Víkurfréttir - 27.10.1999, Page 6
Á aðalfundi SSS um s.l.
Iielgi, kom fram að Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja
gæti ekki veitt lágmarksþjón-
ustu ntiðað við núverandi
rekstrarfjárveitingu.
Fjölmargar úttektir á rekstr-
inum hafa leitt í Ijós að ekki
verður um frekari spamað að
ræða nema lokun deilda. Það
væri óásættanlegt og þá flytt-
ist sú þjónusta til Reykjavík-
ur með þeim kostnaði og
óþægindum, sem því fylgir.
Fundurinn hvatti til þess að
framtíðarhlutverk stofnunar-
innar yrði skilgreint með
þjónustusamningi og að tjár-
veitingar á komandi fjárlög-
um verði í samræmi við þau
verkefni sem stofnunin á að
vinna.
Flugmálastjórn Islands
-ATS skóli
Grunnnámskeið
flugumferðarstjóra
Flugmálastjórn Islands hefur
ákvedið að halda grunnnámskeið
flugumferðarstjóra í vetur.
Grunnnámskeiðið verður væntan-
lega haldið erlendis og hefst í
febrúar n.k. Grunnnám og nám til
fyrstu réttinda er ólaunað.
Kostnaður vegna uppihalds erlendis
er greiddur af Flugmálastjórn.
Umsækjendur skulu hafa lokið
stúdentsprófi, tala skýrt mál, hafa
greinilega rithönd og gott vald á
íslenskri og enskri tungu. Þá skulu
umsækjendur einnig fullnægja
tilskyldum heilbrigðiskröfum. Þeir
sem áhuga hafa á að sitja þetta
námskeið, skili inn umsóknum á
skrifstofu Flugmálastjórnar á
Keflavíkurflugvelli á 2. hæð
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eða til
starfsmannahalds Flugmálastjórnar
á 2. hæð í flugturninum á
Reykjavíkurflugvelli. Með umsókn
skal fvlgja staðfest afrit af
stúdentsprófi, nýtt sakavottorð
og mynd af umsækjanda.
Umsóknareyðublöð liggja frammi
á skrifstofu Flugmálastjórnar
Keflavíkurflugvelli og starfs-
mannahaldi Flugmálastjórnar
Islands ásamt nánari upplýsingum.
Umsóknarfrestur rennur út
1. nóvember 1999.
Einsetning grunnn-
skóla, skólasel og nýr
leikskóli í Grindavík
Bæjarstjóm Grindavíkur und-
irritaði verksamning við
Grindina, þann ló.september
sl„ um innanhússfrágang á
nýbyggingu Grunnskóla
Grindavíkur. Verkið skal hefj-
ast nú þegar og ljúka í tveimur
áföngum, hinum fyrri 30. júlí
árið 2000 og hinum síðari 30.
júlí 2001.
Vilja einsetinn gmnnskóla
Eindreginn vilji bæjarstjómar
er að Gmnnskóli Grindavíkur
verði einsetinn við upphaf
næsta skólaárs. í ljósi þess
samþykkti bæjarstjórn
Grindavíkur að fela skóla-
stjóra og félagsmálastjóra, í
samráði við bæjarstjóra, að
hefja undirbúning að einsetn-
ingu gmnnskólans nú þegar,
og gera tillögur að því með
hvaða hætti einsetningunni
verði komið í framkvæmd á
umræddum tíma.
Skólasel og nýr leikskóli
Skólastjóra var einnig falið að
gera úttekt á möguleikum þess
að starfrækja „skólasel”
(heilsdagsskóla), í gmnnskól-
um eftir að einsetning hefur
komið til framkvæmda. Ró-
bert Ragnarsson, ferðamála-
og markaðsfulltrúi, sagði að
með einsetnum grunnskóla
auk nýs leikskóla, sem fyrir-
hugað er að taka í notkun
haustið 2000, mun þjónusta
við fjölskyldufólk batna til
muna og verða til fyrirmynd-
ar. Hann sagði jafnframt að
með einsettum grunnskóla og
nýjurn leikskóla, ætti Grinda-
vík að geta vaxið töluvert, án
jtess að sveitarfélagið þurfi að
leggja í rniklar fjárfestingar.
