Víkurfréttir - 18.01.2001, Page 11
BORGARAFUNDUR UM REYKJANESBRAUTINA:
i
I
Samgönguráðherra á borgarafundinum í Stapa:
Gætum haflð fram-
kvæmdir á næsta ári
Sturla Buðvarsson, sam-
gönguráðherra var
fyrstur á mælendaskrá.
Hann sagðist ckki geta gefið
nákvæmar tímasetningar um
upphaf og lok verksins, en
nefndi að ef allt færi að ósk-
um gæti verkhönnun hafíst í
lok þess árs eða byrjun árs
2002.
ViQamikil! undirbúningstími
Sturla útskýrði það ferli sem
yrði að fara frani áður en að
tvöföldun kæmi og lagði
áherslu á að undirbúningstími
slíkrar framkvæmdar væri viða-
mikill. Niðurstaða Skipulags-
stofnunar á að liggja fyrir í
þessum mánuði og matsskýrsl-
an í febrúar. Almenningur getur
komið með athugasemdir varð-
andi skýrsluna fram til apríl en
endanlegur úrskurður Skipu-
lagsstofnunar ætti þá að vera
kominn í maí á þessu ári.
Mögulegur úrskurður umhverf-
isráðherra gæti legið fyrir í
ágúst.
„Ef allt fer að óskum gæti verk-
hönnun hafist í lok þess árs eða
byrjun árs 2002. Verkið verður
boðið út á evrópska efnahags-
svæðinu og upphaf fram-
kvæmda gæti orðið 2002 en ég
get ekki gefið nákvæmar tíma-
setningar á þessu stigi", sagði
Sturla.
Vantar enn tæpa 2 milljarða
Sturla nefndi nokkrar tölur um
kostnað í sambandi við leiðina
frá Hafnarfirði að Fitjum í
Njarðvík, en vegalengdin sem
um ræðir er 24 km. Kostnaður
við tvöföldun á þcssum vegar-
kafla er 2,3 milljarðar króna en
til að dæmið gangi upp þá vant-
ar enn 1,7 milljarð króna að
sögn Sturlu.
Samgönguráðherra benti einnig
á að mikilvægt væri að bæta
umferðannenninguna, ef slysa-
tíðni ætti að lækka. „Almenn
löggæsla á Brautinni hefur j>eg-
ar verið stóraukin og við ætlum
okkur að auka öryggisgæslu á
meginþjóðvegum landsins.
Einnig verður eftirlit með
hraðakstri hert en ég tel að hægt
sé að draga úr ökuhraða, jafnvel
lækka löglegan hraða úr 90
km/klst í 80 km/klst.“
Verktakar fengu óvæntan liðsauka
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra fékk for-
láta skóflu afhenda í lok
fundarins, sem var að sögn
ætluð til að nota við fyrstu
skóflustunguna að tvöföldun
Reykjanesbrautarinnar.
Tvær skóflustungur
Það var Steinþór Jónsson sem af-
henti Sturlu skófluna með eftir-
farandi orðum:
„Ég vil biðja samgönguráðherra,
Sturlu Böðvarsson, að veita þess-
ari skóflu viðtöku í þeirri von að
hún megi nýtast sem fyrst við
fyrstu skóflustunguna við tvö-
földun Reykjanesbrautar. Fyrir
hönd borgarafundarins - gjörðu
svo vel. Eg vona við að þú takir
við það tækifæri vel á því - tvær
skóflustungur í það minnsta -
þörfin er mikil."
Magnað áhald
Fundargestir klöppuðu ákaft þeg-
ar Steinþór hafði lokið málið
sínu. Sturla þakkaði fyrir magnað
áhald og sagði að verktökum
hefði hér með bæst mikill liðs-
Steinþór afhendir Sturlu áletraða og krómaða skóflu til að taka
fyrstu skóflustunguna við tvöföldunina.
auki. Vöktu þessi orð samgöngu-
ráðherra talsverða kátínu. „Ég er
reiðubúinn til að taka á móti for-
svarsmönnum áhugahóps um
tvöföldun Brautarinnar 22. janú-
ar en þann dag opnast einmitt til-
boð í mislæg gatnamót við Ný-
býlaveg, Breiðholtsbraut og
Reykjanesbraut. Sá hluti er
kostnaðarsamasti áfanginn á
þessari leið. Ég þakka fyrir gjöf-
ina og verið velkomin 22. janú-
ar“, sagði Sturla.
Þess má geta að blaðamaður VF
mætti Sturlu á ganginum að
fundi loknum og hélt hann þá
enn sem fastast um skófluna
sína.
Sameinaðir stöndum vér
- sundraðir föllum vér
Kœru Suðumesjamerm,
il hamingju nieð borg-
arafundinn í Stapa
þann 11. janúar s.l.
Fyrstu orðin sem komu upp í
hugann eftir fundinn er sam-
heidni og þakklæti en sam-
kvæmt okkar upplýsingum var
hér um að ræða einn stærsta
borgarafund fyrr og síðar og
þurftu margir frá að hverfa.
Þaö eitt og sér styður málefnið
gríðarlega og sýnir einstakan
samhug okkar Suðurnesja-
manna þcgará þarf að halda.
