Morgunblaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 ✝ FanneyTryggvadóttir fæddist á Akureyri 1. október 1925. Hún lést á Grund 21. nóvember 2015. Foreldrar Fann- eyjar voru Stein- unn Jónsdóttir hús- móðir, f. 21. október 1895, d. 30. janúar 1977, og Tryggvi Emilsson rithöfundur, f. 20. október 1902, d. 6. mars 1993. Systir Fanneyjar var Elsa Jóna, f. 4. desember 1929, d. 25. júní 2013. Fanney giftist 3. október 1953 Friðjóni Þórarinssyni, verkamanni og bifreiðastjóra, f. 10. nóvember 1925, d. 27. jan- úar 1975. Hann var sonur Sal- ínu Einarsdóttur, f. 5. apríl 1889, d. 27. júní 1952, og Þór- arins Ketilssonar, f. 7. nóv- ember 1875, d. 3. nóvember 1948. Fanney lauk gagnfræðaprófi á Akureyri, hóf nám við menntaskólann en lauk því ekki. Síðar nam hún við Hús- mæðraskólann á Staðarfelli. Hún vann ýmis störf, lengst af sem deildarstjóri á skrifstofu ríkisspítalanna. Sonur Fanneyjar og Joseph Böðvar Darri, f. 13. mars 1986, sambýliskona hans er Ingadóra Snorradóttir, f. 13. febrúar 1991. Börn Fanneyjar og Friðjóns eru: 1) Tryggvi, f. 12. júlí 1955, kvæntur Kristbjörgu Leósdótt- ur, f. 31. janúar 1956, dætur þeirra eru: Soffía Theódóra, f. 30. janúar 1983; Fanney Björk, f. 1. febrúar 1987, gift Karli Raymond Birgissyni, f. 9. mars 1985, börn þeirra eru Katrín Lilja, f. 29. ágúst 2011, og Bjarki Már, f. 30. apríl 2014. 2) Þórarinn, f. 6. janúar 1958, kvæntur Ingibjörgu Ólafs- dóttur, f. 19. febrúar 1959, dæt- ur þeirra eru: Íris, f. 14. desem- ber 1977, gift Gísla Þórmari Snæbjörnssyni, f. 28. júlí 1977, börn þeirra eru Sóley, f. 17. mars 2003, Þórarinn, f. 5. ágúst 2008, Ingi, f. 16. ágúst 2010, og Ægir, f. 2. nóvember 2013; Fanney, f. 28. maí 1985, sam- býlismaður hennar er Magnús Einarsson, f. 11. desember 1977. 3) Gróa, f. 19. ágúst 1965, gift Sigurði Sveinssyni, f. 5. júní 1949, d. 6. október 2008. Sonur Gróu er Friðjón Þór, f. 4. maí 1988, sambýliskona hans er Hólmfríður Jóna Guðmunds- dóttir, f. 24. mars 1988, börn þeirra eru Emilía Ýr, f. 25. nóv- ember 2007, Guðmundur Þór, f. 14. júlí 2009, og Hilmir Þór, f. 16. apríl 2015. Fanney verður jarðsungin frá Áskirkju í dag, 2. desember 2015, kl. 13. Lee Lemacks, f. 30. maí 1918, er Jo- seph Lee Lemacks, f. 19. mars 1944. Dóttir Josephs og Unnar Bergþórs- dóttur er Eygló, f. 26. febrúar 1973. Börn hennar og Sigurðar Kárason- ar, f. 6. maí 1972, eru Hugrún Embla, f. 2. febrúar 1997, og Einar Kári, f. 8. apríl 2001. Joseph kvæntist Vigdísi Stef- ánsdóttur, f. 29. maí 1956, þau slitu samvistir, börn þeirra eru: Agnar Tryggvi, f. 24. ágúst 1975, kvæntur Kristjönu Björk Stefánsdóttur, f. 18. janúar 1981, börn þeirra eru Alexand- er, f. 28. ágúst 2009, d. sama dag, og Júlíana Elsa, f. 13. októ- ber 2012; Steinar Bragi, f. 23. mars 1978, d. 21. mars 1998; Árný Elsa, f. 1. september 1979, sonur hennar og Halldórs Jóns- sonar er Steinar Helgi, f. 6. október 1999, dóttir hennar og Leiknis Kristjánssonar er Anna Katrín, f. 19. nóvember 2003, sambýlismaður Árnýjar er Hilmar Þór Hilmarsson, f. 26. júní 1977, börn þeirra eru Ár- mann Þór, f. 19. mars 2010, og Marta Lilja. f. 10. júní 2012; Mamma byrjaði