Víkurfréttir - 26.06.1997, Síða 10
MANI
REIDNAMSKEID
á vegum Hesta-
mannafélagsins Mána og
sveitarfélaganna fyrir börn,
unglinga og fullorðna hefjast
30. júní.
Leiðbeinandi er
*
Snorri Olason.
Skráning og upplýsingar
í síma 421-2030
ATVINNA
Vörubílsstjóra, tækjamenn
með vinnuvélaréttindi og
starfsmann vanan
röralögnum óskast í
vinnu hjá
S.E.E.S ehf.
Fitjabraut 14, Njarðvík.
Upplysingar í síma
893-7444.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður
míns, tengdaföður, afa og langafa
Sigurðar Hilmars Hilmarssonar
fyrrverandi bifreidastjóra,
Þórustíg 16, Njarðvík.
Sérstakar þakkirfærum við starfsfólki Garðvangs.
Guð blessiykkuröll.
Rósmary K. Sigurðardóttir Ólafur Guðmundsson
Sigurður H. Ólafsson Hafdís H. Þorvaldsdóttir
Halldór B. Ólafsson Lilja S. Guðmundsdóttir
Flóra H. Ólafsdóttir
Styrmir Gauti og Eyrún Líf.
Víðar er Guð en í Gðrðum
II
Blessuð kirkjan hefur verið í
fréttum af og til síðustu árin.
Virðist sem alltaf leggist
lienni eitthvað nýtt til, nú
síðast prestskosningar í
Garðasókn.
Brauðið var sem sé laust og
umsækendur nokkrir. Safn-
aðarnefndir tóku að sér að
velja efnilegasta prestlinginn,
en eins og við var að búast
voru þeir sem ekki voru valdir
lítt hressir með úrslitin. Einn
reyndar svo mjög, að
undirskriftalistar fóru í gang,
menn börðu sér á brjóst og
tíunduðu eigið ágæti og
smelltu sér í kosningar. Ekki
reyndust allir þó til í þann slag
en drógu sig í hlé.
Allir voru síðan búnir að búa
sig undir stórsigur „undir-
skriftamannsins“ , en þá
fannst Almættinu greinilega
nóg komið og þegar talið var
upp úr kössunum reyndist
lögreglumaðurinn ljúfi hafa
fengið flest atkvæði.
Ekki var þó allt búið enn því
sóknarnefndir funduðu og
lýstu vantrausti á lögguna
fyrrverandi og töldu hana ekki
í stakk búna til að sinna svo
erfiðri sókn. Hvarflar reyndar
Hrafnkell
Oskarsson
skrífar
að manni að ef aðrir í
sókninni eru jafn rfkir af
kristilegum kærleika og sók-
namefndirnar, þá sé starfið
ekki fyrir neina aukvisa.
I kirkjunnar heimi svo hörðum,
menn hampa ei Iaganna vörðum.
þau vild ekki sjáann,
en samt munu fáann,
því víðar er Guð en í Görðum.
Nú veit ég ekki betur en að
Páll postuli hafi verið eins
konar lögreglumaður síns
tíma og elt kristna ntenn uppi,
áður en hann frelsaðist og hóf
kristniboð og var afkastameiri
í því, en nokkur fyrr og síðar.
Einn postulanna var líka „toll-
ari“ ef ég man rétt og fordæmi
því nóg og góð.
Islensk kirkja er líka þannig í
dag,að líklega er mun heppi-
legra að hafa kirkjulöggur
starfandi en presta. Td. Er þá
ekki vandamál þó sóknar-
presturinn læsi kirkjunni og
Ofstækismaður
hvað er nú það? -1.
Ég sat í stólnum hjá tannlækn-
inum , við vorurn að tala um
trúmáþþegar hann segir við
mig: „Kristinn, þú mátt ekki
móðgast, en ég held að fólk
almennt álíti ykkur, þetta
frelsaða fólk, svona dálítið
skrítið, jafnvel ofstæk-
isfólk..."
Ég móðgaðist ekki, mér var
eiginlega fremur skemmt, því
að þetta var ekki ný upplifun
fyrir mig . Svona sá ég þetta
líka áður en ég frelsaðist.
Sumir skilja ekki hvað við
tölum um þegar við tölum um
að frelsast. Jú, Jesús er frels-
arinn, að taka kristna trú þýðir
að frelsast. Frá hverju?
