Morgunblaðið - 02.12.2015, Page 20

Morgunblaðið - 02.12.2015, Page 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 Munið að slökkva á kertunum Treystið aldrei alfarið á kertaslökkvara Rökfræði virðist ekki vera sterkasta hlið þeirra sem nú á dögum eru að burðast við að skilgreina hina og þessa sjúkdóms- valda sem hreinrækt- aða sjúkdóma og bein- ar dánarorsakir. Blákaldar fullyrðingar um að menn deyi úr áfengis- og lyfjafíkn (alkóhólisma), offitu og elli, svo dæmi séu tekin, eru fremur frjálsleg meðferð á sannleikanum. Þó eru augljós tengsl á milli alkó- hólisma, offitu og elli annars vegar og sjúkdóma og dauða af þeirra völd- um hins vegar, en rökvillan felst í því að orsakavaldur sjúkdóms – eða það sem býr í haginn fyrir sjúkdóm – er skilgreindur sem sjúkdómur, einn og sér, og gerður að beinni dánarorsök. Með þessu lagi er hlaupið yfir hlekk í orsakakeðjunni og ber sú ráða- breytni nokkurn keim af þeirri galdrakúnst fornmanna að líma sam- an stóð og stjörnur. Með þessa rökvillu að bakhjarli væri allt eins hægt að fullyrða að menn dæju úr fallhlífar- stökki, bifreiðarakstri og atvinnuþátttöku, svo dæmi séu tekin, en góðu heilli er ekki orðin hefð fyrir slíkri framsetningu í þessum orðum skrif- uðum, hvað svo sem síð- ar kann að verða. Það deyr enginn úr fallhlífarstökki. Menn deyja vegna slysa sem þeir verða fyrir við fall- hlífarstökk. Það deyr enginn úr bif- reiðarakstri. Menn deyja vegna slysa sem þeir verða fyrir í umferðinni. Og það deyr enginn úr atvinnuþátttöku. Menn deyja vegna slysa sem þeir verða fyrir við atvinnustarfsemi eða úr starfstengdum sjúkdómum. Vinn- an sem slík verður þeim ekki að bana. Hvað ellina varðar er hún náttúr- legur hluti af lífshlaupinu – síðasti kapítulinn í ferlinu – og engum hefur víst enn hugkvæmst að skilgreina hana sem sjúkdóm, hvað svo sem síð- ar kann að verða. Í raun réttri deyr enginn beinlínis úr elli heldur úr hrörnunarsjúkdómum sem hún hef- ur í för með sér. Og það deyr enginn beinlínis úr of- fitu heldur úr sjúkdómum sem hún getur boðið heim. (Ætli við þekkjum ekki mörg hver persónulega fólk sem telst vera alltof feitt samkvæmt við- teknum stöðlum, en hefur samt góða líkamsburði, fer allra sinna ferða án erfiðismuna og kennir sér einskis meins!) Og það deyr enginn úr áfengis- og lyfjafíkn heldur úr sjúkdómum eða eitrun sem hún getur boðið heim, ef eftir henni er látið, einkum ef það er gert í miklum mæli. (Ætli við þekkj- um ekki mörg hver persónulega bæði fíkla og ávananeytendur sem eru í góðu andlegu og líkamlegu formi og kenna sér einskis meins eftir neyslu!) Sú rökvilla sem hér hefur verið gerð að umræðuefni er orðin svo al- menn og útbreidd í fjölmiðlaum- fjöllun samtímans, að ekki verður betur séð en allmörgu fólki, jafnvel háskólamenntuðu, sé orðin full þörf á því að sækja endurmenntunarnám- skeið í rökfræði. Og ekki eru alkóhól- ismi og offita heilbrigðisvandamál að minni, þó að menn stilli sig um að klína á þau sjúkdómsheiti. Rökvilla og rugl Eftir Guðmund Sigurð Jóhannsson »Með þessa rökvillu að bakhjarli væri allt eins hægt að full- yrða að menn dæju úr fallhlífarstökki, bifreið- arakstri og