Víkurfréttir - 27.07.2000, Qupperneq 14
r
ERSTUÐIMIIMGURIIMIM?
Þetta er spurning sem gaman
væri að fá svar við. Nú í sumar
hefur aðsókn að leikjum
Keflavíkur verið mjög dræm hér
heima og veldur það mér mikl-
um vonbrigðum. Heimavöllur
með góða hvatningu er eitt það
sterkasta sem nokkuð félag
getur átt. í gegnum tíðina hafa
flest lið hræðst að koma til
Keflavíkur og var það ekki bara
vegna þess hversu gott lið við
höfðum á að skipa heldur vegna
áhorfenda sem studdu liðið
mjög vel. Er þetta búið? Hér um
árið þegar við spiluðum tvívegis
gegn IBV í bikarnum var
stuðningurinn það mikill að við
yfirgnæfðum adstæðingana. Já,
þá var gaman að vera
Keflvíkingur. Stuðningur á
útivöllum er oft meiri en heima
t.d gegn KR í Laugardal nú í
sumar enda unnum við. Næsti
heimaleikur Keflavíkur er ein-
mitt gegn ÍBV þann 3. ágúst og
þá gefst okkur tækifæri á að
sýna þeim að við höfum engu
gleymt og yfirgnæfum þá bæði
á áhorfendastæðum sem og á
leikvelli því að ég veit að
strákamir okkar eflast þegar þeir
heyra í ykkur góðir stuðnings-
menn. Keflavík leikur í átta-liða
úrslitum coca cola bikarsins
þann 12. ágúst og þar geta
stuðningsmenn hjálpað til við að
komast áfram og síðan áfram á
Laugardalsvöliinn í haust, því
að við vitum hversu skemmti-
legt er að spila til úrslita. Eg vil
hvetja foreldra barna í yngri
flokkum Keflavíkur til að fjöl-
menna á leiki því enginn veit
hvenær þeirra bam spilar í efstu
deild. Svona í lokin vil ég rifja
upp hversu gaman mér þótti að
sjá gömlu meistarana úr
Keflavík koma á völlinn nú í
vor og vildi ég gjarnan sjá
gamla leikmenn liðsins koma
oftar á völlinn.
Keflavík á tindinn
Einar Helgi Aðalbjörnsson.
Góður Reynissigur
Reynismenn unnu mikilvægan
sigur baráttunni um sæti í
úrslitum þriðju deildar karla í
knattspyrnu sl. föstudag þegar
þeir lögðu IH að velli í Sand-
gerði með 5 mörkum gegn 1.
Gestimir skorðuð eina mark fyrri
hálfleiks og voru yfir 1 -0 þegar
blásið var til þess síðari.
Reynismenn tóku heldur betur
við sér í seinni hálfleiknum og
skoruðu 5 mörk. Ari Gylfason
skoraði 3, Bjarki Dagsson 1 og
Guðmundur Skúlason I. A
síðustu mínútu leiksins varði
Eyþór Örn Haraldsson
varamarkvörður Reynis
vítaspymu á glæsilegan hátt.
Reynismenn sitja nú í öðru sæti
B-riðils þriðju deildar með 18
stig, jafnt og Haukar sem eru
með eins marks forystu í efsta
sætinu og eiga leik til góða.
Þrenna hjá Snorra
Njarðvíkingar eru nú með 7 stiga
forystu í A-riðli 3.deildar eftir 7-
0 sigur á liði Bruna, sem er í
öðru sæti riðilsins. Yfirburðir
Njarðvíkurliðsins voru algjörir
og sýndu þeir frábæra takta í
stórskemmtilegum leik sl. föstu-
dag. Snorri Már Jónsson kom
með frábærum hætti inn í liðið
og setti þrennu í sínum fyrsta
leik, Sævar Eyjólfsson skoraði 2
mörk, Óskar Haukson skoraði 1
og eitt markið var sjálfsmark.
Njarðvíkingar eru með 26 stig,
Bruni sem em í öðm sæti er með
19 stig , Fjölnir og HSH em jöfn
í þriðja sæti með 16. Nú fyrir
stuttu var Óskar Öm Hauksson
leikmaður mfl. Njarðvíkur valinn
í 16 ára landslið íslands sem
tekur þátt í Norðurlandamótinu.
Víðir í fjórða sæti
Víðir Garði er í fjórða sæti
annarrar deildar karla í knatt-
spymu með sautján stig að 10
umferðum loknum.
