Víkurfréttir - 08.09.1988, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 8. september 1988
Frá fundi umferðarnefnda Gerðahrepps, Keflavíkur, Miðneshrepps og Njarðvíkur á Flughóteli. Stefán
Thordersen, formaður umferðarnefndar Njarðvíkur, hefur orðið. Ljósm.: hbb
Fjórar umferðarnefndir:
Samræming
vegamerkinga
Atvinnuþróunarfélag
Suðurnesja:
Vill Aðal-
verktaka
í félagið
Atvinnuþróunarfélag Suð-
urnesja h.f. hefur farið þess á
leit við bæjarráð Keflavíkurað
sent verði bréf til stjórnar Is-
lenskra aðalverktaka s.f. um
að aðalverktakar taki þátt í
Atvinnuþróunarfélagi Suður-
nesja h.f. sem hluthafar.
Samþykkti bæjarráðið í síð-
ustu viku að verða við erindi
þessu og fól bæjarstjóra að
ganga frá bréfi til Islenskraað-
alverktaka s.f.
Hreinlæti
fiskvinnslu-
húsa kannað
Starfsmenn Ríkismats sjáv-
arafurða hafa að undanförnu
unnið að úttekt á fiskvinnslu-
húsum hér á Suðurnesjum. Að
sögn Gústafs Kristinssonar,
sem hefur yfirumsjón með
verkefni þessu hjá Ríkismati
sjávarafurða, er bæði gerð út-
tekt hjá saltfiskverkendum og
í frystingunni. Aðspurður
sagði Gústaf að hér væri mjög
stórt verkefni á ferðinni, þar
sem kannað væri bæði hrein-
læti og búnaður fyrirtækja.
Þar sem verkefninu hér á Suð-
urnesjum var ekki lokið, vildi
Gústaf Kristinsson ekki tjá sig
um ástand fyrirtækjanna hér á
Suðurnesjum.
Síðasta fimmtudag var
haldinn fundur á Flughóteli í
Keflavík, sem teljast verður
nterkilegur vegna þess að þetta
var í fyrsta sinn sem haldinn
var sameiginlegur fundur um-
ferðarnefnda fjögurra byggð-
arlaga á Suðurnesjum. Voru
það nefndirnar í Keflavík,
Njarðvík, Sandgerði og Garði
sem tóku þátt í fundi þessum
en fundarefnið var sameigin-
leg ákvörðunartaka um vega-
merkingar á Suðurnesjum.
Á fundinum vareftirfarandi
ályktun samþykkt:
„Sameiginlegur fundur um-
ferðarnefnda Gerðahrepps,
Miðneshrepps, Njarðvíkur og
Keflavíkur haldinn 1. sept.
1988 samþykkir að heina þeim
tUmœlum til viðkomandi sveit-
arstjóra að S.S.S. hafi frum-
kvœði að því að láta hanna og
setja upp skilti við innkomu að
Suðurnesjum, þ.e. i eða við
Flugstöðina og innarlega á
Reykjanesbraut. A ski/tum
þessum vceru merktir byggðar-
kjarnar á Suðurnesjum ogaðrir
áhugaverðir staðir. Ski/tin
vceru I. áfangi í merkingu al-
mennrar þjónustu á svœðinu.
Jafnframt samþykkir fundur-
inn að beina því til S.S.S. að
knýja á um að strax verði lokið
frágangi þjóðvega á Suðurnesj-
um, þáfyrst og fremst tengingu
til Garðs og Sandgerðis og
einnig um að iokið verði við
raflýsingu þjóðvega á svœð-
inu.“
Málfreyjudeildin
Varðan:
Segir sig úr
alþjóða-
samtökum
málfreyja
Málfreyjudeildin Varðan í
Keflavík hefur sagt sig úr al-
þjóðasamtökum málfreyja.
