Fréttablaðið - 03.01.2017, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 03.01.2017, Blaðsíða 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 sólveig gísladóttir solveig@365.is ráðstefnunni er ætla að miðla því sem er efst á baugi í líf- og heilbrigðisvísindum. Hátt í 300 rannsóknir, sem ná yfir öll fræðasvið líf- og heilbrigðis- vísinda, verða kynntar á 18. ráð- stefnunni í líf- og heilbrigðisvís- indum sem haldin verður á Há- skólatorgi dagana 3. og 4. janúar nk. Heilbrigðisvísindasvið Há- skóla Íslands stendur fyrir ráð- stefnunni sem er ætlað að miðla því sem er efst á baugi í líf- og heilbrigðisvísindum hverju sinni og stuðla að auknu þverfræðilegu samstarfi. Á ráðstefnunni verður fjallað um allt frá stofnfrumum og sýkla- fræði til íþrótta, skurðlæknis- fræði og andlegrar og líkamlegr- ar heilsu manna á öllum æviskeið- um. Áhersla er lögð á að málstofur séu eins þverfræðilegar og unnt er til þess að tengja saman vís- indafólk úr ólíkum áttum. Tvær nýjungar verða kynntar á 18. ráðstefnunni. Boðið verður upp á málstofur sem fara að öllu leyti fram á ensku. Þetta er gert til þess að koma til móts við vax- andi fjölda enskumælandi nem- enda og starfsfólks við Háskóla Íslands. Þá verða tvær sérstak- ar gestamálstofur á dagskrá þar sem skipulagning og val á efni er í samstarfi við utanaðkomandi sérfræðinga. Önnur málstofan er á vegum sýklafræðideildar Land- spítala og Barnaspítala Hringsins og nefnist Árangur pneumókokka- bólusetningar á Íslandi. Hin er á vegum Félags lýðheilsufræðinga, Faralds- og tölfræðifélagsins og Matvæla- og næringarfræðifélags Íslands og nefnist Sykurneysla Ís- lendinga – Lýðheilsuógn? Þá verður efnt til opinna fyrir- lestra fyrir almenning þar sem fjallað verður um málefni úr líf- og heilbrigðisvísindum sem hafa verið í sviðsljósinu undanfar- ið. Annars vegar verður fjallað um stofnfrumur en miklar vonir eru bundnar við nýtingu þeirra í lækningaskyni. Hins vegar verð- ur fjallað um hamingju og sjálfs- mynd í neyslusamfélagi nútímans. Allir eru velkomnir á ráðstefn- una og aðgangur er ókeypis. Ráðstefna sem á eRindi við alla „Þetta verkefni varð til við sam- einingu á tveimur námskeiðum. Annars vegar Bakskólanum, sem Bjarney Gunnarsdóttir sá um, en þar var áhersla lögð á fólk með stoðkerfisvanda. Hins vegar nám- skeiðinu The Biggest Winner sem ég hef verið með, en þar var lögð áhersla á fólk í yfirþyngd,“ segir Steinunn Leifsdóttir íþróttafræð- ingur, sem er umsjónarmaður Aftur af stað ásamt Bjarneyju sem einnig er íþróttafræðingur. „Í raun eiga þessir tveir hópar mjög margt sameiginlegt því fólk í yfirþyngd er mjög oft líka að kljást við stoðkerfisvanda, eymsli í hnjám og baki,“ segir Steinunn er aðaláhersla er lögð á göngur á jafnsléttu auk þess sem gerð- ar verða ýmsar liðkandi æfingar ásamt stöðu- og styrktaræfingum. „Við göngum einu sinni í viku á jafnsléttu innan borgarmarkanna. Göngurnar standa yfir í um þrjú korter. Við reynum að sneiða fram hjá malbikuðum stígum enda er það ekki gott fyrir hné og mjaðmir. Einu sinni í viku förum við í jóga og fræðslufundir þar sem hópur- inn hittist, fræðist og ber saman bækur sínar eru haldnir reglu- lega,“ segir Steinunn. Þegar líður á námskeiðið verður bætt inn létt- um fjallgöngum á laugardögum. Steinunn og Bjarney verða í samstarfi við SÍBS. „Þeir útvega okkur prógramm sem fólk hleður niður í app í síma eða tölvu. Þar er að finna bæði fræðslu og hvatn- ingu, hægt að skrá niður hreyf- ingu og matardagbók,“ lýsir Stein- unn sem segir hópefli afar mikil- vægt á námskeiðinu enda myndist oft góðir vinahópar úr slíkum námskeiðum sem haldi áfram að ganga saman þegar tímabilinu lýkur. Hún segir árangurinn af svip- uðum námskeiðum afar góðan. „Fólk fær aukinn styrk og þol, kynnist skemmtilegu fólki og fær auk þess áhuga á göngu,“ segir Steinunn en engin áhersla er lögð á að léttast. „SÍBS sér um mæling- ar fyrir okkur á blóðsykri, blóð- þrýstingi og blóðfitu en við erum ekkert að velta fyrir okkur kíló- atölum eða fituprósentu. Enda er vel hægt að vera feitur og í formi.“ Verkefnið Aftur af stað, varir í fjóra mánuði. Það hefst mánu- daginn 16. janúar og lýkur mánu- daginn 15. maí. Kynningarfundur verður fimmtudaginn 12. janúar kl. 20 í risi Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6. aF stað eFtir hreyFingarleysi aftur af stað er nýtt endurhæfingarverkefni Ferðafélags Íslands. Það er sérstaklega hugsað fyrir þá sem vilja fara af stað í hreyfingu og útiveru eftir veikindi, slys, meiðsl eða langvarandi hreyfingarleysi. Byrjað er á göngum á jafnsléttu. gengið verður einu sinni í viku á jafnsléttu innan borgarmarkanna. Þegar líður á námskeiðið verður einnig farið á fjöll. mynd/ferðafélag Íslands steinunn leifsdóttir íþróttafræðingur sér um námskeiðið með bjarneyju gunnarsdóttur. Finndu styrk í meiri vellíðan. Við tökum vel á móti þér! Námskeið, hóptímar, yoga, tækjasalur, spa, nudd, nálastungur, cupping, sjúkraþjálfun og Gáska og snyrtistofan Fegurð og Spa. Heilsubót lífsstílsnámskeið Styrktar-, þol- og liðleikaæfingar, fræðsla og hvatning á lokuðu námskeiði. Hefst 17. janúar. HEILSA OG SPA · Ármúla 9 · 595 7007 · heilsaogspa@heilsaogspa.is · heilsaogspa.is Yoga fyrir golfara Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir þá sem stunda golf og vilja bæta árangur sinn. Hefst 16. janúar og 14. febrúar. Styrkar stoðir Yoga fyrir stoðkerfið Heilsueflandi yogaæfingar á lokuðu námskeiði fyrir fólk með stoðkerfiseinkenni. Hefst 16. janúar. 3 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a r b l a Ð ∙ h e I l s a 0 3 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 3 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B D 7 -4 4 4 C 1 B D 7 -4 3 1 0 1 B D 7 -4 1 D 4 1 B D 7 -4 0 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.