Morgunblaðið - 25.04.2016, Blaðsíða 6
6 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2016
England
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Everton – Manchester United ............ 1:2
Crystal Palace – Watford .................... 2:1
Manchester United og Crystal Palace
mætast í úrslitaleik á Wembley 21. maí.
Úrvalsdeildin:
Leicester – Swansea............................ 4:0
Gylfi Þór Sigurðsson fór af velli í liði
Swansea á 76. mínútu.
Manchester City – Stoke ..................... 4:0
Bournemouth – Chelsea....................... 1:4
Aston Villa – Southampton.................. 2:4
Liverpool – Newcastle ......................... 2:2
Sunderland – Arsenal .......................... 0:0
Staðan:
Leicester 35 22 10 3 63:33 76
Tottenham 34 19 11 4 64:25 68
Manch.City 35 19 7 9 66:34 64
Arsenal 35 18 10 7 58:34 64
Manch.Utd 34 17 8 9 42:30 59
West Ham 34 14 14 6 57:43 56
Liverpool 34 15 10 9 58:45 55
Southampton 35 15 9 11 49:37 54
Chelsea 34 12 11 11 53:46 47
Stoke 35 13 8 14 37:51 47
Everton 34 9 14 11 53:48 41
Watford 34 11 8 15 33:40 41
Bournemouth 35 11 8 16 42:61 41
WBA 34 10 10 14 31:42 40
Swansea 35 10 10 15 34:49 40
Crystal Palace 35 10 9 16 36:45 39
Sunderland 34 7 10 17 39:57 31
Norwich 34 8 7 19 35:60 31
Newcastle 35 7 9 19 38:64 30
Aston Villa 35 3 7 25 25:69 16
B-deild:
Cardiff – Bolton ................................... 0:0
Aron Einar Gunnarsson lék ekki með
Cardiff vegna meiðsla.
Charlton – Brighton............................ 1:3
Jóhann Berg Guðmundsson skoraði
mark Charlton en hann lék allan tímann.
Wolves – Rotherham ........................... 0:0
Björn Bergmann Sigurðarson var ekki
í leikmannahópi Wolves.
Derby – Sheffield Wednesday............. 1:1
Blackburn – Bristol City ..................... 2:2
Fulham – Nottingham Forest ............. 1:3
Huddersfield – Birmingham................ 1:1
Hull – Leeds ......................................... 2:2
Middlesbrough – Ipswich .................... 0:0
MK Dons – Brentford.......................... 1:4
QPR – Reading..................................... 1:1
Staða efstu liða:
Burnley 44 24 15 5 68:35 87
Middlesbrough 44 26 9 9 60:28 87
Brighton 44 24 15 5 70:40 87
Hull 43 22 11 10 62:33 77
Derby 44 21 14 9 65:41 77
Sheffield Wed. 44 18 17 9 62:43 71
Cardiff 44 17 16 11 55:47 67
Ipswich 44 16 15 13 49:49 63
Birmingham 44 16 13 15 50:46 61
Brentford 43 17 8 18 64:64 59
Preston 44 14 16 14 42:43 58
Leeds 44 14 16 14 48:55 58
C-deild:
Fleetwood – Blackpool........................ 0:0
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan
tímann með Fleetwood.
Þýskaland
Wolfsburg – Augsburg ........................0:2
Alfreð Finnbogason skoraði fyrra
mark Augsburg en hann lék allan tím-
ann.
Staðan:
Bayern M. 31 26 3 2 74:14 81
Dortmund 31 23 5 3 75:30 74
Leverkusen 31 16 6 9 50:35 54
Hertha B. 31 14 7 10 40:38 49
Gladbach 31 15 3 13 62:48 48
Mainz 31 13 6 12 43:41 45
Schalke 31 13 6 12 43:46 45
Köln 31 10 10 11 36:40 40
Ingolstadt 31 10 10 11 29:35 40
Wolfsburg 31 10 9 12 42:43 39
Hamburger 31 10 7 14 37:44 37
Augsburg 31 9 9 13 40:48 36
Darmstadt 31 8 11 12 35:48 35
Hoffenheim 31 8 10 13 36:48 34
Stuttgart 31 9 6 16 46:63 33
W.Bremen 31 8 7 16 43:63 31
E.Frankfurt 31 7 9 15 31:50 30
Hannover 31 6 4 21 28:56 22
B-deild:
Nürnberg – Union Berlín ................... 6:2
Rúrik Gíslason lék fyrstu 70 mínúturn-
ar fyrir Nürnberg. Hans fyrsti leikur í
sjö mánuði eftir meiðsli.
