Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 27.10.1999, Qupperneq 8

Víkurfréttir - 27.10.1999, Qupperneq 8
Ný-Vídd í Sandgerði Spennandi listasmiðja Uppljómað hús við Strand- götu í Sandgerði vakti at- hygli blaðamanns vegna allra skrevtinganna sem komið hafði verið fyrir í gluggum þess. Forvitnin hafði verið vakin og að koma inn í húsið var eins og að ganga inní annan heim. Búið var að skreyta alla veggi frá gólfi og upp í rjáfur með skemmtilegum og sérstökum hlutum. Fjöldi fólks var þama samankominn til að skapa og skemmta sér. I einu herberg- inu var verið að mála og teik- na, í öðru verið að saga út og í því þriðja voru nokkrar konur að mála á leir. Félagsmiðstöð fyrir alla Kolbrún Vídalín tók brosandi á móti blaðamanni og sagðist vera formaður Nýrrar-Víddar, „seni er félagsmiðstöð fyrir alla þá sem áhuga hafa á handverki og að vera í góðum félagsskap.” Kolbrún sagði að þær væm þrjár sem væm fast- ir leiðbeinendur, Þóra Rut Jónsdóttir leiðbeinir í leimum, Amý Hálfdánsdóttir í tré og hún sjálf leiðbeinir í myndlist- inni. „Ég fékk þessa hugmynd fyrir nokkmm ámm og bauðst svo að taka þetta hús á leigu sem ég og gerði. Félagið Ný- Vídd, var stofnað þann 29.maí 1998. Hér er enginn einn sem ræður heldur er þetta fyrst og fremst vinnuað- staða og fólk getur fengið leiðsögn við það sem það er að gera. Við erum af og til með ný námskeið skv. óskum félagsmanna, t.d. bútasaum, kransagerð o.fl.” Miklar vinsældir Kolbrún segir að félagið hafi verið mjög vinsælt frá upp- haft og félagsmenn séu nú um 130. „Við höfum aldrei aug- lýst neitt og húsið er ekki einu sinni merkt. Fólk hefur bara frétt af þessu og leitar okkur einfaldlega uppi”, sagði Kol- brún. Hún segir félagsmenn koma af öllum Suðumesjum og einnig séu nokkrir sem koma frá höfuðborgarsvæð- inu. Hús með merka sögu Kolbrún segir að starfsemin sé þegar búin að sprengja plássið utan af sér og nú sé verið að byggja 100 fermetra við húsið. „Þetta hús á sér merka sögu. Það stóð uppá Bolatindi við Bolungarvík og kallast Atlahús. I því var m.a. starfrækt fiskvinnsla, niður- suðuverksmiðja og glugga- verksmiðja. Húsið var flutt hingað til Sandgerðis og tvenn ung hjón keyptu það og gerðu það upp”, sagði Kol- brún. Listasmiðjan Ný-Vídd er opin allar helgar frá kl. 13- 17, fram aðjólum. LlfSStll I Sóley Kristinsdóttir hefur opnað naglastofu í húsnæði I Lífstíls, \ ið Básveg í Kefla\ ík. Hún sérhæfir sig í acrvl- I nöglunt og býður einnig upp á naglaskraut og falleg I naglalökk. Að sögn Sóleyjar hafa viðtökur verið mjög [ góðar og acrvl-neglurnar virðast vera vinsælar hjá kon- ^um á öllum aldri. Qtníinenfal' Mastercraft TIRES Courser jeppadekk frá Mastercraft í öllum stærðum Gislaved VETRARDEKK Sóluð harðkornadekk undir fólksbíla, sendibíla og minni jeppa ueud veyyti(j i naiKu, gott viðnám í snjó og krapa, gott viðnám í bleytu, hljóðlát, lögleg allt árið, góð ending, harðkornadekk eru skaðlaus fyrir umhverfið. SOlNMfG FITJABRAUT 12 • 260 NJARÐVÍK • SÍMI 421 1393 Handlyfti vagnar m LYFTUfí EHF. Verð með vsk. kr. 48.000.- Lyftigeta 2 tonn og 2,5 tonn Upplýsingar í síma 5541357 Kári Hafsteinsson Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.