Víkurfréttir - 21.10.1993, Page 2
2
21. OKTOBER 1993
WffUÆFRÉTTIR
Atvinnuleysi
að aukast
Atvinnuleysi á Suðurnesj-
um er að aukast, en nú eru
fjölmargir að koma inn á skrár
atvinnulausra, sem í sumar
hafa starfað við sumarafleys-
ingar. Kristján Gunnarsson hjá
VSFK sagði í samtali við
blaðið að einhverjir hafi fengið
atvinnu hjá ígulkerjavinnsl-
unni í Njarðvík.
Kristján sagði komandi vet-
ur eiga eftir að verða erfiðan
fyrir marga atvinnulausa. At-
vinnuleysið er farið að segja til
sín í fjárhaf margra, sem hafa
til þessa spilað út öllum sínunt
spilum til að ná endum saman.
Reynslan af nýju umferðar-
Ijósunum á mótum Aðalgötu
og Hringbrautar í Keflavík er góð.
Núeru liðnarrétttæpartværvikur
frá því kveikt var á ljósunum.
Ljósin eru umferðarstýrð, þannig
að á álagsminni tímum geta þeir
sem aka um Hringbrautina eða
Aðalgötuna á löglegum hraða átt
mikla möguleika á að komast yfir
á grænu, án þess að þurfa að bíða
við ljósin.
Lögreglan hefur sektað einn
ökumann fyrir að aka yfir á
rauðu ljósi og einn ökumaður
hefur verið áminntur fyrir brot á
umferðarreglum við ljósin.
Gróa Hreinsdóttir hefur verið
kjörin formaður nefndar um
Ár fjölskyldunnar 1994 í Njarðvík,
en árið 1989 ákvað Alsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna á árið 1994
yrði helgað fjölskyldunni. Bæj-
arstjórn Njarðvíkur ákvað að taka
virkan þátt í þessu verkefni. Aðrir
nefndarmenn eru Bergþóra Ósk
Jóhannsdóttir og Stefán Bjarka-
son.
♦ GRÓA HREINSDÓTTIR: Formaður nefndar um Ár fjölskyldunnar í Njarðvfk. ♦ UMFERÐARLJÓSIN:
Reynast vel, en sumir stelast yfir á rauðu. ♦ ÞORVALDUR HALLDÓRSSON: Kvótinn búinn, en þeir væru
ekki að fiska fyrir aðra.
Ford Fairmount árgerð 1980
og Motorola farsími er meðal
þeirra hluta sem verða á uppboði
á lausafé í eigu þrotabús Trésmiðju
Þorvaldar Ólafssonar hf. föstu-
daginn 22. október nk. Megin
uppistaða í þeim munum sem
boðnir eru upp eru skrif-
stofumunir ýmiskonar.
Sjómenn eru ekki kátir með
sífellt minni kvóta. Eins og
greint er frá á forsíðu blaðsins eru
þrír bátar úr Garðinum að klára
kvótana sína og ekkert er
framundan annað en að hætta í
útgerð eða kaupa meiri kvóta.
Svona er jafnvel statt með enn
fleiri báta á Suðurnesjum, þó
blaðinu sé ekki kunnugt um það.
orvaldur Halldórsson, út-
gerðarmaður í Garði, sagði í
samtali við blaðið að 82 tonna
kvóti Gunnars Hámundasonar
dygði skammt og kvótinn væri
löngu búinn, ef áhöfnin væri ekki
að veiða upp í kvóta annarra. Þor-
valdur sagði það vera dýrt að veiða
fisk sem þyrfti að kaupa fyrirfram
í sjónum, þar sem fiskverðið gæti
verið lágt, loks þegar fiskurinn
veiddist.
Hafnargata 70, Keflavík
Eldra einbýlishús á tveimur
hæðum. Húsið þarfnast við-
gerða. Góðir greiðsluskil-
málar. Laust strax.
2.500.000.-
Fagrigarður 8, Keflavík
138 ferm. einbýlishús ásamt
30 ferm. bílskúr. Húsið er í
góðu ástandi. Eftirsóttur.
staður. Vel ræktuð lóð.
12.500.000,-
Baugholt 6, Keflavík
129 ferm. einbýlishús ásamt
bílskúr. Húsið er í góðu
ástandi. Eftirsóttur staður.
11.500.000.-
Hamragarður 9, Keflavík
155 ferm. einbýlishús ásamt
55 ferm. tveggja bíla bílskúr.
