Barnablaðið

Hovedpublikation:

Barnablaðið - 15.05.2016, Side 4

Barnablaðið - 15.05.2016, Side 4
BARNABLAÐIÐ4 Hvað eruð þið gömul og í hvaða skóla eruð þið? HÍ: Ég er 11 ára og er í Öldutúnsskóla. AL: Ég er líka 11 ára úr Hafnarfirði og er í Setbergsskóla. Hvað æfið þið oft? AL: Við æfum fimm sinnum í viku á venjulegum æfingum og svo erum við í einkatímum þar að auki. Það er líkamlega erfitt að dansa og maður verður að vera byggja upp gott þol. Eru margir að æfa dans? HÍ: Já, frekar margir og eiginlega jafn margir strákar og stelpur. Hvernig kviknaði áhugi ykkar á dansi? AL: Við fjölskyldan vorum í fríi á Spáni og mamma var eitthvað að kenna systur minni að dansa og mig langaði að prófa í kjölfarið. HÍ: Systir mín byrjaði að æfa fyrir nokkru og mig langaði að prufa líka. Hvernig fer venjuleg æfing fram? AL: Við byrjum á því að hita upp með nokkrum dönsum. Fyrsta klukkutímann dönsum við svo fimm ballroom-dansa: vals, tangó, vínarvals, foxtrot og quickstep. HÍ: Seinni klukkutímann tökum við líkamlegar æfingar og dönsum fimm latín-dansa: samba, cha-cha- cha, rúmba, paso og jive. Eru þið ekkert að rugla þessu öllu saman? HÍ: Nei. Sumir dansarnir eru samt mjög líkir en flestir dáldið ólíkir. Hvað er svona skemmtilegt við það að dansa? HÍ: Það er gaman að vinna með tónlist og maður fær tækifæri til að hreyfa sig á skemmtilegan hátt. AL: Mér finnst þetta bara rosa skemmtilegt. Auðvitað er gaman að fara á keppnir í útlöndum og sjá hvernig maður stendur miðað við aðra. Það er gaman og gefandi að setja sér markmið og ná þeim. Hvað finnst ykkur erfiðast við dansinn? HÍ: Erfiðasti dansinn finnst mér vera vínarvalsinn. Þar er mikið um snúninga og stundum verður maður smá ringlaður. Það reynir líka mikið á hendurnar og maður þreytist fljótt. AL: Cha-cha-cha finnst mér líkamlega erfiðastur. Þá fær maður stundum hlaupasting í átökunum. Eigið þið ykkur einhvern uppáhaldsdans? AL: Slow foxtrot, það er mjög skemmti- legt að dansa hann og hann rúllar vel. HÍ: Mér finnst jive skemmtilegastur enda mikið um hopp og hraða. Hafið þið keppt á mörgum mótum? AL: Já, mjög mörgum mótum bæði g g j g Íslands- og bikarmeistarar í okkar unglingaflokki. HÍ: Við unnum tvo titla á Suður- Englandsmeistaramóti í febrúar. Þá erum nýkomin heim frá Blackpool þar sem við kepptum um páskana. Þar urðum við í 3. sæti í stóru latín-keppninn og 8. sæti í stóru standard keppninni. Svo urðum við í 2. sæti í latín og 5. sæti í standard á Evrópumeistara- móti nýverið. Hvernig var ferðin til Blackpool? AL: Hún var mjög skemmtileg, við kepptum fimm daga í röð ásamt 90 öðrum pörum frá hinum ýmsu löndum. Það fóru þónokkuð mörg pör frá Íslandi til Englands. Við kepptum í flokki 11 ára og yngri. Með okk- ur í för voru svo nánast allir í fjölskyldu okkar beggja. HÍ: Hótelið okkar var mjög nálægt keppnishöllinni en seinasta daginn fórum við líka í vatnsrennibrautar- garð. Hvað er eftirminnilegast? HÍ: 3. sæti í latín á heimsmeistara- mótinu í Blackpool. Það stendur uppúr. Aron Logi Hrannarsson og Halldóra Ísold Þórðardótt hafa dansað saman í þrjú ár hjá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Þau eru tvöfaldir Íslandsmeistarar í dansi með grunnaðferð og fóru góðu ferð til Blackpo um páskana. Þar lentu þau í 3. sæti í latín á heims- meistaramóti 11 ára og yngri. hér heima og erlendis. Það hefur en ið m ö vel. Við erum tvöfaldir ir ol LEGGJA SIG 110% FRAM „Það er gaman oggefandi að setjasér markmið ogná þeim.“ Einbeitingin leynir sér ekki. „Það er líkamleg a erfitt að da nsa og maður verð ur að vera byggja upp gott þol.“

x

Barnablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/1075

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.