Víkurfréttir - 30.03.2000, Page 14
Raðauglýsingar
síminn er 4214717
Háseti
Vanur háseti óskast á
200 tonna netabát.
Upplýsingar í síma 852 0328,
893 2690, 421 1920
Pfpulagnir
Pípulagningaþjónusta
Benna Jóns óskar eftir að ráða
menn til pípulagningastarfa.
Upplýsingar i síma 897 3815.
Verktaki óskast
Verktaki óskast til pökkunar á smávöru.
Unnið samkvæmt föstu einingaverði og
er um að ræða 4-8 stöðugildi eftir árstíma.
Húsnæði og aðstaða fyrir starfsmenn
til staðar en viðkomandi verður að
hafa bifreið til umráða.
Tilvalið fyrir samhent fólk.
Ahugasamir hafi samband í síma
421-4353 eða 421-7103.
Oríon pökkun ehf.
Sumarstarf
frá 15. maí - 1. september.
Spennandi og lifandi starf.
Erum aó leita að starfsmanni á
söluskrifstofu okkar í Keflavík.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í
feróamálum og hafi helst lATA-Uftaa próf.
Farió veróur meó allar umsóknir
sem trúnaóarmál.
Umsóknum skal skila á skrifstofu
okkar í Keflavík, í síóasta lagi
föstudaginn 7. apríl
merktar „Egill Olafsson"
Sam vinnuferðir
Landsýn
Hörkuleikir
framundan
segir Anna María Sveinsdóttir,
leikreyndasti leikmaður Keflavíkur
HwlM
IMi'
nrktaka
Róbert Trausti Arnason,
fyrrverandi sendiherra og
forsetaritari hefur verið
ráðinn forstjóri Keflavík-
urverktaka hf.Róbert var
valinn úr hópi átján umsæk-
jenda uni starf forstjóra
Keflavíkurverktaka hf.
Hann starfar nú sem forse-
taritari en hefur unnið mikið
fyrir utanríkisþjónustuna og
verið sendiherra. Róbert er
stjómmálafræðingur. Hann
tekur við starfinu fljótlega
en samningur hans er frá 1.
apríl.
Féll af húsþaki
Maður féll af húsþaki við
Hafnargötuna á mánudag og
hlaut höfuðáverka. Hann var
fluttur á sjúkrahús í
Reykjavík.
Maðurinn var að mæla fyrir
nýju þakjárni á húsi við
Hafnargötuna. Þakið var
blautt og virðist sem
maðurinn hafi runnið í bleyt-
unni og fallið 5-6 metra
niður á stéttina.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglu var maðurinn með
með meðvitund þegar að var
komið en talverða höfuð-
áverka.
Úrslitarimma KR og Keflavíkur
um Islandsmeistaratitilinn í
körfubolta kvenna hefst á
morgun, 31. mars, en það Iið sem
fyrr vinnur þrjá leiki hreppir
titilinn.
Keflavík hefur átta sinnum unnið
Islandsmeistaratitilinn síðan
1988, en sérstök úrslitakeppni
var fyrst haldin árið 1993 í fyrstu
deild kvenna.
Síðan þá hefur Keflavík sex
sinnum leikið til úrslita og þar af
fimm sinnum gegn KR, en einu
sinni gegn Breiðabliki. I úrslita-
rimmum Keflavikur og KR hefur
Keflavík unnið titilinn fjórum
sinnum, en KR aðeins einu sinni.
KR hefur unnið flesta
Islandsmeistaratitla frá upphafi ,
alls tíu en fyrst var leikið um
titilinn árið 1953. IR-ingarkoma
næstir með 9 titla og þá
Keflvíkingar með 8.
Anna María Sveinsdóttir, fyrir-
liði Keflavíkurliðsins hefur æft
körfubolta í átján ár og á þeim
tíma unnið alla átta fslandsmeist-
aratitlana með liðinu. „Úrslita-
rimman leggst mjög vel í mig.
Við erum búnar að undirbúa
okkur vel fyrir leikina, Christie
Cogley var fljót að komast inn í
leikkerfin okkar og er óðum að
komast í leikform. Við erum
ekki með neinar sérstakar áhersl-
ur fyrir leikina aðrar en þær að
einbeita okkur að okkar leik og
spila sem heild. Það hefur stund-
um komið fyrir að við séum að
spila hver í sínu homi í leikjum,
en það hefur að sjálfsögðu ekki
gefist vel. Ef við náum að stilla
saman strengina í úrslita-
leikjunum er ekkert sem við
þurfum að óttast. Á leikdag
ætlum við að reyna að halda
hópinn til að samstilla liðið.
