Víkurfréttir - 27.10.1999, Page 14
LANDSBANKINN:
Hjálmar hættir
Hjálmar fluttist til
Keflavíkur frá
Siglufirði fyrir 27
árum. A Siglufirði
liafði Hjálmar m.a.
verið skrifsto-
fustjóri hjá
Kaupfélaginu, auk
þess að stunda eigin
rekstur um tírna.
Hann starfaði síðan í tvö ár
hjá Esso í Danmörku við
akstur olíubifreiðar um þvert
og endilangt Sjáland.
Hjálmar byrjaði hjá
Samvinnutryggingum í
Keflavík snemma árs 1972,
þá sem tryggingafulltmi, varð
síðan skrifstofustjóri
Samvinnubankans í Keflavík
og útibússtjóri 1978.
í nóvemberbyrjun
1992 hóf Hjálmar
störf sem
útibússtjóri
Landsbankans í
Sandgerði og hefur
hann gengt því starfi
allt
til dagsins í dag.
Hjálnrar lætur nú af störfum
vegna aldurs en hann verður
65 ára á árinu. Hjálmar hefur
verið farsæll í starfi og vel
liðinn af samstarfsfólki og
viðskiptamönnum bankans.
Síðasti vinnudagur Hjálmars í
útibúinu verður föstudagurinn
29.október.
Kökubasan Kvennakórsins
Kvennakór Suðurnesja
veröur með kökubasar á
planinu framan við
Stapann, þann 29. október
nk. Kórfélagar hvetja Suð-
urnesjafólk að koma og
stvðja við bakið á söng-
menningu á Suðurnesjum.
SpítuKallink
SMIÐJUVELLIR 3
SIMI 421 1416 • 899 0534
ÖLL NÝSMÍÐI
INNRÉTTINGAR
HÚ5CÖCN
EHF
Versti ósiöur upp-
kominna kynslóða!
Núna fyrir stuttu síðan lauk
viku sem bar heitið „Evrópa
gegn krabbameini%c, í henni
fólst átaksverkefni með það
að leiðarljósi að upplýsa ungt
fólk um reykingar og hættum-
ar sem að fylgja þeim. Það er
ekki af ástæðu lausu að svona
verkefni er hleypt af
stokkunum heldur brýnni
nauðsyn.
Það er með öllu óskiljanlegt
að í eins vel upplýstu
þjóðfélagi og ísland er, að það
skuli freista unglinga að frem-
ja hægt og rólega sjálfsmorð
með ávana sem ekki er einn
einasti tilgangur með og erfitt
er að losna undan.
Það að byrja að reykja er ekki
eitthvað sem að þú getur rétt-
lætt fyrir þeim sem að þykja
vænt um þig án þess að ljúga
og þá einnig með því að ljúga
að sjálfum þér. Það er nefnin-
lega þannig að í hvert skipti
sem að þú telur upp einhverja
kosti við það að reykja þá er
það ekkert annað en sjálfs-
blekking, því að innst inni
veist þú betur.
Skaðsemi reykinga ætti ekki
að þurfa að tyggja ofaní hálf-
fullorðið fólk með sífelldum
misskemmtilegum áróðri.
Með reynslu kynslóðanna
ættir þú að geta vegið og
metið hvað þú kýst frekar.
Reykingar eða heilsuleysi.
Eins og heilsuleysi væri ekki
nógu mikil ástæða til að byrja
ekki, þá er þetta ekki ódýr
ávani. Sígarettupakkinn er dýr
og hann verður bara dýrari
þegar fram líða stundir. Það
mun einnig kosta þig mikinn
pening að reyna að hætta því
að þær meðferðir sem f boði
eru kosta líka pening, svo
ekki sé minnst á allar þær
dýru og oft á tíðum sársauka-
fullu aðgerðir sem fylgja
krabbameini og öðrum
skjúkdómum sem eru
afleiðingar reykinga og
sjúkdómamir eru maigir.
Heilbrigt samfélag er mun
farsælla en óheilbrigt,
reykingarfólk er í flestum til-
fellum verri starfskraftur af
þeirri einföldu ástæðu að þau
reykja. Þau taka fleiri pásur,
eiga erfiðar með að einbeita
sér, verða oftar veik og vegna
hættulegra sjúkdóma eiga þau
oft styttri starfsaldur að ekki
sé talað um styttri aldur
almennt. Þegar öllu er á botn-
inn hvolft og litið er á kosti og
galla þá virðist þetta liggja í
augum uppi, ofan talið er ekki
eitthvað sem að þið hafið ekki
séð eða heyrt áður og þetta er
ekki eitthvað senr að erfitt er
að skilja.
Staðreyndin er sú að það er
mun auðveldara að byrja ekki
að reykja, heldur en að hætta
að reykja um það eru ógrynni
dæma. Ef þú byrjar að reykja
ert þú aðeins að lítilsvirða
sjálfan þig. Hvernig sem á
það er litið þá hafa reykingar
enga kosti umfram þá galla og
þann viðbjóð sem þeim fylgir.
Og það er synd ef að mest
upplýsta kynslóðin sem Island
hefur alið af sér ætlar að halda
uppi versta ósið fyrri
kynslóða.
Asgeir Helgi Jóhatmsson
22ára laganemi við HI
Helgarblað Víkurfrétta
- 32 siöur kjaftfullar af litríku lesefni...!
m
LEIKFEU6 KEFLflH
sýnir í Frumleikhúsinu
söngleikinn Oliver eftir Lionel Bart
Leikstjóri Pröstur Guðbjartsson
Tónlistarstjóri Einar Örn Einarsson
Frumsýning 30. október UPPSELT
2. sýning sunnudaginn
31. október kl. 17:00
3. sýning miðvikudaginn
3. nóvember kl. 20:00
4. sýning f immtudaginn
4. nóvember kl. 20:00
Miðasalan opnuð klukkutíma fyrir sýningu.
Miðapantanir í síma 421-2540. Miðaverð 1.000- kr. fyrir alla.
Árshátíð
Stangveiðifélags
Keflavíkur
Verdur haldin í KK. salnum vid
Vesturbraut, 6. nóvember kl.20.
Húsið opnar kl. 19 með fordrykk.
Glæsilegt kvöldverðarhlaðborð,
framreitt af Matarlyst. Hið víðfræga
happdrætti er á sínum stað. Mummi
Hermanns og Eva Ásrún leika fyrir
dansi, söngur, glens og grín. Ekki
missa af þessari frábæru skemmtun.
Fólk er vinsamlegast beðið að panta
miða ekki síðar en fimmtu-
daginn 4. nóvermber.
Miðasala fimmtudaginn 4. nóvemer
kl. 20-22 ísal S. V.F.K. Miðapantanir
í síma: Veiga 421 4757,
Guðrún Björk 421 4993, Óskar
421 4922, Ásdís 421 3449.
Víkurfréttir