Víkurfréttir - 30.06.1994, Side 10
10
30. JUNI 1994
VÍKURF'RÉTTIB,
Matgæðinpar DV mátu gæði mismunandi tegunda tómatsósu:
íslenska tómat-
sósan úr Vogvm
þótti bera at
Eigendur Vogabæjar geta vel við unað eftir niðurstöður í
gæðakönnun sem matgæðingar DV framkvæmdu fyrir skömmu á
tómatsósum og birtist í DV sl. föstudag. E. Finnsson tómatsósan
fékk hæstu einkunn í könnuninni, en prófaðar voru fjórtán mismu-
nandi tómatsósur. Þar með skaut tómatsósan úr Vogum mörgum
heimsþekktum merkjum ref fyrir rass.
Matgæðingar DV eru þau Ulfar Eysteinsson matreiðslumeistari,
Dröfn Farestveit hússtjórnarkennari og Sigmar B. Hauksson, áhuga-
maður um matargerðarlist. Þau voru beðin um að kanna bragð, útlit
og áferð tómatsósunnar. Einkunnagjöfin var frá 1 til 5.
Matgæðingarnir gáfu E. Finnsson tómatsósunni 14 stig af 15
mögulegum. Ulfar og Dröfn gáfu sósunni hæstu einkunn og Úlfar
sagði sósuna vera fallega á litinn með lúmskt, dimmt bragð. Sigmar
sagði sósuna hafa mjög gott tómatbragð.
Mörg þekkt vörumerki þurftu að lúta í lægra haldi fyrir sósunni
úr Vogum. Þar má nefna vörumerki eins og Slotts, Libby’s, Hunts,
Heinz og Vals.
Guðmundur Sigurðsson, eigandi Vogabæjar, sagði í samtali við
Víkurfréttir eftir fréttina í DV að honum fyndust þetta ánægjuleg
tíðindi. Vogabær hóf framleiðslu á tómatsósunni fyrir tveimur árum
og hefur stöðugt verið að endurbæta hana sfðan. Enginn kraftur
hefur verið settur í markaðssetningu á tómatsósunni, enda hefur
verið erfitt að keppa við hin þekktari vörumerki.
„Eftir þessi tíðindi standa okkur hins vegar allar dyr opnar og
viðbrögð frá verslunum hafa verið gríðarlega góð. Pantanir streyma
inn, enda fólk farið að spyrja um E. Finnsson tómatsósuna," sagði
Guðmundur í samtali við Víkurfréttir.
Elísabet oa Hilmar með
góðtempíaranámskeið
Um 80-100 norrænir góð-
templarar koma hinga til lands
í byrjun júlí á góðtemplara-
námskeið hérlendis. Námskeið-
ið verður 2. -9. júlí undir stjórn
hjónanna Elísabetar Jensdóttur
og Hilmars Jónssonar frá
Keflavík. Aðalumræðuefnið
verður að stórum hluta hugsan-
leg innganga Finnlands, Sví-
þjóðar og Noregs í Efnahags-
bandalag Evrópu, en í því er að
finna 2/3 hluta af vínfram-
leiðslu heimsins.
Námskeiðið verður haldið í
Reykjavík en jafnframt verður
farið með þátttakendur um
Suðurnes, m.a. í Bláa lónið.
Norræna góðtemplaranám-
skeiðið er enn eitt nýlegt dæm-
ið um uppsveiflu bindindis-
hreifingarinnar á íslandi. Því til
staðfestingar má einnig nefna
að í júlílok mun mjög fjöl-
mennur hópur íslenskra ung-
menna fara á alþjóðamót
templara í Berlín. Sá hópur
verður einnig undir stjórn
Hilmars Jónssonar rithöfundar
sem eins og flestir vita var
kjörinn Listamaður Kellavíkur
1994.
Trimmarar á Suðurnesjum fengu góða heimsókn frá skipiileggjendum
Reykjavíkurmaraþonsiiis í fyrradag. Þar var á ferð þekkt íslenskt lilau-
pafólk sem kom og tók létta æfingu fyrir Suðurnesjamaraþonið um helgina.
Hlaupararnir veittu Suðumesjafðlkinu upplýsingar uiit hvcrnig best e.rri
að undirbúa sig fyrir Itlaupið. Myndin var tekin fyrir utatt sundmiðstöðina
í Keflavik af lilaupurununi sent lögðu upji i 3,5 km. skemmtiskokk.
Mynd: Itbb
Magnea Guðmundsdóttir átskrif-
aðist með próf tir almannatengsl-
um.
Magnús Guðfinnsson og Guðrtín Bjömsdóttir í fulltim útskriftar-„skrúða".
Útskrifuðust frá Aiabamaháskóia
Þrír Suðurnesjamenn voru í
stórum hópi nemenda sem út-
skrifuðust frá Alabamaháskól-
anum í Bandaríkjunum 14. maí
sl. Þetta eru þau Magnús Guð-
finsson og unnusta hans Guðrún
Björnsdóttir og einnig Magnea
Guðmundsdóttir. Stúlkurnar
luku prófi í almenningstengsl
um en Magnús tók fyrir al
þjóðaviðskipti og stjórnmál
með sérgrein austurlönd tjær.
