Morgunblaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 Út að leika Þessir grallaraspóar í Hafnarfirði kættust heldur betur í gær við kafaldsbyl og helling af snjó, enda sjaldan eins gaman að fara út að leika og í þeim efniviði sem snjórinn er. Golli Mikið er þessi ríkisstjórn hryllileg. Enginn er óhultur fyr- ir hnífnum og flest skal skorið niður. Allt í anda skelfilegrar hægristefnu sem samkvæmt skilgreiningu er á móti listum og menningu, leggur áherslu á að einkavæða heilbrigðisþjón- ustuna og byggist á hug- myndafræði sem er skeyting- arlaus um hag eldri borgara og öryrkja. Þeir sem hlusta aðeins á mál- flutning stjórnarandstöðunnar og fréttir fjöl- miðla, þar sem Ríkisútvarpið siglir í far- arbroddi þöndum seglum, geta varla sannfærst um annað en að ríkisstjórnin sé stórhættuleg. Ætlunin sé að ganga milli bols og höfuðs á heilbrigðis- og almannatrygg- ingakerfinu og um leið eyðileggja flest það sem gefur lífinu gildi með því að kippa stoð- unum undan listum og menningu. Í fjár- laganefnd eru Vigdís Hauksdóttir og Guð- laugur Þór Þórðarson óalandi og óferjandi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson hafa lítinn skilning á lífi venju- legs Íslendings en eru sagðir hafa mestan áhuga á að lækka skatta á þá sem mest hafa á milli handanna. Og hvað hafa þessir vondu hægri menn og fylgifiskar þeirra til sakar unnið? 30% hækkun til Landspítala Fjárlög 2013 eru síðustu fjárlög sem vinstri stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna gekk frá og því er forvitnilegt að bera þau saman við þau áform sem birtast í fjárlagafrumvarpi komandi árs. (Vert er að hafa í huga að það er gömul saga og ný að fyrirhuguð útgjöld hækka frá frumvarpi til sam- þykktra fjárlaga.) Framlag ríkissjóðs til Landspítalans á næsta ári verð- ur samkvæmt frumvarpi liðlega 30% hærra en fjárlög 2013. Þannig rennur nær 11,6 millj- örðum króna hærri fjárhæð til spítalans en vinstri stjórnin stefndi að. Þá er ekki tekið tillit til 1,8 milljarða á komandi ári vegna byggingar sjúkrahótels. Framlag til Sjúkrahússins á Ak- ureyri hækkar um 33% eða lið- lega 1,5 milljarða. Gengið er út frá því að útgjöld til heilsugæslu á höfuðborg- arsvæðinu hækki verulega og að öldr- unarstofnanir fái á næsta ári liðlega 26% meira í sinn hlut en í síðustu fjárlögum vinstri stjórnarinnar. Þannig má lengi telja. Í heilbrigðismálum hefur stefna rík- isstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæð- isflokksins því vissulega verið nokkuð önnur en sú sem fylgt var í tíð Samfylkingar og Vinstri grænna. Vinstri stjórnin skar niður heilbrigðisútgjöld frá 2009 til 2012 um 28,5 milljarða króna á föstu verðlagi. Framlag til Landspítalans lækkaði sem og til Sjúkrahúss- ins á Akureyri. Kostnaðarhlutdeild sjúklinga vegna þjónustu sérfræðilækna jókst verulega. Forgangsröðunin brenglaðist hressilega en afsökunin var skýr; hér varð hrun. Þó voru til peningar í ýmis önnur verkefni – sum hver varla annað en gæluverkefni. Lífeyristryggingar verða 21,6 milljörðum króna hærri á næsta ári en í fjárlögum 2013; hækkun um 35%. Örorkulífeyrir hækkar um rúmlega 28%, aldurstengd örorkuuppbót um 30% og tekjutrygging um nær 