Morgunblaðið - 02.12.2015, Page 24

Morgunblaðið - 02.12.2015, Page 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 ✝ Ómar Wiethfæddist í Reykjavík 18. maí 1953. Hann varð bráðkvaddur 21. nóvember 2015. Foreldrar hans voru Arnþrúður Sigurðardóttir Kaldalóns frá Bæj- um á Snæfjalla- strönd, f. 23. októ- ber 1919, d. 25. mars 2005, og Kjeld Danner Wieth, f. 15. desember 1915, d. 2006. Þau slitu samvistum. Eldri sammæðra systkini Ómars eru: Sigvaldi Snær, f. 1942, Örn Sig- mar, f. 1945, og Greta Freydís, f. 1947. Faðir þeirra var Sigvaldi Þórður Kaldalóns, f. 7. nóvember 1915, d. 16. apríl 1948. móður sinni og systkinum. Hann hóf ungur störf hjá Íslenska verslunarfélaginu og síðar hjá Íslenskum matvælum. Kassa- gerðin, síðar Umbúðamiðstöðin, og Eimskip voru vinnustaðir hans um margra ára skeið. Enn síðar starfaði hann við Land- spítalann og síðasta starfsárið sitt var hann bifreiðastjóri hjá Strætó bs. Ómar var samfellt og ötullega starfandi í ferðaklúbbnum 4x4 frá fyrsta ári 1983, meðal annars vann hann í mörg ár við upp- byggingu Setursins og sat í mörg ár í skálanefnd klúbbsins. Hann var um skeið formaður Seina- gengisins og oftar en ekki brá hann sér í hlutverk fararstjóra í jeppagenginu Tréköllunum og var virkur á þeim vettvangi allt til síðasta dags. Útför Ómars fer fram frá Grensáskirkju í dag, 2. desember 2015, kl. 11. Ómar kvæntist Þorbjörgu Halldóru Hannesdóttur, f. 9. ágúst 1956. Sonur þeirra er Árni Þór, f. 23. nóvember 1976. Eiginkona Árna Þórs er Hild- ur Arnar, f. 29. nóv- ember 1976. Dætur þeirra eru: Gabrí- ella Kamí, f. 14. jan- úar 2000, og Anika Rós, f. 19. janúar 2002. Hinn 17. apríl 1997 kvæntist hann Þórunni Huldu Davíðs- dóttur, f. 22. júlí 1954. Sonur þeirra er Hlynur Örn, f. 12. des- ember 1996. Fyrir á Þórunn Hulda soninn Davíð Þórðarson, f. 14. febrúar 1975. Ómar ólst upp í Reykjavík hjá Jæja Ómar minn! Hvern ór- aði fyrir þessu, langt fyrir aldur fram? Þú sem alltaf varst litli bróðir og komst upp með margt út af því. Sætur lítill snáði, sí- brosandi og kátur. Svei mér þá ef það fylgdi þér ekki bara alla tíð. Ást þín á náttúrunni og fjallaferðum fylgdi þér. Ég komst ekki með tærnar þar sem þú hafðir hælana í þeim efnum. Þekking þín á þessum sviðum var með ólíkindum og stendur hvergi skrifuð á skjöl. Ég gleymi ekki margra tíma ferð sem við fórum saman fyrir stuttu á Trékyllisheiði, ásamt fleiri fjallagörpum, keyrandi um á slóðum sem varla sáust, en þér tókst alltaf að finna rétta leið. Jafnvel þegar systir stoppaði þig og sagði: „Ég fer ekki lengra.“ Þú fannst leiðina og við komumst niður, heilu og höldnu. Ég fegin, en þreytt og alveg búin. Ekki þú, þú vildir lengra. Núna rifjar maður upp góðar stundir sem ég átti með þér og þínum. Það verður ekki frá manni tekið, þó að þú sért far- inn. Það er gott að ylja sér við minningarnar. Þær hefðu mátt verða fleiri. Það er sárt að syrgja þig. Jæja Ómar minn, farðu í friði og finndu ljósið, þótt það sé skýjum ofar. Ég hugsa fallega til þín. Sjáumst seinna, þín stóra