Víkurfréttir - 23.10.1997, Qupperneq 15
DHL-deildin i körfuknattleik:
1 Deild Kvenna:
Tíi Itfr tsfiriingar og Én stór
-yfirbuguðu Keflavík. Grindvíkingar góðir en sigur og
tap hjá Njarðvíkingum. Fjör í Eggjabikar um helgina
Guðjón Þorsteinsson,
frumkvöðull körfuknatt-
teiksins á Isafirði, og tíu
leikmenn Isftrðinga fögn-
uðu að leikslokum gegn
Keflvíkingum síðastlið-
inn fimmtudag. Voru
Vestfirðingar agaðri, dug-
legri og betri en heima-
menn. Sérstaka athygli
vakti stórsigur u.þ.b. tíu
ísfirskra áhorfenda sem
báru 240 Reyknesbæinga
algjörlega ofurliði í
stúkunni. Kom ekki
rnúkk úr iðrum Keflvík-
inga utan einstaka fúk-
yrði í garð dómara eða
jafnvel leikmanna eigin
liðs. Lt'na leiksins: Tíu
kjarkaðir hvetjandi ís-
firskir stuðningsmenn.
Grindvíkingar sigruðu
Akureyringa sama kvöld
á heimavelli. Lið Grinda-
víkur er ósigrað enn og
sigrarnir keimlíkir. Wil-
son og Helgi Jónas bera
helstu sóknarbyrðarnar
en baráttuglöð og sam-
stíga vöm er aðall liðsins.
Af Þórsurum er lítið til
frásagnar en Jo Jo Cham-
bers sýndi þó að hægt er
að vera stigahæstur liðs
sína án þessa að geta
baun. Lína leiksins:
Helgi Jónas Guðfinns-
son 25 stig, 13 ífáköst og
7 stoðsendingar. Ekki
munu mörg lið sækja stig
til Sauðarkróks á þessu
ári en Njarðvíkingar urðu
fyrstir til og sigruðu 75-
78. Jón Júlíus Árnason
og Logi Gunnarsson
léku stærra hlutverk en
áður í veikindum Guð-
jóns Gylfasonar og skil-
uðu því vel. Dalon og
Friðrik voru bestir
Njarðvíkinga. Lína leiks-
ins: Dalon Bynum 25
stig, 14 fráköst, 2
stoðsendingar og 2 stoln-
ir boltar.
Keflvíkingar unnu sinn
fyrsta heimasigur á tíma-
bilinu er KR-ingar komu
í heimsókn. Eftir jafnan
fyrri hálfleik tóku meist-
arar fyrra árs, með Fal
Harðar í broddi fylking-
ar, öll völd og sendu
Vesturbæinga heim með
tap á bakinu. Lína leiks-
ins: Falur Harðarson 24
stig, 4 fráköst, 3 stoð-
sendingar og 2 stolnir
boltar.
Heimasigur á þessu
ári? Njarðvíkingar töp-
uðu öðrum heimaleik
sínum í röð þegar topplið
Hauka kom í heimsókn
66-69 á sunnudagskvöld-
ið. Tuttugu stig Teits í
fyrri hálfleik og þrjátíu
dæmdar villur Helga og
Eggerts vom það mark-
verðasta í fyrri hálfleik.
Haukar leiddu allan
seinni hálfleikinn en
Njarðvíkingar jöfnuðu
66-66 þegar 46 sekúndur
voru til leiksloka. Þrjú
víti gestanna komu þeim
í 66-69 og heimamönn-
um tókst ekki að nýta
síðustu skotin.
Kefivíkingar léku á laug-
ardagskvöldi og fannst
slakt að fá inn 200 stuðn-
ingsmenn en Njarðvík-
ingar fengu 150 stk á
sunnudegi og kvörtuðu
ekki. Virkur stuðningur
10 áhorfenda hvetur unga
leikmenn frekar til dáða
en þögul gagnrýni 200 og
bæði lið Reyknesbæinga
eru nú með unga leik-
menn í lykilhlutverkum.
Lína leiksins: Sherrick
Simpson 29 stig, 10 frá-
köst, 4 stoðsendingar og
einn stolinn bolti.
