Víkurfréttir - 27.10.1999, Síða 8
Ný-Vídd í Sandgerði
Spennandi listasmiðja
Uppljómað hús við Strand-
götu í Sandgerði vakti at-
hygli blaðamanns vegna
allra skrevtinganna sem
komið hafði verið fyrir í
gluggum þess.
Forvitnin hafði verið vakin og
að koma inn í húsið var eins
og að ganga inní annan heim.
Búið var að skreyta alla veggi
frá gólfi og upp í rjáfur með
skemmtilegum og sérstökum
hlutum. Fjöldi fólks var þama
samankominn til að skapa og
skemmta sér. I einu herberg-
inu var verið að mála og teik-
na, í öðru verið að saga út og í
því þriðja voru nokkrar konur
að mála á leir.
Félagsmiðstöð fyrir alla
Kolbrún Vídalín tók brosandi
á móti blaðamanni og sagðist
vera formaður Nýrrar-Víddar,
„seni er félagsmiðstöð fyrir
alla þá sem áhuga hafa á
handverki og að vera í góðum
félagsskap.” Kolbrún sagði að
þær væm þrjár sem væm fast-
ir leiðbeinendur, Þóra Rut
Jónsdóttir leiðbeinir í leimum,
Amý Hálfdánsdóttir í tré og
hún sjálf leiðbeinir í myndlist-
inni. „Ég fékk þessa hugmynd
fyrir nokkmm ámm og bauðst
svo að taka þetta hús á leigu
sem ég og gerði. Félagið Ný-
Vídd, var stofnað þann
29.maí 1998. Hér er enginn
einn sem ræður heldur er
þetta fyrst og fremst vinnuað-
staða og fólk getur fengið
leiðsögn við það sem það er
að gera. Við erum af og til
með ný námskeið skv. óskum
félagsmanna, t.d. bútasaum,
kransagerð o.fl.”
Miklar vinsældir
Kolbrún segir að félagið hafi
verið mjög vinsælt frá upp-
haft og félagsmenn séu nú um
130. „Við höfum aldrei aug-
lýst neitt og húsið er ekki einu
sinni merkt. Fólk hefur bara
frétt af þessu og leitar okkur
einfaldlega uppi”, sagði Kol-
brún. Hún segir félagsmenn
koma af öllum Suðumesjum
og einnig séu nokkrir sem
koma frá höfuðborgarsvæð-
inu.
Hús með merka sögu
Kolbrún segir að starfsemin
sé þegar búin að sprengja
plássið utan af sér og nú sé
verið að byggja 100 fermetra
við húsið. „Þetta hús á sér
merka sögu. Það stóð uppá
Bolatindi við Bolungarvík og
kallast Atlahús. I því var m.a.
starfrækt fiskvinnsla, niður-
suðuverksmiðja og glugga-
verksmiðja. Húsið var flutt
hingað til Sandgerðis og
tvenn ung hjón keyptu það og
gerðu það upp”, sagði Kol-
brún. Listasmiðjan Ný-Vídd
er opin allar helgar frá kl. 13-
17, fram aðjólum.
LlfSStll
I Sóley Kristinsdóttir hefur opnað naglastofu í húsnæði
I Lífstíls, \ ið Básveg í Kefla\ ík. Hún sérhæfir sig í acrvl-
I nöglunt og býður einnig upp á naglaskraut og falleg
I naglalökk. Að sögn Sóleyjar hafa viðtökur verið mjög
[ góðar og acrvl-neglurnar virðast vera vinsælar hjá kon-
^um á öllum aldri.
Qtníinenfal'
Mastercraft
TIRES
Courser jeppadekk frá
Mastercraft í öllum
stærðum
Gislaved
VETRARDEKK
Sóluð
harðkornadekk
undir fólksbíla,
sendibíla og
minni jeppa
ueud veyyti(j i naiKu, gott viðnám í snjó og
krapa, gott viðnám í bleytu, hljóðlát, lögleg
allt árið, góð ending, harðkornadekk eru
skaðlaus fyrir umhverfið.
SOlNMfG
FITJABRAUT 12 • 260 NJARÐVÍK • SÍMI 421 1393
Handlyfti
vagnar
m LYFTUfí EHF.
Verð með vsk.
kr. 48.000.-
Lyftigeta 2 tonn
og 2,5 tonn
Upplýsingar
í síma 5541357
Kári Hafsteinsson
Víkurfréttir