 einstæðir feður á landinu en 11.491 einstæð móðir. » Árið 2014 höfðu 7,0% mannfjöldans erlent ríkis- fang. » Lifandi fædd börn á ævi hverrar konu voru 1,9 2014. » Meðalævilíkur nýfæddra stúlkna árið 2014 voru 83,6 ár en 80,6 ár hjá drengjum. » Atvinnuleysi meðal karla var 5,1% árið 2014 og 4,9% meðal kvenna. » Árið 2013 voru 35,1% út- gjalda til félagsverndar vegna slysa og veikinda. » Árið 2014 voru 278 íbúar á hvern lækni í landinu. » Rúmlega 31.000 manns fengu ellilífeyri árið 2014. » Almannatryggingum var tilkynnt um 210 slys á sjó- mönnum árið 2014. » Sjö leiknar íslenskar kvik- myndir í fullri lengd voru frumsýndar árið 2014. Aðsókn að almennum sýningum leikinna kvikmynda í fullri lengd minnkaði um 16% frá árinu 2009 til síðasta árs. Þetta má sjá af töl- um sem Hagstofa Íslands tók sam- an og eru í Landshögum 2015. Á síðasta ári nam aðsóknin í kvik- myndahús tæplega 1,38 milljónum gesta samanborið við tæplega 1,65 milljónir gesta árið 2009. Samanlagður fjöldi gesta á leik- sýningar leikhúsa, atvinnu- leikhópa og áhugaleikfélaga inn- anlands var 375 þúsund á síðasta leikári. Það jafngildir því að hver landsmaður hafi farið einu sinni í leikhús á leikárinu. Sýningar- gestum fækkaði um 22 þúsund frá fyrra leikári. Fimm atvinnuleikhús voru starfrækt í fyrra. Færri fara í bíó og leikhús MINNA HORFT Á LEIKIN VERK Bíó Íslendingar fara nú orðið sjaldnar í bíó en áður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.