Morgunblaðið - 12.03.2016, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 12. MARS 2016
ÍÞRÓTTIR
Ólympíufarar Handboltadómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson hafa fengið uppreisn
æru eftir atvikið umdeilda á HM í vetur. Hrikalegt högg. Fengu gífurlegan stuðning. 2-3
Íþróttir
mbl.is
Evrópumeistarar
Þýskalands í
handknattleik
karla unnu
öruggan sigur á
Asíumeisturum
Katar, 32:17, í
fyrri vin-
áttulandsleik
þjóðanna í Leip-
zig í gærkvöldi.
Dagur Sigurðs-
son og lærisveinar hans í þýska lið-
inu höfðu mikla yfirburði í leiknum
og segja má að þeir hafi hreinlega
kjöldregið silfurlið síðasta heims-
meistaramóts að viðstöddum liðs-
lega 7.000 áhorfendum. Andreas
Wolf fór á kostum í marki Þjóð-
verja og varði m.a. þrjú vítaköst.
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elí-
asson dæmu leikinn. iben@mbl.is
Yfirburðir
Þjóðverja
Dagur
Sigurðsson
UNDANKEPPNI EM
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Við höldum ótrauð áfram og erum
ákveðin í að vinna síðari leikinn á
sunnudaginn,“ sagði Ágúst Þór Jó-
hannsson, landsliðsþjálfari kvenna í
handknattleik, við Morgunblaðið síð-
degis í gær. Hann var þá nýlentur
hér á landi eftir ferð frá Sviss með ís-
lenska landsliðinu hvar það tapaði
fyrir landsliði heimakvenna á
fimmtudagskvöldið í undankeppni
EM, 22:21. Fyrir vikið rekur ís-
lenska landsliðið lestina í sjöunda
riðli undankeppni EM.
Landslið Íslands og Sviss leiða
saman hesta sína á nýjan leik í
Schenker-höllinni á Ásvöllum á
morgun klukkan 16.30. Þá eru Ágúst
og liðsmenn hans staðráðnir í að
snúa taflinu við.
Engar breytingar verða gerðar á
íslenska liðinu fyrir leikinn á morg-
un enda komust allir leikmenn liðs-
ins heilir frá leiknum að sögn
Ágústs. „Það verður sama lið hjá
okkur í seinni leiknum,“ sagði þjálf-
arinn sem hefur daginn í dag til þess
að fara yfir leik íslenska landsliðsins
og búa það betur undir að sækja bet-
ur á veikleika landsliðs Sviss en það
gerði í fyrri leiknum á fimmtudags-
kvöldið.
Svissneska landsliðið kom á undan
íslenska landsliðinu til Íslands í gær.
Svissneska liðið lagði fyrr af stað og
náði æfingu í Schenker-höllinni síð-
degis í gær. Jesper Holmris, lands-
liðsþjálfari Sviss, var í sjöunda himni
með varnarleik síns liðs í leiknum á
fimmtudagskvöldið í samtali við
heimasíðu Handknattleikssambands
Sviss. „Varnarleikur okkar var
framúrskarandi. Okkur tókst að
lama sóknarleik íslenska liðsins. Við
verðum hinsvegar að bæta eitt og
annað fyrir síðari leikinn, þar á með-
al hraðaupphlaupin,“ sagði Holmris,
landsliðsþjálfari Sviss.
Taflinu verður snúið við
Engin breyting á íslenska landsliðinu fyrir síðari leikinn við Sviss á Ásvöllum
FÓTBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórs-
son er klár í slaginn á ný eftir erfið axlarmeiðsli
sem hann hefur glímt við undanfarna mánuði.
Að öllu óbreyttu mun hann standa á milli stang-
anna hjá Bodö/Glimt á morgun þegar liðið tekur
á móti nýliðum Sogndal í fyrstu umferð norsku
úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.
,,Það er búið að krota á alla pappíra og það er
allt frágengið,“ sagði Hannes Þór í samtali við
Morgunblaðið í gær en hann verður í láni frá
hollenska liðinu NEC Nijmegen fram í júlí. ,,Ég
er búinn að taka eina alvöru æfingu með liðinu
og eina æfingu með markvarðarþjálfaranum,
sem var partur af læknisskoðuninni. Þeir vildu
sjá hvort ekki væri allt í lagi og þeir væru ekki
að kaupa köttinn í sekknum. Ég tel meiri líkur
en minni á að ég verði í markinu á sunnudag-
inn,“ sagði Hannes Þór, sem ekkert hefur spilað
síðan í október en hann varð fyrir því óláni að
fara úr axlarlið á æfingu landsliðsins og þurfti í
kjölfarið að gangast undir aðgerð.
