Morgunblaðið - 03.02.2016, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR 2016
Leikmenn Esjunnar gerðu sér lítið
fyrir og skelltu Íslandsmeisturum
Skautafélags Akureyrar, 4:3, í við-
ureign liðanna í Hertz-deild karla í
íshokkí í Skautahöllinni á Akureyri í
gærkvöldi. Sigurmarkið skoraði
Daniel Kolar sjö mínútum fyrir
leikslok.
Þar með hefur SA aðeins þriggja
stiga forskot í efsta sæti deild-
arinnar þegar þrjár umferðir eru
eftir af deildarkeppninni.
Esjan er í öðru sæti með 37 stig.
Björninn hefur ekki gefið upp von-
ina um að ná öðru sæti deildarinnar
þótt vonin sé veik. Liðið vann SR
örugglega, 4:0, í Egilshöllinni. SR-
liðið rekur lestina í Hertz-deildinni
með 20 stig.
Leikmenn SA byrjuðu leikinn af
krafti í gærkvöldi og skoruðu tvö
fyrstu mörkin. Jón B. Gíslason kom
liðinu á bragðið á 6. mínútu og að-
eins mínútu síðar bætti Jussi Sippo-
nen við öðru marki fyrir heima-
menn.
Brynjar Bergmann klóraði í
bakkann fyrir Esjuna á 16. mínútu.
Tvö mörk með tveggja mínútna
millibili í öðrum leikhluta kom Esj-
unni yfir. Fyrst skoraði Björn Sig-
urðarson á 30. mínútu og Brynjar
skoraði annað mark sitt í leiknum
tveimur mínútum síðar.
Þriðji leikhluti var aðeins sex
mínútna gamall þegar Einar Valent-
ine jafnaði metin.
Mikil barátta var í leiknum í
þriðja leikhluta en aðeins eitt mark
var skorað og það gerði Kolar eins
og fyrr segir. Leikmenn SA reyndu
sitt ýtrasta undir lokin til þess að
jafna metin en allt kom fyrir ekki.
Viðureign Bjarnarins og SR í Eg-
ilshöllinni varð aldrei spennandi.
Leikmenn Bjarnarins fór langt með
að tryggja sér sigurinn strax í
fyrsta leikhluta þegar Eric And-
erberg skoraði þrjú mörk á átta
mínútna kafla.
Ekkert mark var skorað í öðrum
leikhluta en í þeim þriðja bætti
Andri Helgason við fjórða markinu
fyrir Björninn eftir stoðsendingu
frá Fal Guðnasyni.
Næstu leikir í Hertz-deildinni
fara fram á laugardaginn. Þá sækja
Esjumenn liðsmenn SA aftur heim
til Akureyrar og Björninn og SR
eigast við í Egilshöll. iben@mbl.is
Kolar innsiglaði sigur nyrðra
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Barist Þrír leikmenn SR fylgjast með pökkinum ásamt dómara og leikmanni Bjarnarins í leiknum í Egilshöll. SR-ingar áttu undir högg að sækja frá byrjun.
Spenna í toppbaráttu í íshokkí karla eftir sigur Esjunnar Létt hjá Birninum
„Ég kemst vonandi sem allra fyrst í uppskurðinn og þá ætti
ég ekki að missa af mörgum leikjum í vor,“ sagði Gunnar
Heiðar Þorvaldsson, knattspyrnumaðurinn reyndi úr ÍBV,
við Morgunblaðið í gær.
Eins og fram kom í fréttum í gær þarf Gunnar að fara í
uppskurð vegna meiðsla í hæl. „Þau voru að angra mig nú
síðustu vikurnar, ég þurfti að fara útaf vegna þeirra í leik um
daginn, og þegar hællinn var skoðaður þótti ráðlegt að láta
laga þetta strax. Það má víst búast við að það taki 3-4 mánuði
að verða leikfær, en þó þekki ég erlendis frá að menn hafi
verið 2-3 mánuði frá. Ég vona bara það besta,“ sagði Gunnar
við Morgunblaðið í gær en hann missti af úrslitaleik Fót-
bolta.net mótsins í fyrrakvöld þar sem ÍBV vann KR 2:1.
