Víkurfréttir - 30.03.2000, Page 10
Að vekja, kenna og virkja
Fermingarstörfín eru nú til
umræðu innan kirkjunnar.
Námskrá fermingarstarf-
anna kom út á vegum
Fræðsludeildar kirkjunnar á
síðasta ári og markmið þeir-
ra er að vekja, kenna og
virkja.
Þegar við tölum um að vekja er
átt við að vekja til vitundar um
trúarlífið, að lífið er gjöf og að
við höfum ekki skapað það
sjálf. Vekja þakklæti til Guðs,
gjafara allra góðra hluta, sem er
ávallt með í för hvert sem leið
okkar liggur. Við erum aldrei
ein á ferð. Það er yfir okkur
vakað.
Sumir hefðu eflaust viljað
skipta á sögninni að kenna og
setja sögnina að skemmta í
staðinn? Þannig að markmið
fermingarstarfanna væri að
vekja, skemmta og virkja, en
þannig er það nú ekki, þótt
fermingarstörfin geti vissulega
verið skemmtileg, eins og
dærni sanna. Vtð spyrjum oft í
upphafi fermingamndirbúnings
hverjar væntingar fermingar-
börnin hafi varðandi ferm-
ingarundirbúninginn. I eitt
skiptið var þeirri spurningu
svarað á þá leið hvort við prest-
amir yrðum skemmtilegir!
Að kenna merkir einfaldlega
að fræða um grundvallaratriði
kristinnar trúar. Við finnum
ekki fyrirmynd eða nákvæma
hliðstæðu fermingarinnar í
Nýja testamentinu, þó segir
Jesús lærisveinum sínum í
Mamma bakar
j arðaberj atertur
-segir Bryndís Brynjólfsdóttir sem fermist 20. apríl
Bryndís
Brynjólfsdótt-
ir fermist
þann 20. apríl
í Keflavíkur-
kirkju. Hún
hlakkar mikið
til þessa stóra
dags. Bryndís hefur alltaf
verið í sunnudagaskóla og
hún segist alltaf hafa trúað á
Guð. „Eg ætla að fermast
vegna þess að Guð skapaði
mig. Mér fínnst gjafirnar
ekki skipta miklu máli og ég
myndi örugglega láta ferma
mig þó að ég fengi hvorki
gjafir né veislu“, segir Bryn-
dís.
Bryndís segist vera búin að
bjóða fullt af fólki til veislu á
fermingardaginn, en hún verð-
ur haldin í Sjálfstæðishúsinu í
Njarðvík. „Frændfólk mitt og
vinir koma í veisluna og
mamma er byrjuð að baka fyrir
mig. Hún er núna að baka
jarðaberjatertur en ég hef aldrei
smakkað svoleiðis tertu“, segir
Bryndís og bætir við að það
verði sennilega brúnkökur á
boðstólnum fyrir litlu krakk-
ana.
Bryndísi finnst fermingar-
fræðslan hafa verið mjög
skemmtileg og fróðleg. „Mér
finnst ég hafa lært mjög mikið
og ég trúi enn meira á Guð nú,
en ég gerði áður.“
Presturinn
mætti tala minna!
-segir Helga Gunnólfsdóttir sem fermist 16. apríl
Helga Gunn-
ólfsdóttir
fermist 16.
apríl kl. I4 í
Kellvíkur-
kirkju. Ferm-
ingarveisla
Helgu verður
í Safnaðarheimilinum í Innri
Njarðvík. Þar verður boðið
uppá kökur og kaffi og Helga
segir ;ið fjölskyldan hjálpist
(ill að við undirbúninginn.
„Eg hlakka mikið til femiing-
arinnar, og er spennt að vita
Itvað égi'æ í fenningatgjöf‘,
segir Helga en tekur fram að
hún fennist nú ekki bara
vegna pakkanna heldur sé
hún líka að staðfesla skímina
og játa trú sína á Jesú Krist.
