Morgunblaðið - 19.02.2016, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.02.2016, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2016 hvorki leikmenn liðanna né stuðn- ingsmenn þeirra. Afturelding er áfram í 3.-4. sæti deildarinnar ásamt Fram með 22 stig en stigið dugði Gróttumönnum til að komast upp að hlið Eyjamanna í 5.-6. sæti. Bæði lið hafa 21 stig. Fyrri hálfleikurinn var leikur mik- illa mistaka. Leikmenn beggja liða gerðu sig seka um klaufaleg mistök og sóknarleikur liðanna á köflum mjög tilviljunarkenndur og óagaður. Liðin skiptust á að hafa forystuna en að fyrri hálfleiknum loknum var stað- an jöfn, 11:11. Gróttumenn skoruðu þrjú fyrstu mörkin í seinni hálfleik og með þess- ari kröfugu byrjun náðu nýliðarnir undirtökunum. Það tók Mosfellinga fimm mínútur að komast á blað í seinni hálfleik en fram að því höfðu þeir farið illa að ráði sínu og kastað boltanum tvígang í hendurnar á Gróttumönnum. Afturelding náði að jafna metin, 16:16, en í kjölfarið náðu Seltirningar góðum leikkafla, skor- uðu fjögur mörk og virtust ætla að sigla framúr. En heimamönnum tókst að þétta raðirnar í vörninni og með Davíð Svansson í góðum gír á milli stanganna sneri Afturelding leiknum sér í vil. Liðið náði tveggja marka forskoti, 23:21, þegar fimm mínútur voru til leiksloka en með seiglu og baráttu tókst Gróttumönn- um að jafna metin og áttu möguleika á að innbyrða sigurinn eins og áður segir. Davíð Svansson varði jafnt og þétt allan leikinn og var heilt yfir besti maður Aftureldingar en hornamað- urinn Árni Bragi Eyjólfsson stóð honum ekki langt að baki. Hann skoraði nokkur afar lagleg mörk úr hægra horninu. Varnarleikurinn og markvarslan var í góðu lagi hjá Mos- fellingum en sóknarleikinn þurfa þeir að bæta. Línumaðurinn Guðni Ingvarsson var fremstur á meðal jafningja í liði Gróttu sem er enn taplaust á árinu. Nýliðarnir eru ólseigir og framganga þeirra í vetur hefur komið skemmti- lega á óvart. Næsta verkefni Gróttu- manna er undanúrslitaleikur á móti 1. deildar liði Stjörnunnar í bikarnum og þar verður mikið í húfi fyrir hið unga og efnilega Gróttulið. Víkingar nálægt sigri Víkingar voru óheppnir að inn- byrða ekki sigur gegn Fram í Safa- mýrinni. Víkingar unnu upp forskot Framara í seinni hálfleik og komust þremur mörkum yfir, 22:19, en Fram náði að jafna metin. Víkingar eru þá níu stigum frá því að komast úr fall- sæti þegar þeir eiga sex leiki eftir. Morgunblaðið/Árni Sæberg als sækir hér að vörn ÍR-inga í Austurbergi í gær. Elvar er óðum að öðlast fyrri meiðsla. Hann skoraði fjögur mörk í þriggja marka sigri Valsmanna. voru mjög traustir en hrósið fær liðs- heildin og þjálfari fyrir geggjaðan við- snúning milli hálfleikja. Þessi sigur Þórs verður seint ofmetinn að mínu viti. Þetta var risastór prófsteinn fyrir Grindavík; liðið átti að vera á flottri siglingu en ljóst er eftir þessa við- ureign að liðið á gríðarlega langt í land. Sérstaklega finnst mér sókn- arleikur liðsins illa framkvæmdur; til- viljun og heitar hendur í þristum ráða ríkjum á kostnað eðlilegs sóknar- flæðis. Á lykilaugnablikum brugðust bestu