Morgunblaðið - 02.12.2015, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 336. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Fylgist með lægðinni í beinni
2. Nakinn í kassa og án alls í viku
3. Margir nemendur í leyfi í dag
4. 30 bíla röð, árekstur og góðverk
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á morgun, fimmtudag, verður opn-
uð sýning í Mengi á teikningum Söru
Riel og á sama tíma verður haldinn
tónleikagjörningur þar sem Skúli
Sverrisson, Ólafur Björn Ólafsson, Ei-
ríkur Orri Ólafsson og Gyða Valtýs-
dóttir spinna af fingrum fram á með-
an Sara Riel bregst við tónlistinni
með teikningu sem verður varpað á
vegg Mengis.
Morgunblaðið/RAX
Teikningar og tón-
leikagjörningur
Tríó bassaleik-
arans Tómasar R.
Einarssonar leikur
í kvöld á tón-
leikum djass-
klúbbsins Múlans
á Björtuloftum í
Hörpu kl. 21. Auk
Tómasar koma
fram gítarleik-
arinn Ómar Guðjónsson og söng-
konan Sigríður Thorlacius. Efnis-
skráin hjá tríóinu verður fjölbreytt og
lögin úr mörgum áttum.
Tríó Tómasar R.
djassar í Múlanum
Sesselja Kristjánsdóttir messó-
sópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir pí-
anóleikari flytja vel valdar jólaperlur í
Salnum í Kópavogi í dag kl. 12.15 og
eru tónleikarnir hluti af hádegistón-
leikaröðinni Líttu inn í hádeginu.
Guðrún Birgisdóttir,
flautuleikari og listrænn
stjórnandi raðarinnar,
leikur með þeim í
nokkrum lögum. Af ein-
stökum lögum má
nefna „Jólakvöld“,
„Raunir Stekkjar-
staurs“ og „Pan-
is Angelicus“.
Jólaperlur í hádeginu
Á fimmtudag Sunnan og suðvestan 5-10 m/s og él, en bjart með
köflum á Norður- og Austurlandi. Frost 1 til 14 stig.
Á föstudag Gengur í norðaustanhvassviðri eða -storm með snjó-
komu, en síðar hægari sunnanátt sunnan- og austanlands.
VEÐUR
,,Tímabilið var bara mjög
gott, satt að segja, miðað
við útgangspunktinn sem
við höfðum og hér eru allir
ánægðir. Lilleström missti
gríðarlega marga leikmenn
eftir tímabilið í fyrra og á
tímabilinu sjálfu, þannig að
við tókum við svolítið
löskuðu liði og höfðum litla
peninga að vinna úr,“ segir
Rúnar Kristinsson um fyrsta
tímabilið sitt sem þjálfari
Lilleström í Noregi. »2-3
Tókum við
löskuðu liði
„Það getur svo margt gerst þegar
komið er í úrslitasundið, en ég þyrfti
líklega að bæta mig um tvær sek-
úndur til að geta komist í verðlauna-
sæti,“ sagði Eygló Ósk Gústafsdóttir
sem hefur keppni í dag á Evrópu-
meistaramótinu í
sundi í 25 metra
laug, í Ísrael. Hún er
skráð með sjötta
besta tímann í 200
metra bak-
sundi. »1
Getur Eygló Ósk keppt
um verðlaun á EM?
„Stórmót eru á hverju ári og þess á
milli er síðan um endalausa leiki að
ræða hjá landsliðum í undankeppni
þessa og hins mótsins auk vináttu-
leikja. Vandi okkar sem stýrum liðum
í Þýskalandi liggur fyrst og fremst í
þessu að mínu mati,“ sagði Alfreð
Gíslason, þjálfari Kiel, um mikið álag
á handknattleiksmönnum sem spila
með þýskum félagsliðum. »4
Stórmót og endalausir
leikir landsliðanna
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Mér finnst Birgir Steinn hafa ýmis-
legt til brunns að bera bæði sem
lagasmiður og söngvari. Það er mik-
il músík í stráknum,“ segir söngvar-
inn kunni Stefán Hilmarsson.
