Morgunblaðið - 02.12.2015, Síða 16

Morgunblaðið - 02.12.2015, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 ...með nútíma svalalokunum og sólstofum Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16 • Svalalokanir • Glerveggir • Gler • Felliveggir • Garðskálar • Handrið Við færumþér logn & blíðu                                    !!" #$ ## " "   ! %# $! &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 "  % % #%# " "  % !# " $!! "# !!! $"  """ "$  # !#%  $!$  "# Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur ákveðið að veituþjónusta fyrirtækisins verði hér eftir rekin undir merki Veitna. Þrjú félög verða því eftirleiðis ásjóna starfsemi OR gagnvart viðskiptavinum, en þau eru Orka náttúrunnar (ON), Gagnaveita Reykjavíkur og Veitur. Veitur ohf. er stærsta fyrirtækið inn- an OR-samstæðunnar og dreifir raf- magni, heitu og köldu vatni. Veitur reka fráveitur á svæði þar sem búa tæplega þrír af hverjum fjórum landsmönnum, frá Grundarfirði í vestri til Hvolsvallar í austri. Framkvæmdastjóri Veitna er Inga Dóra Hrólfsdóttir verkfræðingur. Veituþjónusta OR fer undir dótturfyrirtæki ● Hugbúnaðurinn Bókun hefur tengst beint við Viator, sem er bókunarvél TripAdvisor. Í tilkynningu frá Bókun seg- ir að hugbúnaðurinn sé mest notaða sölu- og birgðakerfið í íslenskri ferða- þjónustu á sviði ferða og afþreyingar, bílaleigu og gistingar. Í gegnum teng- ingu sína við Bókun geta íslenskir ferðaþjónustuaðilar nú selt vörur sínar í rauntíma hjá Viator og TripAdvisor og fjölda annarra sölurása. Viator býr yfir framboði á ferðum og afþreyingu á 1.500 stöðum í heiminum. Bókun tengist beint bókunarvél TripAdvisor STUTTAR FRÉTTIR ... BAKSVIÐ Margrét Kr. Sigurðardóttir margret@mbl.is „Þetta hefur gríðarlega mikla þýð- ingu fyrir sjóðinn og eykur getu okk- ar til að styðja við það frábæra hug- vit sem er til á Íslandi,“ segir Hrund Gunnsteinsdóttir, stjórnarformaður Tækniþróunarsjóðs, um þá viðbót sem verður í framlögum til Tækniþróunarsjóðs á næsta ári þeg- ar tæpum einum milljarði króna verður bætt við þær styrktarupp- hæðir sem fyrir eru, samkvæmt fyr- irliggjandi fjárlögum. Mun Tækniþróunarsjóður samkvæmt þeim hafa úr rúmlega 2,3 milljörðum króna að spila sem er 70% meira framlag en á þessu ári. Frá árinu 2004 hefur því orðið sjöföldun á styrktarupphæð reiknað á föstu verðlagi. Hrund segir að þessi mikla aukn- ing í framlögum til Tækniþróunar- sjóðs undirstriki vilja stjórnvalda og ólíkra hagsmunahópa til að byggja upp öflugt nýsköpunarumhverfi á Ís- landi. „Þau verkefni sem Tækniþró- unarsjóður hefur verið að styrkja eru mjög fjölbreytt. Það er mikil- vægt fyrir íslenskt hagkerfi að styðja við nýsköpun þar sem megnið af fyrirtækjum, sem eru í rekstri á Íslandi, telst lítið. Það þýðir að okkar hagkerfi er drifið áfram af frum- kvæði og hugviti einstaklinga.“ Eykur samkeppnishæfni Hrund segir að hér á landi fari nú fram mikil endurskoðun á hlutverki nýsköpunar. „Ég starfaði hjá Sam- einuðu þjóðunum við að styðja við frumkvöðlastarf í Austur-Evrópu sem var að byggja upp sinn hagvöxt og sín samfélög. Áherslan líkt og þar þarf að vera á að kortlegga og efla umhverfi fyr- ir frumkvöðla og nýsköpun á Ís- landi til þess að stuðla að betra og öflugra sam- félagi. Nýsköpun hjálpar okkur að finna svör við því hver við viljum vera og hvert við eigum að stefna.“ Hún segir að með þessu aukna framlagi sé verið að leggja kraft í ný- sköpun af heilum hug. „Til lengri tíma litið, ef vel tekst til, skiptir þetta miklu máli fyrir íslenskt samfélag. Með aukinni áherslu á nýsköpun geta skapast fleiri spennandi tæki- færi fyrir ungt fólk sem vill búa á Ís- landi til framtíðar. Þá er mikilvægt að við getum uppfært hagkerfi okkar í takt við það sem er aðgerast í heim- inum því við verðum að vera sam- keppnishæf við aðrar þjóðir.