systir, Greta Freydís. Sigvaldi bróðir hringdi kl. 2.15 aðfaranótt sunnudagsins 22. nóvember til að segja mér að Ómar bróðir væri látinn. Að- eins 62 ára varð hann bráð- kvaddur í grennd við Strúts- skála á Fjallabaksleið syðri. Þar var hann staddur ásamt ferðafélögum frá 4x4, að hjálpa til við að losa jeppa sem festist. Það var í glaðasólskini þann 17. maí 1953 sem ég var beðinn um að fara upp á Suðurlands- braut (gömlu) í veg fyrir sjúkrabifreið, sem kom að sækja mömmu. Næsta dag var Ómar kominn í heiminn. Tveggja ára var hann þegar við fórum ásamt mömmu að heim- sækja Kjeld Wieth, föður hans, þar sem hann lá á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn í gifsi um mjaðmirnar. Löngu síðar hitt- ust þeir feðgar í Danmörku og spjölluðu saman, en fleiri urðu fundir þeirra ekki svo að ég viti. Það er dæmigert að Ómar var að hjálpa til við að losa jeppa. Hjálpsamur var hann og hefur fengist við bifreiðar alla ævi. Byrjaði snemma því þegar sprakk á mínum gamla Morris Oxford fylgdist hann með af at- hygli þegar ég skipti um dekk. Næst þegar sprakk tók hann fram tjakkinn og verkfærin og tók hjólkoppinn af, en ég sá um að losa rærnar. Löngu síðar hjálpaði hann mér ótal sinnum með bíla í gegnum skoðun og síðast skipti hann um startara í gömlum Ford sem ég á nú. Ómar hafði arnarsjón. Eitt sinn fyrir löngu vorum við á ferð í Hvalfirðinum, þegar mal- arvegir voru alls staðar og um- ferðin strjál. Þá sagði Ómar: „Þarna er bíll“, en ég sá engan bíl, nema húddið á mínum eigin bíl. „Bíllinn er rauður“ gall í Ómari og þá sá ég bíl. „Þetta er Chevrolet“ og þá sá ég að bíll- inn var rauður. Næst sagði Óm- ar bílnúmerið og þá sá ég að þetta var Chevrolet. Þegar ég loks sá bílnúmerið, þá var Óm- ar búinn að sjá næsta bíl. Ómar hóf störf við útkeyrslu á vörum hjá Íslenska verslunar- félaginu, en síðast ók hann vögnum hjá Strætisvögnum Reykjavíkur. Hann tók allar vaktir sem buðust, enda vinnu- glaður með afbrigðum. Hann vann víða, meðal annars hjá Eimskip, Kassagerðinni, Glit, Kópavogsbæ, Landspítalanum og víðar. Harðduglegur og ár- risull var hann. Vann hjá Eim- skip sem háseti á Berglindinni, sem lenti í árekstri og sökk úti af austurströnd Kanada árið 1981. Skipverjar björguðust, en það hafði mikil áhrif á Ómar að lenda í þvílíku sjóslysi. Gjafmildur var Ómar og miðlaði ævinlega af því sem hann átti. Tekjurnar jukust í takt við vaktafjöldann hjá Strætó og um daginn bauð hann okkur Grétu systur á hljómleika Magnúsar Eiríks- sonar, æskuvinar míns, í Hörpu. Þar áttum við systkinin saman ánægjustundir og þar sá ég hann í síðasta sinn. Við systkinin sjáum á bak yngsta bróður okkar, sem fór allt of snemma. Fjöldi góðra fé- laga saknar Ómars, svo sem sjá má á spjallborði vefsetursins f4x4. Ég kveð minn glaðlynda og góðlega bróður með sárum söknuði. Orðstír hans mun lifa með ættingjum og vinum. Von- andi hittumst við bræðurnir aftur í upprisunni á efsta degi (Jóh. 6:40). Þórunni mágkonu og sonum Ómars, þeim Árna Þór og Hlyni Erni, sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Örn