Morgunblaðið - 25.04.2016, Side 8
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2016
ÍSLANDSMÓTIÐ
PEPSÍ-DEILD KARLA Í KNATTSPYRNU 2016
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánud. 25. apríl.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is | Sími: 569-1105
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
29. apríl gefurMorgunblaðið út glæsilegt sérblað um
Íslandsmótið í Pepsí-deild karla í knattspyrnu sumarið 2016.
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
Kristján Jónsson
„Þetta var þriðji sigur okkar í röð
í úrslitakeppninni. Sú staðreynd
undirstrikar að við erum að gera
eitthvað rétt,“ sagði Jóhann Gunnar
Einarsson, leikmaður Aftureldingar,
eftir að liðið vann Val, 25:22, í fyrstu
viðureign liðanna í undanúrslitum
Íslandsmóts karla í handknattleik á
laugardagskvöldið.
Leikurinn var jafn lengst af og vel
leikinn. Sennilega einn af betri leikj-
um úrslitakeppninnar til þessa.
Jafnt var í hálfleik, 13:13.
Valur náði tveggja marka for-
skoti, 19:17, þegar 14 mínútur voru
til leiksloka. Lokakaflinn var Mos-
fellinga. Þeir sneru leiknum sér í
hag, ekki síst fyrir stórleik Davíðs
Svanssonar markvarðar og afbragðs
varnarleiks. Aftureldingarliðið skor-
aði sex mörk gegn einu og náði
þriggja marka forskoti sem Valsliðið
náði ekki að minnka fyrir leikslok.
Ólafur Stefánsson var í leik-
mannahópi Vals að þessu sinni í ann-
að sinn á keppnistímabilinu. Hann
tók þátt í nokkrum sóknum í síðari
hálfleik og sýndi að lengi lifir í göml-
um glæðum þótt e.t.v. sé leikformið
ekki mikið.
„Við verðum að koma af meiri
grimmd og hungri inn í næsta leik,“
sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálf-
ari Vals, sem var eðlilega vonsvikinn
að hafa tapað fyrsta leik í rimmunni
og það á heimavelli.
Afturelding og Valur mætast öðru
sinni í Mosfellsbæ í kvöld.
Böðvar úr leik
Aftureldingarliðið varð fyrir áfalli
undir lok leiksins þegar Böðvar Páll
Ásgeirsson lenti í samstuði við Guð-
mund Hólmar Helgason, leikmann
Vals. Böðvar Páll fór úr hægri axlar-
lið og leikur vart með Mosfellingum
á næstunni, eftir því sem næst verð-
ur komist. Böðvar Páll hefur leikið
stórt hlutverk í vörn Aftureldingar
og því mun fjarvera hans draga úr
breiddinni í liðinu og veikja varn-
arleikinn.
Ekki meistarar að ástæðulausu
Fyrsti leikur Hauka og ÍBV lofar
góðu fyrir undanúrslitarimmu lið-
anna. Mikil barátta, talsverður has-
ar og tvö góð lið sem geta spilað
mjög öflugan varnarleik. Íslands-
meistararnir höfðu betur á heima-
velli sínum á Ásvöllum, 29:24. Jafnt
var hins vegar að loknum fyrri hálf-
leik, 13:13, og Eyjamenn voru raun-
ar ferskari í fyrri hálfleik.
Í síðari hálfleik minntu Hafnfirð-
ingar handboltaáhugamenn á hversu
öfluga vörn þeir geta spilað. Þá varð
sóknarleikur Eyjamanna fremur
vandræðalegur á köflum. Þá náðu
Eyjamenn helst almennilegum skot-
um þegar Kári setti upp góðar
hindranir á línunni. Kári er rammur
að afli og verður hreinlega að nýta
sér það í þeim tilgangi að hjálpa úti-
leikmönnunum. Sérstaklega þegar
sóknarleikurinn er stirður. Ekkert
var hins vegar stirt við Theodór
Sigurbjörnsson í hægra horninu, en
hann skoraði 13 mörk í leiknum og
geislar af sjálfstrausti. Aðrir leik-
menn ÍBV skiluðu hins vegar ekki
nægilega miklu í sókninni til þess að
liðið gæti lagt Hauka að velli.
Haukum gekk ekkert sérstaklega
vel í fyrri hálfleik. Voru um tíma
fjórum mörkum undir og ef til vill
voru þeir örlítið slegnir vegna
gríðarlegrar stemningar sem mynd-
aðist hjá Eyjamönnum á áhorfenda-
pöllunum og inni á vellinum fyrsta
korterið. Haukar eru hins vegar
ekki meistarar að ástæðulausu. Þeir
unnu sig bara í rólegheitum inn í
leikinn og treystu því sem þeir
kunna. Leikur þeirra skilar þeim
yfirleitt sigrum og líkurnar eru því
með þeim ef þeim tekst að spila góða
vörn og agaðan sóknarleik.
Ekki veitir af að spila agaðan
sóknarleik gegn ÍBV. Stephen Niel-
sen getur hrokkið í stuð í markinu
og var mjög góður í fyrri hálfleik.
Auk þess reyndu þeir Theodór og
Grétar iðulega að keyra fram þegar
færi gafst. Tjörvi og Janus voru hins
vegar þolinmóðir í aðgerðum sínum
og það hafði sitt að segja þegar
Haukar sigu fram úr í síðari hálfleik.
