Víkurfréttir - 18.01.2001, Qupperneq 9
Öflugur stuðningur
Undanfarnar vikur hef-
ur verið unnið mikið og
sterkt starf til að hvetja
til þess að flýta úrbótum tii ör-
yggis vegfarenda á Reykjanes-
braut. Þetta starf náði hámarki
með vel undirbúnum og gífur-
lega vel sóttum borgarafundi í
Stapa s.I. fimmtudagskvöld.
Góð skipulagning
Fundurinn var til mikils sóma
fundarboðendum sem eru undir-
búningshópur er unnið hefur að
þessu verkefni undanfamar vik-
ur. Ég vil sérstaklega færa þeim
þakkir og verðskuldað hrós fyrir
góða frammistöðu, ekki síst þeim
Steinþóri Jónssyni og Páli Ketils-
syni sem mér sýnist hafa borið
hitann og þungann af skipulags-
vinnunni, en líka öðmm sem
unnu svo glæsilega að marghátt-
uðum undirbúningi fundarins.
Markmið hópsins um að tvöföld-
un Reykjanesbrautar milli Hafn-
arfjarðar og Reykjanesbæjar og
um bætta umferðarmenningu eru
virðingarverð og tek ég eindregið
undir þau eins og fram kom í
máli mínu á fundinum og fyrr.
Innan gildandi vegaáætlun
Það er afskaplega ánægjulegt að
fá slíkar undirtektir við mál sem
maður hefur beitt sér fyrir um
árabil. Það er ljóst af ummælum
þeirra sem ávörpuðu fundinn og
svöruðu
spuming-
um fundar-
manna að
þingmenn
kjördæmis-
ins eru
samtaka
um að flýtt
Árni Ragnar ^erði tvö-
Árnason þingmaður ,ö l'un.
brautarinn-
ar og undir það taka samgöngu-
ráðhenra og formaður samgöngu-
nefndar Alþingis.
Þingmenn hafa allt frá 1987 flutt
tillögur á Alþingi um tvöföldun
brautarinnar, síðast allir þing-
menn kjördæmisins saman. Hún
lá fyrir Alþingi jxigar þáverandi
samgönguráðherra lagði fram til-
lögu til þingsályktunar um lang-
tímavegáætlun þar sem gert var
ráð fyrir tvöföldun Reykjanes-
brautar. Hún var samþykkt með
ályktun Alþingis 1998 um lang-
tímavegáætlun. Fyrstu áfangar
þessa verks eru á vegáætlun
2000-2004 sem var samþykkt á
Alþingi á s.L vori, og allir þekkja
nú álit samgöngunefndar um
væntanlegan framgang verksins
alls með vegáætlun 2002-2006
sem verður umfjöllunarefni Al-
þingis næsta vetur. Helsta atriði
sem lagt er til grundvallar því að
flýta framkvæmd er að verkið sé
allt innan gildandi vegáætlunar.
Hún er framkvæmdaáætlun og
hefur meira vægi en langtfma-
vegáætlun sem er stefnumótandi.
Öruggir um framgang
Eftir þennan stórkostlega fund
em menn væntanlega ömggir um
framgang verksins. Um mögu-
leika á hraðri framkvæmd er ljóst
að þingmenn hafa mismunandi,
jafn vel misvísandi upplýsingar
ffá verktakafyrirtækjum og verk-
fræðingum sem starfa við fram-
kvæmdir af þessu tagi. Þessi
óvissa er skiljanleg því útboðs-
gögn og aðrar kröfur um fram-
kvæmd verksins liggja ekki fyrir
fyrr en síðar.
Heildarframleiðni mikil
Vegna |x;ssa hafði ég kynnt mér
nokkra þætti sem nefndir hafa
verið. Heildarframleiðni í verk-
um af þessu tagi er nú mjög mik-
il. Þær stórframkvæmdir sem nú
er unnið að komast á lokastig á
næstu misserum og þá losnar um
um mikla framleiðslugetu. Þó
umhverfismat verði kært virðist
það ekki tefja verkið nema um
fáeinar vikur sem nýtast þó til að
annar undirbúningur haldi áfram.
Um líkur á töfum af þessum
ástæðum verður að nefha að tvö-
földun mun liggja nálægt núver-
andi vegarstæði lengst af leiðinni
og hlýtur því að verða innan
helgunarsvæðis hans.
ítarleg umfjöllun um borgarafundinn í Stapa á www.vf.is
Fjármagn ervandamálið
Helsti þröskuldurinn eru ákvæði
um ríkisfjármál, sem tiltaka und-
anbragðalaust að ríkisfram-
kvæmd er skuld ríkissjóðs frá því
ári sem hún fer fram. Éngu breyt-
ir um það hvemig eða hvaðan
fjármagnið er fengið. Vegur í
einkaeigu, sbr. Hvalfjarðargöngin
eru ekki sambærileg hvað jretta
varðar við þær vegaffamkvæmd-
ir sem ríkið annast. Suðumesja-
menn hafa ævinlega mótmælt
vegtolli kröftuglega, og það úti-
lokar einkaframkvæmd nú enda
mundi hún ekki flýta verkinu.
Ríkisfjármál eru svo áhrifamikil í
efnahagsmálum að stjómmála-
menn eru afar varfæmir í að auka
skuldir ríkissjóðs, enda dregur
það úr framkvæmdagetu þar á
eftir.
Varfærnir þingmenn
Þessi atriði valda því að flestir
aðrir þingmenn og ráðherrar
svömðu fundarmönnum af þeirri
varfæmi sem raun var. Það breyt-
ir því ekki að svör þeirra bám
vitni um hug þeirra og vilja, sem
fyrr sagði.
Niðurstaða borgararafundarins í
Stapa s.l. fimmtudagskvöld er sú
að tvöföldun Reykjanesbrautar
milli Hafnarfjarðar og Reykja-
nesbæjar verður flýtt. Ég þakka
undirtektir við tvöföldun Reykja-
nesbrautar. Hún er mikið þjóð-
þrifamál sem fylgja þarf eftir.
Arni Ragnar Arnason,
þingmaður (D)
MeiRIHRTTRR
VeTRARÚTSALfl
JflKKflFÖT FRfl
KR. I5.9OO,-
JflKKflR FRfl
KR . 5000,-
BUXUfl FRfl
KR. 3.99O,-
SKYRTUfl FRfl
Túngötu 18 • Sími 421 5099
Opið laugardaga kl. 11-13
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
9