16%. Ellilíf- eyrir verður 52% hærri á komandi ári en í síðustu fjárlögum vinstri stjórnarinnar, tekju- trygging og heimilisuppbót 37% hærri. Þetta eru nokkur dæmi um hvernig „nið- urskurðarhnífnum“ hefur verið beitt mis- kunnarlaust í tíð sitjandi ríkisstjórnar. Dæmi eru fleiri. Atlagan að menningunni Ef marka má fréttir (ekki síst hinar rík- isreknu) og stóryrtar yfirlýsingar stjórn- arandstæðinga mætti ætla að niðurskurð- urinn hjá Ríkisútvarpinu væri blóðugri en dæmi er um í sögunni. Það sé verið að kné- setja flaggskip íslenskrar menningar, mik- ilvægustu öryggisstofnun landsins og lífs- nauðsynlegan fjölmiðil svo unnt sé að veita stjórnvöldum aðhald. Blóð Ríkisútvarpsins er undarlegt á litinn. Að óbreyttu fjárlagafrumvarpi verða framlög til ríkismiðilsins 295 milljónum króna hærri en í fjárlögum vinstri stjórnarinnar 2013. Samkvæmt skilgreiningu bera vinstri menn hag Ríkisútvarpsins mjög fyrir brjósti og því er að eftirtektarvert að undir forystu sjálf- stæðismanna skuli framlögin aukin að raun- virði um 1-2%. Menntamálaráðherra vill auka framlögin enn meira. Hitt er rétt að framlög til Ríkisútvarpsins hafa ekki aukist með sama hætti og til lista og menningar. Þjóðleikhúsið fær á næsta ári liðlega 31% meira í sinn hlut frá ríkinu en á fjárlögum 2013. Kvikmyndamiðstöð Íslands nýtur 43% hærra ríkisframlags og Sinfón- íuhljómsveitin nær 22%. Forráðamenn Hörpu eiga erfitt að kvarta yfir rúmlega 25% hækk- un frá síðustu fjárlögum vinstri stjórnarinnar og framlag í Launasjóð listamanna hækkar töluvert að raunvirði. Skattgreiðandinn er vinafár Þannig bítur „niðurskurðarhnífur“ hinnar stórhættulegu ríkisstjórnar lítið. Hnífurinn er bitlaus og líkt og margar aðrar stofnanir njóta mörg söfn þessa. Kvikmyndasafn Ís- lands, Listasafn Einars Jónssonar, Gljúfra- steinn og Listasafn Íslands verða mun betur sett á komandi ári en undir „verndarvæng“ vinstri stjórnar. Liðlega 29% hækkun á framlögum til Listaháskóla Íslands rímar illa við þá möntru sem kveðin er um vonda ríkisstjórn sem skilji ekki mikilvægi lista og menningar. Ríkisstjórnin í heild sinni er skömmuð lát- laust og einstaka ráðherrar eru harðlega gagnrýndir og fá það óþvegið. Ekki fyrir niðurskurð heldur fyrir að auka ekki framlög nægilega mikið til hinna ýmsu málaflokka. Þingmenn sem gera tilraun til að stíga á bremsurnar vinna sér til óhelgi og þurfa að sitja undir svívirðingum og dylgjum. Þannig er reynt að draga úr andstöðunni á þingi svo háværar kröfur um aukin útgjöld nái fram að ganga. Utan þings gagnrýna fáir ríkisstjórnina fyrir að ganga of hratt um gleðinnar dyr eða benda á að útgjöld ríkisins séu of mikil, vaxi of hratt og að forgangsröðun sé stundum brengluð. Enn færri taka upp hanskann fyrir skattgreiðandann sem þarf að standa undir þessu öllu saman. Hann virðist enn vera ein- mana, hrakinn og barinn. Eftir Óla Björn Kárason »Ráðherrar eru harðlega gagnrýndir og fá það óþvegið. Ekki fyrir niðurskurð heldur fyrir að auka ekki framlög nægilega mikið til hinna ýmsu málaflokka. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Bitlaus „niðurskurðarhnífur“ hægri manna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.