Morgunblaðið - 02.12.2015, Síða 33

Morgunblaðið - 02.12.2015, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 Tilnefningar til Íslensku bókmennta- verðlaunanna voru kynntar við hátíð- lega athöfn á Kjarvalsstöðum í gær í 27. sinn. Tilnefnt er í flokki barna- og unglingabóka, fagurbókmennta og fræðibóka og rita almenns efnis, en fimm bækur eru tilnefndar í hverjum flokki. Verðlaunaupphæðin fyrir þær þrjár bækur sem hljóta Íslensku bók- menntaverðlaunin er ein milljón króna fyrir hverja. Íslensku bók- menntaverðlaunin 2015 verða afhent um mánaðamótin janúar-febrúar á komandi ári af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, á Bessastöðum. Tilnefningar í flokki barna- og ungmennabóka:  Sölvasaga unglings eftir Arnar Má Arngrímsson  Drauga-Dísa eftir Gunnar Theo- dór Eggertsson  Mamma klikk! eftir Gunnar Helga- son  Vetrarfrí eftir Hildi Knútsdóttur  Randalín, Mundi og afturgöng- urnar eftir Þórdísi Gísladóttur Dómnefndina skipuðu þau Hildi- gunnur Sverrisdóttir, sem var for- maður, Árni Árnason og Sigurjón Kjartansson. Tilnefningar í flokki fagurbókmennta:  Stóri skjálfti eftir Auði Jónsdóttur  Hundadagar eftir Einar Má Guð- mundsson  Sjóveikur í München eftir Hall- grím Helgason  Leiðin út í heim eftir Hermann Stefánsson  Eitthvað á stærð við alheiminn eft- ir Jón Kalman Stefánsson Dómnefnd skipuðu Erna Guðrún Árnadóttir, formaður nefndarinnar, Helga Ferdinandsdóttir og Knútur Hafsteinsson. Tilnefningar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:  Bókabörn eftir Dagnýju Kristjáns- dóttur  Þegar siðmenningin fór fjandans til - Íslendingar og stríðið mikla 1914 – 1918 eftir Gunnar Þór Bjarnason  Vertu úlfur – wargus esto eftir Héðin Unnsteinsson  Stríðsárin 1938 – 1945 eftir Pál Baldvin Baldvinsson  Stórhvalaveiðar við Ísland til 1915 eftir Smára Geirsson Dómnefnd skipuðu Pétur Þorsteinn Óskarsson, sem var formaður nefnd- arinnar, Aðalsteinn Ingólfsson og Hulda Proppé. Formenn dómnefnd- anna þriggja munu síðan velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki ásamt forsetaskipuðum formanni lokadómnefndar og verður valið að vanda kynnt á nýju ári. Samhliða tilnefningum til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í gær kynnti dómnefnd á vegum Banda- lags þýðenda og túlka þær fimm þýðingar sem tilnefndar eru til Ís- lensku þýðingaverðlaunanna. Bandalag þýðenda og túlka hefur staðið fyrir Íslensku þýðingaverð- laununum frá árinu 2005 og veitir forseti Íslands þau á degi bók- arinnar, 23. apríl ár hvert, á Gljúfra- steini. Tilnefningar til Íslensku þýðingaverðlaunanna 2015:  Nýsnævi – safn ljóðaþýðinga eftir 15 höfunda í þýðingu Aðalsteins Ás- bergs Sigurðssonar  Rangan og réttan – þrjú ritgerða- söfn eftir Albert Camus í þýðingu Ásdísar R. Magnúsdóttur  Ef að vetrarnóttu ferðalangur eft- ir Italo Calvino í þýðingu Brynju Cortes Andrésdóttur  Spámennirnir í Botnleysufirði eft- ir Kim Leine í þýðingu Jóns Halls Stefánssonar  Grimmsævintýri, Philip Pullman tók saman og endursagði, í þýðingu Silju Aðalsteinsdóttur Dómnefnd skipuðu: Árni Matthías- son formaður nefndar, María Rán Guðjónsdóttir og Tinna Ásgeirs- dóttir. Ólíkar bækur tilnefndar  Fimmtán bækur tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna  Verð- launaféð ein milljón í hverjum flokki  Fimm tilnefndar til þýðingaverðlauna Morgunblaðið/Styrmir Kári Ánægð Höfundar tilnefndu bókanna, frumsaminna og þýddra, tóku stoltir við viðurkenningarskjali og blómum. Skrafað Hallgrímur Helgason og Jón Kalman spjölluðu við gesti. Bassaleikarinn Peter Hook, einn stofnenda hinna goðsagnakenndu hljómsveita Joy Division og New Order, hefur, að sögn The Tele- graph, stefnt fyrrverandi fé- lögum sínum og krefst margra milljóna punda af tekjum New Order frá árinu 2007 en þá lék hann síðast með sveitinni. Dómari hefur þegar samþykkt að málið verði tekið fyrir og krefst Ho- ok 12,5 prósenta af allri innkomu sveitarinnar. Hook í mál við New Order-félagana Peter Hook Sýning með fjölbreytilegum verk- um og innsetningum eftir Ólaf Elí- asson myndlistarmann var opnuð á dögunum í Vetrarhöll Eugene prins í Vínarborg í Austurríki. Sýning Ólafs í höllinni nefnist „Baroque, Baroque“ og hefur vakið mikla at- hygli þarlendra fjölmiðla. Í fréttum segir að Ólafur nálgist sköpunina af sjónarhóli vísinda, sál- fræði og arkitektúrs, til að skýra tengslin milli veruleikans, skilnings og framsetningar. Í verkunum beiti hann til að mynda hreyfingu, vörp- un, skuggamyndum og speglun. Þá skapar hann draumkennt um- hverfi í sumum sýningarrýmunum með notkun náttúrulegra „meðala“ eins og vatnskennds lofts, þoku og frosts. Þessi umfangsmikla sýning Ólafs í Vínarborg stendur fram í marsmánuð. Undur Gestir á sýningu Ólafs í Vínarborg virða fyrir sér verkið „Wishes versus Wonders“. Undraheimur verka Ólafs í Vínarborg • Fullkomin forgreiningarstöð. Forgreining segir okkur flest allt um ástand bílsins og gæði. • Sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur VW og Skoda. • Hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi. • Starfsleyfi til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. REGLULEGT VIÐHALD HÆKKAR ENDURSÖLUVERÐ forðastu verðrýrnun bílsins og pantaðu tíma í forgreiningu Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - HUNGER GAMES 4 2D 5:15,8,10:10 THE NIGHT BEFORE 8,10:45 GÓÐA RISAEÐLAN 2D 5:15 SPECTRE 6,9 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.