Þá munum við borða saman og
hugsanlega horfa á mynd-
bandsspólu eða eitthvað slíkt“.
Erla Reynisdóttir, sem lék með
Keflavík 1998 þegar þær urðu
síðast íslandsmeistarar, er komin
heim frá Bandaríkjunum til að
taka þátt í úrslitarimmunni með
liðinu, en þar hefur hún verið við
nám sl. tvö ár.
„Það er mjög gott að fá Erlu
heim. Hún hefur verið að leika
vel með liðinu sínu úti og hefur
verið að bæta sig. Við lítum þó
ekki á hana sem einhvers konar
bjargvætt, heldur eykur það
breiddina í liðinu að fá hana
heim“, segir Anna María.
En hvemig telur Anna Mana að
úrslitin verði?
„Liðin eru mjög jöfn og því
reikna ég með að úrslit fáist ekki
fyrr en í fjórða eða fimmta leik.
Þetta verða hörkuleikir, en ég
vona að við tryggjum okkur
sigur í fjórða leik því sá leikur
verður hér heima".
Anna María hvetur sem flesta til
að mæta á úrslitaleikina og
styðja við bakið á Keflavíkur-
liðinu. „Strákamir féllu út í átta-
liða úrslitum og þvf erum við
eina von bæjarins til að ná heim
Islandsmeistaratitli í ár“, segir
Anna María.
Fyrsti leikurinn verður í
Frostaskjóli klukkan 20 annað
kvöld.
Kristníhátíð - 2000 á sunnudaginn
Kjalarnesprófastsdæmi
stendur fyrir hátíð í Reykja-
nesbæ 2. apríl nk. í tilefni
þúsund ára kristni á Islandi.
Hátíðin er samstarfsverkefni
sveitastjórna og sóknar-
nefnda á Suðurnesjum og
verður haldin í Reykjanes-
höllinni. Menningardagskrá-
in hefst kl.13:00 og stendur
til kl.l7:00.
Boðið verður upp á tónlist,
sýningar og fjölbreytt
skemmtiatriði svo að allir ættu
að geta skemmt sér vel og not-
ið dagsins með fjölskyldunni.
Tónlistarflutningur verður í
umsjá Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar, grunnskólabörn
verða með sýningu í tilefni
1000 ára kristni, félagar úr
KFUM og K sýna hökla, for-
seti Islands, hena Olafur Ragn-
ar Grímsson og kirkjumálaráð-
herra, Sólveig Pétursdóttir
flytja ávörp, Karlakór Kefla-
víkur flytur nokkur lög af al-
kunnri snilld og svo mætti
lengi telja. Kynnar á hátíðinni
verða Friðrik Friðriksson, leik-
ari og María Rut Reynisdóttir.
Hátíðarguðsþjónusta hefst kl.
14:30. Séra Gunnar Kristjáns-
son, prófastur, flytur upphafs-
orð og séra Sigurður Sigurðs-
son, vígslubiskup, predikar.
Grunnskólanemendur af Suð-
umesjum munu túlka guðspjall
dagsins með leikverkinu Guði
til dýrðar, undir stjóm Mörtu
Eiríksdóttur. Á meðan á guðs-
þjónustunni stendur mun sér-
stakt Barnateppi verða starf-
rækt í umsjá fagfólks með
bömum.
Hátíðargestum verður síðan
boðið upp á rjúkandi kaffi og
gómsæta tertu sér til hressingar.
Eldeyjarkórinn kemur þá fram
ásamt gestakór, nemendur
gmnnskólans í Sandgerði verða
með leikþátt og danssýningu
og félagar í Leikfélagi Kefla-
víkur troða upp.
„Kirkjusveifla" hefst kl. 20 í
félagsheimilinu Stapa og er
hún í höndum Iandsþekktra
tónlistarmanna frá Suðumesj-
um. Einnig koma fram Gospel-
systur og kór Keflavíkurkirkju.
Stjómandi er Einar Öm Einars-
son, organisti og söngstjóri
Keflavíkurkirkju. Herra Ólafur
Skúlason biskup og sr. Bjöm
Jónsson, fyrrverandi sóknar-
prestur verða heiðursgestir á
Kirkjusveiflunni.
Allir eru velkomnir á fjöl-
breytta fjölskylduhátíð.
14