Morgunblaðið - 02.12.2015, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015
Út að leika Þessir grallaraspóar í Hafnarfirði kættust heldur betur í gær við kafaldsbyl og helling af snjó, enda sjaldan eins gaman að fara út að leika og í þeim efniviði sem snjórinn er.
Golli
Mikið er þessi ríkisstjórn
hryllileg. Enginn er óhultur fyr-
ir hnífnum og flest skal skorið
niður. Allt í anda skelfilegrar
hægristefnu sem samkvæmt
skilgreiningu er á móti listum
og menningu, leggur áherslu á
að einkavæða heilbrigðisþjón-
ustuna og byggist á hug-
myndafræði sem er skeyting-
arlaus um hag eldri borgara og
öryrkja.
Þeir sem hlusta aðeins á mál-
flutning stjórnarandstöðunnar og fréttir fjöl-
miðla, þar sem Ríkisútvarpið siglir í far-
arbroddi þöndum seglum, geta varla
sannfærst um annað en að ríkisstjórnin sé
stórhættuleg. Ætlunin sé að ganga milli bols
og höfuðs á heilbrigðis- og almannatrygg-
ingakerfinu og um leið eyðileggja flest það
sem gefur lífinu gildi með því að kippa stoð-
unum undan listum og menningu. Í fjár-
laganefnd eru Vigdís Hauksdóttir og Guð-
laugur Þór Þórðarson óalandi og óferjandi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni
Benediktsson hafa lítinn skilning á lífi venju-
legs Íslendings en eru sagðir hafa mestan
áhuga á að lækka skatta á þá sem mest hafa
á milli handanna.
Og hvað hafa þessir vondu hægri menn og
fylgifiskar þeirra til sakar unnið?
30% hækkun til Landspítala
Fjárlög 2013 eru síðustu fjárlög sem vinstri
stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna gekk
frá og því er forvitnilegt að bera þau saman
við þau áform sem birtast í fjárlagafrumvarpi
komandi árs. (Vert er að hafa í huga að það
er gömul saga og ný að fyrirhuguð útgjöld
hækka frá frumvarpi til sam-
þykktra fjárlaga.)
Framlag ríkissjóðs til
Landspítalans á næsta ári verð-
ur samkvæmt frumvarpi liðlega
30% hærra en fjárlög 2013.
Þannig rennur nær 11,6 millj-
örðum króna hærri fjárhæð til
spítalans en vinstri stjórnin
stefndi að. Þá er ekki tekið tillit
til 1,8 milljarða á komandi ári
vegna byggingar sjúkrahótels.
Framlag til Sjúkrahússins á Ak-
ureyri hækkar um 33% eða lið-
lega 1,5 milljarða. Gengið er út
frá því að útgjöld til heilsugæslu á höfuðborg-
arsvæðinu hækki verulega og að öldr-
unarstofnanir fái á næsta ári liðlega 26%
meira í sinn hlut en í síðustu fjárlögum
vinstri stjórnarinnar. Þannig má lengi telja.
Í heilbrigðismálum hefur stefna rík-
isstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæð-
isflokksins því vissulega verið nokkuð önnur
en sú sem fylgt var í tíð Samfylkingar og
Vinstri grænna. Vinstri stjórnin skar niður
heilbrigðisútgjöld frá 2009 til 2012 um 28,5
milljarða króna á föstu verðlagi. Framlag til
Landspítalans lækkaði sem og til Sjúkrahúss-
ins á Akureyri. Kostnaðarhlutdeild sjúklinga
vegna þjónustu sérfræðilækna jókst verulega.
Forgangsröðunin brenglaðist hressilega en
afsökunin var skýr; hér varð hrun. Þó voru til
peningar í ýmis önnur verkefni – sum hver
varla annað en gæluverkefni.
Lífeyristryggingar verða 21,6 milljörðum
króna hærri á næsta ári en í fjárlögum 2013;
hækkun um 35%. Örorkulífeyrir hækkar um
rúmlega 28%, aldurstengd örorkuuppbót um
30% og tekjutrygging um nær 16%. Ellilíf-
eyrir verður 52% hærri á komandi ári en í
síðustu fjárlögum vinstri stjórnarinnar, tekju-
trygging og heimilisuppbót 37% hærri.
