Morgunblaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015
Ármúla 26 | 108 Reykjavík | Sími 578 4400 |
Selhella 13 | 221 Hafnarfjörður | Sími 564 1400 | kerfi@kerfi.is | kerfi.is
Fagleg & persónuleg þjónusta
Dæmi:
BRAVILOR TH
Vandaðar og traustar
uppáhellivélar
2.900,- án VSK
Þjónusta- & leigugjald á mán.
Drykkjarlausnir fyrir þitt fyrirtæki
Hagkvæmara en þú heldur!
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Rússar skipuleggja nú heræfingu með fallhlífar-
hermönnum á norðurslóðum. „Gert er ráð fyrir að
sendur verði á vettvang fjöldi hermanna og bún-
aður á vegum flughersins til norðurheimskauts-
svæðisins fyrri hluta 2016,“ sagði talsmaður flug-
hersins, Évgení Mesjkov ofursti, í viðtali við
Interfax-AVN. „Hluti af þessari þjálfun við afar
erfiðar aðstæður verða lendingar og vígvalla-
æfingar sem standa munu í marga daga.“
Ekki var tilgreint hvar nákvæmlega æfingin
færi fram en viðtalið vakti mikla athygli í Rúss-
Áforma heræfingu á norðurhjara
Rússar munu eftir áramótin æfa lendingar og þjálfa fallhlífarhermenn einhvers
staðar á ísnum til að sýna mátt sinn og minna á landakröfur á hafsbotni
landi. Aftenposten í Noregi
segir að þetta sé í fyrsta sinn
sem heræfing af þessu tagi fari
fram á svæðinu. En í ágúst hafi
verið efnt til fyrstu sameigin-
legu æfinga hers og flota á
norðurslóðum. Með þessum
æfingum vilji Vladímír Pútín
Rússlandsforseti leggja
áherslu á kröfur Rússa til yfir-
ráða á rösklega milljón ferkíló-
metrum af hafsbotninum.
Fram kemur í nýrri skýrslu Alþjóðahermála-
stofnunarinnar, IISS, að Rússar hafi frá 2014 auk-
Vladímír Pútín
ið verulega umsvif flotans og sé það liður í her-
skárri stefnu en ríkið hafi áður fylgt. En
nútímavæðing flotans hafi verið skipulögð þegar
fyrir nokkrum árum. Yfirmaður flotans, Viktor
Tsírkov aðmíráll, hafi sagt að ferðum kafbátaflot-
ans hafi fjölgað um 50% í fyrra. Bandaríkjamenn
óttist að Rússar kanni möguleika á að skera á mik-
ilvæga fjarskiptakapla á hafsbotni með aðstoð
fjarstýrðra kafbáta komi til átaka.
IISS segir að Dmítrí Rogozín aðstoðarforsæt-
isráðherra hafi ekki leynt því að aukin umsvif á
norðurhjara og á Atlantshafi eigi að vera svar við
því sem Rússar álíti vera ógnanir NATO gegn
þeim í Mið- og Austur-Evrópu.
Hentugur tími
» Ísinn er sterkastur seinni
hluta vetrar og þolir þá vel
þunga vígtóla og hermanna.
Ljóst er að með æfingunni
vilja Rússar sýna hvers þeir
eru megnugir á norðurhjara.
» Dmítrí Rogozín, sem oft
þykir ósvífinn í orðum, hefur
sagt að Rússar muni aldrei
yfirgefa norðurslóðir og þeir
ætli „að leggja þær undir
sig“.
Suður-kóresk börn, klædd búningum sem minna á jóla-
sveininn, tóku í gær þátt í hátíðarhöldum vegna söfn-
unarátaks Hjálpræðishersins á Seoul-torgi í höfuð-
borginni, Seoul. Átakið stendur í mánuð og féð er notað
til að aðstoða fátækt fólk. Nær þriðjungur Suður-
Kóreumanna er kristinn, ýmist mótmælendur eða kaþ-
ólskir. Hinir eru annaðhvort búddistar eða utan við alla
trúflokka.
AFP
Safnað fyrir fátæka í Seoul
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Barack Obama Bandaríkjaforseti
hvatti í gær Tyrki og Rússa til að
leysa deilurnar um rússnesku þot-
una sem skotin var niður á landa-
mærum Tyrklands og Sýrlands.
Mikilvægast væri að ríkin berðust
gegn Ríki íslams, IS. Vladímír Pútín
Rússlandsforseti sakar Tyrki um að
hafa notað varnir lofthelginnar sem
yfirvarp. Þeir hafi í raun skotið þot-
una niður til að vernda leynileg olíu-
viðskipti við IS-menn.