Hákon Daði átti stórleik fyrir Hauka
og skoraði 10 mörk gegn liðinu sem
hann lék með fyrr í vetur.
Dýrmætur útivallarsigur
Stórleikur Davíðs Svanssonar átti stóran þátt í sigri Aftureldingar á Val
Íslands- og deildarmeistarar Hauka létu slæma byrjun ekki slá sig út af laginu
Morgunblaðið/Þórður
Skot Eistinn Mikk Pinnonen lætur hér skotið ríða af í leiknum gegn Valsmönnum.
„Ég ætla ekki að biðja fólk
að setja pening í stúku sem er
40 metra frá vellinum. Það dett-
ur mér ekki í hug,“ sagði Geir
Þorsteinsson, formaður KSÍ,
þegar samstarf sambandsins og
Lagardére sports var kynnt í vik-
unni.
Geir var þar að vísa til að
hlaupabrautin yrði að fara af
Laugardalsvellinum og þjóðar-
leikvangurinn yrði gerður að fjöl-
nota leikvangi.
Persónulega fannst mér
dásamlegt að heyra þessi orð
Geirs. Þó að KSÍ hugsi fyrst og
fremst um hag knattspyrnunnar
er Laugardalshöll úr sér gengin
og aðstaða annara íþrótta sem
þurfa að gera sér að góðu að
spila þar vægast sagt ömurleg.
Körfuboltalandsliðið okk-
ar á skilið að spila fyrir framan
10 þúsund manns á nýjum og
glæsilegum velli. Handbolta-
landsliðið myndi trúlega fylla 30
þúsund manna höll ef það væri
stórleikur og þá gæti Gunnar
Nelson jafnvel barist hér á
heimavelli. Það yrði uppselt á
mettíma. Svona mætti lengi
telja.
Það sem maður hefur áhyggjur
af er tíminn. Reykjavíkurborg er
eigandi að Laugardalsvelli og
ekki vinnur borgin mjög hratt
enda stjórnað á einhvern ömur-
legasta máta sem til er.
Það er óhemjustutt þangað til
nýtt fyrirkomulag að forkeppni
hefst og Geir nefndi að það
hugnaðist honum illa að byrja og
enda forkeppnina á tveimur úti-
leikjum. Hann hittir þar naglann
á höfuðið. Boltinn er núna hjá
borginni og það kann ekki góðri
lukku að stýra.
Stjórnmálamenn sem þar
sitja eru bara upp á punt.
BAKVÖRÐUR
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Valshöllin, úrvalsdeild karla, Olís-
deildin, 4 liða úrslit, fyrsti leikur,
laugardaginn 23. apríl 2016.
Gangur leiksins: 4:3, 7:7, 9:10,
13:13, 15:14, 19:17, 20:23, 22:25.
Mörk Vals: Sveinn Aron Sveinsson
6/2, Geir Guðmundsson 3, Orri Freyr
Gíslason 3, Elvar Friðriksson 3,
Gunnar Harðarson 2, Guðmundur
Hólmar Helgason 2, Atli Már Báru-
son 1, Ýmir Örn Gíslason 1, Vignir
Stefánsson 1.
Varin skot: Hlynur Morthens 11.
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Aftureldingar: Pétur Júníus-
son 5, Jóhann Gunnar Einarsson 5,
Árni Bragi Eyjólfsson 4/3, Birkir
Benediktsson 2, Böðvar Páll Ásgeirs-
son 2, Gunnar Malmquist Þórsson 2,
Mikk Pinnonen 2, Þrándur Gíslason
Roth 1, Jóhann Jóhannsson 1, Guðni
Kristinsson 1.
Varin skot: Davíð H. Svansson 20.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Magnús Kári Jónsson og
Ómar Ingi Sverrisson.
Áhorfendur: 787.
Staðan er 1:0 fyrir Aftureldingu.
Valur – Afturelding 22:25
Schenkerhöllin, úrvalsdeild karla,
Olísdeildin, 4 liða úrslit, fyrsti leikur,
laugardaginn 23. apríl 2016.
Gangur leiksins: 2:4, 5:7, 7:10, 9:11,
11:11, 13:13, 15:13, 17:15, 19:16,
23:18, 25:22, 29:24.
Mörk Hauka: Hákon Daði Styrmis-
son 10/2, Elías Már Halldórsson 5,
Janus Daði Smárason 3, Adam
Haukur Baumruk 3, Heimir Óli
Heimisson 2, Tjörvi Þorgeirsson 2,
Brynjólfur Snær Brynjólfsson 2, Jón
Þorbjörn Jóhannsson 1, Þröstur Þrá-
insson 1.
Varin skot: Giedrius Morkunas 14.
Utan vallar: 12 mínútur
Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson
13/3, Agnar Smári Jónsson 4, Kári
Kristján Kristjánsson 2, Einar
Sverrisson 2, Grétar Þór Eyþórsson
2, Andri Heimir Friðriksson 1.
Varin skot: Stephen Nielsen 16/1,
Kolbeinn Aron Arnarsson 2.
Utan vallar: 10 mínútur
Dómarar: Heimir Örn Árnason og
Sigurður Hjörtur Þrastarson.
Áhorfendur: 1.052.
Staðan er 1:0 fyrir Hauka.
Haukar – ÍBV 29:24