Morgunblaðið - 02.12.2015, Blaðsíða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015
Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Einkarekið apótek
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
MAMMA nefnist fjórða bókin í
teiknimyndasagnasyrpunni Endir
sem Hugleikur Dagsson skrifar og
teiknuð er af Pétri Atla Antonssyni.
Hugleikur skrif-
aði sögurnar fjór-
ar í syrpunni og
myndskreytti þá
fyrstu, Opinber-
un, en fyrir hinar
fékk hann ólíka
teiknara til liðs
við sig, Rán Flyg-
enring í annarri
bókinni, Ógæfu,
Sigmund B. Þorgeirsson og Lilju
Hlín Péturs í þeirri þriðju, Ofan &
neðan, og nú Pétur í þeirri fjórðu. Í
MÖMMU veldur ungbarn heims-
endi, stækkar með ógnarhraða,
leggur heilu stórborgirnar í rúst og
mannkynið með öllum sínum herafla
fær ekki rönd við reist. Barnið veit
ekki betur en að heimurinn sé
stærðarinnar leikvöllur, því til
skemmtunar. Sagan er öll án orða,
ef undan er skilið orðið „mamma“
sem barnið æpir í lok bókar, sitjandi
á bleiunni í borgarrústum.
Sagan er feikilega vel teiknuð af
Pétri sem á að baki myndlistarnám í
listaháskólanum Academy of Art í
San Francisco og var með mynd-
skreytingar sem aðalfag. Hann bjó í
borginni í sex ár og starfaði eftir út-
skrift hjá tölvuleikjafyrirtæki, vann
þar að leikjum fyrir iPhone-síma.
Pétur hefur starfað við myndskreyt-
ingar sem verktaki frá því hann
flutti aftur til Íslands árið 2011 og
m.a. myndskreytt fyrir bókaforlögin
Penguin, Harper Collins og Ran-
dom House. Hann segist hafa nóg
að gera þó flest verkefnin komi að
utan enda lítill markaður fyrir
myndskreyta hér á landi. „Ég held
að stærsta nafnið sem ég hef unnið
fyrir sé Disney, dótturfyrirtæki
þess sem heitir Interactive,“ segir
hann.
Líta út eins og vatnslitamyndir
Pétur segist hafa teiknað
MÖMMU eftir skrifuðu handriti
Hugleiks. Hugleikur hafi skrifað
lýsingar á öllum römmum sögunnar
sem hann hafi svo teiknað eftir. Pét-
ur segir það hafa verið skemmtilegt
verkefni en líka áskorun að teikna
sögu án texta þannig að fólk skilji
hvað sé að gerast. „Ég reyndi að
hafa þetta eins skýrt og læsilegt og
ég mögulega gat,“ segir hann.
Hvað vinnuferlið varðar segir
Pétur að skrefin séu fjögur. „Fyrsta
skrefið er að gera mjög lauslega
skissu fyrir blaðsíðuna eftir handrit-
inu. Annað skrefið er að teikna alla
blaðsíðuna upp stórt með blýanti og
ég skanna hana síðan inn og lita út-
línurnar með bleki í tölvu. Síðasta
skrefið er að setja inn liti og lýsingu
og ég geri það þannig að þetta líti
ekki út fyrir að vera unnið stafrænt.
Ég set áferð á myndirnar þannig að
þær líti út eins og vatnslitamyndir á
pappír,“ segir Pétur.
Minnir á Akira
-Það eru dálítil Manga-áhrif í bók-
inni og þá sérstaklega bókarkáp-
unni. Mér datt japanska teikni-
myndin Akira fyrst í hug þegar ég
sá bókina. Er það viljandi vísun?
Pétur hlær. „Já, þetta er svolítið
viljandi vísun í Akira, akkúrat. Þetta
er heimsendabók, borgin leggst í
rúst og svona og það er bara eitt-
hvað við Akira sem er svo stórkost-
legt,“ segir Pétur. Hann hafi mikið
horft á þá mynd á sínum yngri ár-
um, fengið vænan skammt af henni.
-Þessi bók er samt ekki dæmigerð
fyrir þinn stíl, hann er breytilegur
eftir verkefnum, ekki satt?
„Jú, en ég er samt meira í þessum
teiknimyndastíl en alvarlegum. Ef
þú skoðar heimasíðuna mína, paac-
art.com, sérðu að myndasagan er
kannski ekki beint lýsandi fyrir það
sem ég geri vanalega því ég mála
líka,“ svarar Pétur og eru lesendur
hvattir til að skoða vefsíðuna.
Verkefnin sem Pétur hefur tekið
að sér eru æði fjölbreytt, m.a. tengd
teiknimyndum, bókarkápum og
tölvuleikjum. Myndskreytinámið
hefur greinilega nýst honum vel.
„Fólk gerir sér ekki grein fyrir að ef
þú kannt að teikna geturðu gert
ýmislegt annað en að sitja heima og
mála mynd,“ segir Pétur að lokum.
Risavaxið ungbarn
leggur heiminn í rúst
Pétur Atli teiknaði MÖMMU eftir handriti Hugleiks
Risabarn Blaðsíða úr MÖMMU. Barnið vex ógnarhratt, mömmu til furðu.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Samstarfsmenn Pétur Atli Antons-
son og Hugleikur Dagsson.