Tyrkland á aðild að Atlantshafs-
bandalaginu, NATO, sem opinber-
lega styður Tyrki í deilunni. Hins
vegar segja stjórnmálaskýrendur að
margir leiðtogar annarra NATO-
landa álíti samt að Tyrkir hafi farið
offari, gert slæm mistök. Þeir hefðu
átt að láta nægja að mótmæla harð-
lega ef rétt sé að Rússar hafi brotið
gegn lofthelgi þeirra.
Rússar hafa gripið til harkalegra
viðskiptarefsinga gegn Tyrkjum og
fullyrða að þotan hafi aldrei farið inn
fyrir landamæri Tyrklands. Rúss-
neskur flugmaður lét lífið í átökun-
um og annar féll þegar skotið var á
björgunarþyrlu.
Lengi hefur verið orðrómur á
kreiki um að IS seldi með leynd tyrk-
neskum aðilum olíu sem unnin er á
yfirráðasvæðum hinna fyrrnefndu.
En Recep Tayyip Erdogan, forseti
Tyrklands, neitar því.
Ef þú fullyrðir ...
„Ef þú fullyrðir um eitthvað ætt-
irðu að leggja fram sannanir,“ sagði
Erdogan í gær og beindi orðum sín-
um til Pútíns. „Láttu okkur sjá gögn-
in, leggðu þau á borðið.“ Erdogan
hét því að segja af sér ef sannað yrði
að Tyrkland hefðu stundað viðskipti
af áðurnefndu tagi, að sögn BBC.
Leiðtogarnir hafa undanfarna daga
skipst á hörðum ásökunum en báðir
höfða mjög til ákafrar þjóðernis-
kenndar meðal landa sinna.
Deilan er vatn á myllu IS sem nýt-
ur góðs af því að tvö lykilríki geti
ekki unnið saman í baráttunni gegn
hryðjuverkasamtökunum í Sýrlandi
og Írak. En miklar líkur eru taldar á
því að breska þingið samþykki í dag
að hefja þátttöku í loftárásum á IS í
Sýrlandi. Þýska stjórnin samþykkti í
gær að veita Frökkum aðstoð í Sýr-
landi en Þjóðverjar munu þó ekki
taka beinan þátt í hernaðinum.
Obama hvetur Rússa
og Tyrki til sátta
Erdogan forseti lofar að segja af sér embætti ef Rússar
geti sannað að Tyrkir hafi keypt olíu af Ríki íslams
AFP
Félagar Erdogan heilsar Obama, al-
varlegum á svip, í París í gær.
47% sammála
» Fjallað verður um aðstoð
Þjóðverja við Frakka síðar á
vikunni á þingi og talið víst að
hún hljóti samþykki.
» 45% landsmanna segjast í
könnunum vera sammála slíkri
ákvörðun, 39% eru á móti.
» Send verður freigáta til
aðstoðar flugmóðurskipinu
Charles de Gaulle, eftirlitsþota
og 1200 hermenn.
Fimm alda hefðir búddista í Tíbet
mæla fyrir um að Dalai Lama endur-
fæðist. En núverandi trúarleiðtogi
þjóðarinnar, sem er 14. endurholdg-
unin og útlægur, hefur gefið í skyn
að kannski vilji hann ekki endurfæð-
ast í Kína ef aðstæður Tíbeta batni
ekki, segir í frétt Jyllandsposten.
Fylgt er gömlum hefðum við að
finna barnið sem Dalai Lama hefur
endurholdgast í og ekki er gengið út
frá því sem vísu að umrætt barn fæð-
ist í Tíbet, hvað þá Kína.
Kína lagði Tíbet undir sig 1950
eftir sigur kommúnista í borgara-
stríðinu og kommúnistaflokkur Kína
hefur nú tekið af skarið: hann hafi
æðstu völd yfir tíbeskum búddisma,
eins og öðru í landinu. Hann ákveði
hvað verði um
Dalai Lama eftir
andlát hans.
Þetta vald sé mik-
ilvægt tákn yfir-
ráða Kína í Tíbet.
Zhu Weiqun,
sem er háttsettur
flokksfélagi, segir
að Pekingstjórnin
muni „aldrei láta
frá sér réttinn til að taka ákvörðun
um endurholdgun Dalai Lama“.
Flokkurinn, sem boðar guðleysi, hef-
ur auk þess sakað Dalai Lama um
guðlast og svik við trúna. Margir
Tíbetar óttast að næsti Dalai Lama
geti orðið strengjabrúða kommún-
ista. kjon@mbl.is
Skipa Dalai Lama að
endurfæðast í Kína
Dalai Lama