Víkurfréttir - 08.09.1988, Side 7
mur<
juíUt
Fimmtudagur 8. september 1988 7
mm ^VBISGI i'.'fSSJ33I £££ SSSOfi tl 1 mtuSxtn I aaasa;; 1
S wwi
Flak Jóns Péturs II. komið að bryggju. Kristján Guðmundsson, franikvxmdastjóri Rannsóknarncfndar
sjóslysa, framkvxmir frumrannsókn. Ljósm.: hbb.
Sandgerðingur kom
með bátsflak
Síðasta föstudagskvöld
kom Sandgerðingur GK með
flakið af álbátnum Jóni Pétri
II ST 21 til Sandgerðis, að
beiðni Landhelgisgæslunnar.
Bátur þessi hafði brunnið á
Faxaflóa kvöldið áður og skip-
verjinn, sem var einn um borð,
bjargast í björgunarbát.
A laugardag skoðuðu síðan
ýmsir rannsóknaraðilar bát-
inn til að reyna að komast að
upptökum eldsins. Bátur þessi
var smíðaður í vélsmiðju
Harðar h.f. í Sandgerði og
hljóp af stokkunum á síðasta
ári.
Voru það fulltrúar rann-
sóknarlögreglu, rannsóknar-
nefndar sjóslysa, Siglinga-
málastofnunar, Rafmagnseft-
irlitsins og Brunamálastofn-
unar sem rannsökuðu flakið,
en vegna þess hve illa það er
brunnið reyndist erfitt að finna
eldsupptökin.
Meðan flakið var á reki
komst enginn sjór i það en eft-
ir að það var komið að bryggju
í Sandgerði komst einhversjór
inn. Varð því að fá slökkvilið
Miðneshrepps til að dæla úr
bátnum. Var hann síðan tek-
inn upp á vagn svo rannsókn
gæti farið fram.
Sandgerðingur GK kemur með flakið til Sandgerðis. Ljósm.:cpj.
Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur:
Sérkennileg afgreiðsla
á tilboði Steindórs
Sigurðssonar
Sem kunnugt er af fyrri
fréttum bauðst SteindórSig-
urðsson, sérleyfishafi, til að
taka að sér rekstur Sérleyfis-
bifreiða Keflavikur næstu
tvö árin fyrir ákveðna þókn-
un. Var tilboð þetta tekið
fyrir í stjórn Sérleyfisbifreiða
Keflavíkur og þar bókað eft-
irfarandi:
,,Borist hefur tilboð frá
Steindóri Sigurðssyni um
leigu á fyrirtækinu í tvö ár,
þ.e. bifreiðakosti, leyfum öll-
um, samningum og viðskipta-
samböndum. Stjórn S.B.K.
vísar erindi Steindórs frá þar
sem leiga eða sala á fyrirtæk-
inu hefur aldrei komið til um-
ræðu hjá stjórninni og tilboð
þetta því algjörlega tilefnis-
laust að mati stjórnarinnar. “
Bæjarráð Keflavíkur tók
fundargerð stjórnarinnar
fyrir fáum dögum síðar og
þar var hún samþykkt sam-
hljóða.
Af þessu tilefni hafði blað-
ið samband við Steindór Sig-
urðsson. Hafði hann þetta
um málið að segja: „Sam-
þykkt þessi er sérkennileg
fyrir þær sakir að stjórnin
gefur til kynna að enginn
annar en þeir sjálfir megi láta
sér koma til hugar betra
rekstrarform á fyrirtækinu.
Hvorki stjórnarmenn né
nokkur bæjarráðsmanna
hafði samband við mig áður
en málið var afgreitt. Virtist
enginn þeirra hafa áhuga
fyrir því að vita hvað ég vildi
gera eða hvað ég meinti,"
sagði Steindór.
6!am
6
SKEMMTISTAÐUR
UM
HELGINA
FÖSTUDAGSKVÖLD:
Diskótek frá kl. 22-03.
Frítt inn frá kl. 22-23.
18 ára aldurstakmark.
LAUGARDAGSKVÖLD:
Opið frá kl. 22-03. - Hljómsveitin
LÖGMENN. - Aldurstakmark 20 ára.
Miðaverð kr. 600.
Ytri-Njarðvíkurkirkja:
Messa kl. 11. Organisti: Odd-
ný Þorsteinsdóttir.
Sóknarprestur
GLODIA
• SNYRTIVÖRUVERSLUN ■
SAMKAUPUM - NJARÐVÍK
Vegna námskeiða starfsfólks hjá
verður aðeins opið kl. 13-18.30 og
lokað fyrir hádegi, dagana
12.-16. ágúst n.k.
Keramik-
námskeið
Ákveðið er að halda þrjú námskeið í haust.
Fyrsta námskeiðið hefst 15. sept., annað
hefst 13. okt. og þriðja hefst 10. nóv. Leið-
beinandi er María Gröndal. Innritun í síma
14322 (Elsa) og 11709 (Soffía).
Nefndin
Fatahönnuður
Tek að mér að hanna og saumaföt, bæði á
konur og karla.
Hulda B. Georgsdóttir,
fatahönnuður,
sími 12704.