Sérstakar þakkir sendum við til
allra fundargesta sem svo vel
studdu ályktun fundarins. Vilji
ráðamanna til framgangs álykt-
unar fundarins er mikill, það er
Ijóst af góðum viðbrögðum eftir
fundinn. Okkar bestu þakkir
sendum við Sigmundi Emi fyrir
frábæra fundarstjóm og Páli Ket-
ilssyni og starfsfólki hans á Vík-
urfréttum fyrir fagmannlega að-
stoð. Skipulag fundarins og ann-
ar undirbúningur gekk vonum
framar og færi ég kraftmiklum
undirbúningshóp mínar bestu
hamingjuóskir og þakkir fyrir
frábæran árangur.
Kæru Suðumesjamenn, nú þarf
að halda vöku sinni því stórt
skref hefur vissulega náðst með
samstöðu fundarins en rnálinu
þarf að fylgja vel eftir. A næstu
vikum mun áhugahópurinn halda
fundi með samgöngu ráðherra og
þingmönnum en samhliða því
vinna að bættri umferðarmenn-
ingu á Reykjanesbraut. Til að
minna á ábyrgð ökumanna mun
hópurinn m.a. í samstarfi við lög-
regluyfirvöld dreifa, í næstu
viku, eitt þúsund „bílabænum"
sem minna á ábyrgð okkar öku-
manna.
Anægjulegt var að sjá alla sýslu-
menn svæðisins á fundinum en
þeirra bíður stórt verkefni í eftir-
litsskyldu sinni á Reykjanesbraut
meðan núverandi ástand varir og
mun áhugahópurinn fylgjast vel
með því starfi og greina frá ár-
angri þegar frá líður. Nú er mikil-
vægt að allir Ieggist á eitt um að
stuðla að bættri umferð á
Reykjanesbraut.
Lifið heil.
F.h. áhugamanna um öragga
Reykjanesbraut,
Steinþór Jónsson.
Fylgjum samstððunni eftir
Kærar þakkir til þeirra ljölmörgu Suðurnesjamanna og
annarra sem lögðu Brautinni lið með því að mæta á Borg-
arafundinn sem haldinn var 11. janúar 2001. Fyrirtækj-
um og einstakiingum ber sérstaklcga að þakka sem stuðluðu að
því að gera fundinn jafn glæsilcgan og raun bar vitni. Leitt var
hvað margir þurftu frá að hverfa þar sem húsfyiiir var. Ánægju-
legt var að heyra samstöðu þingmanna og þann skilning sem þeir
sýndu máiinu um flýtingu á tvöföldun Reykjanesbrautar. Nú er
ljóst að útboð á framkvæmdum verður í byrjun ársins 2002 og
leggjum við ríka áhersiu á að dagsctning liggi fyrir sem fyrst. Or-
ustan er vonandi unnin en stríðinu er ekki lokið.
DV sker sig úr
Umfjöllun flestra fjölmiðla um nauðsyn þess að flýta tvöföldun
Reykjanesbrautar hefur verið til fyrirmyndar, enda um háalvarlegt mál
að ræða og óþarfi að tíunda það frekar í jressari grein. Eigi þeir þakkir
fyrir málefnalegan fréttaflutning. Einn fjölmiðill sker sig þó nokkuð úr
í þessu máli og er dapurlegt til þess að vita.
I DV 11. janúar 2001 er pistill sem nefnist Dagfari. Pistilhöfundur sem
jafnan nærist á því að hæðast að og gera lítið úr mönnum og málefn-
um. Hikar sami höfundur ekki við að dæma heilu byggðarlögin á
sömu forsendum. Segir það ef til vill meira um andlegt atgervi jtess er
á heldur en málefnið hverju sinni.
Pistilhöfundur ríður ekki við einteyming því í DV 13. janúar 2001 er
málinu fylgt eftir í Sandkomi. Það er aumkunarvert til þess að vita að
dálkahöfundar DV skuli finna sig knúna til þess að leggjast á árar með
olíufélagi, fremur en að vinna að hagsmunum fjöldans og má þá einu
gilda um hvar þeir búa.
Sú var tíðin að DV barðist gegn hverskonar niðurgreiðslum. Hvað ol-
íuflutningana sjálfa varðar, þá vill svo óheppilega til að sömu aðaleig-
endur eru að olíufélaginu sem mest á í hlut og flugfélaginu sem mest
kaupir af umræddu eldsneyti. Getur það hugsanlega verið skýringin á
áhugaleysinu um úrbætur vegna olíuflutningana?
Flýting á tvöföldun Reykjanesbrautar snýst ekki um olíuflutninga, hún
snýst um að bjarga mannslífum og fækka alverlegum slysum. Ég
skora því á DV að fjalla urn Reykjanesbrautina á ábyrgan hátt, fjöl-
margir eiga um sárt að binda vegna þeirra hörmulegu slysa, sem átt
hafa sér stað á einfaldri Reykjanesbraut. Alvarlegustu slysin má rekja
beint til jrcss að umferð er í gagnstæðar áttir á einfaldri Reykjanes-
braut.
Sturlaugur Helgi
ítarlegri umfjöllun um borgarafundinn á www.vf.is
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
11