Víkurfréttir - 18.01.2001, Qupperneq 15
Svart 03 sykurlaust
Nektardans á nærfötum
Aðdáendur nektardans hafa
verið í fúlu skapi frá áramót-
um þar sem
hinn sívinsæli
skemmtistaður
Casino, er ekki
lengur með leyfi
fyrir nektardans-
s ý n i n g u m .
Dansararnir fara reyndar á
sviðið og dansa eggjandi fyrir
gesti staðarins, en gæta þess
þó að halda fast í nærfötin sín,
sem eru svo sem bara pjötlur
sem ekkert hylja. En pjatla er
pjatla...
Hlynurféll átíma
Ástæða þess að Casino hefur
ekki lengur leyft fyrir nektar-
dansi er sú að
lögum um
skemmtistaði
var breytt sl.
vor. Þá var bætt
við flokkum og
þeir skilgreindir
mjög nákvæmlega. Staðir eins
og Casino flokkast nú sem
næturklúbbar og þeir em skil-
greindir sem staðir þar sem
áhersla er lögð á áfengisveit-
ingar og nektardanssýningar.
Hlynur, rekstraraðili staðarins,
fékk sjö mánaða frest til að
afla sér tilskilinna leyfa til að
endumýja rekstrarleyfið, en
féll á tíma. Hann er því bara
með venjulegt skemmtana-
leyfi og stelpunum hans því
óheimilt að stíga á stokk og
rífa sig úr hverri spjör.
Hvað með einkadansa?
Hlynur setti undir sig hausinn
á milli jóla og nýárs og sótti
loksins um leyfi
fyrir nætur-
klúbbi. Hann er
búinn að fá um-
sagnir eldvama,
heilbrigðis- og
vinnueftirlits en
bæjarstjórn á eftir að taka
málið fyrir. Þangað til verða
aðdáendur nektardans að
borga fyrir einkadansa sem
fara fram í bakherbergjum
hússins, svokölluðu VIP her-
bergi.
„Næturklobbar"
Nokkur umræða hefur skapast
um klám á íslandi og sitt sýn-
ist hverjum.
Sumir vilja
banna klám en
aðrir vilja algert
frelsi í þessum
efnum, líkt og
frændur okkar
Danir hafa nú. Lögfróðir
menn og konur hafa þó bent á
að klám er þegar bannað með
lögum og hafa sú lög verið í
gildi á íslandi í áratugi. Sá
galli er þó á gjöf Njarðar að
nákvæma skilgreiningu á
klámi vantar. Flokkast það t.d.
sem klám þegar ungar stúlkur
fara á upplýst svið, fara þar úr
öllum fötunum og afhjúpa
kynfæri sín? Ef svarað er ját-
andi, þá rekast lög um nektar-
dansstaði og klám augsýni-
lega á.
Líkhúsið
Þorsteinn Ámason, formaður
stjómar Hafnarsamlags Suð-
urnesja og eldheitur fram-
sóknarmaður, gerði bæjarfull-
trúum grein fyrir stöðu hafn-
armála á bæjarstjómarfundi í
vikunni. Hann viðurkenndi að
staðan væri ekki góð en
stjómin ynni hörðum höndum
að því að leysa hnútana. Það
sem gerði þeim þó erfitt fyrir
væri áhugaleysi utanríkisráðu-
neytisins, og átti hann þá við
seinagang þess í sambandi við
Helguvíkurmálið. Þorsteinn er
hugrakkur maður og sannaði
hann það á bæjarstjómarfund-
inum með því að bera ráðu-
neytið saman við líkhús. Hvað
ætli formaður Steina, háttvirt-
ur utanríkisráðherra Halldór
Ásgrímsson, segi þegar hann
fær þessar fréttir??
Fj ölbrautaskóli
Suðumesja
Innritun á
vorönn 2001
Áður auglýstur umsóknarfrestur vegna
vorannar 2001 er framlengdur til
19. janúar. Kennsla á vörönn hefst
miðvikudaginn 7. febrúar en
töfluafhending er þriðjudaginn
6. febrúar ffá kl. 10 til 14.
Nánari upplýsingar eru gefnar á
skrifstofu skólans og þar er jafnframt
hægt að panta viðtal við námsráðgjafa.
Síminn á skrifstofunni er 421 3100.
Skólameistari.
mmmmmrni
nWSt fJ¥: i--i
takYSFK félaga
og Stúdíó Huldu
VerkaLýós- og sjómannaféLag KefLavíkur og nágrennis
og Stúdíó HuLdu hafa gert meó sér saming um
heiLsuátak féLagsmanna í VerkaLýós- og sjómannaféLagi
KefLavíkur og nágrennis.
FéLagsmenn fá 27% afsLátt á árs- og háLfsárskortum
frá giLdandi gjaLdskrá í Stúdíó HuLdu gegn framvísun
féLagsskírteinis í VSFK árið 2001.
f Slúdíi \Y >
vHuldu/lv ,
-staðumn fyrir W
Verkalýðs- og
sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
1S