„Fjölgun verður bara til þess
að ná fram betri nýtingu á
fjárfestingum”, sagði Róbert
Ragnarsson.
í farvatninu
Einn góður vinur minn kont
að máli við mig um daginn og
sagðist mega til með að segja
mér frá eftirfarandi atviki.
Þegar ég átti leið á pósthúsið í
Keflavík einn daginn, veitti ég
því athygli að kona nokkur var
að reyna að komast inn í af-
greiðslusalinn með pakka.
Hún rembdist við að ýta á
hurðina til að komast inn, en
ekkert gekk og konan var
byrjuð að blóta. Þvínæst lagði
hún frá sér pakkann til að hafa
báðar hendur lausar í barátt-
unni við hurðina og réðst svo
á hana á ný. En meðan á þessu
gekk hatði karlmaður tekið til
við hurðina innanfrá og togaði
af öllunt kröftum til að hafa
sitt frant. Síðan ýttu þau og
toguðu hvort gegn öðru góða
stund og kölluðust á í gegnum
glerið: „Ekki toga, hættu að
ýta, ekki ýta, hættu að toga, ég
þarf að koma pakka í póst.”
En manninuni lá á að komast
út því hann fékk að skreppa úr
vinnunni til að sinna erindi hjá
póstinum. Það var ekki fyrr en
ein starfsstúlkan vippaði sér
yfir afgreiðsluborðið og bað
manninn um að hætta að toga
og konuna um að hætta að ýta,
að málið tók loks nýja stefnu.
Hún opnaði hurðina og sagði:
„Gerið svo vel.” Konan hjóp
inná næsta bás og skellti
pakka á borðið. „Hraðpóstur,
Þórshöfn”, sagði hún móð og
andstutt eftir átökin við hurð-
ina. Hún þurrkaði svitann af
enninu og leit í kringum sig.
En maðurinn tók til fótanna á
leið í vinnuna sína til að fá
ekki skammir hjá verkstjóran-
um fyrir langa ferð á pósthús-
ið.
Ég fór að skyggnast eftir
merkingum, sem venjulega er
Aldamóta-
diskur
RúmaJúl
„Þetta er uppgjör á ferlinum,
tímamótaútgáfa í lok aldar”,
sagði Rúnar Júlíusson en fyrs-
ta vetrardag kom út nýr geis-
ladiskur er ber heitir „Dulbúin
gæfa í tugatali”.
Rúnar segir þetta lög frá 37
ára tónlistarferli sínum, 32
vinsælustu lög hans á tveimur
geislaplötum. Þetta spannar
frá byrjun rokktímabils og til
dagsins í dag. Þar af eru
tjögur splunkuný lög, samin á
haustdögum 1999.
í þessum aldamótapakka eru
lög sem Rúnar hefur sungið
með Hljómum, Trúbroti,
GCD, Unun, Áhöfninni á
halastjömunni, Lónlí blú bojs
svo einhver bönd séu nefnd.
Eins eru lög sem Rúnar hefur
sungið á einherjaferli sínum.
Auk laga og texta stórpoppa-
rans geymir platan lög og
texta flestra |x:irra sem staðið
hafa uppúr í rokkflóru Islands
í gegnum tíðina.
Lesendur
hafa orðlO
komið fyrir á liurðum opin-
berra staða, og eiga að sýna
hvon á að ýta eða toga til að
komast leiðar sinnar. Þær var
hvergi að finna á hurðum
pósthússins, aðeins upplýsing-
ar um að þar sé hægt að n ota
VISA og EURO-kort, og svo
að auðvitað að fyrirtækið sé
vaktað.
Þegar ég kom út spurði ég
hundinn minn, sem er reyndar
athugull labrador Itundur,
hvort hann skyldi eitthvað í
þessu máli aðalpósthússins á
Suðurnesjum, þá leit hann á
mig sakleysislegum augum og
hristi hausinn.
En hvað finnst þér um þetta,
spurði vinur minn. „Þegar
stórt er spurt, verður fátt um
svör”, svaraði ég.
Borgari
Víkurfréttir