Fréttablaðið - 03.01.2017, Side 6

Fréttablaðið - 03.01.2017, Side 6
VEGNA LOKUNAR VERSLUNAR OKKAR VERÐUM VIÐ MEÐ ÝMSAR GERÐIR AF INNRÉTTINGUM ÁSAMT TÖLUVERÐU MAGNI AF GÍNUM TIL SÖLU Á ÓTRÚLEGU VERÐI. SALAN FER FRAM MIÐVIKUDAGINN 4. JANÚAR FRÁ KL. 10:00 TIL 16:00 Á 1. HÆÐ DEBENHAMS Í SMÁRALIND, GENGIÐ ER INN UM GAMLA INNGANGINN Á 1. HÆÐ. &INNRÉTTINGAR OGGÍNURÁ FRÁBÆRU VERÐI Snjóleysi í svissnesku Ölpunum Mikið snjóleysi hrjáir nú skíðafólk í svissnesku Ölpunum. Snjókoma hefur ekki mælst minni í desember í meira en 150 ár og úrkoma almennt mælst þar minni en áður. Í skíðaparadísinni les Crosets hafa menn brugðið á það ráð að búa til gervisnjó og gera úr honum mjóa skíðabraut. Nordicphotos/AFp Samfélag Hvorki utanríkisráðu- neytið né sendiráð Íslands í Kína hafa orðið vör við að tillaga Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings, um að sniðganga ætti vörur frá Kína dragi dilk á eftir sér. Einar sagði í veðurfréttatíma RÚV á nýársdag að ef Íslendingar ætluðu að leggja sitt af mörkum til loftslags- mála gætu þeir sniðgengið vörur frá Kína. Einar sagði árið 2016 það heitasta frá upphafi mælinga. „Kínverjar brenna kolum til að framleiða rafmagn og allar vörur sem eru framleiddar í Kína eru því óloftslagsvænar,“ sagði Einar. Engin viðbrögð hafa borist frá kínverska sendiráðinu en það var lokað í gær. Einar var áður aðstoðar- maður Jónínu Bjartmarz umhverfis- ráðherra. – bb Virðast sniðganga Einar Írak Sjálfsvígsárás í Bagdad kostaði hátt í fjörutíu manns lífið í gær. Um sextíu særðust að auki. Árásin var gerð með bílsprengju á fjölförnu torgi í Sadr City, sem er hverfi þar sem einkum búa sjía- múslimar. Stuttu síðar var gerð önnur sprengjuárás nálægt sjúkrahúsi í borginni og þar létu þrír lífið. Vígasamtökin Daish, eða Íslamskt ríki eins og þau kalla sig, segjast bera ábyrgð á báðum árásunum, en þeim er illa við sjía-múslima. Ofbeldi hefur aukist í Bagdad, höfuðborg Íraks, undanfarna mánuði eftir að stjórnarherinn hóf, ásamt hersveitum Kúrda, sókn gegn Daish í borginni Mosúl, sem sam- tökin hafa haft á sínu valdi síðan sumarið 2014. – gb Um fjörutíu féllu í árás í Bagdad hermenn skoða vegsummerki á vett- vangi sprengjuárásarinnar í sadr-hverf- inu í Bagdad í gær. Nordicphotos/AFp Vígasamtökin Daish, eða Íslamskt ríki eins og þau kalla sig, segjast bera ábyrgð á báðum árásunum, en þeim er illa við sjía-múslima. Sjávarútvegur „Síðasta ár var auðvitað mjög erfitt út af genginu. Svo kemur þetta verkfall ofan í það þannig að staðan er mjög erfið,“ segir Jón Steinn Elíasson, for- maður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ), um kjaradeilu sjómanna. Jón Steinn segir verkfallið koma sér illa fyrir þær fiskvinnslur án útgerðar sem aðilar eru að sam- tökunum sem og minni fyrirtæki í sjávarútvegi um land allt. „Við drögumst eiginlega inn í þetta. Við erum hvorki í verkfalli né aðilar að samningsnefnd. Þetta er í raun óhugsandi ástand,“ segir Jón Steinn.Í raun sé ekki hægt fyrir fiskvinnslur að halda úti vinnslu þar sem hráefnið er ekki fyrir hendi. „Við getum ekkert gert. Það eru þessir smábátar sem eru í gangi og þeir geta ekki róið nema í betra veðri. Það þarf að vera mjög gott veður til að þeir geti allir farið út,“ segir Jón Steinn og bætir því við að margir hafi gripið til uppsagna vegna tekjutaps. Jón Steinn segir deiluna, sem og sterkt gengi krónu, geta skaðað við- skiptatengsl við fyrirtæki í útlönd- um sem kaupi íslenskan fisk. „Þetta kemur kannski ekki mikið að sök strax en ef þetta dregst á langinn getur þetta farið að hafa alvarleg áhrif fyrir Íslendinga út á við.“ Jón Steinn hvetur samningsaðila til þess að nýta tíma sinn vel. „Það er skelfilegt að láta tvær heilar vikur falla dauðar niður. Það segir manni það að þeir ætla ekkert að semja heldur bíða bara eftir að ríkisstjórnin setji á þetta lög. Ég get ekki lesið annað út úr þessu. Ég ætla bara að vona að menn grípi ekki til Fiskvinnslur í þrot ef verkfallið dregst áfram Formaður Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda segir fiskvinnslur hafa þurft að segja upp fólki vegna verkfalls sjómanna. Hann skorar á aðila að útkljá deiluna sem fyrst en óttast lög á verkfallið sem hófst þann fjórtánda desember. Þessum fiski, ýsu og þorski úr Faxaflóa, var landað úr daðey GK í hafnarfirði í gær. FréttABlAðið/EyÞór slíkra aðgerða nema að á samninga verði reynt fyrir alvöru áður.“ Næsti fundur deiluaðila er fimmta janúar. Jón Steinn segir að ef ekki verði samið fljótlega eftir það gætu fiskvinnslur orðið gjaldþrota. „Ef þeir ná að klára þetta í vikunni þar á eftir þá ætti þetta að bjargast hjá okkur. Það má ekki dragast mikið lengur,“ segir Jón Steinn. Sjómenn hafa nú verið í verkfalli frá því fjórtánda desember er þeir felldu kjarasamning. Þeir hafa hins vegar verið samningslausir frá því í ársbyrjun 2011. thorgnyr@frettabladid.is Það er skelfilegt að láta tvær heilar vikur falla dauðar niður. Það segir manni það að þeir ætla ekkert að semja heldur bíða bara eftir að ríkisstjórnin setji á þetta lög. Jón Steinn Elíasson, formaður SFÚ 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j u D a g u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a Ð I Ð 0 3 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B D 7 -3 F 5 C 1 B D 7 -3 E 2 0 1 B D 7 -3 C E 4 1 B D 7 -3 B A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.