menn liðsins klaufalega og eng- in fítonskraftur (sem sást örla fyrir í fyrri hálfleik) í liðinu til svara þegar alvöru mótlæti mætti mönnum. Grindavík er einfaldlega andlega veik- ara liðið af þessum tveimur, sem sann- aðist berlega í gær. Reynslan og get- an í Grindavík er meiri en svo að brotlending á heimavelli í Derby-slag á ögurstundu sé viðunandi. Baráttuglaðir ÍR-ingar töpuðu Nokkuð er liðið á febrúar og runn- inn upp sá árstími þar sem ÍR-ingar láta iðulega finna fyrir sér á körfu- boltavellinum. Ótrúlega oft hafa þeir tekið rispur á síðustu árum, annað- hvort til að tryggja sér sæti í úrslita- keppninni eða forða sér frá falli. ÍR- liðið er nú þar mitt á milli. Vonin um að komast í úrslitakeppnina er orðin mjög veik en fremur litlar líkur á því að liðið falli. Njarðvík hafði betur, 83:76, í Breið- holtinu í gærkvöldi eftir jafnan leik. ÍR var án Bandaríkjamannsins Jonat- hans Mitchell sem er með lungna- bólgu og óvíst um þátttöku hans næstu tvær vikurnar. Í ljósi þeirrar stöðu bjuggust sjálfsagt flestir við öruggum sigri Njarðvíkur. Baráttu- gleðin var hins vegar í fyrirrúmi hjá ungum ÍR-ingum og fyrir vikið tókst þeim að gera leikinn spennandi. Með góðum varnarleik áttu ÍR-ingar raun- ar möguleika á því að vinna leikinn en sóknarleikurinn gekk oft erfiðlega. Njarðvíkingum gekk vel að þvinga ÍR-inga í erfiðar aðgerðir. Njarðvíkingar eru með öflugt lið eins og körfuboltaáhugamenn þekkja. En ef úrslitakeppnin væri að hefjast núna þá myndi ég ekki reikna með því að liðið myndi berjast um titilinn eins og í fyrra. En Njarðvíkingar hafa um það bil mánuð til að finna taktinn fyrir alvöru og forvitnilegt verður að fylgj- ast með liðinu ef það tekst. Þjálfarinn reyndi, Friðrik Ingi Rúnarsson, sagði nokkuð athyglisvert við blaðamann að leiknum loknum. Hann benti á að ef til vill væri það að þvælast aðeins fyrir liðinu hversu margir hæfileikaríkir leikmenn séu til staðar. Menn þurfi að finna sig í sín- um hlutverkum og stundum skorti þolinmæði til að fara í heppilegustu aðgerðirnar. Hafi ég skilið Friðrik rétt þá þurfa Njarðvíkingar að finna rétta jafn- vægið í sínum leikmannahópi. Leik- menn eins og Atkinson, Haukur, Logi og Maciej þurfa allir að fá úr ein- hverju að moða en þurfa að taka af skarið á réttum augnablikum og þess á milli að láta boltann ganga til að bíða eftir rétta skotfærinu.  Höttur eygir enn veika von um að halda sér í deildinni eftir sigur á FSu, 92:83, í botnslagnum á Selfossi. Hatt- armenn þurfa þó væntanlega að vinna fjóra síðustu leiki sína til að eiga möguleika á að sleppa.  Tindastóll fór létt með Snæfell á Sauðárkróki, 114:85, og er áfram í baráttunni um fjórða sætið í deildinni. Snæfell er hinsvegar í slag við Grinda- vík um áttunda og síðasta sætið í úr- slitakeppninni. Morgunblaðið/Árni Sæberg rðvík fer framhjá ÍR-ingnum Björgvini ljaskólanum í gærkvöld. Tvö heimsmet ífrjálsum íþróttum innan- húss sem voru komin til ára sinna féllu á móti í Globen höllinni í Stokkhólmi í fyrrakvöld. Gen- zebe Dibaba frá Eþíópíu bætti metið í míluhlaupi þegar hún kom í mark á 4.13,31 mínútu. Dibaba, sem á heims- metið í 1.500 metra hlaupi utanhúss og er ríkjandi heimsmeistari, bætti þar með 26 ára gamalt met. Þá sló Ayanleh Souleiman heimsmetið í 1.000 metra hlaupi en tími hans var 2.14,20 mínútur. Gamla metið var sett árið 2000.    