snemma að vinna fyrir sér. Níu ára fór hún í vist á Akureyri, sumarið eftir fór hún í vist að Fagraskógi. Sumrin þar urðu þrjú. Hún passaði börn- in á bænum og sinnti öðrum störfum, eins og gengur. Heim- ilisfólkið var henni gott og hún átti margar góðar minningar þaðan. Eins og um skáldið Davíð sem gekk þungur á brún um hlaðið og vildi ekki láta trufla sig, en átti oft einhverja mola í vas- anum til að gefa krökkunum. Hann var að semja Gullna hliðið. Í því syngur Fiðlungur: Ég beið þín lengi, lengi, mín liljan fríð, stillti mína strengi gegn stormum og hríð. Ég beið þín undir björkunum í Bláskógahlíð. Ég nefni þetta hér því því ein- hvers staðar í andanum hefur pabbi beðið eftir mömmu og hún var sannarlega oft með hugann hjá honum eftir að hann dó fyrir rúmum 40 árum. Eftir það sá hún um heimilið og okkur systkinin og þurfti að vinna mikið. Ég áttaði mig ekki á því þá hvað hún lagði á sig, sé það betur núna. Vann allan dag- inn, kom heim til að elda matinn, fór oftar en ekki aftur í vinnuna á kvöldin. Vann flesta laugar- daga. Oftast ferðaðist hún með strætó. Og ekki kom þetta niður á heimilisstörfunum því hún var sannarlega myndarlega hús- móðir. Hafði verið á Húsmæðra- skólanum á Staðarfelli og lauk honum með hæsta prófi sem tek- ið hafði verið þar. Frétt um það var lesin í útvarpinu og birt í blöðunum. Mamma var heilsuhraust. En árið 2012 fór eitthvað að gefa sig og hún var þá heppin að fá inni á Grund. Þar var heimili hennar síðan. Hún kunni vel við sig þar, var forvitin um starfsfólkið og vissi margt um það, ekki síst það sem var langt að komið. Þau urðu hluti af lífi hennar og hún sagði okkur fréttir af því, eins og öðr- um í fjölskyldunni. Hún fylgdist vel með, mundi afmælisdaga allra í fjölskyldunni, hafði lag á að hlakka alltaf til einhvers. Skemmtilegast var að fá barna- barnabörnin í heimsókn, þau voru líf hennar og yndi og öll full- komin í hennar huga. Mamma var góð og æðrulaus kona. Hún kvartaði aldrei í mín eyru, jafnvel þótt ég vissi að hún væri kvalin undir það síðasta. Hún elskaði fjölskylduna sína heitt og sú ást var endurgoldin og hún fann það vel. Sjálfur var ég tengdur henni sterkum böndum, ef ég komst ekki til hennar á Grund þá töluðum við saman í síma tvisvar á dag. Hún þurfti jú að fylgjast vel með öllu. Nú togn- ar á þeim böndum, en þau slitna ekki hvert sem lífslokin bera hana. Það er margs að minnast og margs að sakna. Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika átti mamma um margt gott líf og hún var þakklát fyrir það sem hún átti og allt sem var gert fyrir hana. Á Grund lifði hún í núinu, eins og er svo vinsælt nú um stundir, heklaði og las dönsku blöðin. Undir það síðasta var hún að lesa ævintýri H.C. Andersen á dönsku, hún dáði hann mjög. Og hún hlakkaði til næstu endur- funda við fjölskylduna. Nú leggst hún til hvílu við hlið mannsins síns. Leggur loga bjarta, – mín liljan fríð, frá hjarta til hjarta, um himinhvelin víð. Og blítt er undir björkunum í Bláskógahlíð. Elsku mamma, hvíl í friði. Þórarinn Friðjónsson. Elsku hjartans móðir mín er látin. Engin orð fá því í raun lýst hvað ég elska hana mikið. Hún var