Morgunblaðið - 12.03.2016, Síða 3

Morgunblaðið - 12.03.2016, Síða 3
Leiknum lauk með jafntefli. Í leiks- lok kom í ljós að eftirlitsdómarinn hafði fengið rangar upplýsingar. Forráðamenn IHF tóku málið upp og ákváðu að hætta við notkun myndavélanna og senda dómarana og eftirlitsmanninn og fleiri starfs- menn leiksins heim. Þeim var til- kynnt um brottvikninguna í morg- unsárið en fréttirnar höfðu þegar birst á fréttmiðlum, m.a. á mbl.is, um miðja nótt eftir að IHF gaf út frétttilkynningu sína um brottvísun dómaranna og starfsmanna leiksins. Þá sváfu Anton og Jónas á sitt græna eyra á hóteli í Kolding, grun- lausir um hvað biði þeirra árla á nýjum degi. Styrktust við mótbyr „Við urðum fyrir gífurlegu áfalli en við unnum vel úr því og teljum eftir á að hyggja að það hafi styrkt okkur. Við nýttum okkur þennan styrk en víst er að einhverjir hefðu brotnað niður og sagt skilið við dómaraflautuna,“ sagði Anton Gylfi. „Við létum þetta hvorki brjóta okk- ur né buga. Við ákváðum að spyrna okkur frá veggnum,“ bætir Jónas við. Kveðjum rigndi yfir „Við pökkuðum saman og kvödd- um alla sem höfðu unnið með okkur, yfirgáfum svæðið með reisn. Okkur datt ekki í hug að skella hurðum og vera með læti. Enda fengum við mikil viðbrögð og öll voru þau já- kvæð. Stuðnings- og baráttukveðj- um rigndi yfir okkur úr ýmsum átt- um,“ sagði Jónas. „Það var ótrúlegt að finna fyrir þessum mikla stuðn- ingi sem við fengum,“ sagði Jónas. Handknattleikssamband Evrópu sendi strax um morguninn frá sér stuðningsyfirlýsingu sem var að sögn þeirra félaga afar mikilvæg. „Nú er þetta mál úr sögunni af okk- ar hálfu.“ Til þess að komast og vera í fremstu röð dómara í heiminum verða menn að hugsa vel um sig og æfa vel. Það segjast þeir félagar gera. Þeir æfi allt að fimm sinnum í viku en vissulega fari æfingaálagið eftir því hversu oft þeir dæma í viku hverri. Má aldrei slá slöku við Dómarar verða að æfa jafnvel og þeir íþróttamenn sem þeir dæma leiki hjá. Ekki má slá slöku við enda þurfa allir dómarar á stórmótum í handknattleik að gangast undir þrekpróf auk annarra prófa, t.d. skriflegra. „Við verðum að æfa af fullum krafti eins og leikmennirnir, annars drögumst við aftur úr. Það er alveg á hreinu,“ sagði Anton Gylfi og Jónas bætir við: „Ef menn ætla að vera dómarar í fremstu röð þá verða þeir að vera „all in“, það er ekki hægt að gera þetta með hang- andi hendi.“ Fjarvera frá fjölskyldu og vinnu Anton og Jónas dæma mikið í út- löndum og því fylgir mikil fjarvera frá fjölskyldu og ástvinum. „Á síð- asta ári vorum við að heiman í 130 daga,“ sagði Jónas og bætti við: „Ef menn eru staðráðnir í að ná langt þá verða menn að vera fórnfúsir á fjölskylduna en á sama tíma að eiga sterkt bakland,“ segir Jónas en báð- ir eru þeir giftir og eiga börn. „Þetta tekur á,“ sagði Anton. „Auk traustrar fjölskyldu þá verð- ur maður að hafa stuðning frá vinnuveitendum,“ segja þeir félagar sem vilja koma á framfæri þakklæti til Íslensk-Ameríska og Advania þar sem þeir starfa. „Án fjölskyldunnar og þeirra góðu fyrirtækja sem vinnum hjá væri það ekki hægt sem við erum að gera,“ segja þeir fé- lagar Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson einum rómi. kalegt högg Morgunblaðið/Golli Pálsson eru fremsta dómarapar Íslands í dag og í gærkvöld dæmdu þeir við- Asíumeistara Katar sem fram fór í Leipzig. ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2016 en Forest, undir stjórn Brians Clo- ugh, varð Englandsmeistari í fyrsta og eina skipti árið 1978 eftir að hafa komið upp í deild þeirra bestu árið áð- ur og var um það leyti taplaust í 42 leikjum í röð í deildinni. Forest fylgdi þessu svo eftir með því að hampa Evrópubikarnum næstu tvö árin á eftir. Ítalinn Claudio Ranieri, sem var rekinn úr starfi sem landsliðsþjálfari Grikkja með skít og skömm í nóv- ember 2014 eftir að hafa tapað í tví- gang fyrir Færeyingum í undan- keppni HM, er á góðri leið með að vinna einstakt afrek en sá ítalski heldur ró sinni og er klókur að halda öllum væntingum í skefjum. „Tottenham og Arsenal eru jafn líkleg og við til að vinna deildina. Við þurfum að berjast allt til enda. Þessi deild er hreint út sagt brjáluð og það getur enn allt gerst,“ sagði Ranieri í vikunni, en lærisveinar hans fá New- castle í heimsókn á mánudaginn. Með sigri í þeim leik gæti Leicester tekið enn eitt skrefið í áttina að meist- aratitlinum sem ég leyfi mér að segja að enginn í heimi hafi spáð að gæti gerst. AFP Á toppnum Danny Drinkwater, Danny Simpson og Riyad Mahrez gætu hampað enska meistaratitlinum með Leicest- er City í vor. Varla hefur nokkur séð þessa þrjá fyrir sér í næsta meistaraliði Englands þegar tímabilið hófst. Langar alltaf í meira Anton og Jónas segja að þrátt fyrir að það markmið að dæma á Ól- ympíuleikum sé brátt í höfn séu þeir ekki búnir að ná öllum mark- miðum sínum. „Okkur langar alltaf í meira, fá að dæma erfiðari leiki. Úrslitaleikur á HM karla og í Meistaradeild Evrópu er meðal þeirra leikja sem við eigum eftir,“ sagði Anton. „Við setjum okkur markmið fyrir hvert ár, bæði A og B. Sumum hefur okkur tekist að ná en öðrum ekki. Markmiðið er að gera betur í hverjum leik sem við dæmum en um leið vonumst við eftir að frammi- staða okkar leiði til þess að við fáum stærri og stærri leiki ár hvert,“ sagði Jónas. Marklínutækni á ÓL? „Við vitum það ekki,“ svöruðu þeir Anton og Jónas með bros á vör spurð- ir hvort IHF ætlaði að blása rykið af marklínutækninni sem lögð var til hliðar eftir atvikið í leik Suður-Kóreu og Frakklands sem þeir dæmdu. „Marklínutæknin er góð viðbót en það þarf að vera rétt framkvæmd við hana, sem því miður var ekki raunin á HM.“ Á ferð og flugi Anton og Jónas fóru til Þýskalands í fyrradag og dæmdu í gær fyrri vin- áttulandsleik Evrópumeistara Þjóðverja og silfurliðs síðasta heimsmeist- aramóts, Katar. Síðari leikurinn fer fram á morgun og aftur verða Jónas og Anton með flauturnar á lofti. Snemma í apríl fara þeir til Póllands til þess að dæma í forkeppni Ól- ympíuleikanna í handknattleik karla. „Við verðum að heiman í fimm daga vegna Þýskalandsferðarinnar og í sex daga í burtu vegna for- keppni Ólympíuleikanna. Það kostar mikla fjarveru frá fjölskyldunni að vera alþjóðadómari og þá er gott að eiga góða að heimavið,“ segja þeir Anton og Jónas. HANDKNATTLEIKUR Undankeppni EM kvenna: Schenker-höllin: Ísland – Sviss......... S16.30 