Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.01.2017, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 03.01.2017, Qupperneq 10
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@frettabladid.is Spuninn Fréttablaðið og Morgunblaðið hófu nýja árið með forsíðufrétt­ um af stjórnarmyndunarvið­ ræðum. Á forsíðu Fréttablaðsins var sagt frá því að búið væri að semja um að setja MS undir sam­ keppnislög, tollar yrðu lækkaðir á hvítu kjöti og kosið yrði um viðræður við Evrópusambandið í viðræðum Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar fram­ tíðar. Þessu svaraði Benedikt Jóhannesson, formaður Við­ reisnar, þannig í gær að læra mætti margt af því að lesa blöðin og að hann vissi ekki til þess að samið hefði verið um málið. Á mbl.is brugðust nokkrir Sjálf­ stæðismenn súrir við yfir þessum tíðindum. Á forsíðu Morgunblaðsins sagði svo að VG, Framsókn og Sjálfstæðisflokkur væru búnir að ræða saman síðustu daga. Þetta bar Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, til baka og kvað Sjálfstæðisflokk ekki hafðan með í ráðum. Aðeins væri verið að stilla saman strengi ef þessir flokkar verði í stjórnarandstöðu á komandi kjörtímabili. Það er svo sem ekki nýtt að stjórnmálamenn beri til baka fréttir sem þeim þykja óþægi­ legar. En þegar tvö stærstu blöð landsins flytja fréttir sem sýnast stangast á mætti halda að önnur hvor fréttin sé ekki sannleikan­ um samkvæm. Nema Sjálfstæðis­ flokkur leiki tveimur skjöldum. snaeros@frettabladid.is Hafðu smá í dag Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40 Fjárlög 2017 voru afgreidd með 25 milljarða króna afgangi sem svarar til eins prósents af landsframleiðslu. Þetta er of lítill afgangur miðað við ríkjandi efnahagsaðstæður. Hagvöxtur var óvenju mikill á síðasta ári og verður það fyrirsjáanlega einnig á þessu ári. Góð hagstjórn felst í því að jafna hagsveiflur með því að reka ríkis­ sjóð með myndarlegum afgangi þegar hagvöxtur er mikill og halla þegar hann er lítill. Ekki er að sjá ábyrga hagstjórn í nýsamþykktum fjárlögum fyrir næsta ár. Þrátt fyrir að útgjöld ríkis­ sjóðs hafi aukist um níu prósent árið 2016, og hafi vaxið samfleytt frá árinu 2012, þá á enn að bæta í og er gert ráð fyrir fjögurra prósenta aukningu árið 2017. Yfir hagsveifluna þarf afkoman að vera í jafnvægi, það er afgangur þegar vel árar þarf að vera jafn hall­ anum þegar illa árar. Í ljósi mikils hagvaxtar þyrfti aðhald ríkisins að vera mun meira og afkoman betri. Áætlanir gera ráð fyrir að núverandi hagvaxtar­ skeið, sem þegar er orðið eitt hið lengsta í Íslands­ sögunni, lengist enn. Útgjöld vaxa hraðar en á síðasta hagvaxtarskeiði sem stóð frá 2004 til 2007. Skuldir ríkissjóðs eru tvöfalt meiri en þá. Áhyggjuefni er hversu lítill viðbúnaður er vegna óvæntra atburða og hugsanlegs viðsnúnings í efna­ hagslífinu því núverandi uppsveifla mun taka enda. Að mati efnahagssviðs SA nema þensluáhrif fjárlaga 2017 um tveimur prósentum af lands­ framleiðslu. Reynsla undangenginna ára kennir að þensluáhrif ríkisfjármála verða mun meiri en ákveðið hefur verið í fjárlögum. Samkvæmt ríkisreikningi fóru ríkisútgjöld að jafnaði fimm prósent umfram fjárlög á árunum 2010­2015. Sporin hræða í þessum efnum. Vandinn er alltaf sá sami. Helsta áskorun hag­ stjórnar á Íslandi er sú að opinberu fjármálin, peningastefnan og vinnumarkaðurinn vinna ekki saman. Því þarf að breyta. Þeir sem ekki dansa í takt troða öðrum um tær. Taktlaus dans Halldór Benja­ mín Þorbergs­ son, framkvæmda- stjóri SA Þeir sem ekki dansa í takt troða öðrum um tær. Stundum er sagt að bestu samningarnir séu samning- ar þar sem allir ganga jafn fúlir frá borði. Það kannast flestir við Bluetooth. Þráð­lausa tækni sem gerir fólki kleift að flytja gögn og upplýsingar yfir útvarpsbylgjur milli tækja. Tæknin er í handfrjálsum búnaði og er ómissandi við flutning á tónlist í hátalara á tímum þar sem fólk nálgast hana í efnisveitum og spilar hana þráðlaust gegnum snjalltæki með Bluetooth­staðlinum. Færri vita kannski um uppruna nafnsins. Bandaríski verkfræðingurinn Jim Kardach fann upp leið til að tengja saman síma og tölvur þráðlaust árið 1997. Um það leyti sem tæknin var að komast á legg var Kardach að lesa enska þýðingu sagnfræðilegu skáldsögunnar Röde Orm eftir sænska rithöfundinn Frans G. Bengts­ son. Kardach hreifst mjög af frásögnum um hvernig Haraldur blátönn Danakonungur og síðar konungur yfir hluta Noregs, gat sameinað mikinn fjölda ólíkra ættbálka í Danmörku og Noregi undir einu konungs­ ríki. Það þurfti þrautseigju og útsjónarsemi. Það er flókið verkefni að láta tölvur og síma, tvö ólík fjar­ skiptatæki, vinna saman hnökralaust. Rétt eins og það er þrautinni þyngra að sameina 17 þúsund tæknifyrir­ tæki víða um heim í því verkefni að nota einn og sama staðalinn, Bluetooth. Það er ekki tilviljun að rúnaletrið er grafið í vörumerki staðalsins. Frásögnin um tilvist og uppruna þessarar tækni og lipurð Haraldar blátannar við að sameina ólíka ættbálka kom upp í hugann á síðustu dögum árs­ ins þegar fregnir bárust af því að þrír flokkar hefðu freistað þess að mynda ríkisstjórn þrátt fyrir að fyrri tilraunir hefðu farið út um þúfur. Formaður Sjálf­ stæðisflokksins greindi frá því eftir fund með forseta daginn fyrir gamlársdag að flokkarnir þrír hefðu náð „ágætri sátt“ í sjávarútvegs­ og Evrópumálum. Það eru pólitísk stórtíðindi enda höfðu fyrri viðræður alltaf strandað á getuleysi forystumanna flokkanna til að smíða málamiðlanir í þessum erfiðu málaflokkum. Frá því var greint í gær að hluti af lausn í Evrópumálum fælist í þjóðaratkvæðagreiðslu síðar á kjörtímabilinu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Þingmenn flokkanna áskildu sér engu að síður rétt til að greiða atkvæði eftir sannfæringu í þinginu þegar málið kæmi til afgreiðslu, eins og stjórnarskráin gerir raunar áskilnað um. Í nútímastjórnmálum er ekki svigrúm fyrir hug­ myndafræðilegt ofstæki. Kalda stríðið er búið og almenningur gerir kröfu um lausnir sem taka mið af hagsmunum allra. Farsælir stjórnmálaleiðtogar í álfunni skilja þetta. Ástæða þess að Angela Merkel Þýskalandskanslari er farsæl í embætti er að hún nálgast ekki stjórnmálin út frá hugmyndafræðilegum átakalínum heldur núllsummuleikjum. Lausnin, mála­ miðlunin, er árangur í sjálfu sér. Stundum er sagt að bestu samningarnir séu samn­ ingar þar sem allir ganga jafn fúlir frá borði. Besta niðurstaðan fæst hins vegar þegar við sameinumst en tökum tillit til hagsmuna hvers annars í samrun­ anum. Stjórnmálamenn þurfa í auknum mæli að til­ einka sér þetta. Og vera eins og blátönnin sem leiðir saman ólík meðul og hagsmuni undir sameiginlegum staðli. Blátönnin 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r10 s k o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð SKOÐUN 0 3 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B D 7 -2 6 A C 1 B D 7 -2 5 7 0 1 B D 7 -2 4 3 4 1 B D 7 -2 2 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.