Fréttablaðið - 03.01.2017, Page 36
Á næsta ári snýst allt um fallega, ljómandi og náttúrulega húð og því minna því betra að sögn förð-u n a r f r æ ð i n g s i n s
Söru Daggar Johansen. „Léttur farði
í bland við rakakrem til að ná fram
fallegum ljóma verður aðalmálið.
Það að nota engan farða þykir líka
flott um þessar mundir, sérstak-
lega eftir að söngkonan Alicia Keys
sagðist vera hætt að nota farða og
Kim Kardasian mætti ómáluð á
sýningu Balenciaga á dögunum.
Fyrir þá sem vilja ekki vera alveg
ómálaðir er hægt að fá alls konar
fallega farða sem gefa létta þekju
og ljóma. Það er líka mjög sniðugt
að taka hyljara og setja á aðeins þau
svæði sem viðkomandi vill hylja,“
segir Sara aðspurð út í tískustrauma
í förðunarheiminum á þessu ári.
Ljómandi húð verður sem sagt í
aðalhlutverki. „Já, ýktar skyggingar
á húðinni fá að víkja fyrir fallegum,
mildum skyggingum og bronsaðri,
sólkysstri húð.“
Að sögn Söru kemur kinna-
litur með kremáferð sterkur inn
á þessu nýja ári enda gefur hann
húðinni ljómandi og náttúrulegan
lit. „Bleikir tónar verða vinsælli
en aðrir enda voru þeir sérstak-
lega áberandi á tískupöllum fyrir
árið 2017. „Draping“ er ný aðferð
í förðunarheiminum og snýst um
að setja smá kinnalit á þau svæði
þar sem skyggt er til að fá smá frísk-
legra útlit. Sú aðferð verður vinsæl
á þessu ári.“
Hvað tískuna í augnförðun fyrir
árið varðar þá er létt augnförðun
með náttúrulegum skyggingum í
hlýjum tónum aðalmálið að sögn
Söru. „Fyrir þá sem vilja ýktari förð-
un er létt „smokey“-augnförðun að
koma sterk inn og er fullkomin
fyrir fínni tilefni. Og þegar Ariel
Tejeda, förðunarfræðingur Kar-
dashian- og Jenner-systra, kom til
landsins fyrr á árinu til mín og Sillu
í Reykjavík Makeup School þá sagði
hann okkur að núna væri vinsælt
að hafa lítinn sem engan maskara
á neðri augnhárum. „Eyeliner“ með
stórum spíss eða væng verður ekki
eins vinsæll á næsta ári því „smudge
eyeliner“ verður áberandi.“
Hvað með varalitatískuna?
Mattir varalitir eru að víkja fyrir
varalitum með smá gljáa og bleikir
tónar verða áberandi. Að sögn Söru
er svo rauður varalitur alltaf klass-
ískur. „Já, rauði liturinn heldur
áfram að vera vinsæll eins og árið
2016 en einnig koma ferskjulitaðir
og bleikir tónar sterkir inn í vara-
litatískuna 2017. Þetta árið verður
ekki eins mikið um matta varaliti
því kremaðir varalitir verða meira
áberandi. Varasalvinn hefur svo
verið einstaklega áberandi á tísku-
pöllunum en með honum færðu
fallegar mjúkar varir með smá lit,
það er er algjörlega í takt við 2017
tískuna,“ segir Sara sem mælir með
varasalvanum frá Maybelline.
En hvað dettur úr tísku á næsta
ári?
„Miðað við það sem maður er að
sjá á tískupöllunum erlendis og hjá
vinsælustu förðunarfræðingunum
þá sýnist mér þrennt vera að detta
úr tísku á næsta ári. Það er t.d. svo
kallað „baking“ og mikil skygging.
Það hefur verið mjög vinsælt síð-
ustu ár. Þá er mikið magn púðurs
sett á andlitið og það látið sitja á
húðinni í nokkra mínútur. Þetta er
gert til að „festa“ farðann betur. En
með þessari aðferð verður húðin
oft ónáttúruleg og jafnvel þurr,“
segir Sara sem mælir með að nota
góðan farðagrunn og svokallað
„setting spray“ til að auka endingu
farðans í stað þess að notast við
„baking“-aðferðina.
„Annað „trend“ sem verður
minna áberandi á nýju ári eru bláir
tónar á augun en blár litur hefur
verið einstaklega áberandi á tísku-
pöllunum 2016 en verður ekki eins
áberandi á nýju ári,“ segir Sara.
„Og annað sem verður ekki eins
vinsælt á árinu 2017 er mikill vara-
blýantur. Förðun, þar sem teiknað
er með varablýanti út fyrir var-
irnar til að stækka þær, hefur verið
áberandi en verður það ekki áfram.
Gott ráð til að láta varirnar virka
stærri er að setja varalit í örlítið
ljósari tóni á miðjuna á vörunum
eða jafnvel smá gloss.“
gudnyhronn@365.is
Mikill varablýantur og
„baking“ að detta úr tísku
Sara Dögg Johansen, eigandi Reykjavík Makeup School, rennir yfir förðunartískuna fyrir
árið 2017. Mesta áherslan verður lögð á að hafa húðina sem náttúrulegasta og þá skiptir
fallegur ljómi sköpum. Mikill varablýantur sem nær út fyrir varirnar er þá að detta út.
Ljómandi húð einkenndi fyrirsæturnar á tískupallinum hjá
Isabel Marant þegar sumarlína þessa árs var kynnt.
NORDICPHOTOS/GETTY
Rauður varalitur er alltaf flottur eins og sjá mátti þegar
nýjasta sumarlína Kenzo var sýnd.
NORDICPHOTOS/GETTY
Sara Dögg Johansen fer yfir stefnur og strauma í förðun fyrir árið 2017. MYND/ÍRIS DöGG
ÚTSALA!
H E I L S U R Ú M
A
R
G
H
!!!
0
40
11
7
#3
ROYAL CORINNA 120
Hágæða millistíf fimm-svæða skipt heilsudýna
með poka-gorma kerfi ásamt botni og fótum.
(Stærð 120x200 cm)
6.324 kr.* Á MÁNUÐI
FULLT VERÐ 98.036 kr.
ÚTSÖLUVERÐ 68.625 kr.
30%
AFSLÁTTUR!
(*
Mi
ða
ð v
ið
12
má
na
ða
va
xta
lau
sa
n r
að
gr
eið
slu
sa
mn
ing
m
eð
3,
5%
lá
nt
ök
ug
jal
di
og
40
5 k
r. g
re
iðs
lug
jal
di)
3 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U D a G U r28 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð
Lífið
0
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
D
7
-3
A
6
C
1
B
D
7
-3
9
3
0
1
B
D
7
-3
7
F
4
1
B
D
7
-3
6
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K