Víðismenn léku gegn Leikni,
sem er í 7. sæti deildarinnar sl.
fimmtudag og gerðu liðin jafn-
tefli 1-1. Mark Víðismanna skor-
aði Bergur Eggertsson. Fimm
gul spjöld fóm á loft í leiknum,
þar af þrjú til Víðismanna.
Tveir í landsliöinu
Tveir leikmenn af Suðumesjum
hafa verið valdir í íslenska
landsliðið sem mætir Möltu á
Laugardalsvelli í kvöld kl. 20.00.
Gunnleifur Gunnleifsson,
markvörður Keflvíkinga og Ólafur
Öm Bjamason frá Grindavík, em í
landsliðshópi Atla Eðvaldssonar að
þessu sinni. Ólafur Örn hefur
þrisvar sinnum áður verið í
íandsliðinu, en Gunnleifur er að
stíga sín fyrstu spor á þeim
vettvangi.
Gunnar efstur
Um síðustu helgi fór fram fjórða
stigamót sumarsins í torfæru og
gaf það stig bæði í Islands- og
heimsbikarmótunum.
Suðurnesjamaðurinn Gunnar
Gunnarsson, vann flokk götubfla
og er efstur að stigum á
Islandsmótinu, en deilir efsta
sætinu í heimsbikarmótinu með
Asgeiri Jamil Allanssyni.
Tveir aðrir Suðurnesjamenn
kepptu á mótinu um síðustu
helgi, en það eru þeir Páll
Antonsson og Gunnar
Asgeirsson og keppa þeir báðir í
flokki sérútbúinna bíla. Þeir
komust ekki á verðlaunapall en
enduðu um miðjan hóp.
Sundnámskeið
Sunddeildar Keflavíkur
Innritun á sundnámskeið SunddeildarKeflavíkur fer fram
31. júlí og 1. ágúst, kl. 17.00-19.00 í K-húsinu, Skólavegi 32 eh.
Kennt verður í Heiðarskóla.
Kennari: Ólafur Þór Gunnlaugsson.
Námskeiðið er 15 dagar og
Verð
14
Vís sigur Guðlaugs
á Sjóvá-Almennra mátinu
Hvert niótið hefur rekið annað
hjá Golfklúbbi Suðurnesja að
undanförnu. Hér konia úrslit
úr þremur síðustu.
Hjóna- og parakeppnin
Besta skor:
Þorsteinn Geirharðsson og Rut
Þorsteinsdóttir 83 högg
Úrslit m/ forgjöf
1 .Ingibjörg Bjamadóttir og Einar
Magnússon 71 högg
2. Ema Guðlaugsdóttir og Hjörtur
Kristjánsson 73 högg
3. Valdís Valgeirsdóttir og Rúnar
Valgeirsson 76 högg
4. Þorsteinn Geirharðsson og Rut
Þorsteinsdóttir 76 högg
5. Hafdís Ævarsdóttir og Pétur
Már Pétursson 76högg
Islandsbankamót 18. júlí
Karlar An forgjafar
1 .Davíð Jónsson 76 -
2Ævar Pétursson 80
3. ÞórhallurÓskarsson 84
Úrslit nieð forgjöf:
1. Ríkharður íbsen 69
2. Geirmundur Sigvaldason 75
3. Adolf Sveinsson 77
Konur - Besta skor -
yaldís Valgeirsdóttir 102 högg
Úrslit með forgjöf:
1. Helga Sveinsdóttir 69
2. Elín Gunnarsdóttir 72
3. Hulda Guðmundsdóttir 77
Unglingar Besta skor
Torfi S. Gíslason 78
Úrslit með forgjöf:
1. Þór Harðarson 69
2. Gunnar Þ. Ásgeirsson 72
3. Björgvin Sigmundsson 77
Sjóvá-Almennra mótið
Punktakeppni með forgjöf
1. Guðlaugur Guðlaugsson 42
2. Jón Skarphéðinsson 40
3. Davíð Öm Óskarsson 40
4. Ragnar Már Ámason 40
5. Einar Aðalbergsson 39
Guðlaugur H. Guð-
laugsson kom sá og
sigraði á Sjóvá-
Almennra stigamót-
inu hjá GS í tyrradag.
Fjölskylda Guðalaugs
hefur verið tengd VIS
tryggingafélaginu um
árabil og því þótti
sigur hans á Sjóvá- ^
Almennra mótinu . a
skemmtilegur. ™
Þrjár efstu í kvennaflokki í Íslandsbanka-FBA mótinu með
Sævari Péturssyni frá Íslandsbanka-FBA. F.v. Elin
Gunnarsdóttir, Helga Sveinsdóttir og Valdís Valgeirsdóttir.