“ Fyrir allar atvinnugreinar Tækniþróunarsjóður er ekki bundinn við eitt svið atvinnulífsins og segir Hrund allar atvinnugreinar geta leitað til sjóðsins. „Það er mjög mikilvægt að fólk viti að sjóðurinn einskorðast ekki við eina atvinnu- grein enda á tækniþróun sér stað á öllum sviðum samfélagsins. Við ger- um orðið lítið án tækninnar. Þess vegna tökum við hjá Tækniþróunar- sjóði með opnum huga við öllum verkefnum sem falla að markmiðum sjóðsins og vandað er til.“ Með auknu framlagi í sjóðinn verða til nýir flokkar styrkja sem meðal annars hvetja til yfirfærslu verkefna úr háskólum og rannsókna- stofnunum yfir í hagnýt verkefni. Einnig verður ungum frumkvöðlum gert auðveldara að stíga sín fyrstu skref með einfaldari umsóknum og styttri styrktartíma. Hærri styrkir verða veittir en því fylgir að gerð verður aukin krafa um fjárhagslegt bolmagn. Hrund segir að með þessum breytingum verði til snarpara ferli sem tekur 2 ár í stað 3ja ára, styrkt- arupphæðirnar verði hærri og kröf- ur um hærra mótframlag. „Mörg þeirra nýsköpunarfyrirtækja sem mest kveður að í íslensku atvinnulífi í dag hafa notið verulegra styrkja sjóðsins. Við stefnum að því með þessum áherslubreytingum og nýju fyrirkomulagi að öll framkvæmd verði hnitmiðaðri.“ Allar umsóknir eru metnar af fag- ráði skipuðu af tækninefnd Vísinda- og tækniráðs. Stjórn sjóðsins úthlut- ar styrkjunum á grundvelli matsins. Á meðal fyrirtækja sem Tækniþró- unarsjóður hefur styrkt eru Mar- orka, ORF Líftækni, Nox Medical, Mentor, Meniga og Lauf Forks. Tækniþróunarsjóður fær milljarði meira á næsta ári Tækniþróunarsjóður » Sjóðurinn starfar sam- kvæmt lögum um opinberan stuðning við tæknirannsóknir, nýsköpun og atvinnuþróun. » Sjóðurinn heyrir undir iðn- aðar- og viðskiptaráðherra. » Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rann- sóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í ís- lensku atvinnulífi.  Styrktarfjárhæð sjóðsins á næsta ári sjöfalt hærra að raungildi en árið 2004 Hrund Gunnsteinsdóttir Tækniþróunarsjóður Uppreiknuð framlög miðað við 2015 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 2004 2006 2008 2010 2012 20142005 2007 2009 2011 2013 2015 2016 Heimild: Tækniþróunarsjóður m .k r. Þjónustujöfnuður var jákvæður um 90,4 milljarða króna á þriðja ársfjórð- ungi, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Hefur aldrei verið meiri afgangur í þjónustuviðskiptum við útlönd á einum ársfjórðungi. Mestur afgangur var af samgöngu- og flutningaþjónustu, eða 55,5 millj- arðar króna, og 49,5 milljarða króna afgangur var af ferðaþjónustu. Ferðaþjónustan var stærsti liður- inn í bæði inn- og útflutningi, en út- flutningur ferðaþjónustu á þriðja árs- fjórðungi nam 86,4 milljörðum króna og innflutningur 36,9 milljörðum. Út- flutningur vegna samgangna og flutn- inga var 73,1 milljarður, en útflutn- ingur annarra undirliða var mun minni. Afgangur orðinn 148 milljarðar Í Morgunkorni Íslandsbanka er bent á að samanlagður afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum á þriðja ársfjórðungi hafi verið 78,1 milljarður króna, sá mesti á einum ársfjórðungi frá upphafi. Á fyrstu níu mánuðum ársins sé afgangur af vöru- og þjón- ustuviðskiptum við útlönd kominn upp í 148,3 milljarða króna, saman- borið við 98,2 milljarða í fyrra. Ís- landsbanki gerir ráð fyrir að afgang- ur vöru- og þjónustuviðskipta muni nema tæplega 8% af landsframleiðslu á árinu 2015. Þótt sá afgangur verði alfarið þjónustumegin í viðskiptunum bendir Íslandsbanki á mikilvægi þess að horfa á viðskipti vöru og þjónustu í heild, þar sem talsvert af útgjöldun- um við að afla þjónustutekna fellur til sem vöruinnflutningur, svo sem kaup flutningatækja, innlend fjárfesting í ferðaþjónustugreinum og innflutn- ingur neysluvara fyrir ferðamenn. Morgunblaðið/Eggert Met Ferðaþjónusta á stóran þátt í meiri afgangi gagnvart útlöndum. Metfjórðungur í þjónustuviðskiptum  Aldrei meiri afgangur á einum ársfjórðungi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.