kletturinn í lífi mínu, alltaf góð, glöð, réttsýn og æðrulaus. Aldrei nokkurn tímann féll styggðaryrði af hennar vörum í minn garð. Hún hugsaði alltaf um aðra áður en hún hugsaði um sjálfa sig. Það mættu fleiri gera hér í heimi. Mamma var á fertugasta ald- ursári þegar ég fæddist. Henni fannst hún vera of gömul til að eignast barn. Aldrei fann ég fyrir því. Faðir minn dó þegar hann var 49 ára. Það var mömmu af- skaplega erfitt og í raun jafnaði hún sig aldrei á því, það er gott til þess að vita að nú dvelur hún í faðmi hans. Hún vann myrkr- anna á milli svo að aldrei skorti okkur systkinin nokkurn hlut. Ávallt hjálpfús og með opinn faðminn ef eitthvað bjátaði á. Heimilið var óaðfinnanlegt, fallegt og notalegt eins og hún sjálf. Kæra mamma mín. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þú munt alltaf búa í brjósti mínu. Betri mömmu hefði ég ekki getað átt. Sáran söknuð finn, sorg í hjarta ber, létt ei lífið er, laugast tári kinn. Finn ei faðmlag þitt, framar lífs á slóð, þjáðum varst þú góð, þú varst skjólið mitt. Elsku móðir mín, mér þú varst svo kær, líkt og lindin tær, ljúf var ásýnd þín. Bak við himins hlið, heilsar englaval, Guðs í sælum sal, seinna hittumst við. (Kristján Runólfsson) Gróa Friðjónsdóttir. Lífið er svo hverfult og tíminn svo naumur, við höldum alltaf að við eigum inni meiri tíma. Við sendum hér með okkar hinstu kveðju til elsku ömmu okkar, Fanneyjar. Amma var yndisleg og einstaklega góð kona. Hún bað um lítið en gaf svo mikið. Hún elskaði fólkið sitt meira en allt og var okkar helsti stuðn- ingsmaður. Hún var hógvær fyr- ir sjálfa sig en hávær fyrir fólkið sitt. Hún lagði sig fram um að vita hvað væri að gerast hjá öll- um og var með allt á hreinu allt- af. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Við kveðjum þig með miklum söknuði, hvíldu í friði, elsku amma. Við lofum að láta krullurnar njóta sín og verðum að eilífu V. Þínar sonardætur, Soffía Theódóra og Fanney Björk Tryggvadætur. Amma Fanney var umhyggju- söm amma, amman sem hlýjaði mér um hendurnar. Hún var alltaf að hugsa um að allir hefðu það gott og liði vel. Ég er hand- köld og oft þegar ég kom í heim- sókn hafði hún fyrst orð á því hvað mér væri nú kalt á hönd- unum og svo hlýjaði hún mér með sínum heitu höndum. Þetta gerði hún alveg frá því ég var lít- il og þangað til að ég koma að heimsækja hana nokkrum dög- um áður en hún lést þegar hún var orðin mjög slöpp. Svo spurði hún hvort allir væru hressir og heilir heilsu, því hún vildi öllum það besta og fjölskyldan var henni efst í huga. Afi minn lést áður en ég fæddist svo amma rak sitt heim- ili sjálf og það var alltaf svo fínt hjá henni. Þar voru bakaðar margar sortir af smákökum um jólin og lengi vel tekið slátur á haustin. Oft var öll fjölskyldan með og þessum stundum man ég vel eftir þegar ég var yngri. Amma stóð líka fyrir spiladegi á öðrum í jólum til að ná allri fjöl- skyldunni saman og eftir að hún flutti á Grund þá hélt þessi hefð áfram heima hjá börnunum hennar. Skemmtileg samveru- stund sem deyr vonandi ekki út með ömmu. Vorið 2003 kom amma að heimsækja okkur fjölskylduna til Kaupmannahafnar