Víkurfréttir - 18.01.2001, Síða 16
Spurning dagsins:
Borðar þú þorramat?
Bergþóra Jóhannsdóttir:
Já, ég borða þorramat. Sviða-
sultan og hrútspungamir eru
bestir.
Elín Halldóra
Hermannsdóttir:
Nei, ég er svo matvönd.
Góður afli
hjá línu-
bátum
Smábátar frá Sandgerði
hafa verið að fá um þrjú
tonn af góðum þorski í
róðri, miðað við báta mcð 24
línubala, að sögn Reinhards
Svavarssonar á Funa GK frá
Sandgerði. Hann segir fiskinn
vera alls staðar og litlu máli
skipta hvar línan er lögð. Afli
hefur verið góður frá því um
jól.
Margir smábátar eru gerðir út til
línuveiða frá Sandgerði og að
auki hafa nokkrir bátar frá
Grindavík róið út með línu frá
Sandgerði í vetur. „Það virðist
vera nóg af þorski, þótt hann
skili sér enn sem komið er illa í
net og dragnót. Menn hafa einnig
verið að veiða ýsu á línuna en þá
þurfa þeir að vera utar“, segir
Reinhard og upplýsir að mest af
afla bátanna hafi verið selt á fisk-
mörkuðum. Þar hefur himinhátt
verð fengist fyrir þorsk og ýsu í
vetur og verðið hefur ekki lækk-
að að ráði þótt aflinn hafi heldur
glæðst á nýja árinu.
Hellsuátak VSFK og Studio Huldu
Verkalýðs- og sjómannafélag Kefla-
víkur og nágrennis og Studíó Huldu
hafa gert með sér saming unt heilsu-
átak félagsmanna í Verkalýðs- og sjómanna-
félagi Keflavíkur og nágrennis.
Félagsmenn fá 27% afslátt á árs- og hálfsárskort-
um frá gildandi gjaldskrá í Studíó Huldu gegn
framvísun félagsskírteinis íVSFK árið 2001.
Forráðamenn VSFK og Studeo Huldu undir-
rituðu samninginn í húsnæði líkamsrækt-
arstöðvarinnar í dag. Kristján Gunnarsson,
ffamkvæmdastjóri félagsins sagði að 2600 félag-
ar gætu nýtt sér þetta góða tilboð en félagar í
VSFK spara sér um 9800 kr. við kaup á árskorti í
Studíó Huldu. „Þetta er ákall og hvatning til
félagsins um að gera góða hluti fyrir sjálfan sig á
nýrri öld“, sagði Kristján.
Sólargeisli í myrkrinu
Alma Alexandersdóttir:
Ég borða engan súrmat en mér
fmnst ósúr þorramatur mjög
góður, t.d. sviðasulta, hangi-
kjöt, síld o.fl.
Jón Ólafsson:
Ég geri lítið af því að borða
þorramat en frnnst hann þó
góður. Ég er hjartasjúklingur
og má ekki borða mikið súrt
eða salt. Hangikjöt, svið og
rófustappa eru í uppáhaldi hjá
mér.
Viðar Þórisson:
Já, já. Mér fínnst eiginlega all-
ur þorramatur góður en súr
sviðasulta finnst mér best.
Sú samstaða sem kom
berlega í ljós á borg-
arafundinum þann 11.
janúar sl., var eins og sólar-
geisli sem lýsir í myrkrinu.
Suðumesjamenn fengu að vita
hvernig málurn Reykjanes-
brautarinnar verður háttað í
framtíðinni. Hún verður tvö-
földuð og því fyrr því betra. En
þangað til verðum við sem not-
um Brautina, að vera þolinmóð
og aka með tillitssemi. Það er
ekki alltaf allt öðmm að kenna
þegar eitthvað fer úrskeiðis,
slysin gerast nefnilega þegar
maður á síst von og skuggamir
sem fylgja sorginni em margir
og langir sem tengjast þessum
vegi.
Nú er komið að okkur sem vilj-
um upplifa betri umferðar-
menningu á Brautinni, látum
vita ef farartæki em skilin eftir
í köntunum svo að það sé hægt
að fjarlægja þau. Axlimar eru
stórhættulegar þegar allt í einu
birtist farartæki sem jafnvel
skagar út á Brautina. Tilkynn-
um lögreglu ef glannaakstur er
á Brautinni, jafnvel þegar bif-
reiðar fara of hægt. Stuðlum að
bættri umferðamienningu með
því að sýna samstöðu eins og
kom fram á fundinum.
Styðjum við bakið á þessum
frábæra hópi áhugafólks um
tvöföldun Reykjanesbrautar-
innar, jjetta var lofsvert framtak
sem á að vera okkur hvatning
til að gera betur í dag en í gær.
Suðumesjamenn, til hamingju
með þennan merka áfanga um
gildi þess að standa saman.
Samstöðukveðja,
Tómas J. Knútsson
Auglýsingasíminn
er 421 4717
)
_r
2DD POríÁ'ÁrL-lJJOÖ.,
eccd 30%
afsláttur
SKÓBÚÐIN KeFLAVÍK
Hafnargötu 35 - Sími 421-1230
16