Með þessu eyði ég óvissunni
,,Ég er ekki í neinum vafa með að þetta sé
rétta leiðin. Ég átti ekki von á að lið í efstu deild
í Noregi eða Svíþjóð væru með opna mark-
mannsstöðu svona rétt fyrir mót og miðað við
mínar aðstæður, það er að koma til baka eftir
meiðsli, þá fannst mér þetta bara vera of gott
tækifæri til að sleppa því. Með þessu eyði ég
allri óvissu hvað varðar leikform. Í stað þess að
sitja og bíða eftir einhverju sem ekki er í mínum
höndum, og aðeins einn og hálfur mánuður er
eftir af tímabilinu í Hollandi með fáum leikjum
og í samkeppni, þá hoppa ég beint inn í það að
vera fyrsti markvörður og þarf ekki að bíða eftir
tækifærinu. Hérna gefst mér tækifæri til að
spila fullt af leikjum í sterkri og krefjandi deild
og ég var ekki í neinum vafa um að þetta væri
það rétta í stöðunni. Auðvitað er erfitt að slíta
sig frá fjölskyldunni en fyrir fótboltann og leik-
formið var þetta engin spurning,“ sagði Hannes.
Hef gengið í gegnum margt en ekki þetta
Nú eru um fimm mánuðir síðan þú spilaðir
síðast. Er enginn beygur í þér að kasta þér
strax út í laugina og byrja að spila?
,,Ég neita því ekki að ég er búinn að hugsa
þetta mikið og vissulega er þetta óvenjulegt. Ég
hef gengið í gegnum margt í fótboltanum en ekki
þetta. Ég vona bara að reynsla mín nýtist. Ég er
í mjög góðu líkamlegu formi. Ég hef spilað
marga leiki í gegnum tíðina, ég þekki þessa deild
og veit hvað ég er að fara út í. Þetta á alveg að
geta gengið upp en vissulega er ég með smá fiðr-
ing í maganum eftir að hafa verið frá í þennan
tíma. Þetta er ekkert fullkomið undir-
búningstímabil fyrir fyrsta leik en einhvern tím-
ann verður maður að henda sér út í þetta. Mér
finnst öxlin vera orðin nógu góð til þess að geta
byrjað að spila. Ég fór í gegnum mjög ítarlega
læknisskoðun. Læknirinn tilkynnti mér það í
upphafi fundar okkar að hann hefði enga trú á að
ég væri orðinn klár eftir svona stuttan tíma en
hann skipti svo gjörsamlega um skoðun eftir að
hafa skoðað mig. Hann var mjög ánægður með
ástandið á mér.“
Hannes segist þar með vera klár í slaginn með
íslenska landsliðinu fyrir vináttuleikina á móti
Dönum og Grikkjum sem fram fara síðar í þess-
um mánuði. ,,Ég tel að ég verði í þeim hópi og
svo verðum við bara að sjá hvað gerist í þessum
leikjum sem framundan eru með Bodö/Glimt.“
Of gott til að sleppa því
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson snýr aftur á milli stanganna
eftir fimm mánaða fjarveru Orðinn leikmaður Bodö/Glimt og spilar á morgun
Morgunblaðið/Eggert
Evrópukeppnin Hannes Þór Halldórsson lék níu af tíu leikjum Íslands í undankeppni EM og vonast til
þess að vera tilbúinn í lokakeppnina í sumar eftir að hafa leikið með Bodö/Glimt í þrjá mánuði.
Oddný Árnadóttir keppti fyrst ís-
lenskra kvenna á heimsmeistaramóti
innanhúss í frjálsíþróttum í París árið
1985.
Oddný fæddist 1957 og keppti
fyrst fyrir UNÞ en síðan lengi fyrir ÍR.
Hún varð í fimmta sæti í 400 metra
hlaupi á mótinu í París sem var það
fyrsta sinnar tegundar. Sama ár var
hún þriðja best í 400 m hlaupi á
Norðurlöndum, keppti með úrvalsliði
Norðurlanda gegn Sovétríkjunum, og
bætti Íslandsmetið í greininni alls sex
sinnum. Oddný setti líka mörg met í
100, 200 og 800 m hlaupum á ferl-
inum. Hún er í hópi tíu bestu á land-
inu frá upphafi í öllum fjórum grein-
unum.
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR
DAGSINS
Ingi Þór Stein-
þórsson, þjálfari
karla- og
kvennaliðs Snæ-
fells í körfu-
knattleik, hefur
framlengt samn-
ing sinn við Snæ-
fell til næstu
tveggja ára. Frá
þessu var greint
á vefsíðunni
karfan.is. Ingi Þór hefur verið í sjö
ár við þjálfun í Stykkishólminum og
hefur ákveðið að vera þar í tvö ár í
viðbót.
Ingi verður áfram þjálfari bæði
karla- og kvennalið félagsins, en
kvennaliðið er ríkjandi Íslands-
meistari síðustu tveggja tímabila
og fagnaði sínum fyrsta bikartitli í
sögu félagsins fyrir um mánuði.
Kvennalið Snæfells er í harðri bar-
áttu um deildarmeistaratitilinn við
Hauka um þessar mundir.
Ingi Þór
heldur áfram
Ingi Þór
Steinþórsson