atvinnuþátt- töku. Guðmundur Sigurður Jóhannsson Höfundur er ættfræðingur á Sauðárkróki. Því miður er þetta vandamál komið í óleysanlegan hnút Því miður er þetta vanda- mál komið í óleysan- legan hnút Þegar ákveðið var að setja Vaðlaheiðargöng í einkaframkvæmd komu strax fram efa- semdir um að forsend- urnar fyrir fjármögnun ganganna með inn- heimtu vegtolla á hvert ökutæki gætu staðist. Allar aðvaranir um að of lítil um- ferð væri milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals til að veggjald standi undir fjármögnun ganganna voru að engu hafðar og þeim síðan svarað með útúrsnúningi og hnútuköstum. Hvert áfallið af öðru í Vaðlaheiðar- göngum vekur spurningar um hvort framkvæmdum við þetta samgöngu- mannvirki ljúki í fyrsta lagi eftir 2021. Því miður er þetta vandamál komið í óleysanlegan hnút þegar fréttir berast af því að enn stærri vatnsæðar séu að opnast með stuttu millibili í göngunum undir heiðinni. Ekki er útilokað að Norðfjarðar- göng sem eru langt komin verði tek- in í notkun 5-6 árum á undan Vaðla- heiðargöngum á meðan illa gengur að stöðva vatnsrennslið gegnt Akur- eyri og í Fnjóskadal. Á forsíðum dagblaðanna getur fyrirsögnin misheppnuð fjármögnun Vaðlaheiðarganga hrellt vonsvikna landsmenn sem telja fulla ástæðu til að skrifa þetta stóra fjármögnunar- hneyksli á reikning fyrrverandi og núverandi stjórnarliða. Talið er að opnun ganganna tefjist meira en áætlanir gerðu ráð fyrir. Á sama tíma sitja mörg krefjandi og aðkall- andi verkefni á hakanum sem hefði fyrir löngu átt að vera búið að bjóða út. Má þar nefna samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu og í Suður- kjördæmi sem þola enga bið. Margir verkfræðingar sem vör- uðu við því að forsendur fyrir gerð Vaðlaheiðarganga stæðust ekki töldu alveg útilokað að hægt væri að fjármagna þessa framkvæmd með innheimtu vegtolla. Þeir ítrekuðu líka að meðalumferð ökutækja á sól- arhring milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals geti um ókomin ár aldr- ei orðið jafnmikil og í Hvalfjarð- argöngum sem voru byggð á við- skiptalegum forsendum. Þingmenn og ráðherrar fyrrverandi- og núver- andi ríkisstjórnar sem börðust fyrir því að Vaðlaheiðargöng yrðu tilbúin mörgum árum á undan jarðgöngum til Norðfjarðar og Seyðisfjarðar þurfa nú að gera hreint fyrir sínum dyrum og horfast í augu við vand- ræðin sem hlaðast upp í göngunum gegnt Akureyri. Að undirlagi fyrrverandi stjórn- arliða var skellt skolla- eyrum við allri gagn- rýni á fjármögnunar- gildru Vaðlaheiðar- ganga þegar Pálmi Kristinsson verkfræð- ingur birti sjálfstæða úttekt á forsendum framkvæmdarinnar í árslok 2011. Nú liggur það ljóst fyrir að framúrkeyrsla frá upphaflegri kostn- aðaráætlun verður um 19-25% líkt og gerðist í tilviki Héðinsfjarðarganga á sínum tíma. Skammarlegt er að Alþingi skuli hafa verið blekkt til að sam- þykkja kostnaðarþátttöku íslenska ríkisins í þessari framkvæmd þótt fyrir lægju skýrslur sem stönguðust gjörsamlega á þegar tvær þing- nefndir komust að allt annarri nið- urstöðu. Í tíð fyrrverandi ríkis- stjórnar vildu þáverandi ráðherrar, Steingrímur J. og Jóhanna Sigurð- ardóttir, veg