Cristiano Ronaldo, Real Madrid,er markahæstur í Meistara- deildinni en hann skoraði sitt 12. mark á tímabilinu í fyrrakvöld þegar hann skoraði fyrra mark Madridar- liðsins í 2:0 sigri á móti Roma. Robert Lewandowski, Bayern München, kemur næstur með 7 mörk og Artem Dzyuba úr Zenit St. Petersburg er í þriðja sætinu með 6 mörk.    FramherjinnLuis Suárez hefur svo sann- arlega reynst Barcelona happa- fengur frá því hann gekk í raðir félagsins frá Liv- erpool. Úrú- gvæinn hefur skorað 40 mörk í deildinni í þeim 50 leikjum sem hann hefur spilað og mörkin hans á leiktíð- inni eru orðin 40 talsins í öllum keppnum fyrir Katalóníuliðið. Frá því Suárez kom til Barcelona hefur hann skorað samtals 65 mörk í 79 leikjum og hefur liðið unnið 64 þeirra.    José Mourinho verður á meðaláhorfenda á leik Inter og Sam- pdoria í ítölsku A-deildinni á morgun en Mourinho stýrði liði Inter frá 2008 til 2010. Ítalska íþróttablaðið Cor- riere dello Sport segir að Mourinho mæti í þeim tilgangi til Mílanó að reyna að fá framherjann Maruo Ic- ardi til að koma til Manchester Unit- ed en sterkur orðrómur er í gangi um að Mourinho leysi Louis van Gaal af hólmi sem knattspyrnustjóri United í sumar.    Tíu Íslendingar keppa á Norður-landamóti ungmenna í kraftlyft- ingum sem hefst í Svíþjóð í dag. Aron Ingi Gautason, Dagfinnur Ari Nor- mann, Arnar Harðarson, Karl Ant- on Löve, Óskar Helgi Ingvason og Kara Gautadóttir keppa í klassískum kraftlyftingum í dag en Þorbergur Guðmundsson, Guðfinnur Snær Magnússon, Inga María Hennings- dóttir og Fríða Björk Einarsdóttir í kraftlyftingum með búnaði á morg- un. Fólk sport@mbl.is Framhús, Olís-deild karla, fimmtu- dag 18. febrúar 2016. Gangur leiksins: 11:7, 14:13, 17:15, 17:17, 19:22, 22:23, 24:24. Mörk Fram: Ólafur Ægir Ólafsson 6, Þorgrímur Smári Ólafsson 6, Arnar Freyr Arnarsson 4, Stefán Darri Þórsson 3, Garðar B. Sigurjónsson 2, Arnar Freyr Ársælsson 2, Stefán Baldvin Stefánsson 1. Markverðir: Kristófer Fannar Guð- mundsson og Valtýr Már Há- konarson. Utan vallar: 2 mínútur. Mörk Víkings: Atli Karl Bachmann 6, Karolis Stropus 4, Jóhann Reynir Gunnlaugsson 4, Ægir Hrafn Jóns- son 3, Víglundur Jarl Þórsson 2, Atli Hjörvar Einarsson 2, Jón Hjálm- arsson 2, Hlynur Óttarsson 1. Markverðir: Magnús G. Erlendsson og Einar Baldvin Baldvinsson. Utan vallar: 2 mínútur. Dómarar: Arnar Geir Nikulásson og Ramunas Mikalonis. Áhorfendur: 221. Fram – Víkingur 24:24 N1-höllin Varmá, Olís-deild karla, fimmtudag 18. febrúar 2016. Gangur leiksins: 1:2, 2:3, 3:5, 6:7, 9:7, 11:11, 12:14, 16:16, 17:20, 20:21, 23:21, 24:24. Mörk Aftureldingar: Árni Bragi Eyj- ólfsson 7/1, Mikk Pinnonen 6, Gunn- ar Malmquist Þórsson 2, Þrándur Gíslason Roth 2, Gestur Ólafur Ingv- arsson 2, Jóhann Gunnar Einarsson 2, Guðni Kristinsson 1, Jóhann Jó- hannsson 1, Birkir Benediktsson 1. Varin skot: Davíð Hlíðdal Svansson 