Víkurfréttir - 09.03.2000, Qupperneq 9
Guðni Steinn Sveinlaugsson:
„Mérfinnst bara gaman í
vinnunni, en ekkert spes.
Mér finnst allt skemmtileg-
ast, mér er alveg sama hvað
ég geri. Ég er bestur í öllu
sem ég geri“, segir Guðni og
viðurkennir að það sé mjög
gott að vera svona hæfileika-
ríkur. Guðni segist gjarnan
heimsækja þá á löggustöð-
inni reglulega, þ.e. þegar
hann er í fríi, og stundum
kemur hann við á slökkvi-
liðsstöðinni.
umsjón með því verkefni.
Meginmarkmið Jíess er að allir
fatlaðir, sem hafa einhverja
möguleika að starfa á almenn-
um vinnumarkaði, fái tækifæri
til þess. Sigríður segir að fólk
þurfi mismikinn stuðning og
þess vegna sé mikilvægt að
velja starf við hæfi fyrir hvem
og einn. „Aður en einstaklingur
hefur störf á nýjum vinnustað
Viðhorf gagnvart
fötluðum
Sigríður segir að stór hluti af
starfi þeirra sé að breyta við-
horfum gagnvart fötluðum og
sýna fólki fram á getu jDeirra. „I
þessu samfélagi sem við búum
í gengur allt út á arðsemi og
það eru til atvinnurekendur
sem segja að þeir séu ekki að
reka neina samfélagsþjónustu.
Við erum að biðja um ákveðið
umburðarlyndi og að fólki gefi
eitthvað af sér í þetta verkefni,
því okkur finnst það skipta
vemlega miklu máli fyrir þetta
samfélag sem við búum í. Mín
skoðun er sú að þessi stóm fyr-
irtæki, sem stundum er talað
um sem óskaböm þjóðarinnar,
hafa mörg hver lítið sinnt því
að gefa fótluðu fólki tækifæri á
að sýna og sanna getu sína.“
Sigríði finnst líka sem fjölmiðl-
ar hafi margir hverjir horft
fram hjá því mikla starfi sem
verið er að byggja upp í kring-
um fatlaða. „Það mætti líta svo
á að fatlaðir einstaklingar væm
ekki nógu spennandi og mér
finnst umfjöllunin oft vera á
því plani að vera góður við lít-
ilmagnann. Við viljum hins
vegar auka hlut fatlaðra á þeir-
ra forsendum, þannig að þeir
njóti virðingar. Ekki að talað sé
um fatlaða sem annars flokks
eða að þeir séu undirmáls",
segir Sigríður ákveðin. Hún
viðurkennir þó að þau hafi
e.t.v. ekki verið nógu dugleg
við að kynna starfsemina en úr
Guðrún Jónsdóttir: „Mér finnst ekki gaman í vinnunni, bara
ágætt. Mér finnst skemmtilegast að líma saman pokana."
þurfum við að undirbúa at-
vinnurekendur og fá stuðnings-
aðila innan fyrirtækisins sem er
hinum fatlaða innan handar.
Þegar þessum undirbúningi er
lokið og viðkomandi hefur haf-
ið störf þá komum við í heim-
sókn eins oft og þörf er á en
það er algerlega einstaklings-
miðað hversu stuðningurinn er
rnikill", segir Sigríður og að-
spurð segir hún þetta verkefni
hafa gengið vel en það þurfi að
halda mjög vel utan um það.
Um þessar mundir sinnir
Svæðisskrifstofan eftirfylgd 6
fatlaðra starfsmanna á almenn-
um vinnumarkaði og hefur
samstarf við þau fyritæki geng-
ið mjög vel. Einnig má geta
jsess að Svæðisskrifstofa hefur
átt gott samstarf við Fjölbrauta-
skóla Suðumesja vegna starfs-
brautar fyrir fatlaða.
því á að bæta. „Ég hef rekið
mig á að það eru mjög margir
sem rugla okkur saman við
Þroskahjálp, en það eru hags-
munasamtök og starfssemi þar
ekki í beinum tengslum við
Svæðisskrifstofu."
Þróa eigin fram-
leiðslu
Hæfingarstöðin er um þessar
mundir að þróa eigin fram-
leiðslu, t.d. fallega trémuni sem
einstaklingar þar búa til sjálfir.
„Við leggjum mikinn metnað í
að j)essir munir séu fallegir og
með góðu handbragði því við
ætlum okkur að bjóða þá til
sölu. Við höfum svolítið vera
að prófa okkur áfram með end-
urvinnslu á pappír og þykjumst
vera orðin nokkuð góð í þvf‘,
segir Sigríður að lokum
9