Grindvíkingar héldu sig-
urgöngu sinni áfram í
Borgarnesi og sigruðu
85-91. D.J Wilson og
Helgi Jónas skiptu bróð-
urparti stiganna á milli
sín með 35 og 24 en Wil-
son hitti úr 8 af 12
þriggja stiga skotum sín-
um. Grindvíkingum
halda engin bönd þessa
dagana og em þeir ásamt
Haukum ósigraðir á toppi
deildarinnar.Lína leiksins
Helgi Jónas Guðfinns-
son 25 stig, 9 fráköst, 7
stoðsendingar og 4 stoln-
ir boltar.
Eggjabikarinn um helgina
Njarðvíkingar mæta
Haukum á fimmtudags-
kvöld í Hafnarfirði og
svo aftur í Njarðvík á
laugardag. Hljóta þeir að
leita hefnda fyrir tap í
síðasta heimaleik og vill
Friðrik Rúnarsson þjálf-
ari þeirra hvetja stuðn-
ingsmenn liðsins til dáða
því þeirra sé þörf. Grind-
víkingar mæta lærisvein-
um Páls Kolbeinssonar á
Sauðarkróki á föstudags-
kvöld og taka svo á móti
þeim á sunnudag. Bene-
dikt Guðmundsson þjálf-
ari Grindvíkinga telur
það kost að eiga útileik-
inn fyrst en rimmuna
verða erfiða enda um tvö
af toppliðum deildarinnar
að ræða. Keflvíkingar
heimsækja ísfirðinga á
föstudag og ætla sér sig-
ur þar. Sigurður Ingi-
mundarson þjálfari Kefl-
víkinga telur síðasta leik
liðanna hafa verið ákaf-
lega lærdómsríkann. Á
sunnudag koma síðan Is-
firðingar aftur í heim-
sókn. Til mikils er að
vinna fyrir Suður-
nesjaliðin þ.e.a.s sæti í
fjögurra liða úrslitum
Eggjabikarsins í Laugar-
dagshöli.
Guðbjörn
sigraði
Guðbjöm Gunnarsson
sigraði í fimmta ása-
mótinu í snóker f
fyrrakvöld. Hann lagði
Geir Sigurðsson í
úrslitaviðureign 3:0. í
3.-4. sæti urðu þeir
Hólmar Tryggvason
og Kristján Krist-
jánsson.
I stigakeppninni er Jón
Ingi efstur með 350
stig, Jón Olafur í öðm
og þeir Hólmar og
Kristján í 3.-4. sæti.
Lítill meist-
arabragur á
Grindvíkingum
Keflvíkingar sigruðu Stúd- 1
ínur örugglega 60-53 á
heimavelli. Sigur Keflvík-
inga var aldrei í hættu þótt
andstæðingarnir væru
aldrei langt undan. Kristín
Blöndal styrkir lið Keflvík-
inga heilmikið, mjög fljótur
og ákveðinn leikmaður, en
verður þó að gæta þess að
hlaupa ekki fram úr sjálfri
sér. Var hún stigahæst með !
21 stig en Erla Reynisdóttir
skoraði 15.
Stúdínur sýndu Grindvík- {
ingum enga gestrisni og
unnu 68-64. Lítill meistara-
bragur er á grindvísku
stúlkunum þessa dagana og
tapleikir gegn KR og IS í
upphaft móts ekki gott far- {
arnesti. Tvær sextán ára
stúlkur, Rósa og Sólveig,
voru langbestar grindvískra
að þessu sinni.
VARIMARMENIMIRIMIR RESTIR
Kristinn Guðbrandsson, vamarmaður Keflvíkinga var kjörinn besti leikmaður liðsins í
lokahófi úrvalsdeildarliðs Keflavíkur í knattspymu en það fór fram í Stapa sl. laugardag.
Félagi Kristins í vöminni, Guðmundur Oddsson var kjörinn efnilegasti leikmaðurinn.
Gestur Gylfason var valinn besti félaginn og skoraði jafnframt mikilvægasta mark
sumarins. Haukur Ingi Guðnason fékk gullskóinn og eysteinn Hauksson þann silfraða.
Snókerstofán Grófinni 8 Keflavík
Opið alla daga frá kl. 11.30 til 23.30.
líHættuí
hádeginu!
Alfofsólhjaokhiríglæ$j.
fyasta snótersal isnésm!
pepsi adidas
EGGJABIKARINNIKORFU:
KEFLAVÍK - KFÍ
SUNNUDAGSKVÖLD 26. OKT. KL. 20.
í ÍÞRÓTTAHÚSINU í KEFLAVÍK
V íkurfréttir
15