S. Kaldalóns. Aðfaranótt sunnudagsins 22. nóvember knúðu dyra tveir lög- reglumenn, karl og kona, þeirra erinda að tjá okkur andlát Óm- ars yngsta bróður okkar syst- kinanna. Með hógværð og hæg- látri framkomu lýstu þau aðdraganda þess að bróðir okk- ar hné niður inni á hálendi og þaðan fluttur með þyrlu á Sel- foss þar sem hann var úrskurð- aður látinn. Þessi hjálpsami, bjartsýni og glaðsinna bróðir okkar hafði sérstakt yndi af fjalla- og há- lendisferðum allan ársins hring. Dæmigert fyrir hann, að síð- asta viðvikið í seinustu hálend- isferð þeirra Trékarlanna, var að rétta fram hjálparhönd til eins félaganna sem féll við í hálkunni. En í því Ómar réttir fram hönd til aðstoðar, breytist allt. Hann hnígur niður rænu- laus og lífgunartilraunir á með- an beðið var björgunarþyrlu báru ekki árangur þótt hann virtist enn með lífsmarki. Björgunarsveit sem send var á vettvang flutti ferðafélögum andlátsfregnina. Í æsku var Ómar dagfars- prúður, jákvæður, einstaklega greiðvikinn, býsna málgefinn, en móður sinni góður og eftir- látur. Laus við óreglu og vesen. Blótsyrði, bölv og ragn, sem og illt umtal, heyrðist aldrei af vörum hans. Bókiðkun og þrá- seta á skólabekk reyndi samt verulega á þolinmæðina, en hvers kyns tól og tæki hittu hann hins vegar afar vel fyrir. Í skólanum bar það við einn veturinn að Ómar varð fyrir barðinu á viðvarandi einelti. Þá er það að Simmi bróðir tekur málin í sínar hendur. Stormar upp í Austurbæjarskóla, framhjá kennarastofu sem og skrifstofu skólastjóra og knýr dyra í miðri kennslustund. Dauðaþögn varð, þegar hátt í tveggja metra maðurinn mess- aði þannig yfir bekknum – og kennaranum – að eineltisöflin lyppuðust niður og létu ekki framar á sér kræla. Þótt Ómar ætti litla skelli- nöðru um tíma, þá slapp hann samt við alvöru mótorhjóla- dellu. Stærri ökutæki freistuðu frekar, alvörukaggar, helst am- erískir. Ómar kom höndum yfir einn slíkan, átta gata Pontiac, tryllitæki með pústflækjum, fjögurra hólfa blöndungi, fleiri hundruð hestöflum og linnu- lausum bensínþorsta alla daga, en skilaði eigandanum viðvar- andi sælukennd samhliða gal- tómri buddu. Um miðjan átt- unda áratuginn festi Simmi bróðir kaup á stórum og stæði- legum Chevrolet Blazer. Eitt- hvað kveikti í litla bróður. Al- vöru jeppi, það var málið. Að eiga og nota slíkt ökutæki er í senn gefandi og krefjandi. Óbyggðirnar og hálendið bera með sér lífsnautn sem engu er lík. Sú nautn var það sem bróð- ir okkar gekkst við í fylgd vina og félaga. Reyndir jeppamenn vita að alvöru jeppasport á ekk- ert skylt við glanna- og töff- araskap af nokkru tagi. Gætni og yfirvegun gilda, hvort heldur ekið er eftir grýttum slóða eða glímt við ólgandi jökulvatn. Ómar og félagar voru ávallt við- búnir aðstæðum og óku sínum vögnum heilum heim. Í ferðinni sem farin var á dögunum komu hins vegar upp aðstæður sem enginn gat séð fyrir. Ómars er sárt saknað af fjöl- skyldu, vinum og ferðafélögum. Eiginkonunni, Þórunni Huldu, sonunum tveim, þeim Árna Þór og