17. Utan vallar: 4 mínútur Mörk Gróttu: Viggó Kristjánsson 5/1, Guðni Ingvarsson 5, Aron Dagur Pálsson 4, Finnur Ingi Stefánsson 4/1, Júlíus Þórir Stefánsson 3, Þor- geir Bjarki Davíðsson 1, Daði Laxdal Gautason 1, Árni Benedikt Árnason 1. Varin skot: Lárus Helgi Ólafsson 13. Utan vallar: 6 mínútur. Rautt spjald: Júlíus Þórir Stefánsson 60. (brot). Dómarar: Magnús Kári Jónsson og Ómar Ingi Sverrisson. Áhorfendur: 512. Afturelding – Grótta 24:24 Mustad-höllin, Dominos-deild karla, fimmtudag 18. febrúar 2016. Gangur leiksins: 4:2, 14:8, 16:12, 20:15, 26:18, 27:22, 31:29, 39:31, 42:41, 50:51, 56:55, 58:63, 62:67, 70:73, 72:79, 79:83, 81:87. Grindavík: Charles Wayne Garcia Jr. 27/8 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 14, Jón Axel Guðmundsson 12/14 frá- köst/10 stoðsendingar, Þorleifur Ólafsson 10/5 fráköst, Ómar Örn Sæv- arsson 10/9 fráköst, Þorsteinn Finn- bogason 5, Hinrik Guðbjartsson 3. Fráköst: 28 í vörn, 10 í sókn. Þór Þ.: Vance Hall 31/9 fráköst/5 stoðsendingar, Emil Karel Einarsson 19, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 15/ 12 fráköst, Halldór Garðar Her- mannsson 9, Þorsteinn Már Ragn- arsson 6/4 fráköst, Grétar Ingi Er- lendsson 5, Baldur Þór Ragnarsson 2. Fráköst: 20 í vörn, 12 í sókn. Grindavík – Þór Þ. 81:87 Iða, Selfossi, Dominos-deild karla, fimmtudag 18. febrúar 2016. Gangur leiksins: 3:5, 8:14, 12:16, 16:23, 21:25, 25:27, 29:34, 36:39, 42:47, 47:52, 58:56, 65:65, 71:74, 75:81, 77:85, 83:92. FSu: Chris Woods 22/12 fráköst, Bjarni Geir Gunnarsson 18/4 fráköst, Gunnar Ingi Harðarson 15/6 fráköst, Hlynur Hreinsson 11/7 stoðsendingar, Ari Gylfason 4, Geir Helgason 3/4 frá- köst, Þórarinn Friðriksson 3, Svavar Stefánsson 3, Maciej Klimaszewski 2, Arnþór Tryggvason 2. Fráköst: 28 í vörn, 3 í sókn. Höttur: Tobin Carberry 32/9 frá- köst/6 stoðsendingar, Eysteinn Bjarni Ævarsson 20/9 fráköst/5 stoðsend- ingar, Hreinn Gunnar Birgisson 14, Mirko Stefán Virijevic 10/11 fráköst, Hallmar Hallsson 8/5 fráköst, Bene- dikt Þorvaldur Guðgeirsson Hjarðar 4, Ásmundur Hrafn Magnússon 4. Fráköst: 31 í vörn, 8 í sókn. FSu – Höttur 83:92 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: DHL-höllin: KR – Keflavík ................. 19.15 1. deild karla: Dalhús: Fjölnir – Reynir S .................. 18.30 Hveragerði: Hamar – Ármann............ 19.15 Borgarnes: Skallagrímur – ÍA ............ 19.15 Smárinn: Breiðablik – KFÍ ...................... 20 1. deild kvenna: Smárinn: Breiðablik – Njarðvík............... 18 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olís-deildin: Kaplakriki: FH – Akureyri....................... 19 Úrvalsdeild kvenna, Olís-deildin: Valshöllin: Valur – Grótta.................... 19.30 1. deild karla: TM-höllin: Stjarnan – HK ................... 19.30 Selfoss: Selfoss – KR............................ 19.30 Dalhús: Fjölnir – Þróttur..................... 20.30 Kaplakriki: ÍH – Mílan ............................. 21 ÍSHOKKÍ Fyrsti úrslitaleikur karla: Akureyri: SA – Esja ............................. 19.45 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.