Ástæða úrsagnarinnar er sú að
stjórn alþjóðasamtakanna
skipaði svo fyrir aðmálfreyjur
hættu að kallasigsínu íslenska
heiti en tækju ýþess stað upp
nafnið ITC á íslandi (Inter-
national Training in Comm-
unication).
Er þetta gert á þeim grund-
velli að nafnbreyting alþjóða-
samtakanna kom til fram-
kvæmda 1985 er heitinu
Toastmistress var breytt í ITC
vegna gildistöku nýrra jafn-
réttislaga í Bandaríkjunum.
Vildu málfreyjur á Suðurnesj-
um ekki taka við skipun um að
kalla sig erlendu nafni. Höfn-
uðu því aðilar Vörðunnar
þessari skipan og sendu úr-
sögn sína til alþjóðasamtak-
anna.
Einka-
réttur á
„Hrafni"
Siglingamálastjóri hefur
samkvæmt lögum um skrán-
ingu skipa veitt Þorborni h.f.,
Grindavík, einkarétt á skips-
nafninu Hrafn. Vartilkynning
þess efnis birt í Lögbirtinga-
blaðinu 1. sept. s.l.
Bifreiðin umrædda á horni Njarðarbrautar og Sjávargötu í Njarð-
vík. Ljósm.: hbb
Ekki bíla á glæ-
nýjar þökumar
Það er ekki hægt að segja
að bílstjóri þessararbifreiðar
beri mikla virðingu fyrir um-
hverfinu. Hefur bifreiðin
staðið í nokkra daga á horni
Njarðarbrautar og Sjávar-
götu í Njarðvík, þannig að
tvö hjól bifreiðarinnar
standa á nýlögðum túnþök-
um á staðnum.
Vegna þessa hafði forseti
bæjarstjórnar Njarðvíkur,
Steindór Sigurðsson, sam-
band við blaðið, en áður
hafði hann haft samband við
lögreglu, sem vísaði málinu
til fjölmiðla til myndbirting-
ar. Sagði Steindór það vera
ófyrirgefanlegt að ýta biluð-
um bílum út á glænýjar þök-
urnar og láta þá síðan standa
þar. Tökum við undir þessi
orð Steindórs.
Mikil ölvun
Mikil ölvun var í Keflavík
um síðustu helgi og þurfti
lögreglan að hafa mikil af-
skipti af ölvuðu fólki, bæði í
heimahúsum og utan dyra.
Þá voru tveir ökumenn tekn-
ir, grunaðir um ölvun við
akstur.
NÝR FORD í
LÖGREGLU-
FLOTANN
Bláa lónið:
Frönsk
stúlka
missti
meðvitund
Frönsk stúlka liggur nú
meðvitundarlaus á Landa-
kostsspítala eftir að hafa fall-
ið niður í Bláa lóninu á mið-
vikudag í síðustu viku. Voru
nokkrir franskir háskóla-
nemar í lóninu er atburður
þessi átti sér stað, þ.á.m. um-
rædd stúlka.
Ekki liggur fyrir hvað or-
sakaði það að stúlkan féll í
lónið, en mjög grunnt var,
þar sem óhappið átti sér stað,
nærri bakkanum. Flutti
Grindavíkursjúkrabíllinn
stúlkuna fyrst ásjúkrahúsiðí
Keflavík og síðan á Landa-
kotsspítalann íReykjavík.
Ef inynd þessi er grannt skoðuð má sjá Karl Hermannsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjón, sýna yfirmanni sínum, Jóni Eysteinssyni, lög-
reglustjóra í Keflavík, Grindavík, Njarðvík og Gullbringusýslu,
liinn nýja lögreglubíl sem bættist i bílaflota embættisins síðasta
föstudag. Bifreið þessi er af gerðinni Ford Econlaine 150 og kemur í
stað Ö-1007 sem hverfur úr flotanum, endaaf árgerðinni '83 ogek-
inn 500 þús. km. Ljósm.: epj.