stuttu eft- ir að Sóley dóttir okkar fæddist. Þetta var síðasta ferð hennar til útlanda og þetta var skemmti- leg og vel heppnuð ferð. Við náðum að gera margt þessa daga sem hún var hjá okkur og veðrið var svo gott. Amma rifj- aði þessa ferð oft upp og mér þykir vænt um þennan tíma. Hún var líka svo þakklát fyrir allt, sama hversu lítið það var, og var alltaf að hrósa okkur og tala fallega um barnabörnin, hvað þau væru nú falleg og heil- brigð og hraust, með fallegt höf- uðlag og fín eyru. Hún tók eftir ýmsu sem fer fram hjá flestum og hafði orð á því. Við fjölskyldan eigum eftir að sakna þess að heimsækja ömmu á Grund. Börnin fengu alltaf nammi, því amma tók ekki ann- að í mál en að fá að bjóða upp á það. Svo lituðu þau myndir og hengdu upp á vegg hjá henni. Þar var samansafn af teikning- um eftir barnabarnabörnin, á mörgum þeirra stóð langamma með marglitum stöfum og LOVE. En amma var svo góð- hjörtuð og góð amma og allir elskuðu hana. Við eigum eftir að hlýja okkur við minninguna um hana. Íris Þórarinsdóttir og fjölskylda. Ég man fyrst eftir ömmu Fanneyju seint á áttunda ára- tuginum þegar hún bjó ásamt Gróu við Hofteig 32 í Laugar- dalnum. Hún vann þá eins og endra nær við bókhald hjá Landspítalanum þar sem hún starfaði við tölvu mun fyrr en flestir landsmenn. Ég man að mér þótti merkilegt að koma í heimsókn í vinnuna til hennar og sjá þessi stóru og flóknu tæki sem hún vann á. Amma lifði fyrir fólkið sitt. Velgengni þess og líðan var henni mjög hugleikin. Hjá henni var ávallt hægt að ganga að hlýju, bjartsýni og góðum veitingum. Ég man vel eftir myndarlegu heimili hennar við Safamýri sem var samkomustaður fjölskyld- unnar á hátíðisstundum. Þar tókst henni ávallt að framreiða ljúffengan veislumat og láta það líta út eins og ekkert hefði verið fyrir því haft, þó síðari tíma reynsla hafi kennt manni annað. Sérstaklega mun ég sakna brúnu randalínanna sem hún bakaði fyrir hver jól og þurfti líklega að baka sérstaklega stóran skammt af þeim árum saman svo eitthvað væri eftir fyrir aðra fjölskyldu- meðlimi. Eins og öðrum áföllum tók hún því af æðruleysi þegar ald- urinn færðist yfir. Hún dvaldi ekki mikið við orðinn hlut þó nóg hefði hún að dvelja við. Fyrir henni skipti framtíðin alltaf mestu máli. Þegar ég heimsótti hana nokkrum dögum áður en hún kvaddi hlakkaði hún til að heimsækja okkur fjölskylduna í nýtt húsnæði eftir jól og hitta Júlíönu barnabarnabarn sitt. Hún hafði fram á síðasta dag mikinn áhuga á hvað öll börnin hennar, barnabörn og barna- barnabörnin höfðu fyrir stafni og maður gat treyst á að fá frétt- ir af því þegar maður kom í heimsókn á Grund. Ég mun ávallt minnast ömmu með mikilli hlýju og hef margar góðar stundir til að rifja upp. Minning hennar mun lifa vel og lengi hjá okkur afkomendum hennar sem og í bókum föður hennar Tryggva Emilssonar. Þær hefur verið hughreystandi að rifja upp undanfarna daga. Agnar Tryggvi Lemacks. Ég kynntist Fanneyju Tryggvadóttur, eða ömmu Fann- eyju eins og hún hét í okkar huga, þegar ég var rétt um 17 ára göm- ul og kom inn í fjölskylduna. Fanney tók vel á móti þessum krakka sem ég sennilega hef verið