Mjög vandað hús á góðum
stað. Skipti á minni fasteign
kemur til greina.
13.500.000,-
Sólvallargata 40C, Keflavík
3ja herbergja íbúð á annari
hæð í góðu ástandi. Hægt að
taka bifreið uppí útborgun.
Góðir greiðsluskilmálar.
4.200.000,-
Noröurgarður 23, Keflavík
Glæsilegt 180 ferm. ein-
býlishús ásamt 50 ferm. bíl-
skúr. Eign í sérflokki. Frá-
bært útsýni. Nánari
upplýsingar á skrifstofu.
Klappabraut 8, Garði
136 ferm. einbýlishús. Hag-
stæð byggingarsjóðslán
áhvílandi. Lág útborgun.
7.000.000.-
Háseyla 39, Njarðvík
152 ferm. einbýlishús ásamt
55 ferm. bílskúr. Húsið er í
mjög góðu ástandi m.a. ný
eldhúsinnrétting. Skipti á
íbúð kemur til greina.
11.000.000,-
Bjarnavellir 16. Keflavík
116 ferm. einbýlishús ásamt
24 femi. bílskúr, sökkli undir
garðskála og heitur pottur.
Gott hús. Skipti á ódýrari
fasteign kemur til greina.
Tilboð
wrrr’T
Heiðarholt 20, Keflavík
2ja herbergja fbúð á annari
hæð í mjög góðu ástandi.
Hagstætt byggingarsjóðslán
áhvílandi, kr. 2.930.000,-
með 4,9% vöxtum. Hag-
stæðir greiðsluskilmálar.
4.700.000,-
Smáratún 39, Keflavík
120 ferm. neðri hæð ásamt 27
ferm. bílskúr. Ibúðin er í
mjög góðu ástandi. Skipti á
góðri 2ja eða 3ja herbergja
(búð kemur til greina. Losnar
fljótlega. Tilboð.
Njarðvík
Einbýlishús í smíðum að
Starmóa 7, Njarðvík.
Möguleiki að selja húsið
á hvaða byggingarstigi
sem er. Nánari upplýs-
ingar á skrifstofunni.
VID SPYRJUM
hvað finnst
formanni VSFK
um bræðslu
í Helguvík?
FRÉTT Á BAKSÍÐU
VÍKURFRÉTTA 14. OKT '93
Þessar vikurnar er unnið að hugmvndum um fiskimjölsverk-
sntiðju í Helguvík og allt eins má búast við ákvörðun í málinu
bráðlega. Við greindum frá fyrirhugaðri fiskimjölsverksmiðju í
síðasta blaði. I næstu blöðum niununi við leita álits manna á hinum
ýmsu fréttum er tengjast svæðinu. -Við spyrjum Kristján Gunn-
arsson, formann Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og ná-
grennis álits á fyrirhugaðri bræðslu í Helguvík?
„Mér líst vel á þessar hugtnyndir og tek fiskimjölsverksmiðju í
Helguvík verða svæðinu mjög til framdráttar. Bræðsla er hlutur
sem lengi hefur vantað á þessu svæði, eftir að þau miklu mistök voru
gerð að láta loka Fiskiðjunni í Keflavík. Staðsetningin er m jög góð
og með nútímatækni á að vera hægtr að konta í veg fvrir alla lykt,
enda hráefnið geymt í lokuðum tönkum og þróm. Eg kem til með
að verða fyrstur manna til að bjóða fiskimjölsverksmiðju velkomna
í Helguvík,“ segir Kristján Gunnarsson.
1 ---------------------------------------------1
TIL SOLU
Einstaklingsíbúð að Tjarnargötu í Keflavík.
íbúðin er á annari hæð, mjög falleg og öll ný-
standsett. Laus strax. Gott áhvílandi lán. Til
greina kemur að lána allt kaupverðið gegn
góðri tryggingu eða taka bíl uppí.
Sumarbústaður, rúmlega fokheldur, ca. 40
ferm., staðsettur í Eilífsdal ca. 20 mín. aksturfrá
Reykjavík. Mjög falleg staðsetning.
Upplýsingar í síma 91-31800 á skrifstofutíma
eða 91-652224 á kvöldin.
Fasteignamiðlun
Suðurlandsbraut 12, - Reykjavík.
♦ KRISTJÁN Gunnarsson