Víkurfréttir - 12.09.1991, Blaðsíða 3
3
Flugleiðir Keflavíkurflugvelli
Víkuríróttir
12. sept. 1991
Viöhalds-
stöð fyrir
milljarð
Flugleiðir hafa undirritað
samning við kanadískt verk-
takafyrirtæki uin byggingu
12.500 fermetra flugskýlis og
viðhaldsstöðvar á Kefla-
víkurflugvelli. Aætlað er að það
kosti milli 900 og 1000 millj-
ónir króna, að því er fram kem-
ur í nýjasta tölublaði Flug-
leiðafrétta, blaði starfsmanna.
Kemur fram í blaðinu að
verulegur hluti byggingarvinn-
unnar verði í höndum íslenskra
verktaka. Útboð vegna þeirra
þátta verksins sem Flugleiðir
sjá um, verða birt bráðlega og
gert er ráð fyrir að vinna við
bygginguna hefjist í haust og
verði lokið um áramót 1992 og
1993.
Með tilkomu hússins munu
verða miklar breytingar á við-
haldsþjónustu fyrirtækisins. Þá
mun vinnustaður flugvirkja
flytjast frá Reykjavík til Kefla-
víkur. Einnig munu allar skrif-
stofur tæknisviðs flytjast hing-
að suður og þar verður í
framtíðinni vinnustaður fram-
kvæmdastjóra sviðsins.
Er það stefna Flugleiða að sjá
að langmestu leyti um eigið
viðhald. Auk þess telur fyr-
irtækið að það geti selt milli 20
og 30 þúsund vinnustundir á ári
í flugvélaviðhaldi.
Mynd af væntanlegri við-
haldsstöð Flugleiða á Kefla-
víkurfliigvclli hefur verið
felld inná mynd af nágrenni
Leifsstöðvar, þar sem hún
verður reist. Flughlað og að-
keyrslu-hrautir eru þegar
fullgerðar.
Ljósmynd úr
Flugleiðafréttum.
Vorum að taka upp meiriháttar skart, sam-
kvæmisveski, leðurtöskui; trefla og vettlinga,
silfurhringi í miklu úrvali
Leðurbakpokar í skólann - aðeins 3.900 kr. Ath. Opið á laugardögum kl. 10-14.
SNYRTIVORUVERSLUNIN
sraaRt
HÓLMGARÐI 2 - SÍMI 15415
GRÆNN FÖSTUDAGUR I SAMKAUP
SPRENGI
TILBOÐ
Á GRÆNMETI
Á MORGUN, FÖSTUDAG FRÁ KL.
HVAÐA VÖRUR?
HVAÐA A VERÐ?
14
SWMiK/AlU
NÝJAR VÖRUR Á TILBOÐSTORGINU Á FRÁBÆRU VERÐI