Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.06.1994, Page 6

Víkurfréttir - 09.06.1994, Page 6
6 9. JÚNÍ 1994 VlKURFRÉTTIR StX-WM tíska Fyrirsæta: Berglind Sigþórsdóttir Ljósmynd: Oddgeir Karlsson Förðun: Rúna - Gallerý Förðun Umsjón: Siddý Stærsto frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum i* FRETTIR Útgefandi: Víkurfréttir hf. Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717, 15717. Box 1S5,230 Keflavík. Póstfax nr. 12777. - Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, heimas. 13707, bílas. 985-33717. - Frétta- stjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, heimas. 27064, bílas. 985-42917. - Auglýsingastjóri: Sigríður Gunnarsdóttir - Upplag: 6400 eintök sem dreift er ókeypis um öll Suðurnes. - Fréttaþjónusta fyrir Stöð 2 og Bylgjuna. - Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. - Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Umbrot, filmuvinna og prentun: Grágás hf., Keflavík LEIÐARI: Landsfundur í Keflavík Það má búast við stórátökum á landsfundi Alþýðuflokksins sem haldinn verður í íþróttahúsi Ketlavíkur um helgina. Milli 300 og 400 fulltrúar munu sitja fundinn og er yfirskriftin ..Jafnaðarstefnan - mannúðarstefna okkar tíma“. Líklega mun yfirskrift flokksþingsins ekki vera í hávegum höfð því tekist verður á um „manninn í brún- ni" og nú er það háværasta konan í flokknum, sem vill verða skips- stjóri. Margir kratar óttast ófyrirséðar afleiðingar í kjölfar for- mannsslags. Það hafa heyrst raddir um klofning en Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra og formannskandidat hefur gefið það út í fjölmiðlum að hún muni taka hvaða úrslitum sem er. Jón Baldvin líka. Jóhanna hefur tengst Suðurnesjunum talsvert undanfarna mánuði. Hún leiddi málaflokk sem tröllreið allri umræðu hér á Suðurnesjum síðastu mánuði og ár; sameiningu sveitarfélaga. Er óhætt að segja að hvergi á landinu hafi náðst eins góður árangur og hér. Þá er Jóhanna forsvarsmaður félagslega kerfisins og er óhætt að segja að í þeim málaflokki haft Suðumesjamenn ekki farið halloka að undanförnu. Mikið hefur verið byggt í félagslega kerfinu og fyrir aldraða. Það er ekki hægt að segja að Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, hafi ekki haft stóran Suðurnesja-málaflokk undirhöndum. Hann hefur haft á brattann að sækja í málefnum Varnarliðsins við Islendinga, og sennilega kemurekkert mál meira við okkur Suðurnesjamenn, en það. Atvinna mörg hundruð Suðurnesjamanna, hjá Varnarliði og Is- lenskum Aðalverktökum er í veði og í nijög svo eifiðu hlutverki hefur Jóni tekist vel upp í samningum sínum við Bandaríkjamenn. Spurn- ingin er hins vegar, hvernig framhaldið verður. Og um það getur eng- inn sagt í þessum málum. Ekki einu sinni Jón Baldvin. Það er svolítil kaldhæðni að mestu formannsátök krata, í langa tíð. ef ekki frá upphafi, muni fara fram hér í Keflavík. - því óhætt er að segja að í kjölfar breytinga á „toppi" tlokksins í vetur. hal'i hann tapað verulegu fylgi, eins og kom fram í kosningunum. Alþýðuflokkurinn, sem hefur verið stærsti flokkurinn í Keflavík og Njarðvík undanfarin átta ár, verður að sætta sig við það enn á ný að vera í minnihluta í bæjarstjórn, nú í sameinuðu sveitarfélagi. Það er því mjög líklegt að tekist verði á um toppinn hjá krötum í Suðurnesjabæ fyrir næstu bæj- arstjórnarkosningar. Stór ráðstefna eins og flokksþing Alþýðuflokksins er góð búbót fyrir svæðið. Margir ráðstefnugesta gisla á Suðurnesjum og er því óhætt að segja að kratar stingi lítilli vítamínssprautu inn á eitt höf- uðvígi sitt á landinu, sem eftir síðustu bæjarstjórnarkosningarnar, stendur á tímamótum. eins og sjálfur landherinn. Páll Ketilsson tcn FRÉTTIR ! ... /' stuttu máli i BRUÐKAUP '94 > i Sunnudaginn 12. júní verður I haldin glæsileg sýning í göngu- | götunni hjá FlugCafé á öllu því . sem viðkemur giftingunni. Sýn- ingin hefst kl. 14 og býðst fólki I að sjá brúðartertur, brúð- | arljósmyndir, brúðargreiðslur, | brúðarförðun, skreyttan brúðarbíl og margt fleira. Tískusýningar á 1 brúðkaupsklæðnaði eru svo kl. I 16 og 21 þar sem Marta Ingv- | arsdóttir verður kynnir. Fjöl- | margar verslanir héðan af Suð- urnesjum standa að þessari * skemmtun og eru allir vel- I komnir. | Ódýrari svampdýnur á Suðurnesjum Bólsturverkstæðið Innbú í Keflavík hefur haftð innflutning og sölu á mjög ódýrum sænskum svampi sem tilvalin er í svamp- dýnur og fleira t.d. fyrir sum- arbústaðinn, heimilið eða tjald- vagninn. Gunnlaugur Hilmarsson í Inn- bú sagði í samtali við blaðið að verðmunurinn væri allt upp í 50% miðað við stóru aðilana á höfuðborgarsvæðinu, og fæst svampurinn sniðinn eftir máli. Hægt er svo að velja úr mörgum gerðum og litum af fallegu á- klæði, t.d. leðurlook. sem Innbú tlytur inn frá Bandaríkjunum í yftr 15 litum Fræðsluferð fyrir ferðaþjónustufólk Ferðamálasamtök Suðurnesja, S.B.K. og Helga Ingimundardóttir bjóða ferðaþjónustufólki að taka þátt í skoðunarferð um Reykjanes laugardaginn 11. júní. Lagt verður af stað frá umferðamiðstöð S.B.K. í Keflavík kl. 10:00 og farið um Garðskaga. Snæddur verður léttur hádegisverður í Sandgerði og ekið sem leið liggur í Hafnir þar sem sjávardýrasafnið verður skoðað. Farið verður á Staðarberg og silunga- og laxasafnið að Húsa- tóftum skoðað svo fátt eitt sé nefnt. Að lokum verðu farið í bað í Bláa lóninu og snæddur kvöld- verður í veitingahúsinu við Bláa lónið. Sætafjöldi er takmarkaður. Pantanir í síma 15575 hjá ferða- málasamtökunum. Þórshamar í síldarleit Þórshamar GK 75 hélt úr Gríndavíkurhöfn til síldvcióa austur af landinu á mánudagskvöld sl. „Gamla síldarævintýrið verður ekki endurvakið en ef eitthvað yrði úr þessu þá væri það gott fyrir okkur öll“, sagði Jón Eyfjörð skipst jóri á Þórshainri áður en hann stökk um borð. Mynd SiP

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.