Í gær var á útvarpsstöðvum
frumflutt lagið Um vetrarnótt sem
Stefán og Birgir Steinn, sonur hans,
syngja. Þetta er fyrsta lagið sem
feðgarnir hljóðrita saman, en þeir
frumflytja það opinberlega á jóla-
tónleikunum í Hörpu sem verða síð-
ar í þessum mánuði. Þar mun dag-
skráin innihalda lög af jólaplötum
Stefáns í bland við hátíðarlög af
ýmsum toga.
Lagið rímaði við skammdegið
Um vetrarnótt er erlent lag.
„Þegar ég heyrði þetta lag fann ég
strax að mig langaði að túlka það og
skynjaði í því einhvern tón sem mér
fannst að gæti rímað vel við skamm-
degið og þennan árstíma,“ segir
Stefán sem í nær 30 ár verið einn
vinsælasti tónlistarmaður landsins
og sungið ófáa smellina, ekki síst
með hljómsveit sinni Sálinni. Að-
spurður segir faðirinn langt frá því
að hann hafi ýtt syninum út í tónlist.
„Birgir hefur músíserað frá unga
aldri, byrjaði með því að tromma og
barði fast og vel í bílskúrnum í
nokkur ár. Hin seinni ár hefur hann
dundað sér mest við píanóspil, laga-
smíðar og söng og í dag skipar hann
ásamt fleirum hljómsveitina Sept-
ember, sem sent hefur frá sér nokk-
ur lög. Ég hef lítið verið að troða
upp á hann trixum eða tónlist, hann
hlustar á sitt og ég á mitt,“ segir
Stefán, en getur þess að þeir feðgar
hafi þó á köflum líkan smekk.
„Hann féll fyrir Quarashi og
Muse, en það eru sveitir sem ég
kann einnig vel að meta. Ég hef
vissulega gaukað að honum einu og
einu lagi, til dæmis helstu verkum
Bítlanna, eins og mér finnst að allir
góðir feður eigi að gera,“ segir Stef-
án og brosir.
Hæfilega jólalegt
Fyrst og síðast hefur Stefán í
gegnum árin verið popp- og rokk-
söngvari. En segja má að með jóla-
plötum sínum hafi hann slegið svo-
lítið annan tón.
„Jólamúsík er eitthvað sem ég
sinnti lítið sem ekkert lengi vel. Síð-
an kom að því að mig langaði hrein-
lega að gera eigin jólaplötu.
Kannski er það aldurinn og börnin
sem mýkja mann. Þannig að ég
sendi frá mér plötuna Ein handa þér
árið 2008 og plötuna Í desember í
fyrra. Og báðar eru ekki of upp-
skrúfaðar eða ofskreyttar sleða-
bjöllum, heldur bara hæfilega jóla-
legar.“
Það er mikil músík í stráknum
Feðgarnir Stef-
án og Birgir Steinn
syngja saman
Jólalegir Hér eru þeir saman, feðgarnir Stefán Hilmarsson og Birgir Steinn, sem saman hefja nú upp raust sína.
Nú standa fyrir dyrum hjá Stefáni
jólatónleikar, að þessu sinni í Silf-
urbergi Hörpu, eftir að hafa verið í
Salnum í Kópavogi síðastliðin ár.
„Mér finnst Salurinn indælt hús,
en sætaplássið þar er takmarkað
og tónleikana þurfti að endurtaka
oft, þannig að skipulagið var orðið
nokkuð erfitt. Niðurstaðan var að
færa sig í Hörpu, þar sem verða
tvennir tónleikar, hinn 11. og 16.
desember,“ segir Stefán sem þar
verður í aðalhlutverki með fulltingi
afbragðs hljóðfæraleikara, en
einnig koma fram söngvararnir
Guðrún Gunnarsdóttir, Stefanía
Svavarsdóttir, Sara Glowie og svo
Birgir Steinn.
„Það er orðinn sterkur siður hjá
landanum að sækja jólatónleika.
Slíkir tónleikar eru gerólíkir öðr-
um. Þarna hljóma eðli málsins
samkvæmt lög sem heyrast bara
einu sinni á ári, lög sem margir
halda mikið upp á og hafa unun af
að heyra flutt á tónleikum.“
Úr Salnum í Silfurberg
TVENNIR JÓLATÓNLEIKAR ERU FRAMUNDAN
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 8-13 og víða él, en vestan 18-25
og ofankoma norðaustantil fram undir kvöld, hvassast á annesjum.