Víkurfréttir - 23.10.1997, Síða 9
Tónlistarskólinn í Keflavík 40 ára: I
-----------------------------1
ra afmœlis skóluiis:
Þórðarson, Lítill drengur eftir |
Magnús Kjartansson, Traustur I
vinur eftir Jóhann G. Jóhannsson, I
Söknuður eftir Jóhann Helgason, I
ísland er land þitt eftir Magnús
Sigmundsson, Leyndarmál etir
Þóri Baldursson, Rakkarasöngur j
eftir Ingva Stein Sigtryggson,
Jamaica eftir Finnboga Kjartans- .
son, Rokk og ról eftir Rúnar Júlí- |
usson og fjöldi annarra þekktra |
laga. I
’ Fmmsýning verður á morgun I
föstudag en önnur sýning verður I
nk. sunnudag 26. okt. kl. 20.30.
Sýningardagana mun veitinga-
húsið Glóðin bjóða leikhúsgest-
um upp á sértilboð eða „tvo fyrir
einn" á undan sýningum. Þar get- ■
ur fólk skoðað poppminjasafnið
og komist í rétta stemmningu
áður en farið er á söngleikinn. |
______________________^_____________I
Tónleikar
yngri nem-
enda og af-
mæliskaffi
Yngri nemendur Tónlistar-
skólans í Keflavík munu
konra fram á tónleikum í
nýja leikhúsinu við Vestur-
braut nk. sunnudag og hefj-
ast þeir kl. 15.
Þar munu kórar syngja,
fiðlunemendur leika og
yngstu meðlimir lúðrasveit-
arinnar koma fram. A eftir
verður öllum fullorðnum
tónleikagestur og velunnur-
um skólans boðið í afmælis-
kaffl á sal Karlakórs Kefla-
víkur þar sem forskólanem-
endur koma fram. Bömun-
um verður öllum boðið upp
á hressingu í leikhúsinu. Þar
munu þau síðan fá góða
gesti í heimsókn.
Tónlistarfélagið rak skólann í tuttugu ár
Tónlistarskólinn í Keflavík varstofn-
aður 24. okt. 1957, sama dag og Tón-
listarfélag Keflavíkur (nú Reykjanes-
bæjar). Að stofnun skólans og félagsins
stóð hópur áhugamanna í sveitarfélag-
inu með Guðmund Norðdal í farar-
broddi.
f lyrstu stjóm sátu Vigdís Jakobsdóttir,
Helgi S. Jónsson, Hermann Hjartarson,
Sesselja Magnúsdóttir og Kristinn Péturs-
son. Ragnar Bjömsson var ráðinn fyrsti
skólastjóri. Tónlistarfélagið sá alfarið um
rekstur skólans en fékk til þess styrk frá
ríkinu. Kennslan fór lyrst fram t' Ung-
mennafélagshúsinu, þá í kjallara Nýja
Bíós, þvf næst í bílskúr við Tjamargötuna
og síðan í Æskulýðsheimilinu, Austur-
götu 13, þar sem skólinn er enn.
Árið 1976 tóku ríki og sveitarfélög að sér
að greiða laun kennara við tónlistarskóla f
landinu. Sama ár tók Herbert H. Ágústs-
son við starfi skólastjóra og tónlistarskóli
var settur á laggimar í Njarðvík.
Árið 1979 var útibú stofnað í Garði. Það
varð síðar sjálfstæð stofnun, Tónlistar-
skólinn í Garði þar sem Gróa Hreinsdótt-
ir, gamall nemandi og kennari við Tón-
listarskólann í Keflavfk, er nú skólastjóri.
Annar gamall nemandi og kennari við
skólann, Siguróli Geirsson, er nú skóla-
stjóri við Tónlistarskólann f Grindavík.
Árið 1990 tóku sveitarfélgum alfarið við
rekstri tónlistarskólanna og telst skólinn
nú eign Reykjanesbæjar. I skólanefnd
sitja Anna Stefánsdóttir, RagnhildurGuð-
mundsdóttir, Guðjón Sigurbjömsson,
Olöf Stefánsdóttir, Sigurður J. Sigurðs-
son, sem jafnframt er formaður.
Árið 1985 tók Kjartan Már Kjartansson
við starfi skólastjóra. Við skólann starfa
nú 31 kennari í rúmlega 16 stöðugildum,
ritari í hálfu starfi og ræstitæknir. Starfi
yfirkennara skipta tveir kennarar á milli
sín, Ragnheiður Skúladóttir og Karen
Sturlaugsson. Nemendur eru um 230.
Tónlistarskólinn.
í Keflavík
IMaviMotScW HiLi!!!
40 ára afmœfíshátíð
Tónfístarskóhms í Kefíavik
Besta sjoppan í bœnum
I tilefni 40 ára afinœlis Tónlistarskólans í Keflavík verður frumsýndur nýr söngleikur, Besta sjoppan í bœnum,
eftir Þorstein Eggertsson í Félagsbíói í Keflavík. Þar koma fyrir áfjórða tug dœgurlaga eftir Suðurnesjapoppara
og hefiw Þorsteinn tengt þá saman með skemmtilegri sögu.
Uppselt er á frumsýningu. Önnur sýning verður sunnudaginn 26. okt. kl. 20.30. Miðasala er á skrifstofu
skólans virka daga kl. 13-17 og í Félagsbíói, tveimur klukkustundum fyrir sýningu.
StórtónleikarSinfóníuhljómsveitarinnar
Sinfóníuhljómsveit íslands mun halda stórtónleika íKeflavík nk. laugardag ítilefni af þvíað fjörtíu ár
eru liðin frá stofnun Tónlistarskólans íKeflavík og Tónlistarfélags Keflavíkur.
Tónleikarnir hefjast kl. 16 og eru íIþróttahúsi Keflavíkur.
Lúðrasveit Tónlistarskólans mun leika með Sinfóníuhljómsveitinni auk þess sem blandaður kór heimamanna mun
syngja ínýju verki eftir Eirík Arna Sigtryggsson sem frumflutt verður afþessu tilefni. Verkið erfjórða sinfónía
Eiríks og heitir Keflavík eftir Ijóði Kristins Reys. Einsöngvarar verða María Guðmundsdóttir, Birna Rúnarsdóttir
og Steinn Erlingsson. Hljómsveitarstjóri verður Guðmundur Oli Gunnarsson.
Tónleikar yngri nemenda og afmœliskaffi
Yngri nemendur Tónlistarskólans íKeflavík munu koma fram á tónleikum í nýja leikhúsinu
við Vesturbraut nk. sunnudag 26. okt. og hefjast þeir kl.15.
Þar munu kórar syngja.fiðlunemendur leika og yngstu meðlimir lúðrasveitarinnar koma fram.
A eftir verður öllum fullorðnum tónleikagestum og velunnurum skólans boðið í afmœliskaffi á sal Karlakórs
Keflavíkur þar sem forskólanemendur koma fram. Börnunum verður öllum boðið upp á hressingu í leikhúsinu.
Þar munu þau síðan fá góða gesti í heimsókn.
fpIodcKQ fdíodmo fýloáoio jýlodmo fýlodoió
Kynning á Filodoro sokkabuxum föstudaginn 24. október frá Id. 13-18
20% kynningarafsláthir og kaupauki fyigir hverju pari.
f J APÓTEK
Xi ISUÐURNESJA
HRINGBRAUT 99 - KEFLAVÍK - SíMI 421 6565 - FAX 421 6567 - LÆKNASÍMI 421 6566
Víkurfréttir
9