ÍBV byrjar Íslandsmótið á heimaleik gegn ÍA 1. maí. Leiknar eru sex umferð-
ir í maímánuði og hætta er á að Gunnar missi af þeim, miðað við tímarammann
sem gefinn er upp. vs@mbl.is
Gunnar bíður eftir aðgerð
Gunnar Heiðar
Þorvaldsson
Eyjamenn eiga í viðræðum við Derby Carillo, landsliðs-
markvörð frá El Salvador, um að leika með þeim á komandi
keppnistímabili. Hann á að koma í staðinn fyrir Abel Dhaira
en nú er ljóst að Úgandamaðurinn mun ekki leika með ÍBV í
sumar vegna veikinda sem hann glímir við.
Carillo er 28 ára gamall, fæddur í Kaliforníu og lék þar
með háskólaliði en hefur síðan spilað með nokkrum liðum í
neðri deildum í Bandaríkjunum, m.a. með FC New York í C-
deild og Atlanta Silverbacks í B-deild. Síðast spilaði Carillo
með meistaraliði El Salvador, Santa Tecla, í Meistaradeild
Norður- og Mið-Ameríku í lok ágúst, en hann er samnings-
laus um þessar mundir.
Carillo hefur spilað 11 A-landsleiki fyrir El Salvador og var aðalmarkvörður
liðsins í lokakeppni Norður- og Mið-Ameríkukeppninnar síðasta sumar þegar
hann lék alla þrjá leiki liðsins á mótinu. Pablo Punyed, landi hans og landsliðs-
maður El Salvador, gekk til liðs við ÍBV frá Stjörnunni í vetur. vs@mbl.is
Landsliðsmarkvörður í ÍBV?
Derby
Carrillo
England
WBA – Swansea....................................... 1:1
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan tímann
með Swansea og skoraði mark liðsins.
Arsenal – Southampton ........................... 0:0
Leicester – Liverpool............................... 2:0
Norwich – Tottenham.............................. 0:3
Sunderland – Manch. City....................... 0:1
West Ham – Aston Villa .......................... 2:0
Crystal Palace – Bournemouth............... 1:2
Manchester United – Stoke .................... 3:0
Staðan:
Leicester 24 14 8 2 44:26 50
Manch.City 24 14 5 5 46:23 47
Tottenham 24 12 9 3 44:19 45
Arsenal 24 13 6 5 37:22 45
Manch.Utd 24 11 7 6 31:21 40
West Ham 24 10 9 5 38:28 39
Southampton 24 9 7 8 32:24 34
Liverpool 24 9 7 8 30:34 34
Stoke 24 9 6 9 24:28 33
Watford 23 9 5 9 27:26 32
Crystal Palace 24 9 4 11 25:29 31
Everton 23 6 11 6 40:34 29
WBA 24 7 8 9 23:31 29
Chelsea 23 7 7 9 32:34 28
Bournemouth 24 7 7 10 29:39 28
Swansea 24 6 8 10 23:32 26
Norwich 24 6 5 13 28:46 23
Newcastle 23 5 6 12 25:41 21
Sunderland 24 5 4 15 28:47 19
Aston Villa 24 2 7 15 18:40 13
B-deild:
Wolves – Bolton ....................................... 2:2
Björn Bergmann Sigurðarson lék fyrstu
76 mínúturnar fyrir Wolves og lagði upp
fyrra markið.