Syndum okkar. Fyrir suma í
dag er jafnvel framandi að
tala um synd. En biblían
kennir að við förum ekki með
syndina með okkur inn í
himininn, þess vegna þurfunt
við á náð Guðs að halda. Eftir
náðunina krefst Guð þess að
við beygjum okkur undir
Hans vilja. Og það er þetta
sem margir kalla ofstæki,
bókstafstrú eða jafnvel
ofsatrú, að lifa samkvæt Guðs
orði. Hins vegar ef þú ert
skírður og fermdur, (í þessum
athöfnum játar þú Jesú sem
leiðtoga lífs þíns) og hugsar
síðan aldrei meir um það, þá
ertu talinn eðlilegur „krist-
inn“einstaklingur. Það má
ekki taka þetta of alvarlega
segir fólk. Eitt skil ég samt
ekki og það er af hverju þá að
taka fermingarveisluna svona
alvarlega.
Svo eru það fordómamir. Mér
er stundum tjáð að ég hafi
fordóma af því að ég hef aðra
skoðun á ákveðnu máli en
einhver annar. Mín reynsla er
sú að fólk sem talar um for-
dóma, veit að það hefur rangt
fyrir sér, ég kalla það rök-
semdafærslu "Nútímamanns-
ins", þegar hann talar gegn
eigin samvisku.
Ef ég á að velja þá vil ég
frekar lifa samkvæmt sann-
færingu minni, vera kallaður
gamaldags, bókstafstrúar,
þökk sé Guði fyrir bókstafinn.
án hans væri nú erfitt að lesa,
en af hverju er þá svona vit-
laust að trúa því sem ntaður
les ef það er í biblíunni?
Eigum við kannski að leggja
af bókstafinn?
Guð blessi ykkur öll.
Kristinn Ásgrímsson.
banni manni að ferma, bara
dirka hurðina upp. Upp-
reisnargjarnir organistar eru
teknir til yfirheyrslu og í
verstu tilfellum handjámaðir
við orgelið svo þeir séu ekki
með óþarfa læti. Og hvaða
sóknarnefnd mundi ekki
hugsa sig um tvisvar áður en
hún abbast upp á prest, sem
gengur með táragasbrúsa í
hempunni.
Svona í alvöru talað, þá er æði
margt sem er líkt með störfum
löggæslumanna og presta og
kannski veitir ekki af rann-
sóknarlögreglumanni nteð
sporhund til að þefa uppi það
sem eftir Iifir af kristilegum
kærleika í íslensku kirkj-
unni.Eða eins og Jón Helga-
son orðaði það;
Ef allt þetta fólk fær í gull-
sölum himnanna gist
sem gerir sér mat úr að nugga
sér utan í Krist,
þá hlýtur sú spurning að
vakna hvort mikils sé misst
ef maður að síðustu lendir í
annarri vist.
Hrafnkell.
Á árunum 1980 - 1983 var
Halastjaman eitthvert nafntog-
aðasta skip íslenska flotans.
íslenska Halastjarnan var á
stjömuhimninum í ein fjögur
ár og enn sér ekki fyrir endann
á henni. Hún fór að vísu ekki
oft á „show” en sigldi örugg
um stjömuhimininn og gat af
sér nokkrar stjömur sem enn
skína skært. Skútan var ein-
staklega fengsæl undir stjóm
Rúnars Júlíussonar en sá sem
matreiddi aflann, um leið og
hann kom um borð, var Gylfi
Ægisson. Þeir setn háru hann
á borð fyrir almenning voru
heldur ekki af verri endanum:
söngvararnir Ari Jónsson,
Engilbert Jensen, Gylfi
Ægisson, Hemmi Gunn,
Ingibjörg Guðmundsdóttir úr
B.G.. María Helena, Páll
Oskar Hjálmtýsson. Ruth
Reginalds, Rúnar Júlíusson,
Viðar Jónsson og Þórir
Baldursson.
Nú er íslenska Halastjaman
enn einusinni á ferðinni; í
þetta sinn með 25 langbestu
köstin. gullnar perlur sem
hvert mannsbarn þekkir og
hljómað hafa í viðtækjum
landsmanna um land og láð í
yfir 15 ár. Lögin eru nú
hljóðblönduð upp á nýtt og
því jafnvel ferskari en þau
vom í upphafi.
Það var Rúnar Júlíusson sem
hafði yfirumsjón með útgáf-
unni, útgefandi er Geimsteinn.
I____________________________I
10
Víkurfréttir