Hlyni Erni, tengdadóttur og barnabörnum eru færðar sam- úðarkveðjur. Sigvaldi Snær Kaldalóns. Ómar Wieth ✝ JóhannesGunnarsson vélfræðingur fædd- ist 15. desember 1929 í Akurgerði í Garði. Hann lést að heimili sínu Drápu- hlíð 37 í Reykjavík 21. nóvember 2015. Foreldrar Jó- hannesar voru Guð- rún Jónsdóttir saumakona, f. 6. nóvember 1895 að Spóamýri í Þverárhlíð, Mýr., d. 1. ágúst 1971, og Gunnar Jónsson sjó- maður, f. 12. ágúst 1886 á Velli, Hvolhreppi, Rang., d. 1. desem- ber 1975. Systkini Jóhannesar voru Mál- fríður Hulda Gunnarsdóttir, f. 1917, d. 2014, Borgþór Valtýr Gunnarsson, f. 1918, d. 2000, Jónfríður Gunnarsdóttir, f. 1922, d. 2009, Ólöf Helga Gunn- arsdóttir, f. 1924, d. 1998, Sigríð- ur Gunnarsdóttir, f. 1928, d. 2009, Sigurlaug Gunnarsdóttir, f. 1932, d. 2006 og Ásta Gunn- arsdóttir, f. 1934, d. 1992. Jóhannes kvæntist Huldu Sig- Guðrún Jóhannesdóttir lækna- ritari, f. 31. ágúst 1961, búsett á Akureyri, börn: Hulda Margrét, Nína og Þorsteinn. 5) Kristín Jó- hannesdóttir forstjóri, f. 31. ágúst 1961, búsett í Reykjavík, maður hennar er Magnús Rúnar Magnússon, börn: Jóhannes, Björg, Gunnar, Nanna og Guð- rún. 6) Gunnlaugur Jóhannesson pípulagningameistari, f. 30. jan- úar 1965, búsettur í Reykjavík, kona hans er Elín Þórhildur Pét- ursdóttir, börn: Pétur, Aníta, Gunnlaugur Agnar, Helga Magnea og Hulda Kristín. Barnabörnin eru 22 og barna- barnabörn eru orðin 30 talsins. Jóhannes lauk námi í plötu- og ketilsmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík og hjá Stálsmiðjunni í Reykjavík (1948-1952). Að loknu vélstjóraprófi 1955 starfaði hann sem vélstjóri hjá Eimskipafélagi Íslands til 1968. Þaðan lá leið hans í rafstöðina á Keflavík- urflugvelli þar sem hann starfaði sem vélstjóri allt þar til hann lét af störfum fyrir aldur sakir árið 1999. Jóhannes lauk árið 1970 prófi frá York Institute of Air Conditioning and Refrigeration. Hann var félagi í Oddfellow reglunni Skúli fógeti. Útför Jóhannesar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 2. des- ember 2015, klukkan 15. ríði Þórðardóttur 17. júní 1958, hún var fædd 29. júní 1935, d. 18. sept- ember 2011. For- eldrar hennar voru Kristín Gunnlaugs- dóttir, f. 29. mars 1903, d. 30. júní 1990, og Þórður Guðmundsson, f. 26. desember 1901, d. 31. janúar 1998. Börn og stjúpbörn Jóhannesar og Huldu eru: 1) Jón Albert Sig- urbjörnsson húsasmiður, f. 17. janúar 1955, búsettur í Reykja- vík, kona hans er Lára Guð- mundsdóttir, börn: Daníel, Hulda og Lilja. 2) Jóhannes Egg- ert Jóhannesson fiskeldisfræð- ingur, f. 21. nóvember 1958, bú- settur í Skagafirði, kona hans er Sveinfríður Ágústa Jónsdóttir, börn: Briet Arna, Máni Jón og Ingi Sveinn. 3) Ómar Jóhann- esson vélvirki, f. 11. desember 1958, búsettur í Reykjavík, kona hans er Inga Hanna Hann- esdóttir, börn: Gréta Björk, Bjarki Freyr og Ómar Andri. 