Úrvalsdeild karla, Olís-deildin: KA-heimilið: Akureyri – ÍBV................. S20 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Mustad-höllin: Grindavík – Stjarnan.... L15 TM-höllin: Keflavík – Haukar........... S19.15 KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Kórinn: HK – Haukar ....................... L11.15 Egilshöll: Fjölnir – Þór ..................... L17.15 Egilshöll: Leiknir R. – Leiknir F ..... S14.45 Egilshöll: Valur – ÍBV ....................... S18.15 Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn: Jáverk-völlur: Selfoss – Stjarnan.......... S14 Boginn: Þór/KA – Fylkir........................ S16 Fífan: Breiðablik – ÍBV.......................... S16 BORÐTENNIS Íslandsmótið fer fram í TBR-húsinu í Reykjavík um helgina. Mótið hefst kl. 11 í dag og lýkur með úrslitaleikjum í einliða- leik karla og kvenna kl. 14 á morgun. SKAUTAR Vetrarmót Skautasambands Íslands fer fram í Egilshöll um helgina. Úrslitakeppni í unglingaflokki A hefst kl. 11.10 á morgun. FIMLEIKAR Seinasta bikarmót FSÍ í vetur fer fram í Laugabóli í Laugardal í dag og hefst kl. 16 en þar er keppt í frjálsum æfingum í áhaldafimleikum. BADMINTON Íslandsmót unglinga fer fram í íþróttahús- inu við Vesturgötu á Akranesi um helgina og áætluð mótslok eru um kl. 15 á morgun. ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA Íslandsmót ÍF í boccia, lyftingum og sundi fer fram í Reykjanesbæ í dag og á morgun. UM HELGINA! Dominos-deild kvenna Valur – Hamar.......................................91:57 Staðan: Snæfell 21 18 3 1591:1231 36 Haukar 20 18 2 1605:1307 36 Valur 21 12 9 1551:1476 24 Keflavík 21 10 11 1490:1474 20 Grindavík 20 10 10 1446:1390 20 Stjarnan 21 3 18 1391:1627 6 Hamar 22 2 20 1259:1828 4 1. deild karla KFÍ – Valur .........................................82:109 Skallagrímur – Hamar....................... 90:100 Breiðablik – Fjölnir.............................85:101 Staðan: Þór Ak. 17 14 3 1548:1208 28 Fjölnir 17 13 4 1596:1315 26 Skallagrímur 17 12 5 1562:1373 24 Valur 17 12 5 1600:1268 24 ÍA 17 11 6 1361:1352 22 Hamar 17 10 7 1535:1431 20 Breiðablik 17 7 10 1407:1429 14 KFÍ 17 3 14 1314:1474 6 Ármann 17 3 14 1234:1696 6 Reynir S. 17 0 17 1062:1673 0 NBA-deildin Toronto – Atlanta ............................... 104:96 San Antonio – Chicago..................... 109:101 Denver – Phoenix ............................... 116:98 LA Lakers – Cleveland.................... 108:120 KÖRFUBOLTI Guðbjörg Sverr- isdóttir átti stór- leik fyrir Val í gærkvöldi þegar liðið vann örugg- an sigur á neðsta liði Dominos- deildar kvenna í körfuknattleik, 91:57, í Valshöll- inni. Guðbjörg skoraði 33 stig og tók átta fráköst og bar höfuð og herðar yfir aðra leikmenn liðsins. Karisma Chapman var næst með 18 stig og 19 fráköst. Alexandra Ford skoraði 24 stig fyrir Hamar og tók átta fráköst. Valur treysti stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum. Valur er núna með fjögurra stiga forskot á Keflavík og Grindavík sem berjast um fjórða og síðasta sætið í úrslitakeppninni. iben@mbl.is Guðbjörg fór á kostum gegn Hamri Guðbjörg Sverrisdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.