„Eg myndi ömgglega fennast
þó að ég fengi engar gjafir."
Finnst þér femiingarfræðslan
hal'a styrkt þig í trúnni?
„Já, eilthvað aðeins en ég
vissi samt llest áður. Aðuren
ég byrjaði í fenningarfræðsl-
unni þá fór ég einstöku sinn-
um í kirkju. Eg veit ekki
hvort ég fari oftar í kirkju eftir
fenningu, kannski ef það
verður tími til", segir Helga
en hún hefur mjög ákveðnar
skoðanir á messufonninu.
„Mér finnst að presturinn
niegi tala minna og lögin vera
skemmtilegri, allavega sunt."
skírnarskipuninni, „að kenna
mönnum að halda það sem
hann hefur boðið“ og þau um-
mæli hans hafa verið tekin sem
bein fyrirmæli um fermingu og
fermingarundirbúning. Að
kenna fermingarbörnum að
rækja bænalffið er afar mikil-
vægt og eitt besta veganesti
fyrir þau út í lífið.
Við höfum heyrt talað um að
virkja fossinn eða jarðhitann í
Svartsengi, en hér er átt við að
virkja krafta og áhuga ferming-
arbarna til þátttöku og starfa
innan kirkju og í þjónustuverk-
efnum hennar. Það þarf að
kalla þau til ábyrgðar gagnvart
Guði, náunganum og sköpun-
inni eða lffinu almennt.
Kirkjan á að spyrja sig að því
við aldarhvörf hvernig hún
ætlar að leiða ungu kynslóðina
inn f nýja öld? Það þarf að efla
trúarlegan, siðferðilegan og að
sjálfsögðu vitsmunalegan þros-
ka unglinganna og stuðla þan-
nig að alhliða mótun þeirra, án
þess að um einhliða áherslu á
kennisetningar sé að ræða. Al-
hliða persónumótun hefur illu
heilli verið vanrækt. Það þarf
að hjálpa unglingunum að
finna sig í lífinu og leyfa þeim
að bera fram þær spumingar
sem brenna á þeim við þær að-
stæður sem þeir em að takast á
við. Við fáum hreinskiptin svör
frá þeim um að það sé erfitt að
vera unglingur í dag. Síðast en
ekki síst þarf að kenna þeim að
velja og hafna.
En fermingarundirbúningur er
ekki bara kröfur. Æskufólk á
sinn málsvara í Jesú. Hann er
þeirra fyrirmynd og hjá honum
er fyrirgefningu að finna. Ungt
fólk þráir einfaldleika og sann-
leika, sem er fólginn í fólki og
lifuðu lífi og það er gaman að
geta þess að hópar æskufólks
sýna leiksýningar í tengslum
við kristnihátíðarhöldin um
þessar mundir. Þau leggja sjálf
til mála.
Fermingarböm þurfa ávallt að
njóta umhyggju safnaðarins,
þess safnaðar sem þau urðu
hluti af við skímina. Þar eiga
þau athvarf alla tíð. Það er þörf
á sjálfsgagnrýni kirkjunnar
þegar fermingarstörfin em tek-
in til endurskoðunar, þannig að
leitað sé lausna á vandamálum.
Fermingarundirbúningurinn
gefur kirkjunni einstakt tæki-
færi til þess að ná til æskunnar í
dag og það er hlutverk hennar
að hjálpa æskufólki að lifa
kristilegu lífi. Það gerist í söfn-
uðinum, við guðsþjónustur,
með uppfræðslu, viðræðum og
í æskulýðsstarfi, sem verður
aukið verulega í Keflavíkur-
sókn á komandi vetri. Það er
brýnt að hlú að líkama, sál og
anda æskufólks á íslandi, því
það er framtíð þjóðarinnar.
