Morgunblaðið - 02.12.2015, Side 14

Morgunblaðið - 02.12.2015, Side 14
Morgunblaðið/Eggert Næsta kynslóð Á heildina litið hefur náðst góður árangur í málefnum ungs fólks, það hreyfir sig t.d meira en áður. Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Ég velti því fyrir mér hvers vegna fjölmiðlar einblína oftar en ekki á hið neikvæða þegar fjallað er um rannsóknir á ungu fólki sem sýna hið gagn- stæða, þó auðvit- að sé alltaf ein- hver hópur sem líður illa og þarf að huga að. Á heildina litið höf- um við náð góð- um árangri eins og t.d. að draga úr vímuefnaneyslu í efstu bekkjum grunnskóla og fyrstu bekkjum í framhaldsskóla, frá árinu 2000 hefur stöðugt dregið úr neysl- unni. Unga kynslóðin hreyfir sig meira, tekur þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi og borð- ar meira af grænmeti og ávöxtum. Börn í dag eru greinilega móður- og föðurbetrungar. Þetta eru fréttir sem við heyrum ekki,“ segir Mar- grét Lilja Guðmundsdóttir, aðjunkt við Háskólann í Reykjavík, en hún starfar einnig hjá Rannsóknum og greiningu. Margrét vakti máls á þessari til- hneigingu fjölmiðla í erindi sínu „Ég hefði kosið aðra fyrirsögn“ sem hún hélt á ráðstefnu Íslenskra æskulýðsrannsókna fyrir skemmstu. „Fjölmiðlar eru duglegir við að draga fram neikvæðar fréttir. Við smellum sjálf á þær og þrífumst á þeim,“ segir Margrét. Hún bendir á að á heildina litið þá sé þetta flókið samspil sem varð- ar samfélagið í heild þó fjölmiðlar beri mikla ábyrgð. Hún tekur þó fram að ábyrgðin liggur ekki síður hjá þeim sem starfa við æskulýðs- rannsóknir og hvernig þeir þurfi að koma réttum skilaboðum á fram- færi. Margrét tekur sem dæmi fyrstu könnun um líðan barna og unglinga eftir hrun sem Rannsóknir og greining birtu. „Þá biðu fjölmiðlar spenntir á tröppunum og spurðu: „Er ekki allt að fara til andskot- ans?“ en þá kom í ljós að krökk- unum leið bara betur,“ segir Mar- grét. Þessi niðurstaða kom mörgum á óvart. Greina frá hinu slaka en láta það ekki vera þungamiðju Margrét tekur þó fram að vissu- lega þurfi að greina frá því sem miður fer en þungamiðjan á ekki að hverfast í kringum það þegar góður árangur er augljós. Í þessu samhengi vísar hún til þess að sífellt fleiri unglingar og ungmenni kjósa að neyta ekki vímu- efna. „Okkur er sagt oftar frá því hversu drukknir menntaskólanem- endur eru,“ segir Margrét. Hún bendir á að unga kynslóðin í dag er mjög upplýst og hún sækir sér þekkingu víða og tekur meðvit- aða ákvörðun. Góður árangur hefur náðst und- anfarin ár í vímuefnaforvörnum. Hins vegar þýði ekki að slá slöku við í þessum efnum þó árangurinn hafi verið góður. „Við verðum að halda áfram að vera á tánum,“ segir Margrét. Hið óvænta kom á óvart Skrekkur, árleg hæfileikakeppni grunnskólanemenda, er skýrt dæmi um hæfileikaríka krakka. Í keppn- inni sýndu nemendur að þeir láta sig varða ýmis samfélagsmál og -mein. Hagaskóli sigraði í ár með kraftmiklum flutningi stúlkna sem kröfðust jafnréttis í femínísku slammljóði og dansatriði sem vakti mikla athygli. „Það kom mér á óvart að það skyldi koma mörgum á óvart hversu flotta og hæfileikaríka krakka við eigum eins og sást í Skrekk. Þetta er einmitt það sem gögnin hafa verið að sýna. Við eig- um frábær ungmenni í landinu. Þau eru kýrskýr og mjög greind. Þetta kemur alltof sjaldan fram í fjöl- miðlum í dag,“ segir Margrét. Börn í dag móður- og föðurbetrungar  Fjölmiðlar einblína á neikvæðar fréttir af ungu kynslóðinni Margrét Lilja Guðmundsdóttir 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 „Hjá byrjendum allavega er löng meðganga að hverri bók. Sköpunar- verkið býr um sig í heila og hjarta og mótast þannig stig af stigi,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráð- herra. Hann fékk á dögunum inn- göngu í