Morgunblaðið - 02.12.2015, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015
Hildur Jónsdóttir,sérfræðingur hjáforsætisráðuneyt-
inu, ákvað að verja gær-
deginum heima á Selfossi í
óveðrinu. „Ég er að vinna
að verkefni sem ég get
unnið heima og ákvað að
fara ekkert yfir Hellis-
heiðina.
Ég kem að ýmsum mál-
um í ráðuneytinu. Vinn að
friðlýsingu húsa og svo
leita margir til okkar um
ýmsa þætti sem varða
menningararfinn og upp-
byggingu minja- og ferða-
mannastaða. Ég sit í
verkefnisstjórn ramma-
áætlunar fyrir hönd for-
sætisráðuneytisins, sem er
skemmtilegt og spennandi
verkefni og snúið. Ég sit
einnig í verkefnisstjórn um
kynjaða hagstjórn sem
snýst í eðli sínu um hvern-
ig opinberum framlögum
sé varið þannig að þau ýti
ekki undir mismunun kynjanna.
Annars er ég enn að ala upp næstu kynslóð. Mitt yngsta barn er á
sama aldri og barnabörnin mín. Ég nýt lífsins og finnst áhugavert að
verða sextug. Ég hef verið að fletta upp í heimildum um formæðurnar
og hugsað mikið um hvernig lífi þær lifðu sextugar og um stöðu
þeirra. Ég er full þakklætis í þeirra garð fyrir þau lífsgæði sem bar-
átta þeirra fyrir auknum réttindum hefur skilað. Ég man eftir konum
sem voru útslitnar á sál og líkama á þessum aldri þótt mínar formæð-
ur hafi flestar verið sprækar og starfandi fram undir tírætt.“
Börn Hildar eru Ragna Bjarnadóttir 40 ára, Erlingur Atli Pálmars-
son 26 ára og Jörundur Snær Hjartarson 17 ára. Sambýlismaður Hild-
ar til 20 ára er Hjörtur O. Aðalsteinsson, dómstjóri við Héraðsdóm
Suðurlands. Skádætur Hildar eru Guðrún Svava Hjartardóttir og
Hjördís Hjartardóttir Thompson.
„Megnið af deginum mun ég vera á fundi verkefnisstjórnar um
rammaáætlun og ef það verður fært á Selfoss þá býð ég þeim nánustu
út að borða í Tryggvaskála. Ég ætla að geyma mér frekari veisluhöld
þar til snjóa leysir.“
Hugsar til jafnaldra
formæðra sinna
Hildur Jónsdóttir er sextug í dag
Sextug Hildur Jónsdóttir.
J
ón fæddist í Reykjavík 2.12.
1945 og ólst þar upp og í
Kópavogi frá sex ára aldri.
Hann var í Digranesskóla,
lauk landsprófi í Gagn-
fræðaskólanum við Vonarstræti,
lauk stúdentsprófi frá MR 1967 og
kandídatsprófi í skógfræði frá Nor-
ges Landbrukshögskole 1973.
Jón varð aðstoðarskógarvörður á
Hallormsstað 1974, skógarvörður á
Austurlandi 1978 og hefur verið
skógræktarstjóri ríkisins frá 1990.
Jón sat í hreppsnefnd gamla
Vallahrepps 1978-94, í stjórn Hér-
aðsskóga 1988-94, í fagráði rann-
sóknarstöðvar Skógræktar ríkisins
frá 1990 og var formaður skóla-
nefndar hússtjórnarskólans á Hall-
ormsstað um skeið. Jón hefur tekið
þátt í vinnu ýmissa hópa, bæði nor-
rænna og evrópskra sem fjalla um
skógræktarmálefni. Þá hefur hann
setið í fjölda opinberra nefnda um
skógræktarlög, um stefnumótun
skógræktar á Íslandi og um ýmis
önnur skógræktarmálefni.
Í ættum Jóns eru miklir forvígis-
menn í skógrækt á Íslandi: „Afi
minn, Einar, lærði skógrækt í Dan-
mörku í byrjun aldarinnar, var fyrst
skógarvörður á Vöglum í Fnjóskadal
en síðan á Suðurlandi. Starf skógar-
varðar á Suðurlandi var frábrugðið
sambærilegu starfi á Norðurlandi og
Austurlandi – enginn Vagla- eða
Hallormsstaðarskógur og engar
lendur í eigu skógræktarinnar en
starfið snerist fyrst og fremst um
skógræktarráðgjöf fyrir bændur.
Afi fór því ríðandi austur fyrir fjall á
vorin og kom heim á haustin og var
þá tekinn af launaskrá.
Einar G. Sæmundsen, móður-
bróðir minn, varð einnig fyrst skóg-
arvörður á Vöglum en síðan fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Reykjavíkur og skógarvörður rík-
isins á Suðvesturlandi. Hann átti
öðrum fremur þátt í uppbyggingu
gróðrarstöðvar Skógræktarfélags
Reykjavíkur í Fossvogi.
Líklega liggur þessi skógræktar-
áhugi að einhverju leyti í genunum
Jón Loftsson, skógræktarstjóri ríkisins – 70 ára
Í Toscana Stórfjölskyldan í óvissuferð á Ítalíu þegar haldið var upp á afmæli Jóns í hita og sól.
Af ættum manna með
skógrækt að hugsjón
Hjónin Jón og Berit.
Hanna Klara Birgisdóttir, Tinna K. Sigurðardóttir og Viktoría Diljá Birgisdóttir
héldu tombólu við Hrísalund á Akureyri. Þær söfnuðu 7.534 krónum sem þær
gáfu til Rauða krossins.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Ríkharður
Björgvin Vilhelmsson
fæddist 18. nóvember
2014 kl. 8.21. Hann vó
3.635 g og var 52 cm
langur. Foreldrar hans
eru Stefanía Fanney
Björgvinsdóttir og Vil-
helm Anton Jónsson.
Nýr borgari
Eðalfiskur ehf • Sólbakka 4 • 310 Borgarnesi • S. 437 1680 • sala@edalfiskur.is • www.edalfiskur.is
Eðallax
fyrir ljúfar stundir