A-deild kvenna:
Leverkusen – Werder Bremen........... 4:1
Sandra María Jessen lék fyrstu 82
mínúturnar fyrir Leverkusen og lagði
upp mark.
Spánn
Rayo Vallecano – Real Madrid ........... 2:3
Atlético Madrid – Málaga.................... 1:0
Barcelona – Sporting Gijon ................. 6:0
Staða efstu liða:
Barcelona 35 26 4 5 102:29 82
Atlético Madrid 35 26 4 5 59:16 82
Real Madrid 35 25 6 4 104:32 81
Villarreal 35 17 10 8 42:31 61
Athletic Bilbao 35 16 7 12 53:43 55
Celta Vigo 34 15 9 10 47:54 54
Sevilla 35 14 10 11 49:42 52
Frakkland
Marseille – Nantes............................... 1:1
Kolbeinn Sigþórsson lék ekki með
Nantes vegna meiðsla.
KNATTSPYRNA
Annan leikinn í röð skoraði
Luis Suárez fjögur mörk fyrir
Barcelona og hann hefur þar
með skotist fram úr Cristiano
Ronaldo sem markahæsti leik-
maður spænsku 1. deildar-
innar. Suárez hefur skorað 34
mörk, þremur meira en Cris-
tiano Ronaldo. Börsungar
burstuðu Sporting Gijon, 6:0,
og markatala liðsins í síðustu
tveimur leikjum er 14:0. Real
Madrid og Atlético Madrid unnu bæði nauma
eins marks sigra en Barcelona og Atletíco eru
með 82 stig og Real Madrid 81. Gareth Bale
skoraði tvö mörk í 3:2 sigri Real Madrid gegn
Rayo Vallecano og Ángel Correra skoraði sigur-
mark Atlético gegn Málaga. gummih@mb.is
Önnur ferna í röð
hjá Luis Suárez
Luis
Suárez
Alfreð Finnbogason er svo
sannarlega á skotskónum þessa
dagana, en hann skoraði sitt
fjórða mark í síðustu fimm
leikjum þegar Augsburg vann
góðan útisigur á Wolfsburg,
2:0, í þýsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu. Alfreð skoraði fyrra
markið eftir aðeins 47 sek-
úndur og er það fljótasta mark
Augsburg frá upphafi í deild-
inni og fljótasta markið sem
skorað hefur verið á þessu tímabili. Alfreð átti svo
allan heiðurinn af síðara markinu, en eftir þrumu-
skot hans þar sem markvörðurinn varði boltann út
í teig skoraði Tyrkinn Halil Altintop af stuttu færi
og Augsburg fór langt með að tryggja sér öruggt
sæti í deildinni. gummih@mbl.is
Alfreð áfram á
markaskónum
Alfreð
Finnbogason
Fanney Hauksdóttir gerði vel
á heimsmeistaramótinu í bekk-
pressu sem fram fór í Dan-
mörku. Fanney vann til silfur-
verðlauna og setti auk þess
Norðurlandamet í -63 kg opn-
um flokki. Fanney átti góða
innkomu á fyrsta HM sínu í
bekkpressu í opnum aldurs-
flokki. Hún var yngsti kepp-
andinn í -63 kg flokki. Í fyrstu
lyftu tók hún út 5 kg bætingu á
eigin Íslandsmeti með 152,5 kg, en sú þyngd er
einnig Norðurlandmet. Með þeirri lyftu var hún
orðin örugg með að komast á verðlaunapall.
Henni mistókst tvívegis að lyfta 155 kg. Fanney
hafnaði í 2. sæti á eftir hinni reyndu Gunda Fiona
Sommer von Bachhaus frá Þýskalandi.