í hennar augum og reynd- ist mér vel alla tíð. Smátt og smátt kynntumst við betur og kostir Fanneyjar birtust mér einn af öðrum. Það var hennar aðalsmerki að vera kurteis, mik- il húsmóðir, dugleg til allra verka og um leið hlý við þá sem voru henni samferða á lífsins leið. Reglulega hélt hún matar- boð fyrir sífjölgandi afkomend- ur sína á öllum aldri. Einhvern veginn fannst manni það vera áreynslulaust af hennar hendi en að elda ofan í allan þennan fjölda hefur auðvitað ekki verið það. Fanney flutti til Reykjavíkur frá Akureyri áamt foreldrum sín- um og systur. Akureyri var henni ávallt hugleikin og þaðan kom sá siður að baka randalínur, brúnar og hvítar – afar ljúffengar. Fann- ey bakaði árum saman fjöldann allan af randalínum fyrir jól og gaf börnum sínum og fjölskyld- um þeirra. Þar fyrir utan bakaði hún fjölda tegunda af smákökum sem hurfu fljótt ofan í svanga munna, ekki síst á annan jóladag, árlegan spiladag fjölskyldunnar sem lengi var haldinn á heimili Fanneyjar. Það einkenndi Fanneyju mjög að vera skapgóð, jafnlynd og geta átt samskipti við alla á jafnréttisgrunni. Hún hélt afar góðum tengslum við börn, barnabörn og barnabarnabörn og vissi alltaf nákvæmlega hvað hver var að gera og hvernig gekk. Maður gat gengið að því vísu að frétta af hinum hjá ömmu Fanneyju. Líka eftir að hún fór á Grund því daglega bárust henni fréttir og ef leið of langur tími að hennar áliti frá því maður hafði samband þá hringdi hún. Það er erfitt að koma til skila tilfinningum og minningum í stuttri grein en það er alveg ljóst að ömmu Fanneyjar er og verður mikið saknað. Hvíl í friði. Vigdís Stefánsdóttir. Fanney Tryggvadóttir HINSTA KVEÐJA Elsku langamma Fann- ey. Við elskum þig alltaf, alla daga. Við erum leið yfir að þú ert dáin, en við vitum að þér líður vel uppi hjá Guði og hjá Friðjóni lang- afa. Takk fyrir að gefa okkur alltaf nammi þegar við komum í heimsókn. Þú varst alltaf svo góð við okk- ur og við góð við þig. Við söknum þín svo mikið og við elskum þig. Þín lang- ömmubörn. Emilía Ýr og Guðmundur Þór Friðjónsbörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HILDIGUNNUR HALLDÓRSDÓTTIR, Laugarnesvegi 89, áður til heimilis að Hagamel 26, lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 28. nóvember. . Hjördís Sigrún Pálsdóttir, Björgúlfur Pétursson, Þorgerður Pálsdóttir, Guðmundur K. Marinósson, Bentína Unnur Pálsdóttir, Kristinn Á. Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞORGERÐUR ÞORGEIRSDÓTTIR hússtjórnarkennari, andaðist á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 27. nóvember 2015. . Magnús Gíslason, Guðrún Halldórsdóttir, Rósa Gísladóttir, Þórhallur Eyþórsson, Gísli Magnússon, Vilborg Magnúsdóttir, Þorgerður Þórhallsdóttir, Helga Gunndís Þórhallsdóttir, Guðrún Sigríður Þórhallsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VILHELM GUÐMUNDSSON, Garðbraut 86, Garði, lést mánudaginn 30. nóvember. . Björg Björnsdóttir, Auður Vilhelmsdóttir, Ásbjörn Jónsson, Björn Vilhelmsson, Laufey Erlendsdóttir, Hildur Vilhelmsdóttir, Franz Eiríksson, Atli Vilberg Vilhelmsson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.