Rithöfundasamband Íslands sem kallast má staðfesting á því að vera rithöfundur, sem óneitanlega er talsverður titill. Skilyrðin fyrir aðild eru að höfundur hafi sent frá sér tvö verk sem hafi listrænt og fagurfræðilegt gildi eins og það er orðað á vefsetri sambandsins. Þessi skilyrði og vel það uppfyllir rithöf- undurinn frá Brúnastöðum í Flóa. Var kominn með bakteríuna Árið 2007 kom út bókin Guðni – af lífi og sál sem Sigmundur Ernir Rúnarsson skráði. Þar sagði Guðni frá lífshlaupi sínu og var góður róm- ur gerður að verkinu. „Ég var tæp- lega sextugur þegar bókin kom út og fannst ég því kannski fullungur til að segja frá ævi minni í bók. Minningur orða fermingarprestsins míns, séra Sigurðar Pálssonar í Hraungerði, sem sagði að menn ættu að segja sögu sína áður en þeir færu að gleyma, lagði ég upp í þessa vegferð fyrir áeggjan Péturs Más Ólafssonar forleggara,“ segir Guðni. „Merkilegast var að hafa tekið ákvörðun um ævisöguna staddur í Brussel ESB-sinna. Þangað fórum við til að gleðja Íslendingana, talaði um frelsið og sauðkindina við þá og féllst síðan á ósköpin yfir þjóðarrétti heimamanna, kræklingi og frönsk- um,“ segir Guðni. Kveðst þarna hafa verið kominn með þá bakteríu að verða rithöfundur ef ekki skáld. Sögur af fólki og ýmsar minningar voru efni bókarinnar Guðni léttur í lund sem kom út 2013. Þá bók skrif- aði Guðni sjálfur svo sögu Hall- gerðar langbrókar sem kom út í fyrra. Þar brá höfundurinn nýju ljósi á líf og örlög hinnar stórbrotnu konu, sem er ein af lykilpersónum Njálu. Í áranna rás hefur Guðni oft fjallað um það mikla verk hvar hann hefur oft fundið samsvörun milli sögupersónananna og bragðarefa nútímans í íslenskum stjórmálum. Skarphéðinn heillar „Nei, ég ætlaði mér aldrei að vera með bók fyrir þessi jól. En það eru umbrot í mér og af mörgu að taka sem mætti skrifa bók um. Slíkt er langt ferli og mikið ævintýri. Það er ómögulegt að segja til um hvað sú næsta verður um en ef ég skrifa meira um Njálu þá heillar Skarphéð- inn Njálsson mig töluvert,“ segir Guðni. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Skrifar „Að skrifa bók er langt ferli og ævintýri,“ segir Guðni Ágústsson. Fyrrum ráðherra er nú rithöfundur  Í Rithöfundasambandið  Þrjár bækur 40”JU6415 kr.159.900.- 48”JU6415 kr.189.900.- 55”JU6415 kr. 239.900.- JU6415: 4K UHD SMART 1000 PQI 24/25 Bestu sjónvörpin skv. Neytendablaðinu 24.09.15 og IRCT. t l i . . I UE40”JU6675 kr.169.900.- UE48”JU6675 kr. 199.900.- UE55”JU6675 kr. 279.900.- JU6675: • 4K • UHD • SMART • 1300 PQI 24/25 Bestu sjónvörpin skv. Neytendablaðinu 24.09.15 og IRCT. t l i . . I Hafa skal það sem betur sést og heyrist ormsson.is Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-15 LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800 á góðu verði SÍÐUMÚLA 9 SÍMI 530 2900 Þrír sterkir rannsóknarhópar fengu hvatningarstyrki upp á 5 milljónir hver úr Vísindasjóði Landspítala við athöfn í Hringsal í gær. Þetta er í sjötta sinn sem styrkir af þessu tagi eru veittir á spítalanum. Þeir eru veittir sterk- um rannsóknarhópum á spítalanum sem þegar hafa öðlast alþjóðlega viðurkenningu. Sjö umsóknir bár- ust en Gunnar Gunnarsson, lungna- læknir á LSH, Jóna Freysdóttir, forstöðunáttúrufræðingur og pró- fessor í ónæmisfræði, og Runólfur Pálsson, yfirlæknir á Landspítala, fengu styrkinn. Tóku þau við hon- um fyrir hönd samstarfsaðila. Run- ólfur fyrir rannsóknir á nýrnask- aða, Jóna fyrir rannsóknir á áhrifum náttúruefna á bólgumynd- un og Gunnar fyrir rannsóknir á lungnatrefjun. Þrjú tóku við hvatning- arstyrk úr Vísindasjóði Landspítali – háskólasjúkrahús Styrkur Runólfur Pálsson, Jóna Freysdóttir, Gunnar Guðmundsson og Páll Matthíasson, forstjóri LSH.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.