Þetta eru nokkur dæmi um hvernig „nið-
urskurðarhnífnum“ hefur verið beitt mis-
kunnarlaust í tíð sitjandi ríkisstjórnar.
Dæmi eru fleiri.
Atlagan að menningunni
Ef marka má fréttir (ekki síst hinar rík-
isreknu) og stóryrtar yfirlýsingar stjórn-
arandstæðinga mætti ætla að niðurskurð-
urinn hjá Ríkisútvarpinu væri blóðugri en
dæmi er um í sögunni. Það sé verið að kné-
setja flaggskip íslenskrar menningar, mik-
ilvægustu öryggisstofnun landsins og lífs-
nauðsynlegan fjölmiðil svo unnt sé að veita
stjórnvöldum aðhald.
Blóð Ríkisútvarpsins er undarlegt á litinn.
Að óbreyttu fjárlagafrumvarpi verða framlög
til ríkismiðilsins 295 milljónum króna hærri
en í fjárlögum vinstri stjórnarinnar 2013.
Samkvæmt skilgreiningu bera vinstri menn
hag Ríkisútvarpsins mjög fyrir brjósti og því
er að eftirtektarvert að undir forystu sjálf-
stæðismanna skuli framlögin aukin að raun-
virði um 1-2%. Menntamálaráðherra vill auka
framlögin enn meira.
Hitt er rétt að framlög til Ríkisútvarpsins
hafa ekki aukist með sama hætti og til lista
og menningar. Þjóðleikhúsið fær á næsta ári
liðlega 31% meira í sinn hlut frá ríkinu en á
fjárlögum 2013. Kvikmyndamiðstöð Íslands
nýtur 43% hærra ríkisframlags og Sinfón-
íuhljómsveitin nær 22%. Forráðamenn Hörpu
eiga erfitt að kvarta yfir rúmlega 25% hækk-
un frá síðustu fjárlögum vinstri stjórnarinnar
og framlag í Launasjóð listamanna hækkar
töluvert að raunvirði.
Skattgreiðandinn er vinafár
Þannig bítur „niðurskurðarhnífur“ hinnar
stórhættulegu ríkisstjórnar lítið. Hnífurinn er
bitlaus og líkt og margar aðrar stofnanir
njóta mörg söfn þessa. Kvikmyndasafn Ís-
lands, Listasafn Einars Jónssonar, Gljúfra-
steinn og Listasafn Íslands verða mun betur
sett á komandi ári en undir „verndarvæng“
vinstri stjórnar.
Liðlega 29% hækkun á framlögum til
Listaháskóla Íslands rímar illa við þá möntru
sem kveðin er um vonda ríkisstjórn sem skilji
ekki mikilvægi lista og menningar.
Ríkisstjórnin í heild sinni er skömmuð lát-
laust og einstaka ráðherrar eru harðlega
gagnrýndir og fá það óþvegið. Ekki fyrir
niðurskurð heldur fyrir að auka ekki framlög
nægilega mikið til hinna ýmsu málaflokka.
Þingmenn sem gera tilraun til að stíga á
bremsurnar vinna sér til óhelgi og þurfa að
sitja undir svívirðingum og dylgjum. Þannig
er reynt að draga úr andstöðunni á þingi svo
háværar kröfur um aukin útgjöld nái fram að
ganga.
Utan þings gagnrýna fáir ríkisstjórnina
fyrir að ganga of hratt um gleðinnar dyr eða
benda á að útgjöld ríkisins séu of mikil, vaxi
of hratt og að forgangsröðun sé stundum
brengluð. Enn færri taka upp hanskann fyrir
skattgreiðandann sem þarf að standa undir
þessu öllu saman. Hann virðist enn vera ein-
mana, hrakinn og barinn.
Eftir Óla Björn Kárason »Ráðherrar eru harðlega
gagnrýndir og fá það
óþvegið. Ekki fyrir niðurskurð
heldur fyrir að auka ekki
framlög nægilega mikið til
hinna ýmsu málaflokka.
Óli Björn Kárason
Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Bitlaus „niðurskurðarhnífur“ hægri manna