Silfur og Norður-
landamet
Fanney
Hauksdóttir
ENSKI BOLTINN
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Tapi Tottenham stigum í kvöld gegn
WBA getur Leicester fagnað enska
meistaratitlinum í leikhúsi
draumanna, Old Trafford í Man-
chester, á sunnudag. Leicester gjör-
sigraði Gylfa Sigurðsson og félaga í
Swansea 4:0 í gær og er með átta
stiga forustu þegar þrír leikir eru
eftir. Refirnir hans Ranieris þurfa
fimm stig úr síðustu þremur leikjum
sínum til að verða meistarar. Eftir
heimsókn til Manchester fær Leic-
ester Everton á King Power-völlinn
áður en tímabilinu lýkur á Stamford
Bridge gegn Chelsea. Hversu magn-
að yrði það ef Ranieri yrði meistari á
Stamford Bridge fyrir framan Rom-
an Abramovich?
Enginn Jamie Vardy var í liði
Leicester en það kom ekki að sök.
Liðið spilaði glimrandi fótbolta og
verðskuldaði sigurinn. Riyad
Mahrez, sem var útnefndur leik-
maður ársins í gærkvöldi, skoraði
fyrsta markið og mótspyrna Swan-
sea var lítil sem engin. Gylfi átti
nokkrar góðar aukaspyrnur en var
eins og allt liðið frekar slakur.
Leicester tapaði stigum gegn
West Ham í síðustu umferð á meðan
Tottenham lagði Stoke 0:4. Héldu
margir að ævintýrinu væri lokið og
fimbulkuldinn á toppnum myndi
loks láta finna fyrir sér. En því fer
fjarri. Leikur liðsins gegn Swansea
sýndi að Leicester er óttalaust lið
sem leikur skemmtilega knatt-
spyrnu. Það sem það gerir á fyrstu
mínútu getur það líka gert á þeirri
síðustu. Leikmenn Leicester virðast
geta hlaupið endalaust og kæmi ekki
á óvart ef grínmyndin sem gekk um
netheima væri hreinlega sönn, en
hún átti að sýna upphitun Leicester,
sem var London-maraþonið.
Veik von hjá Newcastle
Aðrir leikir í deildinni fá minna
vægi að þessu sinni, þar sem athygl-
in var á enska bikarnum. Newcastle
heldur enn í vonina um að bjarga sér
eftir að hafa náð stigi í Liverpool.
Newcastel getur þakkað markverði
Liverpool, Simon Mignolet, fyrir
stigið, en með mistökum sínum und-
irstrikaði hann að nýr markvörður
verður keyptur í Bítlaborgina í sum-
ar. Enginn Mamadou Sakho var í
leikmannahópi Liverpool, en hann
hefur verið settur í tímabundið leyfi
eftir að ólögleg efni fundust í honum.
Sakho ku hafa innbyrt fæðubót-
arefni sem ætlað er til hraðari
brennslu og innihélt ólögleg efni.
Málið er til rannsóknar hjá lyfjaeft-
irliti UEFA. Þá unnu Chelsea, Man.
City og Southampton öll stórsigra
en Arsenal gerði aðeins jafntefli við
Sunderland, sem komst upp úr fall-
sæti með stiginu.
Tekur Móri við?
Stærstu fréttir helgarinnar komu
frá Manchester-borg en sagt var að
José Mourinho hefði skrifað undir
samning við Man. Utd. Komu frétt-
irnar degi eftir að liðið hafði unnið
Everton 2:1 og komist í bikarúrslitin
á Wembley. Ekkert hefur þó verið
staðfest, hvorki frá Mourinho eða
Manchester. Louis van Gaal, stjóri
Manchester, hefur ekki verið vinsæll
meðal stuðningsmanna enda lætur
hann liðið spila leiðinlega og vélræna
knattspyrnu. Liðið vann með marki
Antony Martial á lokasekúndunum.
Man. Utd mætir í úrslitaleik Crystal
Palace, sem vann Watford 2:1.
Síðast mættust þessi lið í úrslita-
leik bikarsins árið 1990. Þá léku liðin
tvo úrslitaleiki, en fyrri leikurinn fór
3:3. Sá síðari fór 1:0 fyrir Manchest-
er United þar sem Lee Martin skor-
aði sigurmarkið. Leikurinn fer fram
á Wembley þann 21. maí.
Ekki kalt á toppnum
Leicester líður ágætlega sem besta lið Englands Vardy horfði á sína menn
skora fjögur Man. Utd og Crystal Palace mætast í enska bikarnum
AFP
Ótrúlegt en satt Leikmenn Leicester fagna marki Mark Albrighton. Leicester er enn óstöðvandi og stemningin í borginni ótrúleg.