Vinningshafar
í ecco
kynningu
Auður Brynjólfsdóttir sigraði í eceo getraun
Skóbúðarinnar sem fram fór á dögunum. Þá var
nafn Lindu Halldórsdóttur dregið upp úr potti
þeirra sem keyptu ecco skó á samnefndum dögunt
sem Skóbúðin Irélt fyrir hálfum mánuði. Auður
hlaut skóúttekt upp á 10.000 kr. en Linda fékk
gjafakörlu af ecco vörum.
Síldin farin
Dræm veiði hefur verið á
síldarmiðunum norður af land-
inu og virðist sildin vera að færa
sig úr íslenskri landhelgi. Þórs-
hamar úr Grindavík hefur hætt
veiðum eftir lélega veiði síðustu
vikuna en samtals náði skipið þó
1.300 tonnum meðan veiðar
stóðu á svæðinu. Skipið var statt
í Grindavíkurhöfn á mánudag-
inn og var áhöfnin að undirbúa
skipið undir loðnuveiðar en
loðna hefur fundist fyrir norðan.
Loðnuveiðar verða leyfðar 1.
júlí að öllum líkindum og lagði
Þórshamar úr höfn á þriðjudag-
inn.
3ja herbergja
íbúð í Keflavík. Leigisl til
lengri tíma. Uppl. í síma 97-
81455 eftir kl. 17 fimmtudag og
92-13304 frá og með föstudegi.
Til leigu
Tveggja herbergja íbúð í
Keflavík laus strax. Upplýsingar
í síma 68177 og 11231.
Bíódagar í Keflavík
BÍÓDAGAR. nýjasta kvik-
mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar,
verður frumsýnd í Félagsbfói í
Keflavík annað kvöld, föstudags-
kvöld kl. 9. Myndin verður sýnd í
kvöld á sérstakri hátíðarsýningu i
Stjörnubfói í Reykjavík.
Bíódagar gerast sumarið 1964,
fyrir daga íslanska sjónvarpsins,
þegar fjölskyldur hlustuðu enn á
útvarpið og fóru saman í bíó. Þeg-
ar strákar slógust enn á götum ný-
byggðar hverfa og kynferðisaf-
brotamenn voru ennþá bara dónar.
Bíódagar segja frá sumrinu
1964 í lr'fi Tómasar, tíu ára drengs
úr Reykjavík. Tómas verður fyrir
margvíslegri reynslu og um margt
skondinni og kemst í tæri við áður
óþekktar stærðir í lífinu. Sumarið
reynist afdrifaríkara en hann óraði
fyrir.
Fjölskyldan fer í bíó á sunnu-
dögum og í kjölfar einnar bíóferð-
ar setur Tómas á stofn sitt eigið
„Bíó“ í þvottahúsinu hjá mömmu
sinni.
Myndin verður sýnd í Félags-
bíói í Keflavík á föstudag, laugar-
dag og sunnudag kl. 21:00. Mið-
sala opnar kl. 20:00 og miðaverð
er 800 krónur.
Fáni Kefívikinga
Sá fáni sem dreginn er að húni í
Keflavík 17. júní ár hvert var í
síðasta tölublaði sagður hafa verið
notaður alla tíð síðan 1945 en rétt
er að hann er frá árinu 1974. Sá
fáni sem notaður var fram að árinu
1974 er nú varðveittur á Byggða-
safninu Vatnsnesi.
Mikið að aera hjá
yngri flokkum ÍBK
Það hefur verið mikið að gera
hjá yngri flokkum IBK í knatl-
spyrnu. 6. flokkur tekur þátt í
Shell-mótinu í Eyjum nú um helg-
ina og 5. flokkur í Essómótinu á
Akureyri. I þessum mótum eru
einnig lið frá öðrum félögum á
Suðurnesjum. 4. flokkur ÍBK tek-
ur síðan þátt í móti í Hjörring í
Danmörku 6.-13. júlí. I Kellavík
var síðan mót fyrir 7. flokk um
sfðustu helgi þar sem um 250 ung-
ir knattspyrnumenn reyndu með
sér frá mörgum félögum.
UMFN efst
I B-riðli 4. deildar eru Njarðvík-
ingar í efsta sæti með fullt hús
stiga eftir 6 leiki. Þeir unnu Hamar
í Njarðvík 2-1 í síðustu viku. G.
Grindavíkur hefur ekki farið jafn
vel af stað í sumar. Þeir töpuðu
síðast fyrir Framherjum 5-2 og eru
í næstneðsta sæti með 3 stig eftir 6
leiki.
UMFC áfram
Grindvíkingar heimsóttu Völs-
unga til Húsavíkur á þriðjudaginn
s.l. í bikarkeppninni. Grindavík
vann leikinn sannfærandi 0-4. Það
voru þeir Grétar Einarsson, Sig-
urður Sigursteinsson, Ingi Sig-
urðsson og Jón Freyr Magnússon
sem skoruðu mörkin eru Grind-
víkingar þar með koninir í 16 liða
úrslit.
SMÁAUGLÝSINGAR
Til sölu
Gasofn
tilvalinn í sumarbústaðinn eða
hjólhýsið. Uppl. í síma 985-
28470 og 12762.
Atvinna
AUPAIR
Oska eftir stúlku til Spánar,
ekki yngri en 18 ára. Reglusöm
og barngóð. enskukunnátta
nauðsynleg. Uppl. í síma 67771
eftirkl. 22.