Markmið fermingarstarfanna er
að glæða þannig trúar- og sið-
gæðisvitund fermingarbarn-
anna og hjálpa þeim að lifa
sínu trúarlífi í því frjálsa samfé-
lagi sem kirkjan á að vera, án
þess að um sé að ræða nokkra
þvingun. Einnig er brýnt að
hjálpa þeim að feta sig áfram í
lífinu, kenna þeim að taka bæði
meðlæti og mótlæti, sem er ein
mikilvægasta lexía lífsins og
nýta hæfileika sina og þau
tækifæri sem bjóðast þeim
sjálfum til blessunar og Guði
til dýrðar.
Eg vil að lokum óska öllum
fermingarbörnum sem ganga
til fermingar árið 2000 innilega
til hamingju.
Séra Ólafur Oddur Jónsson
Fermingarfræðslan er góð
-segir Sævar Magnús sem fermist 9. apríl
Éjjjjjjjjjk lls i-'narjsson
ætlar að ferm-
ast til að stað-
festa skírnarheitið og segir
gjafirnar ekki vera aðal mál-
ið, þó að hann hafi svo sem
ekkert á móti þeim.
,Æg fermist kl. 11 um morgun-
innn og fer svo strax eftir at-
höfnina til ljósmyndara. Að
myndatöku lokinni förurn við
upp í Bláa lón þar sem veislan
verður haldin, en ég held veisl-
una með Sigurrós Osp, frænku
minni“, segir Sævar Magnús
og viðurkennir að hann hlakki
óskaplega mikið til.
Sævari finnst fermingarfræðsl-
an hafa verið mjög góð og seg-
ir að hún hafi staðfest þær hug-
myndir sem hann hafði um
trúna. „Yið fórum í fermingar-
ferðalag í Vatnaskóg í haust og
gistum eina nótt. Síðan fómm
við í bíó á myndina Englar al-
heimsins og borðuðum pizzu
saman", segir Sævar og það er
auðheyrt að hann er ánægður
með fermingarfræðsluna.
Sævar segist alltaf hafa farið í
sunnudagaskóla þegar hann var
lítill og eftir að hann varð eldri
hefur hann verið duglegur að
fara með yngri bróður sinn
þangað. „Uppáhalds orðin mín
úr Biblíunni em „Því að svo
elskaði Guð heiminn, að hann
gaf son sinn eingetinn, til þess
að hver sem á hann trúir glatist
ekki, heldur hafi eilíft líf (Jóh.
3:16).“
Lærdómsrík svik Júdasar
-segir Konráð Haraldsson sem fermist 20. apríl
Konráð Har-
uldsson fer-
mist í Kefla-
víkurkirkju
þann 20. apr-
fl. Hann
hlakkar mikið
til fermingar-
dagsins en hann segist vera
alinn upp í trú á Guð og Jesú
Krist.
„Þegar ég var lítill fór ég alltaf
í sunnudagaskólann en ég er
löngu hættur því. Mér finnst
ekkert voðalega gaman að fara
í kirkju því það er stundum
erfitt að skilja hvað presturinn
er að meina. Eg myndi vilja
hafa poppmessur oftar fyrir
krakka en ég myndi ömgglega
fara á þær“, segir Konráð.
Konráð viðurkennir að hann
yrði eflaust svolítið svekktur ef
hann fengi engar gjafir, en hon-
um finnst þær samt ekki skipta
öllu máli. „Eg er búin að bjóða
um 180 manns til veislu í KK-
húsinu á fermingardaginn. Við
verðum með mat lyrir gestina
og svo kaffi á eftir."
Konráði finnst fermingar-
fræðslan hafa styrkt sig í trúnni
og lærdómsríkasta sagan, að
hans áliti, er þegar Júdas sveik
Jesú. „Núna veit ég að ekki er
hægt að treysta öllum. Maður
heldur kannski að einhver sé
góður, en svo er hann bara
vondur. Uppáhaldsdæmisagan
mín er samt sagan um Jesú
þegar hann breytti einu brauði í
mörg og mettaði allt fólkið."
10