Víkurfréttir - 21.12.1993, Blaðsíða 5
WKUKFRÉTTIR
21. DESEMBER 1993
5
Innbrot í
Frístund
Brotist var inn í mynd-
bandaleiguna Frístund við Hring-
braut í Keflavík aðfaranótt sl.
föstudags. Farið var inn um glugga
á suðurhlið hússins. Þjófurinn
hafði á brott með sér sígarettur,
vindla og 29 myndbandsspólur á-
samt einhverju af sælgæti. Það
mun hafa verið fyrsta verk nýs
eiganda Frístundar að tilkynna um
þjófnaðinn í leigunni á Hring-
brautinni.
Vítaverður
akstur
Ökumaður var tekinn fyrir
vítaverðan akstur á Reykja-
nesbraut kl. 05 aðfaranótt sl.
sunnudags. Bifreið var ekið á 142
km hraða skammt austan Innri
Njarðvíkur. Ökumaðurinn var
sviptur ökuleyfi til bráðabirgða.
Snéríst í
hálkunni
Árekstur varð á Hafnargötu í
Keflavík á móts við húsið nr. 72
á sunnudagskvöld. Ökuntaður
missti stjórn á bifreið svo hún
snérist og varð fyrir annarri bifreið
sem ekið var eftir Hafnargötu. Á-
reksturinn varð harður og fjar-
lægja varð annan bílinn með
dráttarbíl. Farþegi í öðrum bílnum
kvartaði undan verk í hálsi og baki
en fékk að fara heim að lokinni
skoðun læknis.
♦ Axel Jónssoti og Guðjótt Vilmar Rei/ttisson með sýnishorn af
kínamatnum frá Matarlyst Itjá Axel. Mynd: hbb
Frábær kínamatur
- og Guðjón Vilmar
Lokaspretturinn f Jólablað-
inu hjá okkur lék einn mynd-
textann grátt. I umfjöllun okkar
um „skáeygðu Kínakarlana“ í
Matarlyst hjá Axel, sem selja
Kínamat nú fyrirjólin laumaðist
inn nafn sem var málinu gjör-
samlega óviðkomandi og var
hreinlega langt út úr kortinu. Á
myndinni voru sagðir vera þeir
Axel Jónsson og VILHJÁLM-
UR VILHJÁLMSSON. Ekki
vitum við hvers vegna við sett-
um það nafn inn, en á myndinni
voru kínakarlamir Axel Jónsson
og GUÐJÓN VILMAR
REYNISSON. - Viðkomandi
eru beðnir velvirðingar á þess-
um leiðinlegu mistökum um leið
og við hrósum þeim fyrir frá-
bæran Kínamat í jólaösinni.
Neyðarblys
sást úr Garði
Lögreglunni í Keflavík barst
tilkynning úr Garðinum kl.
23:30 á Iaugardagskvöldið að
neyðarblys sæist á lofti úr
Garðinum. Sást blysið yfir sjó í
átt til Reykjavíkur. Við eftir-
grennsan lögreglunnar kom í
ljós að blysið hafði einnig sést
frá Reykjavík. Einhverjir ó-
prúttnir aðilar munu hafa skotið
neyðarblysinu á loft í Breiðholti
í Reykjavík.
DÚNMJÚKIR
PAKKAR
BLÚSSUR - PILS - BUXUR
ULLARPEYSUR frá kr. 5.000.-
GLEÐILEG JÓL
Hafnargata 37 A
Keflavík - Sími 13311
Sendi öllum ættingjum og vinum mínar
bestu jóla- og nýársóskir.
Kærar kveðjur.
Ásdís Jónsdóttir Schultz
og fjölskylda
U.S.A.
VERSLUNARMENN
ATHUGIÐ
Muniö að panta snitturnar
tímanlega fyrir Þorláksmessu.
Sími 14797
c/fnndta
RÖIIQ
BAR • RESTAURANT- CAFFE
Hafnargötu 19a - Sími 14601
Þorláksmessuskatan í
hádeginu fimmtudag.
Jólaglögg og piparkökur
allan daginn.
Bara tvefr
leika jólalögin á
Þorláksmessukvöld.
Jólaball á Ránni
á annan í jólum:
Efri hæð: BARA TVEIR
Neðri hæð: JÓN FORSETI'
Opið til kl. 03.
Starfsfólk Ráarinnar
óskar öllum
Gleðilegra jóla.
Qlæsílegt jólagjafaúrval.
Hjá okkur er
opið tilkl. 14:00
á aðfangadag
farsœít nýtt árl
KÓSÝ
HAFNARGÖTU 6 - SÍMI 14722