4) Elsku pabbi minn, Ég vil kveðja þig og mömmu með þessum orðum. Ég sakna ykkar beggja svo mikið og er þakklát fyrir allan tímann sem við fengum saman. Þið tókuð svo vel á móti börnunum mínum og hjálpuðuð mér mikið þegar þau voru lítil. Það var gaman að koma upp í bústað til ykkar og heyra sögurn- ar af trjánum sem þið gróðursett- uð. Þú varst mikill húmoristi og hafði ég gaman af þegar þú varst að grínast í börnunum mínum. Mamma var með agann og iðu- lega eftir að mamma bannaði eitthvað þá fóru krakkarnir til þín, pabbi, og þú sagðir alltaf já. Mamma gaf þá eftir. Þið voruð svo falleg hjón og alltaf til staðar fyrir hvort annað. Ég dáðist að því hversu samrýnd þið voruð og vona að ég nái að ljúka minni ævi með mínum manni á sama hátt og þið gerðuð, miklir vinir. Nú eru þið saman á ný og veit- ir það mér huggun á þessum erf- iða tíma. Elska ykkur bæði. Sofðu lengi, sofðu rótt, seint mun best að vakna. Mæðan kenna mun þér fljótt, Meðan hallar degi skjótt, Að mennirnir elska, missa, gráta og sakna. (Jóhann Sigurjónsson) Ykkar dóttir, Kristín. Elsku afi, þegar ég lít yfir tím- ann okkar saman þá á ég ynd- islegar minningar af þér. Sá tími sem ég og Björg bjuggum hjá þér og ömmu er mér kærastur. Fyrsta sem kemur uppí hugann eru skeggbroddarnir sem stungu mann þegar maður hljóp í fangið á þér og alltaf var það fyrsta sem amma sagði eftir morgunmat að þú ættir að fara og raka þig. Ég elskaði þann tíma sem við eydd- um upp í bústað og fannst mér skemmtilegt að þú tókst mig allt- af með þér að draga fánann upp. Þú kenndir mér að brjóta fánann rétt saman þegar við drógum hann niður í lok dags. Þú gafst mér lítið verkfærasett og eyddi ég miklum tíma á smíðapallinum með þér og kenndir þú mér ým- islegt. Ég gleymi því seint þegar ég og Björg vöknuðum upp þegar þú komst inn til okkar að setja í skó- inn. Við vorum viss um að þú værir jólasveinninn en einhvern vegin náðir þú að sannfæra okkur um að þú hafir einungis verið að athuga hvort jólasveinninn væri búin að koma. Mér þótti svo vænt um að þú og amma heimsóttuð mig og Björgu í sveitina á sumrin. Það var svo gaman að sýna þér allt sem við vorum að gera og það sem við höfðum lært. Þú varst alltaf til staðar og gafst þér alltaf tíma í spjall yfir kaffibolla, þó fréttartíminn hafi verið heilagur og þú hafir ekki verið hrifin af því að fá gesti á þeim tíma, þá sátu við og horfð- um á fréttirnar saman. Þú hugsaðir svo vel um ömmu og gerðir allt fyrir hana sama hvað var. Þú varst léttur á fæti og fórst hratt um. Hljópst upp og niður stigann til að sækja hluti fyrir ömmu eða setja í þvottavél. Mér þótti gaman að fá símtöl frá þér þar sem þú baðst mig um að hjálpa þér við allar græjurnar þínar. Best þótti mér þegar ég gaf þér aðgang að torrent síðu og þú varst duglegur að sækja þér spennumyndir. Einnig allar hljóðbækurnar sem maður setti inn fyrir þig, stundum sömu bók- ina þrisvar sinnum. Ég er þakklátur fyrir allan þann tíma sem við fengum sam- an. Öll samtölin, ferðin til Þýska- lands og gæðastundirnar sem við áttum saman. Elsku afi minn, þú kenndir mér svo margt sem ég geymi ávallt. Þú og amma lögðu mikið upp úr menntun og skynsemi. Þú mótaðir mig mikið og eru minn- ingarnar