Derby – Preston ....................................... 0:0
Ipswich – Reading.................................... 2:1
Sheffield Wednesday – Burnley ............. 1:2
Staðan:
Hull 28 17 5 6 45:18 56
Middlesbrough 27 17 4 6 37:14 55
Burnley 29 14 10 5 47:26 52
Derby 29 13 11 5 39:25 50
Brighton 28 13 11 4 34:28 50
Ipswich 29 13 9 7 39:36 48
Sheffield Wed. 29 12 11 6 43:32 47
Birmingham 29 13 8 8 37:28 47
Cardiff 29 11 11 7 38:33 44
Brentford 29 11 7 11 42:41 40
Nottingham F. 29 9 12 8 30:25 39
Wolves 29 10 9 10 39:40 39
QPR 29 8 12 9 35:35 36
Preston 29 8 12 9 25:27 36
Leeds 29 8 12 9 29:33 36
Reading 29 9 8 12 33:33 35
Huddersfield 29 8 8 13 39:42 32
Blackburn 27 6 12 9 24:24 30
Fulham 28 6 10 12 43:48 28
MK Dons 28 7 5 16 23:41 26
Rotherham 29 7 4 18 35:53 25
Bristol City 29 5 10 14 24:47 25
Charlton 29 5 9 15 26:55 24
Bolton 29 3 12 14 26:48 21
Ítalía
Sassuolo – Roma....................................... 0:2
Staða efstu liða:
Napoli 22 15 5 2 50:19 50
Juventus 22 15 3 4 42:15 48
Fiorentina 22 13 3 6 39:21 42
Roma 23 11 8 4 42:25 41
Inter 22 12 5 5 26:17 41
Milan 22 10 6 6 32:25 36
Sassuolo 23 8 9 6 26:26 33
Lazio 22 9 5 8 29:30 32
Empoli 22 9 5 8 28:31 32
Bologna 22 9 2 11 27:29 29
Torino 22 7 6 9 27:28 27
Chievo 22 7 6 9 27:30 27
Fótbolti.net mót karla
Leikur um 7. sætið:
Þróttur R. – Víkingur Ó.......................... 0:1
Kenan Turudija 32.
KNATTSPYRNA
NBA-deildin
Indiana – Cleveland................. (frl.) 106:111
Brooklyn – Detroit ........................... 100:105
Atlanta – Dallas .................................. 112:97
New Orleans – Memphis ................... 95:110
Oklahoma City – Washington ........... 114:98
San Antonio – Orlando....................... 107:92
Denver – Toronto ............................... 112:93
Utah – Chicago........................... (frl.) 105:96
Sacramento – Milwaukee ................ 111:104
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Stykkishólmur: Snæfell – Grindavík .. 19.15
Schenker-höllin: Haukar – Valur........ 19.15
Ásgarður: Stjarnan – Hamar .............. 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olís-deildin:
Valshöllin: Valur – Akureyri .................... 19
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót kvenna:
Egilshöll: ÍR – Valur ............................ 18.30
Í KVÖLD!
Phoenix Suns rak í gær aðalþjálfara sinn Jeff Hornacek úr
starfi en liðið hefur í vetur gengið í gegnum einhvern versta
kafla í sögu félagsins. Phoenix er eitt fjögurra neðstu lið-
anna í deildinni með 14 sigra en 35 töp. Hefur liðið tapað 19
af síðasta 21 leik og 10 af síðustu 11. Þá hefur liðið tapað 14
útileikjum í röð. Stjórnendur félagsins eru búnir að fá nóg
og ætla að gefa aðstoðarþjálfarnum Earl Watson tækifæri.
Hefur það vakið nokkra athygli vestra því Watson er ein-
ungis 36 ára gamall sem er óvenju ungt í þjálfarastéttinni í
þessum gæðaflokki. Margir muna eftir Hornacek sem leik-
manni og lék hann með Phoenix en er þekktastur fyrir
frammistöðu sína með Utah Jazz þegar liðið komst í úrslit NBA 1997 og 1998
en tapaði fyrir Chicago Bulls. kris@mbl.is
Hornacek rekinn frá Phoenix
Jeff
Hornacek
Dagur Sigurðsson og nýbakaðir Evrópumeistarar í hand-
knattleik karla mæta silfurliði síðasta heimsmeist-
aramóts, landsliði Katar, í vináttulandsleik í Leipzig 11.
mars. Sex þúsund aðgöngumiðar seldust á örskotsstundu
í gær þegar þeir voru settir í sölu samhliða auglýsingu á
leiknum. Gríðarlegur áhugi er fyrir þýska landsliðinu um
þessar mundir en á að giska 10 þúsund manns komu á
skemmtun í Max Schmeling-íþróttahöllinni í Berlín í
fyrradag til þess að hylla Evrópumeistarana.
Viðureignin við Katar verður sú fyrsta hjá þýska lands-
liðinu eftir að það varð Evrópumeistari um síðustu helgi.
Liðin áttust við á HM fyrir ári og þá hafði landslið Katar betur, 26:24, í
hörkuleik. iben@mbl.is
Uppselt á skammri stund
Dagur
Sigurðsson