Austfirðinga sem verstan þegar Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu Arnbjargar Sveinsdóttur um að flýta undirbún- ingsrannsóknum á gangagerð undir Fjarðarheiði. Nú þurfa verktakarnir að standa frammi fyrir þeim vanda að opnun Vaðlaheiðarganga tefjist hugsanlega um sex ár á meðan engin veit hve- nær vatnsrennslið í göngunum stöðvast. Þeir sem stungu niður penna í tíð Sturlu Böðvarssonar, þá- verandi samgönguráðherra, þegar hart var deilt um arðsemismat Héð- insfjarðarganga töldu að Vaðlaheið- argöng yrðu arðbær framkvæmd sem 500 króna veggjaldi gæti fjár- magnað án þess að fram kæmi hvað meðalumferð ökutækja á sólarhring undir heiðina þyrfti að vera mikil til að þetta gjald stæði undir afborg- unum og launum starfsmanna. Alltaf neita stuðningsmenn Vaðla- heiðarganga að viðurkenna þá stað- reynd að á Eyjafjarðarsvæðinu og í Þingeyjarsýslum séu alltof fáir bílar í umferð til þess að einkaaðilar á Norðausturlandi ráði við fjár- mögnun samgöngumannvirkja. Þótt síðar verði berast böndin að Stein- grími J. þegar ríkissjóður fær skell- inn. Ekkert vilja fyrrverandi og nú- verandi þingmenn Norðausturkjördæmis um þessa hörmungarsögu vita þegar höfð eru í huga kostnaðarsöm málaferli sem útboð Héðinsfjarðarganga snerist upp í þegar Vegagerðin sveik ís- lensku aðalverktakana um þessa umdeildu gangagerð norður í Fjalla- byggð. Misheppnuð fjármögnun Vaðlaheiðarganga Eftir Guðmund Karl Jónsson Guðmundur Karl Jónsson » Því miður er þetta vandamál komið í óleysanlegan hnút... Höfundur er farandverkamaður. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is FEB Reykjavík Mánudaginn 23. nóvember var spilað á 14 borðum hjá bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík. Efstu pör í N/S Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 381 Magnús Oddsson – Björn E. Péturss. 369 A/V Hrafnh. Skúlad. – Guðm. Jóhannsson 379 Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 376 Fimmtudaginn 26. nóvember var líka spilað á 14 borðum Efstu pör í N/S Helgi Samúelss. – Sigurjón Helgason 371 Tómas Sigurjss. – Jón H. Jónsson 357 A/V Hrafnh. Skúlad.- Guðm. Jóhannsson 390 Margr. Gunnarsd. – Vigdís Hallgrímsd. 360 Spilað er í Síðumúla 37. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðiðervettvangurlifandiumræðuílandinuogbirtiraðsendargreinaralla útgáfudaga. ÞeirsemviljasendaMorgunblaðinugreinareruvinsamlegabeðniraðnotainn- sendikerfiblaðsins.Kerfiðerauðveltínotkunogtryggiröryggiísamskiptummilli starfsfólksMorgunblaðsinsoghöfunda.Morgunblaðiðbirtirekkigreinarsemeinn- igerusendaráaðramiðla. Aðsendagrein KerfiðeraðgengilegtundirMorgunblaðslógóinuefstíhægrahorniforsíðu mbl.is.Þegarsmellterálógóiðbirtistfelligluggiþarsemliðurinn„Sendainngrein“ ervalinn. Ífyrstaskiptiseminnsendikerfiðernotaðþarfnotandinnaðnýskrásiginníkerfið. Ítarlegarleiðbeiningarfylgjahverjuþrepiískráningarferlinu.Eftiraðviðkomandi hefurskráðsigsemnotandaíkerfiðernógaðsláinnkennitölunotandaoglykilorðtil aðopnasvæðið.Hægteraðsendagreinarallansólarhringinn. NánariupplýsingarveitirstarfsfólkMorgunblaðsinsallavirkadagaísíma569- 1100frákl.8-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.