Víkurfréttir - 08.09.1988, Síða 18
18 Fimmtudagur 8. september 1988
Stúlkurnar á myndinni héldu nýlega hlutaveltu að Hólabraut 10 í
Keflavík til styrktar Sjúkrahúsi Keflavíkurlæknishéraðs og söfn-
uðu kr. 1.340. Þær heita Elín Asta Einarsdóttir og Karen Hilmars-
dóttir. Ljósm.: hbb
i'essar stúlkur hafa afhent Sjúkrahúsi Kcflavíkurlæknishéraðs kr.
660, sem þær öfluðu með því að halda hlutavcltu í Keflavík. Þær
heila Andrea Kristjana Sigurðardóttir og Sveinbjörg Veronika
Davíðsdóttir. A myndina vantar vinkonu þeirra, Rannveigu Þóru
Sigurjónsdóttur. Ljósm.: hbb
Þeir Helgi Friðbjörnsson og Stefán IVlár Stefánsson héldu nýlega
hlutaveltu að Hringbraut 136, Keflavík. Ágóðann, krónur 370, hafa
þeir aflient Sjúkrahúsi Keflavikurlæknishéraðs. Ljósm.: hbb
Bílam
'Ásgeirs
löavellir 11a, 230 Keflavík
Býður upp á blettun og
almálningu á bíla.
■ Einnig skreytingar og merk-
ingar með hinum heims-
þekktu SIKKENS lökkum.
■ Vönduð vinnatryggir gæðin.
■ Sími 15575 - h. 12012.
Séð inn í verslunina Lísu eftir breytingarnar. Ljósm.: hbb.
Lísa í „andlitslyftingu“:
„Reykvíkingar hissa
á úrvalinu hér á
Suðurnesjum"
Verslunin Lísa við Hafnar-
götu hefur tekið miklum
breytingum að undanförnu.
Eldri innréttingum hefur verið
fargað og nýjar settar upp í
staðinn. Rekkar með vefnað-
arvöru skipa mestan sess í
versluninni.
í tilefni þessara breytinga
tókum við Hildi Guðmunds-
dóttur. eiganda, tali og spjöll-
uðum um verslunina og saum-
askap.
„Saumaskapur hefur legið
mikið niðri undanfarin tvö ár
en er að koma upp úr lægð
núna,“ sagði Hildur Guð-
mundsdóttur, eigandi Lísu,
aðspurð um hvort mikil
gróska væri í saumaskap á
Suðurnesjum. „Það er að vísu
talað mikið um það að fólk fari
til Reykjavíkur að versla vefn-
aðarvöru, en ég hef ekki orðið
vör við það hér í versluninni
minni,“ sagði Hildur. „Reyk-
víkingar, sem koma hingað,
eru mest hissa á hvað úrvalið í
vef'naðarvörunni er fjölbreytt
og að jafnvel eru til fleiri teg-
undir hér en í Reykjavík."
-Nú ert þú búin að breyta
versluninni mikið hjá þér.
Vefnaðarvara skipar stóran
sess, þegar litið er yfir verslun-
ina. Hvað er það sem þú býður
helst upp á?
„Með þessu breytingum á
versluninni vildi ég skapa
rúmbetri og skemmtilegri
verslun. Það sem ég býð upp á
hér er helst, eins og þú sagðir,
vefnaðarvara, fataefni, rúm-
fatnaður, barnafatnaður og
garn. Það er flott að geta
saumað á börnin ogsjáltán sig.
Þú ert þá alltaf í modelfötum,
sem þú jafnvel hefur ekki efni
á að kaupa annars staðar. Ég
reyni að hafa eins lága álagn-
ingu og hægt er.“
-Hvaða aldurshópur er mest
í saumaskapnum?
„Það eru allir aldurshópar,
enginn öðrum frekar. Ungar
konur sauma mikið á börnin
sin, jafnvel ungabörn. Síðan
kemur vandamálið. Þegar
börnin eru í kringum fermingu
þykir ekki eins flott að vera i
heimasaumuðum eða model-
fötum, heldur vilja krakkarnir
kaupa fatnaðinn tilbúinn úti i
búð.“
-Sparnaður við að sauma
fatnaðinn sjálfur?
„Við getum tekið eitt dæmi.
T.d. buxur, sem kosta 8000
krónur út úr verslun. Ef þú
kaupir efnið og saumar bux-
urnar og reiknar þér ekki tíma-
kaup, þá myndu buxurnar
kosta um 2000 krónur. Eins er
þú saumar þrjá apaskinsgalla
á börn, þá jafngildir verðið á
efninu sama og einum galla úr
búð, þannig að það getur borg-
að sig að taka fram saumavél-
ina og spara þannig þúsundir
króna,“ sagði Hildur Guð-
mundsdóttir að lokum.
Hvers vegna ekki að taka
fram saumavélina og sauma
fatnaðinn á fjölskylduna á
þessum síðustu og verstu tím-
um? Komið bara við í vefnað-
arvöruversluninni. það er ekki
langt að fara.