Fréttablaðið - 03.01.2017, Side 17

Fréttablaðið - 03.01.2017, Side 17
fólk kynningarblað 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r Að mati Hrannar virkar ekkert vel ef melting og ristill virka ekki vel. „Það sem vakti áhuga minn á að prófa Glucoslim frá Natures Aid fyrir nokkru síðan var að það er 100% náttúrulegt og eingöngu vatnsleysanlegar trefjar sem eru gríðarlega hollar fyrir þarmaflór- una okkar. Það sem er gott fyrir þarmaflóruna er jú einnig jákvætt fyrir heilsuna almennt því þarm- arnir hafa áhrif á okkur bæði lík- amlega og andlega,“ segir Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsu- og næring- armarkþjálfi hjá Artasan. Of mikið af hOllum mat „Ég er ein af þeim sem hef afskap- lega gaman af því að elda mat og finnst ekki síður gaman að borða hann. Minn akkilesarhæll er sá að ég borða of mikið, ekki óhollan mat en þegar maður borðar alltaf of mikið, þá þyngist maður – líka af hollum mat. Ég ákvað að prófa á sjálfri mér að taka inn Gluco Slim því það er sem fyrr segir náttúru- legt, heilsubætandi og viðurkennt af matvælastofnun Evrópu sem þyngdarstjórnunarefni.“ Þyngist ekki Og nýt Þess að bOrða Rúmlega viku eftir að Hrönn fór að taka inn GlucoSlim reglulega fann  hún fyrir því að hún var farin að borða minna. „Ég varð fyrr södd og fór því að spá að- eins í hvað ég setti mikið á disk- inn minn. Trefjarnar, sem teknar eru um 30 mínútum fyrir mat, eru hitaeiningasnauðar, þær taka pláss í maganum og framkalla þannig seddutilfinningu svo að ég borða minna. Þær hægja á tæmingu úr maganum og stuðla því líka að því að lengri tími líður áður en ég verð aftur svöng. Best er að taka fram að trefjarnar drekka í sig vökva og því algerlega nauðsynlegt að taka þetta inn ásamt 1-2 vatnsglösum.“ nr. 2 á hverjum degi „Eins vandræðalegt og öllum finnst að tala um hægðir þá er þetta nú eitthvað sem við öll gerum frá vöggu til grafar. Við látum þetta öllu skipta hjá unga- börnunum okkar og svo förum við aftur að hafa áhyggjur af þessu með árunum. Þetta á að skipta máli alla ævi því ef við kúkum ekki reglulega, of sjaldan eða allt of oft, erum við ekki heil heilsu. Ég þekki þetta vandamál vel sjálf og get fullyrt að GlucoSlim hefur breytt miklu. Án þess að fara nánar í mína heilsusögu þá tek ég að sjálfsögðu inn góða gerla alla daga, ýmist kefír sem ég geri sjálf eða borða prógastró-mjólk- ursýrugerla. Glucomannan-trefj- arnar sem eru í GlucoSlim eru svo besta hugsanlega fóður sem þarma flóran fær en eins og aðrar vatnsleys- anlegar trefjar, draga þær úr upp- töku á pró- teini og fitu og eru vinveittar góðu gerlunum í þörmunum.“ minni blóðfita Og blóðsykurinn í jafnvægi Fitusýran  butyrate er að sögn Hrannar afar merkileg en hana er m.a. að finna í smjöri. „Hún er bólgueyðandi og hefur öflug vernd- andi áhrif á meltingarveg en þessi fitusýra er líka búin til af bakterí- um í þörmunum þegar þær kom- ast í snertingu við trefjar, eins og Glucomannan-trefjarnar. Rann- sóknir hafa sýnt að butyrate viðbót- in kemur í veg fyrir þyngdaraukn- ingu með því að auka brennslu og draga úr matarlyst. Butyrate bætir einnig virkni hvatbera í frumum og lækkar þríglýs eríð og insúlín. Ég hvet lesendur til að lesa meira um butyrate og hvað hún gerir. Eins ber að nefna að ég á einnig aðrar vatnsleysanlegar trefjar sem heita Inulin. Þær eru bragðlausar og í duftformi og set ég alltaf skeið í bú- stið mitt þegar ég fæ mér svoleiðis. Inulin-trefjar eru m.a. góðar gegn innri fitu, þessari hættulegu sem sest á líffærin.“ allt fyrir meltinguna Og ristilinn „Eftir allt sem ég hef prófað í gegn- um tíðina varðandi breytingar og bætur á mataræði, þá er það í mínum huga á hreinu að það virkar ekkert vel ef meltingin og ristillinn virka ekki vel. Heilbrigð þarma- flóra er grunnurinn að heilsunni og því til mikils að vinna að hafa þetta allt í góðum gír. Ég mæli heilshug- ar með GlucoSlim-trefjunum frá Natures Aid en virknin gerir það að verkum að ég geng með þær á mér og gleymi næstum aldrei að taka þær inn.“ tilbOð á glucOslim í janúar 20% afsláttur verður af Gluco Slim í janúar svo nú er um að gera að nýta tækifærið, hvort sem er til þess að léttast eða halda sér í jafn- vægi og bæta starfsemina í aðal- græjunni okkar. Muna bara að taka inn þrisvar sinnum á dag – fyrir máltíð. grennandi Og jafnar blóðsykur Artasan kynnir GlucoSlim frá Natures Aid er þyngdarstjórnunarefni sem er viðurkennt af matvælastofnun Evrópu (EFSA). Það inniheldur Glucomannan-trefjar sem unnar eru úr rótarhýði konjakplöntunnar. 100% náttúruleg afurð sem hægir á tæmingu magans, við verðum fyrr södd og og borðum minna. Trefjarnar koma reglu á hægðir og góðar fyrir þarmana. Viðurkennt sem þyngdarstjórnunarefni af Matvælastofnun Evrópu. Þetta virkar, ég borða minna og mér líður mikið betur. Hrönn Hjálmarsdóttir Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana NÝTT ÞYNGDARSTJÓRNUNAREFNI Rannsóknir staðfesta virknina Matvælastofnun Evrópu samþykkir glucomannantrefjar sem þyngdarstjórnunarefni og hafa rannsóknir sýnt fram á að þessar trefjar geta stuðlað að þyngdartapi. GlucoSlim inniheldur glucomannantrefjar sem stuðla að þyngdartapi, sé það tekið inn sem hluti af orkusnauðu mataræði. Trefjarnar taka pláss í maganum og framkalla þannig seddutilfinningu svo að fólk borðar minna. Þær hægja á tæmingu úr maga og stuðla því einnig að því að lengri tími líður áður en við verðum aftur svöng. 0 3 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B D 7 -4 9 3 C 1 B D 7 -4 8 0 0 1 B D 7 -4 6 C 4 1 B D 7 -4 5 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.