margar og góðar. Þinn nafni, Jóhannes. Elsku afi minn, erfitt er að sjá á eftir þér en ég veit að amma tók vel á móti þér. Þú varst alltaf svo hress og orkumikill að stundum skildi ég ekkert í því hvaðan þú fékkst þennan drifkraft. Leti var ekki í þínum orðaforða. Þegar amma veiktist þá varstu eins og klettur við hlið hennar og gerðir allt sem þurfti að gera á heim- ilinu. Ekki er hægt að ímynda sér betri eiginmann. Þú varst svo sjálfstæð persóna og lést ekkert stoppa þig. Man ég ófá símtölin eftir að amma lést þar sem þú leitaðir eftir matar- uppskriftum til að elda eftir. Þú hafðir mikinn áhuga á nýrri tækni og lést aldur þinn ekkert stoppa þig í að kaupa þér alls konar græjur sem þú kunnir ekk- ert á. Oftar en ekki hringdir þú í barnabörnin þín og lést okkur að- stoða þig, sem við gerðum með glöðu geði. Þú hafðir mikinn húmor, kald- hæðinn en hafðir líka gaman af því að rugla í okkur krökkunum þannig að maður var ekki viss um hvort þú værir að grínast eða hvort þér væri alvara, fyrr en þú fórst að hlæja. Man ég sérstak- lega eftir því þegar þú hringdir heim úr vinnunni og talaðir ensku í símann, alltaf hljóp ég til ömmu og sagði henni að það væri út- lendingur í símanum. Ég held að öll barnabörnin muni eftir setn- ingunni „Veit mamma þín af þessu, en pabbi þinn?“ í hvert sinn sem maður sagði þér eitt- hvað sem var að gerast og alltaf fór maður að hlæja og sagði „Já, afi, auðvitað.“ Bústaðurinn var algjör griða- staður fyrir þig og ömmu og geymi ég allar ferðirnar, sem ég og Jói fórum með ykkur þangað, í minningunni. Þar var alltaf nóg að gera enda bjugguð þið til skemmtilega aðstöðu fyrir öll barnabörnin ykkar, róluvöll, smíðapall og auðvitað skóglendið. Ég gleymi ekki þegar ég og þú fórum að gefa sniglunum pilsner svo þeir létu jarðarberin vera. Mér fannst þú stórfurðulegur að halda að þeir myndu velja pilsn- erinn frekar en þau. Ég á svo margar góðar og skemmtilegar minningar með þér og er þakklát fyrir þær allar. Rétt eins og amma þá mótaðir þú mig mikið, lífsgildin ykkar hafa haft mikil áhrif á mig og alltaf lagðir þú áherslu á menntunina, passa upp á peningana og hugsa vel um hlutina sína. Ég mun geyma þig í hjarta mínu og alla þá visku sem þú gafst mér. Björg Þorkelsdóttir. Nú er Jói frændi farinn, síð- astur Akurgerðissystkinanna átta. Það eru aðeins góðar minn- ingar tengdar Jóa. Hann var um- vafinn stórri fjölskyldu. Ég kynntist Jóa betur síðustu árin. Við fórum saman í viku hringferð um landið 2013. Fórum m.a. að Kárahnjúkastíflu en þangað höfðum við ekki komið áður. Á síðasta ári fórum við einnig í eft- irminnilega dagsferð til Vest- mannaeyja á hlýjasta degi sum- arsins. Það var gaman að ferðast með Jóa. Hann átti auðvelt með að kynnast fólki, ræða við ókunnuga og skapa afslappað andrúmsloft. Í sumar fórum við á æskuslóðir hans í Garðinum. Hann var þá mjög hress og gekk þar langa vegalengd. Ég votta börnum hans og öðrum aðstandendum samúð mína. Pálmi Ingólfsson. Jóhannes Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.